Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 30
A 30 D MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
VIÐTAL
MORGUNBLAÐIÐ
Alþjóða mannúðarsjóðurinn fundar um hagnýtingu fískistofna og stjórn fískveiða
#
rettarekkar
Bjóðum allskonar lager- og hillukerfi fyrir vélvædd vöruhús sem minni
lagera. Aðeins vönduð vara úr gæðastáli á mjög góðu verði.
Einnig færðu lyftitæki og trillur hjá okkur.
Leitið ráða við skipulagningu og byggingu lagerrýma.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
gæði fyrir gott verð
SUNDABORG 1 • SÍMI568-3300
Lagerlausnir eru okkar sérgrein
MECALUX
V eiðiréttíndi til
langs tíma æskileg
Hagnýting fískistofna og stjórn fískveiða eru, meðal annars, málefni sem
Alþjóða mannúðarsjóðurinn, What, lætur til sín taka en hann einbeitir sér
að því að fínna hagkvæmar lausnir á vandamálum, sem hrjá heiminn.
Steinþór Guðbjartsson forvitnaðist um starfsemi What hjá dr. Peter
___Warren, formanni sjóðsins, og Rögnvaldi Hannessyni, formanni_
fískveiðinefndar sjóðsins.
Morgunblaðið/Þorkell
Fiskveiðinefnd What og Islendingarnir í nefndinni í miðjum hópnum. Rögnvaldur Hannesson, formaður
nefndarinnar, er fimmti frá vinstri og Grímur Valdimarsson, fulltrúi FAO, fyrir framan hann.
Alþjóða mannúðarsjóðurinn, The
World Humanity Action Trust, var
stofnaður 1993 vegna þess að
frumkvöðlunum þótti ástæða til að
rannsóknir færu fram á því hvemig
bregðast ætti við síauknum
alheimsvandamálum sem hefðu
áhrif á allt mannkyn. Peter Warren
segir að í byrjun hafi verið litið á
vandamálin í heild sinni og 1995 og
1996 hafí verið haldnar fjórar
alþjóðlegar ráðstefnur í Evrópu,
Afríku, Ameríku og Asíu, þar sem
umræðuefnið var m.a. nýting
náttúrulegra auðlinda, íbúafjöldi og
fólksflutningar og mengun
alheimsins.
Þrjár nefndir
„íbúar jarðarinnar eru sex
milljarðar og í gangi er ákveðið
skipulag og stjórnun," segir
Warren. „í ljósi þeirra vandamála
sem mannkyn stendur frammi fyrir
við aldamót spyrjum við hvort
núverandi skipulag sé nógu gott og
ef það er það ekki hvort ekki sé
ástæða til að ræða málið og taka
fyrir þau atriði sem ekki eru
fullnægjandi til að finna út hvað á
vanti. I þessu sambandi er vert að
minna á hvaða áhrif
efnahagslægðin 1930 hafði í
heiminum og seinni
heimsstyrjöldin. Nú blasa við mörg
umhverfisvandamál og fyrmefndar
ráðstefnur voru fyrsta skrefið tii að
skoða vandamálin frá sem flestum
hliðum. Ég tók við stjórninni fyrir
tveimur og hálfu ári og þá fannst
mér að við þyrftum að kafa dýpra.
Við höfðum rætt vandamálin á
breiðum grundvelli en ekki tengt
þau nægjanlega daglegu lífi. Því
lagði ég til að á næsta stigi skyldum
við taka fyrir ákveðin málefni sem
væru þess eðlis að mannkyni
stafaði hætta af gangi mála. Við
skyldum skilgreina vandamálin,
skoða lausnirnar sem lagðar hefðu
verið tii og síðan spyrja okkur
sjálfa hvort líklegt væri að þær
lausnir yrðu framkvæmdar og ef
ekki hvaða áhrif það hefði á ýmsum
sviðum. Við settum saman lista með
mörgum verkefnum og völdum þrjú
til að byrja á. Stofnuð var
ferskvatnsnefnd, landbúnaðamefnd
og fiskveiðinefnd. 12 fulltrúar eru í
hverri nefnd og var þess gætt að
þar færu fulltrúar ólíkra starfa og
þjóða. Hver nefnd fékk verkefni til
tveggja ára í júlí í fyrra og á að
skila tillögum á næsta ári.“
Warren segir að nefndirnar eigi
að skoða vandamálin og tillögur til
úrbóta, leggja fram tillögur um
mikilvægustu lausnirnar og leggja
mat á hvort líklegt sé að brugðist
verði við vandanum. Ef svarið er
neikvætt þarf að skilgreina hvaða
ráðstafana þarf að grípa til.
Starf nefndanna er komið vel á
veg og segir Warren að næsta skref
sé að fá álit þeirra sem hlut eiga að
máli, um 100 manns á hverju sviði.
„Við leggjum mikið upp úr að fá
fram öll sjónarmið, hvort sem menn
eru sammála tillögum nefndanna
eða ekki, til að komast að sem
hagnýtastri niðurstöðu."
What skoðar líka hegðun fólks í
tengslum við hvert svið og reynir
að áætla hvemig mannkynið
bregðist við tillögum til úrbóta.
„Við emm öll neytendur og okkur
verður ekki breytt en við viijum að
fólk sé meðvitað um hvað gerist í
umhverfinu, það sé hluti af því og
geti haft áhrif. I þessu sambandi er
mikilvægt að gera sér grein fyrir að
við emm neytendur sem ber að
varast að vera of miklir neytendur."
Warren áréttar að What á ekki
að segja hvemig á að gera hlutina
heldur benda á mögulegar leiðir.
„Það er ekki okkar starf að móta
stefnuna heldur benda fólki á að
ákveðnum spurningum þarf að
svara og í flestum tilfellum er það
ríkisstjóma og ráðandi afla að
svara þessum spurningum.
Mikilvægast er að koma
umræðunum af stað og gera fólki
um allan heim grein fyrir mikilvægi
málefnanna sem til umræðu em.“
Fiskistofnar í hættu
vcgna rányrkju
Rögnvaldur Hannesson
prófessor í Bergen er formaður
fiskveiðinefndarinnar sem hélt fund
í Reykjavík í liðinni viku, en
Grímur Valdimarsson er fulltrúi
FAO, Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
Þjóðanna, í nefndinni.
„Helsta niðurstaða okkar er að
vöxtur og viðgangur fiskistofna er í
hættu vegna rányrkju,“ segir
Rögnvaldur. „Hún stafar af því að
framleiðni fer vaxandi og
eftirspum eftir fiski fer vaxandi en
framleiðni náttúmnnar er gefin
stærð. Tæknin og veiðigetan em
löngu komin fram úr því sem
náttúran getur staðið undir ef allt
ætti að vera frjálst. Ekki er lengra
síðan en um síðustu aldamót að það
þótti góð latína hjá mörgum, meira
að segja hjá líffræðingum, að
fiskveiðar hefðu engin áhrif á vöxt
og viðkomu fiskistofna. Flestir vita
nú að þetta er alls ekki rétt. Jafnvel
er hægt að útrýma fiskistofnun
með því að veiða of mikið.“
Hann segir að lausnin felist í
stjórnun á veiðunum.
„Við leggjum til að menn fái
veiðiréttindi til langs tíma svo þeir
geti fjárfest af skynsemi í
fiskibátum. Þetta er okkar
aðalniðurstaða en annað mál er
hvemig þessi veiðiréttindi eigi að
vera. Þau geta tekið á sig ýmis
form. Þau geta verið í kvóta eins og
á íslandi en kvóti á ekki alls staðar
við. Ein forsenda þess að geta verið
með kerfi sem byggist á kvóta er sú
að hægt sé að hafa eftirlit með því
hve mikið sé veitt. Það er ekki alls
staðar hægt og því verður að
skilgreina réttinn einhvem veginn
öðm vísi. Til dæmis rétt til þess að
eiga og nota fiskibát til ákveðinna
hluta. Eins geta þetta verið
svæðisbundin réttindi, kerfi eins og
er til dæmis í gangi í Japan.
Spurningin er líka hver á að eiga
þennan rétt. Því er hægt að koma
fyrir með ýmsu móti. Rétturinn
getur verið í höndum einstaklinga
og fyrirtækja eins og hérna. Hann
getur líka verið í höndum
félagasamtaka eða byggðarlaga,
allt eftir aðstæðum á hverjum
stað.“
Rögnvaldur segir að nefndin hafi
einnig fjallað um hvað verði um
arðinn.
„Þegar fiskveiðistjórnunin tekst
vel til getur vel farið svo að hún
skili töluverðum afgangs arði. Þetta
getur valdið miklum deilum eins og
vel þekkt er á Islandi, en við höfum
bent á tvennt í þessu sambandi. í
fyrsta lagi er það hlutverk
stjórnmálamanna og yfírvalda að
sjá til þess að fiskveiðiréttindunum
sé skipt réttlátlega. Til að hægt sé
að koma svona kerfi á verður
einhver að hafa hag af því og ég
held að ekki sé hægt að koma svona
kerfi á nema útgerðir fylgi því eftir,
sjái sér hag í því. T0 að þær sjái sér
hag í því er hætt við að þær fái
eitthvað af fiskveiðiréttindunum í
sinn hlut. Ef útgerðin heldur
einhverju eftir af fiskveiðiarðinum
skapast sennilega einhver hvatning
til að fara vel með fiskistofnana.
Utgerðarmenn fá verðmæti upp í
hendurnar og þessi verðmæti verða
því verðmætari eftir því sem betur
er farið með fiskinn í sjónum. Þá
skapast hvatning til að beita
áhrifum sínum til að fiskveiðum sé
stjórnað."
MECALUX
Comnact þión usta
HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA
= HÉÐINN =
Stórás 6 »210 Garðabæ
sími 569 2100 • fax 569 2101
Morgunblaðið/Þorkell
Peter Warren, formaður Alþjóða mannúðarsjóðsins, The World
Humanity Action Trust.