Morgunblaðið - 01.09.1999, Síða 16
16 D MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐTAL
Sameinað fyrirtæki á Höfn á Hornafírði mun heita Skinney-Þinganes hf.
Efla það sem skilar
hagnaði en hætta öðru
Nýlr eigendur Borgeyjar á Höfn vinna að sameiningu fyrirtækisins
við Skinney og Þinganes undir nafninu Skinney-Þinganes hf. Unnið er
að hagræðingu í vinnslunni, meðal annars með því að sameina hana á tvo
staði á Höfn í stað fjögurra. Aðalsteinn Ingólfsson framkvæmdastjóri segir
Helga Bjarnasyni að þeir þættir starfseminnar sem skila hagnaði verði
efldir en öðrum rekstri hætt.
Morgunblaðið/Golli
Aðalsteinn Ingólfsson, framkvæmdasljóri Skinneyjar-Þinganess hf., og
félagar undirbúa rekstur sameinaðs sjávarútvegsfyrirtækis á Höfn.
FISKVERKUN sameinaðs sjávar-
útvegsfyrirtækis á Höfn í Homa-
firði verður á tveimur stöðum á
Höfn en ekki fjórum eins og nú er.
Unnið er að endurskipulagningu
vinnslunnar hjá Borgey og Skinn-
ey og framundan er einnig endur-
skipulagning útgerðar beggja fyr-
irtækjanna auk Þinganess.
Útgerðar- og fiskvinnslufyrir-
tækið Skinney hf. og útgerðarfyrir-
tækið Þinganes hf. keyptu 58%
hlutabréfa í Borgey hf. í lok janúar
og unnið er að sameiningu fyrir-
tækjanna í eitt. Sameiningin hefur
verið samþykkt af hluthöfum Sk-
inneyjar og Þingness og frá henni
verður gengið á hluthafafundi í
Borgey sem áætlað er að halda síð-
ari hluta september. Þótt fyrirtæk-
in hafi ekki runnið formlega saman
eru þau rekin sem ein heiid. Fyrir-
tækin þrjú sameinast á kennitölu
Borgeyjar um leið og nafninu verð-
ur breytt í Skinney-Þinganes hf.
„Við gerðum lítið í upphafi,
loðnuvertíðin var byrjuð og við
vildum láta fyrri stjómendur ljúka
sínu starfi. Halldór Arnason hætti
sem framkvæmdastjóri í byrjun
apríl og við komum þá hingað inn,“
segir Aðalsteinn Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri hins sameinaða fyr-
irtækis. Hann var framkvæmda-
stjóri Skinneyjar. Starfandi stjórn-
arformaður er Gunnar Árnason
sem var framkvæmdastjóri Þinga-
ness og sinnir ekki síst útgerðar-
þættinum í nýja fyrirtækinu.
Töluverðar breytingar urðu á
stjómendum við eigendaskiptin.
Verkstjórum og yfirmönnum á
skrifstofu fækkaði verulega.
Vinnslan endurskipulögð
Aðalsteinn segir að stjórnendur
fyrirtækisins hafi til þessa einbeitt
sér að endurskipulagningu vinnsl-
unnar. Borgey var með vinnslu á
þremur stöðum, síldarsöltun og
saltfískpökkun var í sérstöku hús-
næði utan við frystihúsið þar sem
meginhluti starfseminnar fór fram.
Þá var Skinney með flesta sömu
vinnsluþætti, söltun og frystingu, í
fjórða húsinu. Að sögn Aðalsteins
hefur verið ákveðið að nota ein-
göngu frystihús Borgeyjar og fisk-
verkun Skinneyjar en afsetja hitt
húsnæðið. Öll saltfískverkun mun
fara fram í húsnæði Skinneyjar en
sfldar- og loðnuvinnsla, bæði fryst-
ing og söltun, og humarvinnsla í
frystihúsi Borgeyjar. Kolafryst-
ingu hefur verið hætt. Skinney hef-
ur verið með bolfiskfrystingu á
Reyðarfirði og verður sá rekstur
óbreyttur.
I sumar hefur verið unnið að
endurskipulagningu húsnæðis og
fiutningi véla og tækja. Verið er að
setja tæki til loðnu- og sfldar-
vinnslu upp í frystihúsi Borgeyjar
og hefur síldarsöltunarskemmunni
þegar verið lokað. Ennþá hefur
ekki gefist tækifæri til að flytja
saltfiskpökkunina í húsnæði Skinn-
eyjar.
„Starfsemin verður svipuð, en í
færri húsum. Með því móti minnk-
um við verulega innri flutninga.
Það fer óhemjumikið af sfld og
loðnu hér í gegn og hefur fiskurinn
verið fluttur fram og til baka. Það
sama á við um saltfiskinn en hann
verður unninn í tveimur húsum
fyrst um sinn,“ segir Aðalsteinn.
Batamerki á rekstri
Borgey hefur verið rekin með
miklu tapi. Undanfarin tvö ár hefur
tap af reglulegri starfsemi numið
um 300 milljónum hvort ár. Skinn-
ey og Þinganes hafa hins vegar
verið rekin með hagnaði. „Þetta er
mikið tap, of mikið, og við stefnum
að því að koma fyrirtækinu í hagn-
að sem íyrst. Þetta ár verður
þungt en við sjáum þó ákveðin
batamerki á rekstrinum," segir
framkvæmdastjórinn.
Fyrirtækin þrjú eiga samtals níu
fískiskip með 10.500 tonna kvóta í
þorskígildum talið. Um þriðjungur
kvótans er í þorski. Fyrirtækið
ræður jdlr 17% humarkvótans og
svipuðu hlutfalli síldarkvótans auk
3% af loðnukvóta landsmanna.
Ljóst er að eftir sameiningu íyrir-
tækjanna verður unnt að hagræða
verulega í útgerðinni, með því að
sækja aflann á færri skipum. Aðal-
steinn leggur hins vegar áherslu á
að engar ákvarðanir hafi verið
teknar i þessu efni. Fram til þessa
hafi öll áherslan verið lögð á endur-
skipulagningu vinnslunnar.
Lítið er um að vera í útgerðinni
hjá Skinney-Þinganesi hf., eins og
vinnslunni, enda kvótaárið að verða
búið. Tíminn er meðal annars not-
aður til að halda við skipunum
þannig að þau verði klár við upphaf
síldarvertíðar og nýs kvótaárs.
„Þetta er svipað og við bjugg-
umst við. Við þekktum þetta fyrir-
tæki ágætlega og gerðum okkur
góða mynd af því,“ segir Aðal-
steinn þegar hann er spurður að
því hvort meiri erfiðleikar hafi ver-
ið í rekstri Borgeyjar en þeir gerðu
sér grein fyrir við kaupin. Hann
gerir einnig lítið úr þeirri breyt-
ingu sem það er fvrir stjórnendur
minni fyrirtækjanna að taka við
stóra íyrirtækinu á staðnum. „Eg
hef ekki orðið var við mikla breyt-
ingu, er reyndar ekkert að velta
því fyrir mér. Nýja fvrirtækið er
að gera það sama og Skinney, ein-
ingarnar eru bara stærri. Maður
getur ekki hugsað þetta öðruvísi,“
segir Aðalsteinn.
Lykillinn að því að snúa tapi í
hagnað er að mati Aðalsteins fram-
kvæmdastjóra að einbeita kröftum
fyrirtækisins að þeim þáttum sem
skila hagnaði, efla þá en hætta
annarri starfsemi. Þannig hefur
kolavinnslu verið hætt en hún skil-
aði Borgey aldrei neinu. „Við telj-
um okkur geta rekið saltfiskverk-
un, humarvinnslu og sfldar- og
loðnuvinnslu með hagnaði. Að öðr-
um kosti stæðum við ekki í þessu.“
Áður hefur verið vikið að hag-
ræðingu í vinnslu. Því til viðbótar
má geta þess sem skýringar á
bættum rekstri að sameinað fyrir-
tæki fær meiri afla til vinnslu af
eigin bátum. Afli báta Þinganess er
hrein viðbót við þann afla sem
vinnsla Borgeyjar og Skinneyjar
hafði til ráðstöfunar.
Fulltrúar eigenda meirihluta
hins sameinaða sjávarútvegsfyrir-
tækis á Höfn hafa lýst því yfir að
þeir stefni að því að félagið fari á
almennan hlutabréfamarkað. „Það
er aðeins spurning um hvenær það
getur orðið. Fyrst þurfum við að
búa til eitthvað úr þessu," segir
Aðalsteinn.
Saltfiskverkun nýja fyrirtækisins verður í framtíðinni á einum stað í stað þriggja.
Velkomin í bás D-70
TRAUST ÚTGERÐARÞJÓNUSTA FRÁ 1916