Morgunblaðið - 01.09.1999, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 D 15
ALÞJÓÐLEGI hafréttardómurinn
kvað upp dóm í máli Ástrala og Ný-
Sjálendinga gegn Japönum í gær.
Þeir fyrrnefndu kærðu þá síðar-
nefndu fyrir veiðar í rannsóknar-
skyni á túnfisktegundinni bláugga í
Suðurhöfum. Meginniðurstöður
dómsins eru að ríkin skulu veiða
samkvæmt þeim kvóta sem þau
sömdu síðast um, afli úr rannsóknar-
veiðum Japana skal falla undir kvóta
þessa árs eða næsta.
Ríkjunum þremur er óheimilt að
stunda veiðar í rannsóknarskyni án
samþykkis allra ríkjanna nema afl-
inn tilheyri kvótanum. Ennfremur
kveður dómurinn á um að ríkin skuli
halda áfram samningaviðræðum um
verndun bláuggans og stjórnun veiða
á honum.
Bláuggi var eitt sinn stór stofn en
stærð hans er í dag talin vera um
Pan Fish
stækkar enn
• Norska fyrirtækið Pan Fish
Sales, sem er stærsta fyrir-
tækið í laxeldi í Norður-Amer-
íku, hefur enn frekar stækkað
við sig. Fyrirtækið er nú orðið
einrátt í laxeldi í Washington-
fylki eftir að það keypti fyrir-
tækið Northwest Seafarms.
En ekki er víst hversu lengi
fyrirtækið heldur stöðu sinni
því samkeppnisaðili þess, Stolt
Sea Farms Canada, hefur gert
tilhoð í fyrirtækið
International Aqua Foods. Ef
samkomulag næst verður Stolt
stærst í laxeldi í Norður-Am-
eríku.
Laxeldi hefur aukist mikið í
Kanada undanfarin ár. Fyrir-
tækjum í greininni fjölgaði
eftir að nefnd um umhverfis-
mál skipuð af stjórnvöldum
ályktaði um að umhverfinu
stafaði ekki hætta af laxeldi.
Gegnum árin hefúr laxeldi í
landinu verið sveiflukennt.
Fyrirtæki hafa oft á tíðum far-
ið unnvörpum á hausinn. I dag
er þó ástandið betra því færri
og stærri fyrirtæki stunda eld-
ið.
Uppgangur
í útvegi á
Nýja-Sjálandi
• Búist er við methagnaði á
rekstri sjávarútvegsfyrir-
tækja í Nýja Sjálandi í ár. Af-
ar hagstæðar aðstæður hafa
skapast kringum útveginn
vegna gengislækkunar og
verðhækkunar á afurðum.
Sjávarútvegur er fjórða
stærsta útflutningsgrein
landsins. í fyrra nam velta
hans um 620 milljónum
bandarfkjadala en það var
13% meira en í fyrra. Dæmi
eru um að nýsjálensk fyrir-
tæki hafi tvöfaldað hagnað
sinn milli ára.
Sórfræðingar telja að þetta
ástand eigi eftir að haldast
áfram. Telja þeir að verð-
lækkun muni ekki eiga sér
stað á næstunni - meðal ann-
ars vegna minni afla í norður-
höfum. Sérfræðingar segja að
ef gengið haldi áfram að
lækka muni ris nýsjálensks
útvegs verða mikið á næstu
árum.
Tilraunaveiðar á
„bláugga“ bannaðar
2-5% af því sem hann var um miðja
öldina. Dómurinn tiltók að ekki er
ósamkomulag um að gengið hefur
verið verulega á stofn bláuggans og
einnig að það vantar talsverðar upp-
lýsingar inn í stofnmat.
Astralir og Ný-Sjálendingar hafa
hins vegar mótmælt einhliða rann-
sóknarveiðum Japana. Þær hófust í
júní í ár og gerðu Astralir og Ný-
Sjálendingar athugasemdir vegna
þess að afli þeirra, um 2.000 tonn,
fellur fyrir utan þann kvóta sem rík-
in gerðu samkomulag um fyrir um
tíu árum og kveður á um 11.500
tonna kvóta, sem skiptist þannig að
Japanir veiði um 6.000 tonn, Astralir
um 5.000 tonn og Ný-Sjálendingar
um 500 tonn.
Dómurinn vekur athygli
Guðmundur Eiríksson, sem á sæti
í Alþjóða hafréttardómnum, segir
dóminn hafa vakið athygli „Það er
mikill áhugi á þessum dómi víða um
heim vegna þess að við tökum á um-
hverfisþáttum í honum, tökum á
stofni sem er í hættu. Einnig tekur
hann á samningaviðræðum sem hafa
siglt í strand. Þessi deilumál eru sí-
gild í sambandi við stofn sem gengur
milli hafsvæða. Almennt fannst okk-
ur mikilvægt að koma lagi á sam-
vinnu um stofninn sem hefur verið í
molum. Nú eru önnur ríki en þessi
þrjú sem hafa hafið veiðar á honum
og það er erfitt að eiga í samninga-
viðræðum við þau meðan ósætti hef-
ur ríkt á milli þessara þriggja landa
sem hafa átt aðild að svæðisbundinni
alþjóðastofnun sem fjallar um stofn-
inn.“
Guðmundur segir hafa vakið at-
hygli hversu víðtækur dómurinn er.
Ekki hafi verið búist við því þar sem
málið verður tekið fyrir gerðardóm
en Ástralir og Ný-Sjálendingar hafa
ákveðið samkvæmt heimild í hafrétt-
arsamningnum að vísa deilunni til
gerðardóms. Um ár getur tekið að
skipa hann og geta deiluaðilar leitað
til hafréttai-dómsins til að fá svokall-
að bráðabirgðaúrræði eins og það
sem féll í gær. „Við töldum málið það
brýnt að ekki væri hægt að bíða nið-
urstöðu gerðardómsins, það þyrfti að
taka á því núna. Setja hámarksafla á
alla aðila og heimila ekki veiðar í vís-
indaskyni umfram þann afla.“
Vil kynnast stjórnanda
með náið samband í huga! \
Jafhvel vönduðustu tölvukerfi krefjast eftirlits, viðhalds
og endurbóta. Rekstrarþjónusta EJS felur
í sér almennt og fyrirbyggjandi eftirlit
með vélbúnaði, álagi og öryggiskerfum.
Kostnaðl og töfum vegna bilana er haldíð
I lágmarki. Fræðsla og ráðgjöf bætir kunnáttu
starfsmanna og eykurafköst peirra. Pannig getur EJS
hjálpað þér að lækka rekstrarkostnað og
vernda fjárfestingu pína í tölvukerfinu.
Við leggjum til langtíma samband byggt
á gagnkvæmu trausti.
EJS vinnur samkvæmt ISO 9001 vottuðu gæðakerfi 4- EJS hf. 4-
I
I
I
I
I
I
I
I
3 3000 + www.ejs.is + Grensásvegi IO 4* 108 Reykjavfk t