Morgunblaðið - 01.09.1999, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 D 27
FRÉTTIR
Uppbætur á kvóta vegna samdráttar í veiðum á innfjarðarrækju
Stóru útgerðirnar
fá mestu bæturnar
Fyrr í sumar kynnti sjávarútvegsráðuneytið reglugerð sem
veitir 2.000 tonna þorskígildis uppbót til rækjuútgerða sem
-------------------------------------------
stunda veiðar á innfjarðarrækju. Orn Arnarson kynnti sér
málið og athugaði í hendur hverra uppbótin fer.
Rækjutrollið tekið
UPPBÆTUR á kvóta vegna sam-
dráttar í veiðum á innfjarðarækjau
renna í flestum tilfellum til öflugra
útgerða, sem eiga miklar aflaheim-
ildir fyrir í ýmsu fiskitegundum. Þar
má nefna útgerðir eins og Básafell í
ísafjarðarbæ, Fiskanes í Grindavík
og Saltver í reykjansbæ.
Rækja er veidd inn á fjörðum á sjö
stöðum á landinu; í Arnarfirði,
Húnaflóa, ísafjarðardjúpi, Skaga-
firði, Öxafirði, í Skjálfanda og einnig
er rækjuveiði við Eldey inni í skil-
greiningunni. Samkvæmt þeim for-
sendum sem ráðuneytið gaf sér við
útreikninga á skerðingu fá bátar sem
stunda veiðar við Húnaflóa, í Isa-
fjarðardjúpi og við Eldey uppbót.
Alls munu þessir bátar skipta á milli
sín 2.071 þorskígildislest.
Samkvæmt heimildum frá ráðu-
neytinu og Fiskistofu mun skipting-
inn fara þannig fram að hvert svæði
mun fá á bilinu sex til sjö hundruð
þorskígildistonn og þau munu deilast
á skipin eftir aflahíutdeild þeirra á
hverju svæði.
Hverjir eru að fá bætur?
Alls hafa 43 bátar stundað rækju-
veiðar á þessum slóðum. Hlutdeild
þeirra er þó mismikil. A svæðunum
þrem eru nokkrir bátar sem gnæfa
yfir aðra þegar hlutdeild í afla er
skoðuð.
Við Eldey eru Erling KE og Ólaf-
ur GK með stærstu hlutdeildina, eða
rúmlega 23% hvor. Erling er í eigu
Saltvers ehf. í Reykjanesbæ og rek-
ur fyrirtækið öfluga rækjuverk-
smiðju og frystir loðnu á útmánuð-
um. Erling er með kvóta upp á rúm
1.850 þorskígildistonn og með upp-
bótinni bætast við 160 tonn. Fiska-
nes hf. er eitt af öfiugri útgerðarfyr-
irtækum á landinu. Fyrirtækið gerir
út 7 báta og á þeim eru 8 þúsund
þorskígildistonn.
Á Isafjarðardjúpi eru 22 bátar
með leyfi til innfjarðarrækjuveiða.
Hlutdeild bátanna í veiðunum dreif-
ist nokkuð jafnt. Þó er Bára IS með
um 11% hlutdeild í veiðunum. Miðað
við það mun hún fá tæp 77
þorskígildistonn vegna skerðingar-
innar. Bára er í eigu útgerðarfélags-
ins Básafells hf. á ísafirði, en Bása-
fell hefur verið mikið í fréttum und-
anfarið vegna baráttu forráðamanna
þess við að fá til sín þau 400 tonn af
byggðakvóta sem ísafjarðarbær
fékk í sínar hendur. Básafell er eitt
stærsta sjávarútvegsfyrirtæki lands-
ins. Það hefur yfir um þrettán þús-
und þorskígildistonnum að ráða.
Fjórtán bátar hafa gert út á rækju
í Húnaflóa. Ásdís ST er með um 18%
af veiðunum í flóanum og fær sam-
kvæmt þvi tæplega 130
þorskígildistonn. Ásdís er eigu
Bassa ehf. sem er skráð á Hólmavík.
Ólafur Magnússon HU er með um
13% hlutdeild og fær um 91 tonn.
Ólafur Magnússon er í eigu Jökuls
ehf. á Skagaströnd. Þessi tvö fyrir-
tæki eru smá í sniðum og komast
ekki nálægt Saltveri, Fiskanesi og
Básafelli í stærð né umsvifum.
Hverjum er verið að hjálpa?
Ymsar spurningar vakna þegar
þessar tölur ei-u skoðaðar. Ein er sú
hvort sé verið að hjálpa þeim sem
eru hjálparþurfi. Saltver, Fiskanes
og Básafell ráða samanlagt yfn- ríf-
lega 20 þúsund þorskígildistonnum,
sem er mikið magn. Verðmæti þeirr-
ar úthlutunar sem þau fá frá sjávar-
útvegsráðuneytinu er samanlegt um
40 milljónir, sé miðað við 100 króna
leiguverð á þorskkvóta. Verðmætið
er miklu meira ef fyrirtækin kjósa að
veiða aflann sjálf og vinna eða selja á
mörkuðum. Öll iyrirtækin þrjú ráða
yfir skipakosti til þess og eru því vel
í stakk búin til að nýta sér þessa út-
hlutun.
Gat I löggjöfinni
Samkvæmt 9. grein laga um stjórn
fiskveiða hefur ráðheiTa heimild til
þess að ráðstafa allt af 12 þúsund
þorskígildistonnum til að bæta
skerðingar sem verða í úthlutuðu
aflamarki samkvæmt reglum sem
hann setur. Þessi lög voru væntan-
lega sett í þeim tilgangi að koma í
veg fyrir að útgerðir sem stunda
veiðar í stofnum sem eru í tímabund-
inni lægð verði gjaldþrota. Velta má
því fyrir sér hvort réttlætanlegt sé
að útgerðir sem stunda veiðar í
mörgum tegundum, og verða því
ekki fyrir sama skelli og þær sem
sækja í eina tegund, fái uppbót.
LEYNDARMÁLIÐ FELST í ÞJ ONUSTUNNI
Skilvindur og plötuvarmaskiptar
frá Alfa Laval er búnaður sem er af
góðu kunnur í íslenskum sjávar-
útvegi og fiskvinnslu enda er
fyrirtækið í forystu í heiminum í
þróun og framleiðslu á þessum
sviðum. Það segir sína sögu að markaðshlutdeild
Alva Laval í skilvindunum hér á landi er hátt í 80%
og plötuvarmaskipta frá fyrirtækinu er að finna um
borð i sífellt fleiri íslenskum fiskiskipum.
Þorleifur: Þeir sem stjórna og starfa við útgerð og
fiskimjölsvinnslu hafa afargóða reynslu af skilvindunum
frá Alfa Laval en ekki síður er mikilvægt að við sinnum
viðskiptavinum okkar eins vel og framast er unnt. Þar á
að nefna þjónustu almennt, ráðgjöf við uppsetningu og
rekstur og aðstoð ef einhver vandamál gera vart við sig.
Síðast en ekki síst hafa viðskiptavinimir jafnvel áratuga
langa og góða reynslu af samskiptum við Sindra. Þeir
nýta sérþá þekkingu sem fyrirtækið býr yfir og kunna
að meta þá þjónustu sem það veitir. Allt þetta skýrir
yfirburði búnaðarins á markaðinum hér á landi.
Kynnir Sindri einhverjar nýjungar í skilvindum til
sögunnar á Sjávarútvegsýningunni 1999?
Þorieifur: Já, við verðum með sýnishorn af nýrri línu
fyrir skip sem væntanleg er á markaðinn um næstu
áramót. Helst er að nefna að skilkarlinn er breyttur,
tækið er fyrirferðarminna, minna tapast af olíu og
hagkvæmni f rekstri er
þannig meiri en áður.
Nýjar og stærri skil-
vindur fyrir fiskimjöls-
iðnaðinn eru væntan-
legar líka, jafnvel á
næsta ári.
Fleiri nýjungar?
Þorleifur: Ég vil endilega vekja athygli á að Sindri er
farinn að bjóða viðskiptavinum sínum heildarlausnir í
þessum efnum, sem er afar hagkvæmur kostur í
mörgum tilvikum. Þar er ég að tala um að keypt sé í
einu lagi skilvinda, stýribúnaður
og startbúnaður með hiturum og
dælum. Þannig skapast ýmsir nýir
möguleikar við að endurnýja kerfin
auk þess sem tíminn við að setja
þúnaðinn upp styttist.
SINDRI
Borgartúni 31 • 105 Rvík • sími 575 OOOO
fax 575 0010 • www.sindri.is