Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 38
38 D MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐTAL
Útflutningsráð, Viðskiptabjdnusta utanríkisráðimeytisins, LIU og Hafró saman með bás
Óvenjuleg samvinna
ólíkra aðilja
______Útflutningsráð, Viðskiptaþjónusta utanríkisráðune.ytisins,_
Landssamband íslenskra útvegsmanna og Hafrannsóknastofnun eru
saman með bás á Sjávarútvegssýningunni og er talið að þetta sé í fyrsta
sinn sem svo öflug samtök og stofnanir taka höndum saman af þessu
tilefni. Vegna þessa ræddi Steinþór Guðbjartsson við forsvarsmenn
samtakanna og stofnananna.
Morgunblaðið/Sverrir
Kristján Ragnarsson, framkvœmdastjóri LÍti, Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, Jón
Ásbergsson, framkvæmdastjóri titflutningsráðs, og Benedikt Höskuldsson, forstöðumaður Viðskiptaþjónustu
utanríkisráðuneytisins, slógu á létta strengi á sýningarsvæðinu í Smáranum í Kópavogi.
Tilgangurinn með samvinnunni er
að nýta sér stærð og styrkleika hver
annars til aukinnar kynningar auk
þess sem verulegur sparnaður fæst
með samstarfinu.
„Það fer vel á því að þessir fjór-
ir aðilar séu saman,“ segir Jón
Ásbergsson, framkvæmdastjóri
Útflutningsráðs. „Þarna er verið að
kynna þjónustu sem opinberir og
hálfopinberir aðilar geta boðið sjáv-
arútvegnum og á einum stað er verið
að miðla þekkingu um þessi fyrir-
tæki, stofnanir og samtök.“
Umrætt svæði er um 35 fermetra
stórt og er því skipt í fjóra hluta með
sameiginlegum kaffibar, Cafe De La
Mer. „Við kynnum starfsemi okkar
og þá þjónustu sem við bjóðum út-
flytjendum," segir Jón. „Markhópur
okkar er fyrst og fremst sýnendur
sem slíkir fyrir utan gesti sýningar-
innar. Við leggjum aðaláherslu á að
efla tengslin við íslensk útflutnings-
fyrirtæki frekar en erlend því við lít-
um svo á að fyrirtækin sjálf sjái til
þess að leggja net sín fyrir erlendu
aðilana og því þurfum við ekki að
hafa neina milligöngu þar um.“
Kynningin mjög mikilvæg
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, segir að
ákveðið hafi verið að taka þátt í sýn-
ingunni til að kynna starfsemina,
upplýsa fólk um rannsóknirnar og
gildi þeirra.
„Það er grundvallarmál í starf-
semi okkar að ná til sem flestra,
skýra ráðgjöf okkar og rannsóknir,
og þetta er liður í því átaki okkar,“
segir Jóhann. „Með því að stuðla að
sem bestri þekkingu á starfsemi
okkar aukum við líkurnar á því að
umræðan í þjóðfélaginu um fiski-
fræði, fiskvemd og veiðistjómun
komist í betra form. Um er að ræða
eilíft verkefni og í því sambandi má
nefna að við höfum látið gera kvik-
mynd um starfsemi Hafrannsókna-
stofnunar sem sýnd verður í þriggja
þátta röð í Sjónvarpinu í haust. Auk
þess höfum við verið með opið hús
víðs vegar um landið og til stendur
að fara í skólana.“
Jóhann segir að öll kynning á
stofnuninni sé mjög mikilvæg. „Þeg-
ar fjallað er um sjávarútveginn er
mjög mikilvægt að fólk átti sig á út á
hvað starfsemin gengur. Ef við ná-
um að koma útskýringum okkar og
þekkingu á framfæri sem víðast
kemur það í veg fyrir misskilning og
rangtúlkun." í því sambandi er mik-
ilvægt að vera nálægt hagsmunaaðil-
um á sýningunni, að sögn Jóhanns.
„Við erum hlutlaus og sjálfstæð
stofnun en til að ná árangri í rann-
sóknum er okkur lífsnauðsynlegt að
starfa mjög nálægt sjómönnum, út-
vegsmönnum og öðrum hagsmuna-
aðilum í sjávarútvegi og leggjum
mjög mikið upp úr því.“
Ánægja með samstarfið
LÍÚ tekur þátt í sýningunni í
fyrsta sinn eins og Hafrannsókna-
stofnun og er Kristján Ragnarsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ, ánægður
með fyrrnefnt samstarf. „Mér þykir
mjög vænt um að samstarf skuli hafa
tekist með þessum aðilum um kynn-
ingu á íslenskum sjávarútvegi á
þessari sýningu sem er mjög alþjóð-
leg. Hér koma margir erlendir aðilar
og við viljum segja þeim hvað við er-
um að gera. Hvernig við ætlum að
bregðast við þeim kröfum sem uppi
eru um umhverfismál þar sem við
teljum okkur vera til fyrirmyndar.“
Kristján segir að ekki sé umdeilt
að samtök útvegsmanna hafa stutt
vísindastarfið mjög dyggilega, meðal
annars með því að hafa átt frum-
kvæðið að’ því að kosta smíði nýs
rannsóknaskip's. „Við viljum kynna
fyrir útlendingum hvernig við stjórn-
um fiskveiðum okkar með þeim
hætti að við séum að tryggja sjálf-
bæra fiskistofna til framtíðar og að
um það sé ekki ágreiningur á milli
okkar og vísindanna og svo aftur Út-
flutningsráðs sem starfar að kynn-
ingu á íslenskum útflutningsvörum
og hefur staðið sig mjög vel í þeim
efnum undir forystu Jóns Ásbergs-
sonar. Okkur til mikillar ánægju
virðist Viðskiptaþjónusta utanríkis-
ráðuneytisins vera sömu skoðunar
og við um mikilvægi þessara þátta
og kynningu á þeim, bæði gagnvart
innlendum og erlendum aðilum.“
Viðskiptafulltrúarnir
saman í fyrsta sinn
Benedikt Höskuldsson, forstöðu-
maður Viðskiptaþjónustu utanríkis-
ráðuneytisins segir að samstarfið sé
að hluta til óvenjulegt og að hluta til
ekki. „Viðskiptaþjónustan og Út-
flutningsráð sinna svipuðum málum
og því er eðlilegt að þau séu saman
og sama má segja um LIÚ og Haf-
rannsóknastofnun þar sem annars
vegar er um útgerðaraðila að ræða
og hins vegar aðila sem stundar
rannsóknir á lífríkinu í kringum Is-
land en það er óvenjulegt að þessir
tveir hópar séu saman. Hins vegar
er það sérstaklega gaman og við
njótum góðs af því að vera með þess-
um óvenjulega hluta, því þetta eru
aðilar sem við viljum kynnast betur
og kynna þeim starfsemi okkar. Við
vinnum með íslenskum útflutnings-
fyrirtækjum eins og Útflutningsráð
og margir innan LIU eru stórir út-
flytjendur. Þetta er því besta mál.“
Viðskiptaþjónustan kynnir við-
skiptaþjónustuna sem felst í því að
veita markaðsaðstoð erlendis þar
sem Island er með sendiskrifstofur
en Island er með 12 sendiráð fyrir
utan fastanefndir. „Á sex stöðum, í
Kína, Rússlandi, Þýskalandi, Bret-
landi, Frakklandi og New York í
Bandaríkjunum erum við með sér-
hæfða viðskiptafulltrúa, og þeir
koma til Islands gagngert til að vera
í sambandi við íslenska útflytjendur
á sýningunni," segir Benedikt. „Höf-
uðtilgangur okkar er að kynna þjón-
ustu okkar fyrir íslenskum fyrir-
tækjum. Hlutverk viðskiptafulltrú-
ana er að aðstoða íslensk fyrirtæki
sem eru í viðskiptum og eru að reyna
að koma á viðskiptum við þarlend
fyrirtæki. Þeir hafa oft milligöngu
um samskiptin við þessi erlendu fyr-
irtæki og stjórnvöld sem er hlutur
sem ekki má vanmeta. Auk þess hafa
þeir verið í markaðsöflun, leitað uppi
viðskiptasambönd, gert úttektir um
einstök fyrirtæki og vörur og greitt
fyrir almennri viðskiptaleið. Við-
skiptafulltrúarnir verða á staðnum
og þetta er í fyrsta sinn sem þeir eru
allir saman hérna á sama tíma.“
Velkomin
á kynningu okkar
og sérstaklega bjóðum við
þátttakendur í NAS verkefninu
velkomna á sýninqarsvaeðLD-133
á íslensku sjávarútvegssýningunni 1999
i Smáranum 14. september
#
III
ÚTFLUTNINGSRÁÐ ISLANDS
Hallveigarstígur 1 • 101 Reykjavik • Sími: 511 4000 • Fax: 511 4040 • www.nas.is
VELKOMIN
á bás C24
á íslensku sjávarútvegssýningunni
þar sem viðhaldsforritið
VIÐHALDSSTJÓRI4.0
verður kynnt
U t f I u t n i n g s r á d Islands er abyrgdar- og r e k s t r a r a ö i I i NAS verkefnisins
Golíat ehf. • Sími: 461 1220, Rvk.: 567 9822 • Netfang: goliat@nett.is