Morgunblaðið - 01.09.1999, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 D 37 <
FRÉTTIR
Ný pökkunarvél
með lofttæmingu
i VALDIMAR Gísla-
Valdimar Gíslason-Íspakk ^VkkSjáv
kvnnir vörur til pökkunar vegsýningunni
" Supervac-pökkun-
arvélar með lofttæmingarbúnaði sem eru útbúnar sérstaklega til þessa að
tryggja örugga lokun á pokum. Við lofttæmingarpökkun á fiski, nýjum,
söltuðum eða reyktum, getur það vandamál komið upp, að lokunin á pokun-
um getur reynst ótrygg.
„Til þess að forðast það að pok-
inn smyrjist að innan hafa menn
búið sér til alls konar áfyllingar-
tæki, eða jafnvel brett upp á pok-
ann þannig að fiskurinn snerti ekki
innra byrði pokans við áfyllingu.
Supervac hefur leyst þetta vanda-
mál með því að sambræðsla pokans
á sér stað undir þrýstingi og gegn-
um báðar hliðar
pokans.
Valdimar Gísla-
son-íspakk kynnir
einnig fleiri tæki
og vörur á sýning-
unni. Þar má nefna
lofttæmingarpökk-
unarfilmu og poka
gerða úr 14 lögum
að mismunandi
plastefnum frá
finnska fyrirtæk-
inu Wihuri Oy
Wipak og nýjustu
tegundir af loft-
tæmingarpökkun-
arfilmum og pok-
um. Jafnframt því
verða sýndar
áprentaðar um-
búðir sem prentað-
ar hafa verið með
fullkomnustu
prenttækni sem
notuð er við fram-
leiðlu plastum-
búða.
Þá verða kynnt-
ir á bás Valdimars
Gíslasonar-Íspakks
ehf. nýir prentarar
frá Sato í Japan.
Prentararnir sem eru af gerðinni
CX200 eru bæði blekborðaprentar-
ar og hitaprentarar (thermal trans-
fer). Prentararnir eru litlir og ódýr-
ir miðað við það víða notkunarsvið
sem þeir spanna.
„Mjög auðvelt og fljótlegt er að
tengja þá og þeir taka afar lítið
pláss. Innifalið í verði prentaranna
er Windows-hugbúnaður, allur
tengibúnaður við PC-tölvu, mið-
arúlla og blekborðar. Miðahönnun-
arforritið DjmamiCXtra 98 fyrir
Windows 95 og 98 og Windows NT
er innifalið í verðinu og fylgja því
stöðluð tengi sem hægt er að tengja
við flestar PC-vélar. CX200 getur
prentað strikamerkimiða, miða með
heimilisfangi, miða með fram-
leiðsluupplýsingum, pökkunardag-
setningum og myndum," segir í
frétt fyrirtækisins.
Þýska fyrirtækið Maja
Maschinenfabrik Hermann Schill
GmbH kynnir nýja gerð af roð-
flettivél á Islensku sjávarútvegs-
sýningunni. Þessi vél hentar vel til
að roðfletta ýsuflök, flatfisk,
þunnildi og að sjálfsögðu lax. Maja-
verksmiðjurnar hafa framleitt vélar
fyrir kjötiðnað í um 80 ár og
reynsla þeirra úr kjötiðnaðinum
hefur komið að góðum notum í
hönnun og framleiðslu á vélum fyr-
ir fiskiðnaðinn. Maja-roðflettivélar
og Maja-ísvélar eru sýndar á sýn-
ingarbás Valdimars Gíslasonar-Ís-
pakks.
Fyrirtækið kynnir einnig nýja
gerð af fiskihnífum á Sjávarútvegs-
sýningunni. Hnífarnh’ fara vel í
hendi, eru léttir að vinna með og er
ætlað að draga úr þreytu og vöðva-
bólgu. Boðið er sérstakt sýningar-
verð á Dick-hnífum og Dick-
brýnsluvélum.
Pækilsöltunarsprautur
frá Fomaco a/s
Valdimar Gíslason-Íspakk ehf.
sýnir pækilsöltunarsprautu frá
Fomaco a/s í Danmörku. Vélar frá
þessu danska fyrirtæki eru mest
notuðu pækilsöltunarsprautur á
Norðurlöndum og eru fjörlmargar í
notkun í dönskum og norskum fisk-
iðnaði. Á sýningunni verður sýnd
vél fyrir flök.
Ný aðferð við reykingu
Loks verður kynntur Unigar
Fish Unit-reykofn frá Ness GmbH
í Þýskalandi. Sýndur verður tölvu-
stýrður reykofn með lokuðu
reykkerfi og nýrri gerð reykgjafa.
Reykofnar frá Ness hafa um ára-
bil verið í notkun hér á landi bæði
í kjöt- og fiskvinnslum og eru um
40 ofnar í notkun víðs vegar um
landið. Fulltrúi frá Ness mun
verða á sýningarbásnum og hann
sýna og skýra út notkun þessara
reykofna.
Ný gerð af pökkunarvél með lofttæmingarbúnaði
er meðal þess sem Valdimar Gíslason-fspakk
kynnir á Islensku sjávarútvegssýningunni.
Aö nýta reynslu
með hugviti
rHORTH^
r ATLANTIC1
iRESOURCE,
ÉCENTRE J
... er brýnt til þess að lifa af harðri
samkeppni um að þjóna kröfuörðum
sjávarútvegisfyrirtækjum nákvæmlega eins og þau
vilja, hvort sem það er á dekkinu, í vélarrýminu eða
brúnni, auk þess að sjá um veiðarfæri, löndum og vinnslu aflans, og þar fram eftir götunum.
Fullkomið vald á ofangreindum forsendum er lykillinn að framgangi okkar, og gerir okkur nú
kleift að kalla okkur með réttu auðlindastöö The North Atlantic Resource Centre. Því er
okkur mikil ánægja að bjóða ykkur í bás okkar nr. D090 til að kynnast færeyskum
fyrirtækjum. Við væntum þess að heyra frá ykkur mjög fljótlega aftur.
ICELANDIC FlSHERIES EXHIBITION
I 9 9 9
1 -4SEPTEMBER1999
Smárinn, Kopavogur, Iceland
ATLANTICON hf Ráðgjöf í fiskiðnaöi
AWI-BOATS hf Fiskibátar
FAROE COLD STORES hf Kæligeymsla
FJM hf Ryöfrítt stál/ Vinnslukerfi um borð
FAROE SHIP hf Flutningar/Skipaumboö
HAVSBRÚN hf Fiskimjöl, lýsi Et laxeldisfóöur
KEMILUX hf Hágæða hreinsiefni
KJ-HYDRAULIK hf Vökvatæki Et skipabreytingar
NORTHERN FISHING INDUSTRY ASSOCIATION Noröur-Færeyjar
TEYMAVIRKIÐ hf Snæri Et Kaðlar
TÓRSHAVNAR SKIPASMIÐJA hf Skipasmíðistöð
VEST PACK hf Umbúðalausnir
VÓNIN hf Veiðarfæri
Menningarstovan • Útflutningsráð Færeyja • Bryggjubakki 12 • F0-100 Tórshnvn • Færcyiurn
Simi +298 31 30 28 • Brétasími +298 31 04 59 • Nettang: ms@ms.olivant.fo
www.mbl.is