Morgunblaðið - 07.09.1999, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
Finnbogi Jakobsson (frá vinstri), taugasérfræðingur á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Mario Siebler, taugasérfræðingur á háskólasjúkrahúsinu í Diis-
seldorf, Albert Páll Sigurðsson, taugasérfræðingur á Landspítala, og Stephan Theiss, eðlisfræðingur frá DUsseldorf, hafa starfað saman að þróun
nýs tækis til að greina heilablóðfall. Fremstur fyrir miðju er Ingólfur G. Arnarson tölvunarfræðingur.
Þróa nýtt tæki til að
greina heilablóðfall
NYTT TÆKI sem greinir heilablóð-
fall á skjótan hátt er nú í þróun hjá
Taugagreiningu hf. Að sögn Egils
Mássonar framkvæmdastjóra er
nýja tækið mun fljótvirkara en heila-
rit sem nú er notað og getur greint
heilablóðfall innan tíu mínútna.
Tækið byggist á aðferð sem þró-
uð var af læknum við háskóla-
sjúkrahúsið í Dusseldorf, og hefur
Taugagreining hf. einkarétt á hag-
nýtingu þessarar aðferðar. Dr.
Mario Siebler, taugalæknir og yfir-
maður heilablóðfallsdeildarinnar á
Háskólasjúkrahúsinu í Dusseldorf,
og Stephan Theiss eðlisfræðingur,
sem starfar með dr. Siebler, voru
hér í síðustu viku til að kynna þetta
nýja tæki fyrir íslenskum læknum.
Skjót greining lykillinn
Heilablóðfall er þriðja algengasta
dánarorsök hér á landi og ein al-
gengasta ástæðan fyrir varanlegri
fötlun. Miklu skiptir að heilablóðfall
greinist sem fyrst svo hægt sé að
koma í veg fyrir frekari áföll og al-
varlegar heilaskemmdir af völdum
þess.
„Tækið sem við erum að þróa, og
við köllum Key Stroke, er einfalt í
notkun og gefur skjóta niðurstöðu.
Það getur því auðveldað greiningu á
sjúkdómnum verulega. Nú eru
komin á markaðinn ný lyf sem geta
komið í veg fyrir alvarlegar afleið-
ingar heilablóðfalls en þau verður
að gefa strax ef þau eiga að virka.
Þannig er skjót greining lykillinn,"
segir Egill Másson.
Að sögn dr. Sieblers er vandinn
við heilarita sem nú eru í notkun sá
að þeir eru flóknir í notkun og eins
þurfa að vera sérfræðingar á staðn-
um til að lesa úr niðurstöðunum.
Einnig eru notuð sneiðmyndatæki
núna við greiningu en niðurstöður
úr þeim liggja ekki fyrir fyrr en eft-
ir sólarhring. „Tækið sem við höfum
þróað er einfaldara að öllu leyti og
niðurstöður liggja fyrir innan tíu
mínútna. Þetta er byggt á tölvufor-
riti sem sérfræðingur getur lesið úr
í tölvunni hjá sér en þarf ekki að
koma á deildina þar sem sjúklingur-
inn liggur. Þetta flýtir allri úr-
vinnslu. Þá erum við einnig að þróa
minna tæki sem er ætlað fyrir
bráðadeildir. Það er mun auðveld-
ara í notkun, svo auðvelt raunar að
nánast hver sem er getur notað það.
Slíkt er mjög heppilegt til dæmis úti
á landi þar sem háþróuð sjúkrahús
eru ekki á næsta leiti. Þá gætu til
dæmis læknar á staðnum, hjúkrun-
arfólk eða jafnvel sjúkraflutninga-
menn notað það og með tölvutækn-
inni fengið sérfræðinga á sjúkra-
húsum til að lesa úr mælingunum
jafnóðum," segir dr. Siebler.
Þýsk aðferð
Aðferðin við Key Stroke var
fundin upp af dr. Siebler og Theiss.
„Taugagreining fékk einkarétt á
hagnýtingu hennar fyrir tæpu ári,“
segir Egill. „Við höfum svo fengið
styrki bæði frá Iðntæknistofnun og
Nýsköpunarsjóði til frekari þróun-
ar. Aðferðin byggist fyrst og fremst
á tölvuforriti en síðan þarf einnig að
þróa lítið tæki með og við erum í
samstarfi við enskt fyrirtæki sem
sér um framleiðslu tækjanna. Fyr-
irtæki okkar sér eingöngu um þró-
un hugbúnaðar og vélbúnaðar en
ekki framleiðslu."
Egill segir að enn sé nokkuð í
land í þróunarvinnunni. „Tækið hef-
ur verið reynt á sjúkrahúsi í Þýska-
landi og gefið mjög góða raun. Fyr-
ir stuttu gerðum við svo samning
við háskólasjúkrahúsið í Boston,
eða Massachusetts General Hospi-
tal, sem ætlar að prófa frumgerð
tækisins nú í haust. Við bindum
mikla vonir við þær prófanir og
væntum niðurstaðna í vetur. Þær
niðurstöður verða notaðar til að
sækja um viðurkenningu banda-
rískra heilbrigðisyfirvalda. Þá verða
þessi tæki einnig prófuð á tveimur
sjúkrahúsum í Þýskalandi og einu á
Norðurlöndum á næstunni. Við von-
um einnig að þessi tæki verði próf-
uð hér á landi innan tíðar.“
Nokkrar fjárréttir haustið 1999
Auðkúlurétt í Svínavatnshr., A.-Hún. Laugardagur 11. sept.
Áfangagilsrétt í Landmannaafrétti, Rang. Fimmtudagur 23. sept.
Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr. Sunnudagur 19. sept.
Dalsrétt í Mosfellsdal, Kjós. Laugardagur 25. sept.
Felisendarétt í Miðdölum, Dal. Laugardagur 18. sept.
Fljótshlíðarrétt í Fljótshlíð, Rang. Þrd. 14. sept. og sunnud. .19. sept.
Sunnudagur 12. sept.
Föstúdagur 10. sept.
Sunnudagur 19. sept.
Laugardagur 18. sept.
Þrið.judagur 21. sept.
Laugardagur 11. sept.
Laugardagur 18. seþt.
Mánudagur 20. sept.
Sunnudagur 12. sept.
Laugardagur 11. sept.
Sunnudagur 12. sept.
Föstudagur 10. sept.
Laugardagur 18. sept.
Mánudagur 20. sept.
Sunnudagur 19. sept.
Miðvikudagur 15. sept.
Laugardagur 11. sept.
Laugardagur 18. sept.
Laugardagur 18. sept.
Miðvikudagur 15. sept.
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún.
Þórkötlustaðarétt í Grindavík.
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún.
Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr.
Ölfusrétt í Ölfusi, Árn.
F.yótstungurétt í Hvítársíðu, Mýr.
Fossrétt á Síðu, V.-Skaft.
Æossvallarétt v/Lækjarbotna, (Rvík/Kóp.).
Gillastaðarétt í Laxárdal, Dal.
Grímsstaðarétt á Mýrum, Mýr.
Hamarsrétt á Vatnsnesi, V.-Hún.
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árn.
Hítardalsrétt í Hítardal, Mýr.
Hhðarrétt í Bólstaðarhl.hr. A.-Hún.
Hlíðarrétt í Mývatnssveit, S.-Þing.
Hraunsrétt í Aðaldal, S.-Þing.
Hrunaréttir í Hrunamannahr., Árn.
Húsmúlarétt v/Kolviðarhól, Árn.
Kjósarrétt í Kjósarhr., Kjósarsýslu.
Kirkjufellsrétt í Haukadal, Dal.
Klausturhólarétt í Grímsnesi, Árn.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skagafirði.
Lönguhlíðarrétt v/Bláfjallaveg.
Nesjavallarétt í Grafningi, Árn.
Oddsstaðarétt í Lundárreykjadal, Borg.
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg.
Reykjaréttir á Skeiðum, Árn.
Reynistaðarrétt í Skagafirði.
Selfiatarrétt í Grafningi, Árn.
Selvogsrétt í Selvogi, Árn.
SiJfrastaðarétt í Akrahr., Skgg.
Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi, Árn.
Skaftáurétt í Skaftárhr., V.-Skaft.
Skaftártungurétt í Skaftártungú, V.-Skaft.
Skarðarétt í GönguskörðHm, Skag.
Skarðsrétt, Svignaskarði, Mýr.
Skrapatungurétt í Vindhælishr., A.-Hún.
Stafnsrétt í Svartárdal, A.-Hún.
Tungnaréttir í Biskupstungum, Árn.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún.
Valdarásrétt í Víðidal, V.-Hún.
Föstudagur 17. sept.
Laugardagur 11. sept.
Sunnudagur 12. sept.
Mánudagur 20. sept.
Mánudagur 20. sept.
Mánudagur 20. sept.
Föstudagur 10. sept.
Laugardagur 11. sept-.
Laugardagur 11. sept.
Laugardagúr 11. sept.
Mánudagur 20. sept.
Sunnudagur 12. sept.
Laugardagur 11. sept.
Laugardagur 11. sept.
Föstudagur 10. sept.
Föstudagur 10. sept.
Laugardagur 11. sept.
Laugardagur 18. sept.
Laugardagur 11. sept.
Mánudagur 20. sept.
Þriðjudagur 21. sept.
Lögreglan í átökum
Beitti kylf-
um og
piparúða
sér til
varnar
RÁÐIST var að lögreglumönnum á
skemmtistaðnum Sportkaffi við
Þingholtsstræti í Reykjavík að-
faranótt sunnudags og þurfti lög-
reglan að nota kylfur og piparúða
sér til varnar.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu
að veitingahúsi við Þingholtsstræti
um miðnætti á laugardag, en þar
áttu dyraverðir í erfiðleikum með
gesti staðarins og óskuðu eftir að-
stoð við að vísa fólki frá. Er lög-
reglumenn hugðust ræða við einn
gestanna brást hann illa við og
þegar hann var færður brott var
ráðist að lögreglumönnunum. Tals-
verð átök urðu milli lögreglu og
nokkurra gesta og urðu lögreglu-
menn að nota kylfur og piparúða
(varnarúða) til varnar, eins og áður
sagði.
Þrír voru handteknir á staðnum
og færðir til vistunar á lögreglu-
stöð. Tveir lögreglumenn slösuðust
í átökunum en þó ekki alvarlega.
Lögi-eglumenn lentu einnig í
átökum snemma á sunnudags-
morgun, en þá við eftirlýstan sí-
brotamann. Lögreglumenn sem
voru að aka ölvaðri konu heim til
sín veittu því athygli að í húsnæði
hennar dvaldi eftirlýstur síbrota-
maður. Hann brást iha við hand-
töku lögreglu og réðst að lögreglu-
mönnunum vopnaður rörbút.
Maðurinn var handtekinn og
einnig annar karlmaður, sem var á
staðnum. Þeir voru báðir vistaðir í
fangahúsi lögreglu.
-----------------
Hótel Flókalundur
til sölu
Tvö óform-
leg tilboð
hafa borist
HÓTEL Flókalundur í Vatnsfirði á
Barðaströnd er til sölu. Hótelið var
auglýst til sölu um síðustu helgi og
hafa þegar tvö óformleg tilboð
borist í hótelið, að sögn Péturs Sig-
urðssonar, forseta Alþýðusam-
bands Vestfjarða. Sambandið er
stærsti eignaraðili hótelsins ásamt
verkalýðsfélaginu Baldri á Isafirði
og Eflingu í Reykjavík.
Hótelið hefur verið í eigu 17
verkalýðsfélaga í Reykjavík, á
Akureyri og Vestfjörðum síðan
1979 og var upphaflega rekið í
sambandi við orlofshúsabyggð á
svæðinu. Að sögn Péturs hefur um
nokkurt skeið verið rætt um að
selja hótelið vegna þeirra endur-
bóta og breytinga sem þarf að gera
-á því, meðal annars stækkunar.
Ekki sé samkomulag meðal núver-
andi eignaraðila um hvort þeir vilji
eiga hótelið áfram með þeirri
áhættu sem því fylgir, en að sögn
Péturs hefur Verið borgað með
rekstri þess í nokkur ár. Því hafi
verið tekin ákvörðun um að selja
hótelið og ef viðunandi tilboð berist
verði því tekið. Ef ekki, verði leitað
eftir öðrum leiðum til að breyta
eignaraðildinni. Möguleiki sé á að
einhverjir eigendur sameinist um
að kaupa aðra út.
Pétur segir að tvö óformleg til-
boð hafi þegar borist, annað frá
vestfirskum aðilum en hitt frá höf-
uðborgarsvæðinu.