Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 D 45
FRÉTTIR
Iceland Review
Sérrit um
útveg'inn
í TILEFNI íslensku Sjávarútvegs-
Ísýningarinnar í Smáranum í Kópa-
vogi hefur Iceland Review gefíð út á
ensku sérrit Iceland Business um
sjávarafurðir og búnað fyrir veiðar
og vinnslu. Blaðinu verður dreift á
sýningunni og einnig samkvæmt
sérstökum póstlistum Útflutnings-
ráðs og Viðskiptaskrifstofu Utan-
ríkisráðuneytisins. Ritið byggir á
viðtali við sjávarútvegsráðherra
Ama M. Mathiesen, almennum
upplýsingum um sjávarútveg á Is-
Ilandi, og umfjöllun um sjávarút-
vegsfyrirtæki og ýmsa þjónustuað-
ila tengdum sjávarútvegi.
Iceland Business hefur komið út
á ensku í rúm fimm ár í nanu sam-
starfi við Útflutningsráð. A þessum
tíma hefur vöxtur og viðgangur
þess stöðugt aukist og Iceland
Business er nú skilgreint sem „vett-
vangur fyrir íslensk fyrirtæki til
sóknar á erlendum mörkuðum."
Blaðið á vefsíðu lceland
Review
IAuk ofangreindrar dreifíngar er
ritið jafnframt notað af viðskipta-
sendinefndum bæði hérlendis og er-
lendis. Einnig verður blaðið sett inn
á vefsíður Iceland Review í heild
sinni, en heimasíðan er fjölsótt dag-
lega (um 80-90.000 heimsóknir á
mánuði) sérstaklega vegna „Daily
News From Iceland“ fréttaþjónust-
unnar. „Þessi dreifing gerir ritið án
Iefa að einum öflugasta kynningar-
miðli á vettvangi íslensks sjávarút-
vegs,“ segir í frétt frá útgáfunni.
Borða
meira af
fiskinum
IFISKNEYZLA í Bandaríkjunum
er nú að aukast á ný eftir samdrátt
undanfarin ár. Neyzlan á síðasta ári
náði 14,9 pundum á hvert
mannsbarn eða um 6,8 kílóum og
jókst lítillega frá árinu áður. Fyrir
10 árum var neyzlan 16,2 pund, 7,3
kíló. Neyzla á frystum og ferskum
afurðum stendur að mestu undir
aukningunni, en hún var alls 10,2
pund eða 4,6 kíló. Mun minna er
borðað af niðursoðnu fiskmeti,
Iaðeins 4,4 pund, eða um 2 kíló og
hefur neyzlan farið minnkandi. Af
verkuðum fiski, saltfiski og skyldum
afurðum, er neyzlan aðeins 0,3 pund
á ári. Af einstökum fískitegundum
er rækjan vinsælust en af henni
voru borðuð 1.300 grömm á hvert
mannsbarn á síðasta ári.
tryggiir árangur
_<A'ing y,,
Kælikerfi
Frystikerfi
RSW/CS W-kerfi
Vakum dælukerfi
Osonkerfi
Fiskvinnslukerfi
Varahlutir - Þjónusta
Frystivélar
Plötufrystar
Lau sf ry star
Kælimiðilsdælur
Kælimiðlar
I svélar
e#* the
Metnaður MMC Fisktækni felst í að
tryggja öryggi i viðhaldi og eftirliti á
öllum tegundum kæli- og frystikerfa.
Starfsfólk sölu- og þjónustudeildar
MMC Fisktækni ertilbúið til þjónustu
hvenær sem er og hvar sem er.
MMC FISKTÆKNI
Stangarhyl 6-110 Reykjavík
sími 587 1300 • fax 587 1301- mmcinfo@mmc.is
A
Áður Kværner Fisktækni
ca/H
Við verðum á bás E-60 á Sjávarútvegssýningunni 99
STERKT AFL Á MARKAÐI
Vaki og DNG Sjóvélar hafa sameinast undir nýju nafni, Vaki - DNG. Með sérfræðiþekkingu hvort á sínu sviði leggja fyrirtækin hugvit sitt og reynslu saman og mynda sterkt afl. Fyrirtæki sem skilar víðtækari og öflugri þjónustu til viðskiptavina sinna og hefur mikinn slagkraft í vöruþróun. J
VAKI
í Við bjóðum ykkur velkomin á sýningarsvæði A-1 =3 fl=1^3
1 á íslensku sjávarútvegssýningunni og kynnast hinu nýja fyrirtæki