Morgunblaðið - 01.09.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 D 31 '
Ný og hraðvirk
vog frá Marel hf.
Búnaður frá Marel í
notkun í 45 löndum
MAREL hf. kynnir á íslensku
sjávarútvegssýningunni nýj-
ustu gerð tölvuvoga, MUOO,
sem verið hefur í sölu í rúmt
ár. Vogin hefur hlotið góðar
viðtökur, enda í henni að finna ótal nýjungar. Jón Þór Olafsson, fram-
kvæmdastjóri vöruþróunar hjá Marel, segir að ein helsta nýjungin sé
hversu hraðvirk og stöðug vogin er. „Við byggjum á nýrri aðferð sem gerir
okkur kleift að auka hraðann á voginni verulega en um leið að halda stöðug-
leikanum mjög miklum. Venjulega fer þetta tvennt ekki saman í vogum,
menn eru með hraðvirkar en óstöðugar og öfugt.“
Skjár vogarinnar hefur stóra og
greinilega lýsandi stafi að sögn Jóns
Þórs, auk þess sem takkaborð vog-
arinnar er af nýrri gerð og byggist
á kristöllum, samskonar og eru m.a.
notaður í kveikjurum. Það er mjög
sterkt og algerlega vatnsþétt.
Takkaborðið á MUOO voginni þolh-
því betur en flestar vogir að menn
noti oddhvassa hluti til að styðja á
takkana, eins og oft vill verða. Til að
auðvelda þrif er yfirborð vogarinnar
auk þess mjög slétt.
„Hún er uppbyggð eins og hjálm-
ur þannig að vatn á nánast engan
aðgang að innviðunum. Pallurinn er
á sama hátt hannaður með það fyrir
augum að þrif verði auðveld og
hann þolir það hnjask sem þessi
tæki verða oft fyrir í matvæla-
vinnslu. Vogin er smíðuð úr sér-
staklega vönduðu ryðfríu stáli, með-
al annars til að þola markaði eins og
Ástralíu þar sem fara saman hiti og
selta og sama má segja um saltfisk-
vinnslu þar sem hefðbundið ryðfrítt
stál dugir oft illa.“
Vogina má tengja við tölvu og
eins getur hún tengst bæði prentara
og netumhverfi. Netkerfið sér þá
vogunum bæði fyrir straumi og
gögnum þannig að aðeins er ein
leiðsla í hverja vog. Það skiptir tals-
verðu máli þegar kemur að þrifum.
Vakið hrifiningu í Japan
Sala MllOO vogaiTnnar hefur far-
ið geysilega vel af stað að sögn Pét-
urs Guðjónssonar, framkvæmda-
stjóra markaðssviðs, og hefur hún
alls staðar hlotið góðar viðtökur og
einróma lof. Vogin hefur nú verið
seld víðsvegar um heiminn, meðal
annars til Ástralíu, Nýja-Sjálands
og Japan. „Við erum sérstaklega
stoltir af því að hafa selt talsvert af
þessum vogum til Japan en Japanir
hafa löngum verið taldir fremstir í
framleiðslu á tölvuvogum," segir
hann.
Skjótari og skilvirkari þjónusta
Á sjávarútvegssýningunni mun
Marel hf. ennfremur kynna M3000
stjómtölvuna sem einkum er ætlað
að auðvelda notendum stjómun og
aðgang að öðmm búnaði Marel í
matvælavinnslu og stjómar m.a.
vogum, flokkurum, skurðarvélum,
trogvogum og flæðilínukerfum.
Búnaðurinn er þegar í notkun í 45
löndum og segir Láms Ásgeirsson,
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sverrir
Pétur Guðjónsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs, og Jón Þór Ólafsson, framkvæmdastjóri vöruþróunar,
við nýju MllO tölvuvogina frá Marel.
sölu- og markaðsstjóri Marel hf., að
búnaðurinn geri tæknimönnum
Marel kleift að veita mun skjótari
og skilvirkari þjónustu, bæði hvað
varðar viðgerðir og viðhald. „Hægt
er að tengjast M3000 með PC tölvu
í gegnum Ethemet og í gegnum al-
netið. Því er hægt að lagfæra forrit,
sinna viðhaldi, bæta vinnslu og að-
stoða viðskiptavininn beint frá þjón-
ustumiðstöð Marels," segir hann.
Láms segir notendaviðmót
M3000 stjómtölvunnar afar auðvelt
í notkun og leiði notandann í gegn-
um starfrækslu tækisins skref fyrir
skref. Lyklaborðið á M3000 sé sér-
staklega hannað til að standast erf-
iðustu aðstæður. „Fjöldi grafískra
uppsetninga er sýndur í lit á 8
tommu skjá, með mikilli skerpu og
upplausn. Rauntíma gögn sjást um
leið, sem gerir framleiðslustjóran-
um kleift að hafa fulla stjóm á
framleiðslunni."
„Ein af þeim nýjungum sem nýtir
vel eiginleika M3000 stjómbúnaðar-
ins er IQF lausfrystikerfið," segir
Láms. „Það er samvinnuverkefni
Marel og danska fyrirtækisins
Carnitech, sem em leiðandi í fram-
leiðslu vinnslubúnaðar um borð í
fiskiskipum. IQF lausfrystikerfið
sparar vinnuafla og hámarkar af-
köst í framleiðslu á frosnum fiski,
hvort sem er í landi eða á sjó,“ segir
Láras.
ÚTFLUTNINGSRÁÐ
ÍSLANDS BÝÐUR F>ÉR:
AÐSTDO VIÐ FYRSTU SKREFIN
í ÚTFLUTNINGI
MARKAÐSUPPLÝSINGAR
MARKAÐSÞEKKINGU
MARKAÐSSTJÓRA TIL LEIGU
markaðsráðgjafa erlendis
FRÆÐSLU UM MARKAÐS" DG
KYNNINGARMÁL
S KIPULAG N I NGU Á SYNINGUM OG
SAMEIGINLEGUM KYNNINGAR-
VERKEFNUM ERLENDIS
KYNNTU ÞÉR ÞJÓNUSTU DKKAR. PEKKINGU
OG HUGMYNDIR í BÁS D- 1 33 Á ÍSLENSKU
S JÁVARÚTVEGSSÝNINGUNNI .
f*
£