Morgunblaðið - 01.09.1999, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 D 23
FRÉTTIR
Yaki-DNG selur
búnað í níu
nýsmíðar í Kína
VAKI-DNG hefur gert samning um
sölu á stjómbúnaði fyrir veiðarfæri í
níu skip sem smíða á fyrir íslenskar
útgerðir í Kína. Búnaðurinn sem um
ræðir eru sjö SeineTec-kerfí tO
mælinga á hífingarhraða, átaki og lengd tóga fyrir snurvoð og tvö
TrawlTec-kerfi til mælinga á átaki og lengd víra fyrir troll.
Stjórnbúnaður
fyrir veiðarfæri
Vaki hf. og DNG-Sjóvélar hf. sam-
einuðust fyrr í sumar og stefnir sam-
einað fyrirtæki að aukinni hagræð-
ingu í þróun, framleiðslu og mark-
aðsmálum. Eftir sameininguna
starfa 32 starfsmenn hjá fyrirtækinu
í Reykjavík, Garðabæ og Akureyri.
Að sögn Björgvins H. Bjarnasonar,
sölustjóri Vaka-DNG innanlands, er
búnaðurinn sem setja á í skipin í
Kína einfaldur og notendavænn.
„Auk upplýsinga um hífingarhraða,
átak og lengd, heldur búnaðurinn ut-
an um sögu veiðanna og gefur við-
varanir á stillanlegum gildum í
lengdum og átaki. Ennfremur skilar
búnaðurinn upplýsingum um legu
veiðarfæranna til skipstjórnarmanna
sem gefur þeim möguleika á að
bregðast við aðstæðum og hámarka
opnun veiðarfæra í sjó. Þessi samn-
ingur er Vaka-DNG mikilvægur og
ánægjulegt að þessi búnaður, sem er
afrakstur íslensks hugvits, skuli vera
valinn á einu bretti sem stjórnkerfi í
svo myndarlegt smíðaverkefni
hinumegin á hnettinum,“ segir
Björgvin.
Nýr aflanemi
Ein af þeim nýjungum sem Vaki-
DNG mun kynna á Islensku sjávar-
útvegssýningunni er aflanemi fyrir
togveiðar. Að sögn Björgvins er afla-
neminn um margt sambærilegur
öðrum aflanemum en hefur þó
nokkrar athyglisverðaer nýjungar.
„Nemann er til dæmis hægt að opna
úti á sjó og breyta senditíðni, í stað
þess að gera það á verkstæði. Einnig
er rofinn breyttur frá því sem hefð-
bundið er á þann hátt að það er stál-
kólfur í stað vírs sem ræsir nemann.
Hleðsla nemans endist í á bilinu 6-10
sólarhringa og einungis tekur um 16
klukkustundir að hlaða hann. Nem-
inn hefur verið í prófunum síðsutu
sex mánuði og passar við öll hefð-
bundin botnstykki og aflesturstæki
frá öðrum framleiðendum og hentar
bæði á flottroll og botntroll," segir
Björgvin.
Fjarstýring fyrir færavindur
Þá hefur Vaki-DNG hafist handa
við að þróa hugbúnað til að fjarstýra
C-6000Í færavindunni sem er algeng
í smábátum hér við land. Björgvin
segir að í framtíðinni verði einnig
hægt að fjarstýra fleiri framleiðslu-
vörum fyrirtækisins með sama hug-
búnaði. Hugbúnaðurinn verður
kynntur á Islensku sjávarútvegssýn-
ingunni. „Búnaðurinn hefur hlotið
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Starfsmenn Vaka-DNG með helstu nýjungar sem kynntar verða á Islensku sjávarútvegssýningunni. F.v. Her-
mann Kristjánsson, framkvæmdastjóri, Sævaldur Gunnarsson, markaðsstjóri, Kristján Jóhannesson, mark-
aðsstjóri, og Björgvin H. Bjarnason, sölustjóri innanlands.
nafnið DNG Brú sem vísar til þess
að hann er hugsaður sem eitt stjórn-
tækja í brú, þar sem hægt er að
fylgjast með og stjórna virkni vind-
anna. Hugbúnaðurinn byggist á PC-
samhæfðri tölvu en margir smábátar
eru nú þegar búnir slíkum tækjum.
Hann byggist upp á yfírlitsskjámynd
sem sýnir staðsetningu hveirar
vindu, hvað hún er að gera og á
hvaða dýpi hún er að vinna. Á skjá-
myndinni verður einnig hægt að
stýra vindunum, til dæmis kalla þær
allar upp eða senda eina niður. Sé
tvísmellt á eina af vindunum á yfir-
litsskjámyndinni opnast annar
gluggi sem er nákvæm eftirmynd
skjásins á vindunni. Þar er hægt að
stýra nánast allri virkni vindunnar
til jafns við það sem hægt er að gera
á stjórnborði hennar. Hugmyndin
um fjarstýringu fyrir C-6000Í færa-
vinduna er ekki ný af nálinni og hafa
margir notendur vindunnar lýst
áhuga sínum á slíku verkfæri," segir
Björgvin.
Þar að auk kynnir Vaki-DNG á
sjávai-útvegssýningunni nýja beitn-
ingarvél. Vélin er viðbót við núver-
andi línukerfi sem hefur verið á
markaðnum síðastliðin 5 ár. Beitn-
ingarvélin er tölvustýrð og er algjör-
lega sjálfvirk. Hún getur beitt
smokk, makríl og síld og tekur
önglastærðirnar EZ 12,13 og 14.
Einn af kostum við tölvustýringuna
er meðal annars sá að einfalt er að
breyta beitustærðinni og fá þannig
hámarksnýtingu á beitu. Beitningar-
vélin er hljóðlaus og án takmarka
um lagningarhraða. Þrír rafmótorar
eru í vélinni einn sem sker beituna,
annar sem færir beituna og sá þriðji
sem heldur ofaná beituna á meðan
öngullinn beitist. Þegar stillingunni
fyrir beitustærð er breytt, breytir
vélin strax færslunni á beitunni
þannig að beitustærðin breytist um
leið. Skjár á beitningarvélinni sýnir
stærð beitu í millimetrum ásamt
beituprósentu sem mæld er rétt áður
en öngullinn yfirgefur bátinn. Vélin
mælir einnig frost í hverri beitu og
heldur þannig mismikið við beituna
þegar öngullinn skýst í hana. Þetta
eykur beitningarprósentuna og
tryggir það að beitan er betur sett á
og fari síður af á ferð sinni niður á
botninn.
Mjög auðvelt er að tengja upplýs-
ingarnar frá beitningarvélini Line-
Tec forritinu og geyma sameiginlega
til upplýsinga og samanburðar síðar
meir. Þannig er hægt að fá á mynd-
rænu formi beitningarprósentu og
beitustærð á hverjum tíma og tengja
það við GPS tölur, dagsetningar, há-
seta á vakt, lengd línu og fleira.
Þetta gefur skipstjóranum meiri
möguleika að skoða og meta upplýs-
ingar.frá fyrri tíð og þannig að ná
fram arðbærari veiðiskap.
Nyjung frá Tæknivali
á Sjávarutvegssyningunni
r
UPPLYSINGRR OG ORYGGI - INTERNETTENGING FYRIR SKIP
INTERNET
Internettenging fyrir skip, sem fer (gegnum gervihnött, gerir áhöfnum og
útgerðarfélögum kleift að vera (stöðugu Internet- og tölvupóstssambandi, ná
sjónvarps- og útvarpsstöðvum, og nýta aðra fjarskiptatækni sem nútíminn býður upp á.
Internettenging um gervihnött er alger bylting sem byggð er á íslensku hugviti
og á eftir að verða skipaútgerðum ómetanlegt upplýsinga- og öryggistæki.
Á Sjávarútvegssýningunni kynnum við einnig
NOTANDI
prentkerfislausnir byggöar á
Windows CE vélbúnaði
strikamerkjaprentara
hönnunarforrit
tölvuvætt HACCP gæðakerfi
með snertiskjátölvum
Casio handtölvur
tékkvogarkerfi fyrir sjávarútveg
Internetið Upplýsingar
• hagkvæmt símasamband • fréttir
• veðurupplýsingar • fjármál
• tilkynningaskylda • kvótaverð
• samskipti við lækna •textavarp
• samskipti við útgerð • veðurfréttir
• þjónusta á búnaði • vara og þjónusta —, - u u
Tæknival
FÁIÐ NÁNARI UPPLÝSINGAR í SÝNINGARBÁS TÆKNIVALS Á SJÁVARÚTVEGSSÝNINGUNNI EÐA í SÍMA TÆKNIVALS, 550 4000
www.toeknival.is