Morgunblaðið - 01.09.1999, Síða 32
32 D MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRIGOSCANDIA
LAUSFRYSTAR
Bás D-050
15 ára reynsla í verslun með notaðar
fiskvinnsluvélar og -búnað fyrir sjávarútveginn.
Getum útvegað flestar tegundir notaðra BAADER véla með
skömmum fyrirvara. Einnig seljum við vélar, uppgerðar af
fagmönnum.
Umboð fyrir bandaríska fyrirtækið
UNIVERSAL INDUSTRIAL REFRIGERATION
sem sérhæfir sig f hönnun, lausnum og framleiðslu frystikerfa
sem og sölu á endurbyggöum frystitækjum.
Fulltrúi þeirra, TERRY HARTMAN, verður til skrafs og ráðagerða á
bás okkar B-1 á sjávarútvegssýningunni í Smáranum, Kópavogi,
1.-4. september.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Þorkell
Jónas Stefánsson og Regin Gnmsson við tvo nýja Gáska sem þeir eru að leggja lokahönd á.
Athugið!
Hvernig notið þið bátinn ykkar? Er hann
lystibátur til að njóta í frístundum, eða er
hann atvinnutæki til að framfleyta ykkur? í raun
og veru skiptir það ekki máli, en það em þrjú
atriði, sem þið verðið að hafa á hreinu: Það er
hæfni ykkar sjálfra, ástand báts og tækja um borð
og veðrið. Við hjá Johnson pump og Dælum ehf
ráðum ekki miklu um veðrið, og sjálf vitið þið meira um eigin
hæfni. En við vitum allt um dælur. Dælur eru ekki stór hluti af
tækjunum um borð en mjög mikilvæguc Við erum sérfræðingar
í öllum tegundum af dælum íyrir sjófarendur, svo sem dælum
fyrir kælikerfi véla, til dekkspúlunar, til dælingar á úrgangi frá
salerniskerfum, einnig dælum fyrir sturtubað og eldhús,
sjálfvirkum lensidælum og dælum fyrir hitastillikerfi.
Allt sem við vildum segja er það, að við höfum réttu dæluna
fyrir ykkur til hvaða þarfa sem er.
Gúmmíhjóladælur
Gúmmíhjólin í pessum chzlum eru með
sveigjanlegum spöðum. Þatr eru ákjósanlegar
fyrir ýmislegt um borð í bátum. T.d.
sem lensidœlur, til að spúla dekk, til
eldvarna, til mótorkœlingar,
til eldsneytisdalingar ofl.
Þær eru sterkar og slitþolnar
f og endast því vel. Það er
auðvelt að skipta út slithlutum,
og viðhaldskostnaður því lítill.
Dtzlan er einnig fáanleg með segulkúpplingu.
Afköst allt að 625 l/mín.
JOHNSON PUMP
Dælurehf
7 Sími S 400 600
Flskislód 18, 101 Reykjavik
Gáskinn framleiddur
hér á Islandi á ný
SMÍÐI hinna svokölluðu Gáskabáta er
r»tr tnikiíí nú hafin á ný á Islandi en Regin
~ J Grímsson, bátasmiður, hefur um nokk-
urt skeið smíðað báta af þessu tagi í
Nova Scotia í Kanada. Hann hefur nú
tekið upp samstarf við iðnfyrirtækið Landnemann ehf. og verður reist
nýtt húsnæði undir framleiðsluna hér á landi.
og mikið
breyttur bátur
Regin hefur smíðað Gáska-bát-
ana frá árinu 1987 og segir hann
bátinn vel kynntan og að enn sé
stór markaður fyrir bátana hér á
landi. Útliti Gáskans hefur verið
breytt nokkuð og voru fyrstu bát-
arnir þessarar gerðar framleiddir
í Kanada. „Við fórum í ákveðna
naflaskoðun og veltum fyrir okkur
hvað betur mætti fara við hönnun
og framleiðslu bátsins. Fyrir það
fyrsta vildum við reyna að hanna
fallegri bát. Við mýktum því allar
línur í bátnum og þannig minnkar
einnig rekið því nú tekur báturinn
ekki á sig eins mikinn vind. Við
breytingarnar stækkar stýrishús-
ið um nærri 40%, auk þess sem
vinnupláss á dekki eykst talsvert.
Lúkarinn stækkar einnig nokkuð,
enda erum við ekki lengur með
lóðrétta skiptingu milli stýrishúss
og lúkars eins og áður,“ segir
Regin.
Nýtt húsnæði
í Hafnarfirði
Landneminn ehf. er að reisa
húsnæði á hafnarsvæðinu í Hafnar-
firði undir bátasmíðina og er stefnt
að því að framleiðslan verði komin
á fullt í húsinu í desember, að sögn
Jónasar Stefánssonar, eiganda fyr-
irtækisins, og þá verði hægt að
framleiða þrjá báta á mánuði. „Við
stefnum að því að bjóða mönnum
alhliða þjónustu. Það á jafnt við um
framleiðslu, skipulagningu, frá-
gang og afhendingartíma. Við
leggjum einnig áherslu á að þjón-
usta viðskiptavini okkar eftir að
smíði bátanna lýkur, munum fylgja
bátunum eftir ef svo má að orði
komast," segir hann.
Að framleiðslunni koma einnig
undirvertakarnir Ver, sem sér um
allar vélasetningar, og Suðulist,
sem sér um rekkverk, möstur
o.s.frv. Landneminn sér um málun,
innréttingar, raflagnir o.þ.h. Þá
mun ART-X sjá um plöstun hér á
íslandi.
Gáskabátarnir eru einkum ætl-
aðir til línu- og handfæraveiða en
Regin segir að hægt sé að fá bátinn
í 11 metra útgáfu sem sé kjörin á
netaveiðar. Þeir Regin og Jónas
segja ýmislegt benda til þess að
gerðar verði breytingar á reglum
þannig að heimilt verði að stækka
báta af þessari stærð. „Gáski 960
er tilbúinn í slíkar breytingar án
mikillar fyrirhafnar og kostnaður-
inn er ekki mikill. Þá bætast við
nærri 4,5 fermetrar í dekkpláss,“
segja þeir.
Mikill vinnuþjarkur
Hörður Jónsson, útgerðarmaður
á Grundarfirði, hefur fest kaup á
nýjum Gáskabát sem hafður verð-
ur til sýnis á Islensku sjávarút-
vegssýningunni. „Ég valdi Gáska-
bát vegna þess að þeir eru með yf-
irburða sjóhæfni og eru miklir
vinnuþjarkar. Vinnuplássið er ein-
staklega mikið og gott og hægt að
koma 10 körum í lest og mörgum
körum á dekk. Ég fæ einnig öfluga
vél, 430 hestafla Cummings.
Einnig læt ég setja í bátinn hliðar-
skrúfu sem gerir línudráttinn mun
auðveldari en ég ræ nærri ein-
göngu á línu núorðið og er yfirleitt
einn á. Ég fæ bátinn afhentan eftir
sýningu og fer þá strax að róa,“
segir Hörður.
Banni á
nilarkarfa
aflétt?
EVRÓPUSAMBANDIÐ íhugar nú
að aflétta banni við innflutningi á
nílarkarfa frá Tanzaníu og Úganda.
Bannið var sett vegna notkunar eit-
urefna við veiðar á karfanum úr
Viktoríuvatni. Hugsanlegt er að
innflutningur á frystum karfa frá
þessum löndum verði leyfður.
Ljóst er að innflutningur frá
Kenya verður áfram bannaður þar
sem stjórnvöld þar hafa ekki getað
sýnt fram á að ekki hafi verið eitrað
fyrir karfanum. Þau þurfa einnig að
setja lög þar sem hart verður tekið
á fiskveiðilagabrotum eins og eitr-
un og uppfylla ýmis fleiri skilyrði.
Bannið var sett vegna mikillar
matareitrunar meðal fólks um-
hverfis vatnið, en matareitrunin var
meðal annars rakin til notkunar eit-
urs við veiðarnar. Fyrir bannið
voru meira en 60% nflarkarfans
seld til landa innan Evrópusam-
bandsins.
STAFRÆN GÆÐALITPRENTUN
LITPRENTUN SAMDÆGURS!
Bœklingar - nafnspjöld - barmspjöld
og hverskonarprentgripir
*" STAFRÆNA
PRENTSTOFAN
LETURPRENT____
QQ32QDQQQKDD3IIZEQ13 Lítiðuppiag
SÍMI 533 3600 FAX 568 0922 lágt Verð
NETFANG st af p re n t @ st af p re n t. i s -amettima
-A