Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 D 19
Þjarki eins og Samey sýnir staflar sekkjum en hami staflar kössum á sýningunni.
„Þjarki“ frá Samey að
störfum á sýningunni
SAMEY ehf. verður með þjarka eða vél-
menni á bás sínum á íslensku sjávarút-
vegssýningunni og verður hann að störf-
um við að stafla kössum á bretti. Til
þessa hafa þjarkar lítið sem ekkert verið
notaðir í íiskvinnslu og sjávarútvegi á Islandi.
Mætir vel og
möglar ekkert
Þeir geta engu að síður verið hag-
kvæmur kostur fyrir fiskvinnsluna,
að sögn Gunnars Oskarssonar,
markaðsstjóra hjá Samey. „Þjarkar
eru áreiðanlegir og óþreytandi og
geta unnið sömu verkin aftur og aft-
ur af mikilli nákvæmni án þess að
þreytast. Augljósasta verkefnið í
fískvinnslu er að láta þjarka stafla
kössum eða sekkjum á bretti, en í
sumum tilfellum eru nokkrir starfs-
menn uppteknir í slíkum verkefnum
allan daginn. Þjarkar eru sérstak-
lega mikilvægir á álagstímum, eins
og á loðnuvertíðinni, en þá eiga fyr-
irtækin oft í erfiðleikum að fá
starfsfólk.“
Staflar kössum á bretti
Á bás Sameyjar, B120, verður
þjarki frá Fanuc Robotics að störf-
um við að stafla kössum á bretti, en
Fanuc Robotics er stærsti fram-
leiðandi iðnaðarþjarka í heiminum í
dag. „Áður fyrr voru þjarkar dýr
og flókin verkfæri en nú eru þeir
fjöldaframleiddir með iðnaðar-
þjörkum eins og bílar,“ segir
Gunnar. „Þeir eru auðveldir í allri
notkun og á hvers manns færi að
skilgreina hvað og hvernig
þjarkinn á að vinna verkið. Þeir
eru ótrúlega áreiðanleg verkfæri
með lága bilanatíðni. Uppgefinn líf-
tími er 10 ár miðað við 24 tíma
vinnu á sólarhring. Rekstrarkóstn-
aður er hverfandi. Fjölhæfni
þjarkans hentar vel við íslenskar
aðstæður þar sem framleiðslulotur
eru litlar, stuttar og breytilegar.“
Einstakur
gSfrg?. Ingvar
|^|2| Helgason hf.
=l_Jr Scevarhöfba 2
-5-=^ Sími 525 8000
unvuiih.is
Intralox réttu böndin:
- Auðvelt að hreinsa, með USDA
og FDA gæðastimpli.
- Þolir sterk hreinsiefni.
- Er hægt að nota við -73° til 93° hita
Marvís besta þjónustan:
-Full ábyrgð á öllum nýjum böndum.
-Veitum ásamt Intralox tæknilega ráðgjöf.
-Getum afgreitt bönd með stuttum fyrirvara
-24 tíma neyðarnúmer.
S-800 NUB TOP
S-800 ROLLERTOP
S-800 SKÓFLUR
S-3000 KEÐJA
ISLENSKA SJAVARUTVEGSSYNINGIN
1. - 4. SEPTEMBER 1999
SMÁRANUM KÓPAVOGI
Dalvegur 16a • 200 Kópavogur S: 564 1550 • Fax: 554 1651 Neyðamúmer: 846 4897
O Netfang: marvis@mmedia.is • Heimasíða: www.mmedia.is/~marvis
Allsherjar lausnir í færiböndum fyrir
sjávarútveginn og allan matvælaiðnað