Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 D 35
FRETTIR
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Framkvæmdir við höfnina á Flateyri.
Hafnaraðstaða
bætt á Flateyri
Flateyri. Morgunblaðið.
VIÐAMIKLAR framkvæmdir eiga
sér stað um þessar mundir í hafnar-
málum Flateyringa. Um er að ræða
breikkun upp á 7 metra og 20 metra
lengingu hafnarkants og mun þessi
breyting verulega bæta haftiaraðstöð-
una sem fyrir er. Þar að auki mun öll
vinnuaðstaða breytast til muna.
Það þótti orðið tímabært að hefja
framkvæmdir við höfnina en Flat-
eyringar hafa beðið í átta ár eftir
bættri hafnaraðstöðu. Það eru Hafn-
arsjóður ísafjarðar og Siglingastofn-
un sem hafa yfirumsjón með fram-
kvæmdunum en um verktöku sér
Rússarnir kaupa
fískimjöl frá Perú
20.000 tonn
mánaðarlega
Áður en að sendinefndin hélt af
stað til Moskvu sagði Arrus við fjöl-
miðla að samningurinn væri mikil-
vægur áfangi í endurreisn fiski-
mjölsiðnarins í landinu, en hann
hrundi í fyrra vegna áhrifa E1 Nin-
os stormsins á ansjósustofninn við
landið. Fiskimjölsframleiðendur í
Perú þarfnast viðskiptanna vegna
þess hve iðnaðurinn er skuldum vaf-
inn. Samningurinn kemur á góðum
tíma fyrir Perúsmenn því blikur eru
á lofti um sölu á mjöli innan ríkja
Evrópusambandsins vegna hræðslu
Anna ekki eftirspurn
EFTIR því sem íbúum fjölgar er
aukin eftirspurn eftir tilapia á Fil-
ippseyjum þar sem fiskveiðar hafa
dregist saman. Filippseyingar
framleiða mest af tilapia á eftir
Kínverjum en tilapiaeldi nemur um
10% fiskeldis á Filippseyjum. Hins
Samdráttur hjá Bretum
FYRSTU sex mánuðina í íyrra lönd-
uðu bresk skip samtals 240.000 tonn-
um en aflinn var 10% minni á sama
tíma í ár. Aflaverðmætið var 214 millj-
ónir punda eða 4% minna en í fyrra en
að meðaltali var verðið 7% hærra.
Botnfískafli dróst saman um 9% að
magni og 4% að verðmæti en alls
veiddust 160.000 tonn og var afla-
verðmætið 140 milljónir punda. Verð-
ið var 6% hærra að meðaltali en í
fyrra en örlítið lægra á nokkrum teg-
undum eins og lýsingi og kola.
Þorskaflinn var 37% minni en í
fyrra og aflaverðmætið 21% jægra en
verðið hækkaði um 26%. Ýsuaflinn
dróst saman um 10% en verðið var
28% hærra og aflaverðmætið 15%
meira en í fyrra. Verð á lýsu var 23%
hærra en í fyrra og aflaverðmætið
6% meira þó veiðin hafi dregist sam-
an um 13%.
Uppsjávaraflinn var 31.000 tonn
eða 30% minni en í fyrra. Aflaverð-
mætið var sex milljónir punda, sem
er 67% minna en 1997, en verðið var
53% lægra að meðaltali. Makrílveiði
var 39% minni og verðið 55% lægra
en aflaverðmætið var 72% minna en í
fyrra. Síldveiðar hafa aukist en samt
er verðið 14% hærra en í fyrra.
50.000 tonn veiddust af skelfiski og
er um 4% samdrátt að ræða en afla-
verðmætið er 68 milljónir punda sem
er 15% meira en í fyrra. Verðið var
11% hærra að meðaltali.
—
9.9 9
m
Gáma- og tækjaleiga Austurlands.
Að sögn verktakans hafa fram-
kvæmdir gengið vel. Gert er ráð fyr-
ir verklokum í október n.k. Samfara
breikkuninni er fyllt upp í þil sem
gaf sig í hittifyrra. í fyrstu fram-
kvæmd verða pollar settir niður, fyllt
upp í þil og pollarnir látnir síga í vet-
ur en næsta sumar verður steypt
1400 ftn þekja. Þrátt fyrir fyrsta stigs
framkvæmdir mun bryggjan verða
nothæf í vetur. Að afloknum öllum
breytingum mun viðlegukanturinn
verða 25 metra breiður. Kostnaðará-
ætlun hljóðar upp á 60 milljónir.
PERÚSK sendinefnd, með Juan Arrus vara-
sjávarútvegsráðherra landsins, hélt til Rúss-
lands á dögunum til að ganga frá samningi
sem gerður hefur verið milli perúskra mjöl-
framleiðanda og rússneskra kaupanda um
sölu á 20 þúsund tonnum af fiskimjöli í mán-
uði hverjum. Fyrr í sumar höfðu farið fram viðræður um allsherjar við-
skiptasamning milli landanna en ekki náðist samkomulag um það vegna
ólíks eðlis hagkerfa landanna.
við díoxínmengun í dýrafóðri. Þessi
hræðsla hefur ollið verðlækkun á
fiskimjöli innan sambandsins. Arrus
segir að framleiðendur muni fá
hærri verð frá Rússunum því salan
fer fram milliliðalaust og því verður
meira til skiptanna fyrir framleið-
endurna.
Sendinefndin mun einnig bjóða
Rússum sölusamninga á niðursoðn-
um makríl sem og öðrum fiskiteg-
undum. Ekki er vitað um hvort
Rússar muni sýna áhuga á þeim
samningum.
vegar fullnægir framleiðslan ekki
eftirspurn. Gæðum er ábótavant í
framleiðslunni og slæmt vatn er
ástæða mikils seyðadauða. Til að
anna aftirspurn þarf að framleiða
um milljarð seyða á ári en fram-
leiðslan er í 600 milljónum.
Plastprent
Kynnir nýjungar á íslensku sjávarútvegssýningunni
40* háglansandi pökkunarfilma fyrir frosin matvæli
r/tAFT filmur fyrir poka og arkir
40* ný kynslóð pökkunarfilma fyrir fersk matvæli
nýjir valkostir í enduriokanlegum umbúðum
Plastprent hefur réttu umbúðalausnina fyrir þig
• leiðandi á sviði umbúðaþjónustu
• ráðgjöf við hönnun og val umbúða
• vöruhús með breitt vöruval staðlaðra umbúða
• áratuga reynsla og stöðug þróun nýjunga
LJttu við hjá okkur
á Islensku sjávarútvegssýningunni
1-4 september 1999 • SalurA • Bás A2
rennilásapokar
kraft filmur
pökkunarfilmur
Plastprent hf
Fosshálsi 17-25
110 Reykjavík • ísland
Sími: 580 5600
Fax: 580 5690
E-mail: plastprent@plastprent.is
Http^/www.plastprent.is
Éll @ Plastprenthf.
llsr iso 8002I \
Útvegsmenn
og framleiöendur
ESAB
LOWARA
ÍTT Industries
FLYGT
ITT Industries
^WOGELPUMPS
T : ITT Industries
verið velkomnir á bás okkar
á Sjávarútvegssýningunni
D 20
Mono Pumps
INTERROLL
SUIG^
Danfoss hf.
Skútuvogi 6
104 Reykjavík
Sími 510 4100
Fax 510 4110