Morgunblaðið - 01.09.1999, Qupperneq 44
44 D MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
VIÐTAL
MORGUNBLAÐIÐ
Sæplast rúmlega tvöfaldar veltu sfna með kaupum á tveimur verksmiðjum
„Þurfum að halda
áfram að stækka“
Mikill bati hefur orðið á rekstri Sæplasts hf. á Dalvík síðustu misserin
og skilar það nú góðum hagnaði og umsvifín hafa verið aukin mikið.
Hjörtur Gíslason, ræddi þessa þróun við framkvæmdastjórann, Steinþór
Olafsson. Hann gerir ráð fyrir að velta félagsins á næsta ári verði allt að
1,3 milljarðar króna.
Steinþór Ólafsson með forseta fslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, er forsetinn heimsótti Sæplast fyrr á þessu ári.
'j.VIÐ þurfum að koma rekstrinum
vel fyrir vind áður en við ráðumst í
frekari fjárfestingar og ný verkefni.
Það er nóg af tækifærunum. Lang-
tímamarkmið okkar eru ljós og
hvaða skref við viljum taka næst.
Það er bara spuming hvenær við
teljum okkur í stakk búna til að
taka þau skref. Við erum ekkert
hættir. Við þurfum að halda áfram
að stækka og halda áfram að skoða
tækifærin," segir Steinþór Ólafsson,
framkvæmdastjóri Sæplasts, í sam-
tali við Verið.
Sæplast keypti nýlega tvær verk-
•“ smiðjur af norska stórfyrirtækinu
Dynoplast, aðra í Noregi, hina í
Kanada. Fyrir á Sæplast verk-
smiðju á Dalvík og litla verksmiðju
á Indlandi. Rekstur fyrirtækisins
hefur batnað verulega á síðustu
misserum, en árið 1997 var það rek-
ið með töluverðu tapi. Reksturinn
nú skilar verulegum hagnaði. Stein-
þór Ólafsson tók við sem fram-
kvæmdastjóri Sæplasts um mitt síð-
asta ár.
Nám á íslandi, í Danmörku og
Bandaríkjunum
„Eg er tæknifræðingur frá Oden-
se Teknikum í Danmörku, lauk
prófi þaðan árið 1987. Síðan kom ég
> heim og starfaði hér um tíma, en
hélt síðan til náms í Bandaríkjunum
og lauk þar prófi 1993. Þá lá leiðin
heim á ný og ég starfaði sem deild-
arstjóri skipa- og gámaflutninga-
þjónustu Eimskips.
Um áramótin ‘95 til ‘96 bauðst
mér að fara til Mexíkó á vegum
Þormóðs ramma og Granda. Eg var
mjög spenntur fyrir því, en ég hef
mikinn áhuga á Mið- og Suður-Am-
eríku. Ég sló því til og var þar í tvö
ár og sá um uppbyggingu á rekstri
. þeirra. Það var útgerð 10 rækjubáta
og útgerð Amamessins á tilrauna-
veiðum. A sama tíma byggðum við
fullkomið frystihús og fiskverkun.
Því verkefni var að mestu lokið um
mitt ár 1997, en ég hafði full'an hug
á að vera þar lengur, enda líkaði
mér starfið vel. Hins vegar höguðu
fjölskylduhættir því þannig til að ég
ákvað að snúa til íslands aftur.
Konan mín, Elín Gautadóttir, er
verkfræðingur og starfar hjá
Landsbréfum. Hún fékk enga vinnu
við sitt hæfi úti og því fórum við
heim, enda verkefninu að ljúka.
Ég fór því aftur til Eimskips sem
forstöðumaður flutningastýringar.
Ég var ekki lengi þar, en ég hef
sterkar taugar til Eimskips. Mér
bauðst svo að taka við rekstri
Sæplasts og fór í það í júlí 1998, en
ákvörðunin var tekin fyrr.
Grípur tækifærin
Maður grípur tækifærin þegar
þau gefast. Ég hafði reyndar starf-
að hjá Sæplasti í Reykjavík á ámn-
um 1988 og 1989. Því þekkti ég
nokkuð vel til fyrirtækisins, hef
enda fylgzt vel með rekstri þess.
Kristján Aðalsteinsson hafði látið
af störfum sem framkvæmdastjóri
um áramót og var fyrirtækið fram-
kvæmdastjóralaust um tíma. Pétur
Reimarsson, sem hafði verið fram-
kvæmdastjóri á undan Kristjáni,
kom inn að beiðni stjórnar um tíma.
Fyrirtækið hafði þá átt í miklum
erfiðleikum, en mikið tap var á
rekstri þess árið 1987. Það lágu
margar ástæður að baki þess eins
og miklar byggingarframkvæmdir
og fjárfestingar í vélum og tækjum.
Við endurskoðuðum reksturinn og
fórum í nokkurs konar naflaskoðun.
Ný markmið
Við settum okkur ný markmið og
gerðum okkur grein fyrir því að fyr-
irtækið þyrfti að stækka og verða
þannig álitlegur kostur fyrir fjár-
festa. Sjóndeildarhringurinn var
víkkaður, en áður hafði verið lögð
megináherzia á að efla starfsemina
á Dalvík. Akveðið var að efla
Sæplast og horfa til þess á heims-
vísu. Það varð til þess að farið var
að skoða erlendar verksmiðjur og
hvaða tækifæri væru þar. Það leiddi
svo til þess að farið var í viðræður
við Dynoplast, sem lauk með kaup-
um tveggja verksmiðja af þeim,
annarrar í Noregi, hinnar í Kanada.
Aður höfðum við einbeitt okkur að
rekstri fyrirtækisins til að ná niður
rekstrarkostnaði og styrkja heima-
völlinn. Það tókst ágætlega og við
skiluðum ágætis hagnaði, um 46
milljónum króna, árið 1998, sem að-
allega náðist á seinni helmingi þess.
Við höfum enn haldið áfram að ná
betri tökum á rekstrinum og afkom-
an eftir fyrstu 6 mánuði þessa árs
er mjög góð.
Verksmiðjur keyptar
Að þessum árangri náðum var
farið að leita eftir verksmiðjukaup-
unum upp úr áramótum á þessu ári.
Dynoplast er mjög stórt fyrirtæki
með 20 til 25 verksmiðjur víða um
heim. Við keyptum af þeim tvær
verksmiðjur sem eru í hverfisteypu
á plasti. Það er mjög svipuð vinna
og er hjá okkur hér á Dalvík. Önnur
er í Salanger í Norður-Noregi og
hin í St. John í New Brunswick í
Kanada, rétt norðan við Maine í
Bandaríkjunum. Verksmiðjan í
Noregi er nokkru minni en sú
kanadíska en með þessum kaupum
erum við ríflega að tvöfalda umsvif
Sæplasts. Báðar verksmiðjumar
eru að framleiða ker og hverfi-
steyptar afurðir og falla vel að
framleiðslu okkar og verkþekkingu.
Við erum þarna að kaupa tækifæri
til að stækka, komast nær mörkuð-
unum og auka vöruþróunarmögu-
leikana og gera fyrirtækið áhuga-
verðara fyrir fjárfesta. Sæplast hef-
ur þótt fremur lítið fyrirtæki með
veltu upp á um 500 milljónir króna.
Eins og hlutabréfamarkaðurinn
hefur verið að þróast hafa augu
manna beinzt að stærri félögum
með meiri umsvif og við vildum
gjaman vera í þeim hópi. Nú reikn-
um við með að veltan á næsta ári
verði 1,2 til 1,3 milljarðar króna.
Komast inn á fleiri markaði
Sæplast hefur náð mjög góðum
árangri á markaðnum fyrir sjávar-
útveginn. Okkur hefur ekki tekizt
nægilega vel að nálgast aðra áhuga-
verða markaði eins og kjötvinnslu,
kjúklingframleiðslu og fleira. Skýr-
ingin á því er einfaldlega sú að við
emm lengra frá þessum mörkuðum.
Nú eram við að eignast verksmiðjur
sem era nær mörkuðunum og
þannig opnast ný tækifæri í vöra-
þróun. Við eram að komast inn á
fleiri markaði. Þá má benda á það
að kerin era mjög rúmfrek og era
því dýr í flutningum. I harðnandi
samkeppni er nauðsynlegt að hag-
ræða og einn liðurinn í því er að
minnka flutningskostnaðinn með
því að færa framleiðsluna nær
mörkuðunum. Það er mikill kostn-
aður fyrir okkur að flytja ker til
Ameríku héðan en sáralítill frá
Kanada. Við eram einnig að minnka
þá áhættu sem felst í því að vera að
langmestu leyti háðir sjávarútvegi.
Fjarlægðín hefur áhrif
Þó við teljum okkur vera í nafla
alheimsins hér á íslandi er það ein-
faldlega svo að við verðum ekki var-
ir við mikinn áhuga erlendra stór-
fyrirtækja á Dalvík. Áhugi þeirra
beinist frekar að verksmiðjum okk-
ar í Kanada og Noregi, þrátt fyrir
að á Dalvík sé einhver bezta verk-
smiðja heims á þessu sviði. Fjar-
lægðin hefur enn áhrif á menn.
Verksmiðjan í Kanada framleiðir
mikið af vörum, sem við þekkjum
lítið til hér á íslandi, sem era vörar
fyrir kjötiðnaðinn, eins og vagnar
og ker, og era einnig seldar inn í
kjúklingaræktina. Þeir era því með
breiðara úrval en við, sem höfum
einbeitt okkur að keram fyrir sjáv-
arútveginn. Við eram með mjög
góðar vörar, enda era helztu við-
skiptavinir okkar hér á landi mjög
kröfuharðir kaupendur.
Verksmiðjan í Noregi sinnir sjáv-
arútveginum þar, en hann hefur
ekki notað eins mikið af köram og
Islendingar. Norðmenn nota körin
meira í saltfiskverkun og þurfa ekki
einangruð ker í hana. Þó fram-
leiðsla allra verksmiðjanna sé svip-
uð, er ekki um sköran að ræða,
heldur eykst vöraúrvalið og mark-
aðsstaðan styrkist. Við höfum ekk-
ert verið í kjötinu og til Noregs hef-
ur sáralítið af köram farið. Þetta er
því nánast hrein viðbót.
Þróunarverkefni á Indlandi
Við eram svo líka með verk-
smiðju á Indlandi. Þar eram við að
hugsa um Asíumarkaðinn og lítum á
þetta sem þróunarverkefni. Það er
farið hægt og rólega af stað og við
eram að læra að vera með fyrirtæki
á þessum slóðum og læra á markað-
inn. Þetta hefur gengið svipað og
áætlanir gerðu ráð fyrir, nokkra
betur. Við sjáum það eftir svona tvö
ár, hver framtíð verksmiðjunnar
kann að verða.
Þarna sannar það sig enn og aft-
ur að það að vera á staðnum opnar
strax nýja markaði. Við höfum þeg-
ar hannað nýja afurð fyrir Ind-
landsmarkaðinn, sem er 220 lítra
fjölnota ker. Þarna reyndist mikil
þörf fyrir ker með mikilli einangran
og þéttu loki til flutninga á alls kyns
matvælum á Indlandi. Við höfum
líka orðið varir við áhuga frá öðram
löndum á þessum slóðum. Fyrir-
tækin eru lítt tæknivædd og því
vilja þeir ekki hafa kerin mjög stór.
Það er ýmislegt fleira í gangi á Ind-
landi, en við tökum bara eitt skref í
einu í þessum efnum.
Mest selt til landa í Evrópu
Það hefur verið ákveðin hefð fyi-ir
því undanfarin ár hjá Sæplasti að
ívið meira af framleiðslunni fari ut-
an. Við þessar breytingar, sem
verða núna, munu um 80% af heild-
artekjum fyrirtækisins koma að ut-
an þannig að áhættudreifing í fyrir-
tækinu er orðin mjög mikil. Við
verðum nú ekki eins háðir sjávarút-
veginum, ekki eins háðir Islandi.
Stærstu markaðirnir okkar hafa
verið, fyrir utan Island, lönd í Evr-
ópu, eins og England, Skotland og
Holland. Einnig hefur nokkuð farið
til Asíu. Við höfum selt mjög lítið til
Bandaríkjanna, en svolítið til Suð-
ur-Ameríku og Nýfundnaland hefur
verið áhugaverður markaður. Að
jafnaði seljum við til 30 til 40 landa
á hverju ári. Það eru alltaf nokkrar
sveiflur í þessu eftir gangi mála í
sjávarútveginum, en heildin er
ósköp svipuð.
Miklir möguleikar vestan hafs
Það margt spennandi að takast á
við í framtíðinni. Markmiðið er að
stækka fyrirtækið, gera það áhuga-
vert fyrir fjárfesta, dreifa áhætt-
unni og opna leiðir inn á nýja
markaði. Verksmiðjan í Kanada
gefur okkur mikla möguleika á
mjög spennandi markaði, sem er
kjötmarkaðurinn í Bandaríkjunum.
Við eram þegar komnir þar inn
með annan fótinn og takist okkur
að ná þar fótfestu er framtíðin
björt. Það era mörg tækifæri
framundan. Verkefni okkar nú er
að koma þeim vöruflokkum, sem
framleiddir era í Kanadaverk-
smiðjunni og við erum ekki með,
inn á markaðinn í Evrópu, fyrst og
fremst fyrir kjötið. Við þurfum svo
líka að leggja áherzlu á samnýt-
ingu verksmiðjanna og miðla þekk-
ingu á milli, færa til mót og dreifa
álagi. Við þurfum að ná þeim sam-
legðaráhrifum, sem við vitum að
við getum náð fram.
Við geram ekki miklar arðsemis-
kröfur til rekstursins á Indlandi, en
þar er mikill áhugi á framleiðsluvör-
um okkar. Við eigum bara eftir að
hugsa okkar gang í þeim efnum,
hvemig við tökum á því. Við viljum
frekar fara okkur hægt en of hratt.
Of hraður vöxtur getur líka verið
varasamur," segir Steinþór Olafs-
son.
fyrir
[siayarutMeginm
Falleg, slitsterk efni
á gólf og veggi
- hentar vel
^ ■ á vinnsluþilför fískiskipa
og í fiskvinnslustöðvar
Hreinsiefni
og hreinsikerfi
- frábær lausn
við þrifi
skipum og
fiskvinnslum
SIGMA
COATINGS
sérhæf málning
á skip og mannvirki
Efnaverksmiðjan Sjöfn hf
flustursiðu 2 • 603 flkureyri • Simi 460 3425 • Fax 461 1058
www.sjofn.is
Venðvelkom-nWokkar
éijávartwSsýningunn
í Knnavogi