Morgunblaðið - 07.09.1999, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999 4Í> ''
MINNINGAR
Gunnar hafði mikinn áhuga á söfn-
un bóka, tímarita, mynda og alls
konar efnis sögulegs eðlis. Því var
oft leitað til hans um margs konar
efni og fróðeik, sem vörðuðu starf-
semi Lionsklúbbsins Baldurs í gegn-
um tíðina. Þótt Gunnar gengi ekki
heill til skógar síðustu árin lét hann
aldrei deigan síga og mætti ótrauður
á fundi til að hitta gamla félaga og
upplifa góðan anda, sem ávallt hefur
ríkt á fundum Baldurs.
Nú, þegar komið er að kveðju-
stund, viljum við félagar Gunnars í
Baldri þakka honum dygga og
trausta samfylgd á liðnum árum og
fyrir allt það starf, sem hann hefur
lagt af mörkum í þágu Baldurs. Við
eigum eftir að sakna góðs drengs og
félaga. Einungis bjartai- og góðar
minningar verða eftir í huga okkar
við leiðarlok. Far þú í friði, góði vin-
ur. Við færum Borghildi, börnum
Gunnars og öðrum ættingjum hug-
heilar samúðarkveðjur okkar félaga
hans í Baldri.
Njáll Símonarson.
Kveðja frá bekkjarfélögum
Enn á ný hefur verið höggvið
skarð í hóp okkar bekkjarsystkin-
anna fimmtíu, sejn útskrifuðumst úr
Verslunarskóla Islands vorið 1943.
Gunnar M. Magnússon, starfsmaður
Vélsmiðjunnar Héðins hf., allt frá
skóladögum til loka starfsára sinna,
er nú kvaddur hinstu kveðju, en
hann lést 26. ágúst síðastliðinn á 76.
aldursári. Að námsárum okkar í
Verslunarskólanum loknum var
Gunnar frumkvöðull þess að við
bekkjarfélagarnir komum oft saman,
gjarnan í húsakynnum Héðins hf., og
héldum hópinn, félagsskap, sem enn
lifír þótt félögunum fækki eins og við
er að búast. Fyrir frumkvæði Gunn-
ars, ljúfmennsku hans og vináttu við
alla félagana er hans nú minnst með
þakklæti að leiðarlokum.
Minningin um mætan og góðan fé-
laga mun lengi lifa.
Innilegar samúðarkveðjur eru
sendar Borghildi konu hans, börnum
þeirra og fjölskyldum.
Bekkjarsystkinin VÍ ‘43.
Þær eru ýmsar minningarnar sem
bregður fyrir í huganum þegar ég
hugsa um afa minn Gunnar. Eg er
lánsöm að hafa fengið að eiga afa
eins og hann.
Afi fylgdist alla tíð vel með því
sem við krakkarnir tókum okkur fyr-
ir hendur, hvort heldur það var í
náminu eða einhverju öðru. Hann
spurði ætíð hvað væri að frétta,
hvernig gengi, hvenær við færum,
kæmum o.s.frv. Það var afa ákaflega
mikilvægt að allir fengju tækifæri til
að mennta sig og gladdi það hann
mjög að sjá fólkið sitt nýta sér það.
Hann studdi ávallt við bakið á okkur
og sá til þess að engan skorti það
sem hann gæti á einhvern hátt gefið
okkur.
Þegar ég var yngri var það mikið
tilhlökkunarefni að fá að fara með
afa út að borða í kringum áramótin
með Lionsfélögunum. Þá kom hann
og sótti okkur á Fermontinum sínum
þar sem aðalsportið var að það
máttu þrír sitja frammí.
Blómastofa
Friðjfnns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
Það var ekki amalegt að eiga afa
sem kom reglulega í heimsókn með
fullan poka af síríuslengjum og lakk-
rísrúllum, sem var alltaf vel þegið.
Lengi vel hélt ég að afi minn væri
maðurinn sem hefði fundið það upp
að vefja lakkrísrúllu utan um lengj-
una. Ekki var síðra að fá að hjóla á
Lynghagann með vinkonunum þar
sem var tekið á móti okkur með lítilli
kók í gleri og prins. Afi sá alltaf um
að eiga þetta tÖ.
Ekki hefur liðið aðfangadagskvöld
eða páskadagur á minni ævi þar sem
ég hef ekki farið í mat til ömmu og
afa á Lynghagann og alltaf jafn ynd-
islegt og notalegt að koma í heim-
sókn á fallega heimilið þeirra. Afi
minn var glæsilegur, kurteis og dug-
legur maður, mikill sjentilmaður.
Hann var rólegur og það fór ekki
mikið fyrir honum í horninu sínu á
Selbrautinni þar sem hann átti alltaf
frátekið sama sætið.
Hjá honum var allt í röð og reglu.
Allir afmælisdagar, ný heimilisföng
og símanúmer voru samviskusam-
lega skráð niður. Afi hefur eflaust
verið fyrirmyndar viðskiptavinur í
bankanum þar sem hann mætti
ávallt með tilbúna inn- eða úttektar-
miða skrifaða heima. Þetta litla
dæmi lýsir því vel hvernig afi minn
var, skipulagður og samviskusamur.
Eg bið góðan Guð að styrkja
ömmu mína og fjölskylduna alla í
sorginni og kveð afa minn að sinni
með sömu orðum og voru þau síð-
ustu sem hann sagði við mig: „See
you.“
Blessuð sé minningin um elsku afa
Gunn.
Anna Björg.
Elsku afi minn. Það er erfitt að
hugsa til þess að þú sért farinn. Þú
varst svo ríkur þáttur í daglegu lífi
okkar allra í fjölskyldunni.
Minningarnar um þig eru margar
og ljúfar. Hvernig þú gabbaðir okk-
ur hver jól með möndluna, hvernig
þú laumaðir sælgæti að barnabörn-
unum og barnabamabarni þannig að
enginn átti að sjá til, árlegu hádegis-
verðarfundirnir sem ég fékk að fara
með þér á hjá Lionsklúbbnum þín-
um, þegar þú keyrðir mig og sóttir í
skólann hálfan vetur þegar við fjöl-
skyldan bjuggum í kjallaranum á
Lynghaganum, gosgeymslan þín í
kjallaranum og bókasafnið þitt. Þú
varst svo mikill safnari og þú hugs-
r Slómabúðin >
öarðsKom
t v/ T-ossvogski^Ujugfarð J
V Sími: 554 0500
aðir svo vel um allar bækurnar og
blöðin þín. Ég var svo stolt af þér.
Ég kvaddi þig með hlýju faðmlagi
og kossum þegar þú fylgdir mér til
dyra á Lynghaganum hinn 20. ágúst
síðastliðinn. Nú kveð ég þig með
söknuði og tárum er ég fylgi þér í
hinsta sinn. Guð geymi þig, elsku afi
minn. Ég verð alltaf Boggalóin þín.
Elsku amma mín, ég bið góðan
Guð að styrkja þig og fjölskylduna.
Borghildur.
Við fráfall Gunnars Magnússonar
er brostinn enn einn strengurinn
sem tengir nútíð við fortíð. Ég minn-
ist hans fyrst á Grenimel 17 þar sem
hann spilaði brids við föður minn
ásamt fleirum af vinnustaðnum
Héðni. Mér fannst hann strax sér-
staklega geðþekkui’. Ég kynntist
honum og fjölskyldu hans svo enn
nánar þegar hann og faðir minn
byggðu á sama tíma á Lynghaga.
Gunnar á númer 26 og faðir minn á
Lynghaga 22. Fljótlega upp úr því
urðum við Arndís (Addý) elsta dóttir
hans bestu vinkonur og hefur sú vin-
átta haldist allar götur síðan. Sem
vinkona fjölskyldunnar og nágranni
er mér minnisstæðast hvað Gunnar
var góður maður og eiginkonu sinni
stoð og stytta í öllu. Hann var þessi
sérstaki eiginmaður, sem allar konur
taka eftir. T.d. ef konan hans þurfti
að fara bæjarleið fór hann fyrst út
og hitaði upp bílinn fyrir hana. En
menn uppskera líka eins og þeir sá.
Fyrir nokkrum árum veiktist Gunn-
ar og takmarkaði það getu hans og
krafta. Eftir það tók Borghildur
kona hans við stjórn með miklum
eldmóði. Þá tóku við langar göngur
og allt var gert til að styrkja Gunnar.
Og mörgum að óvörum gat hann á
endanum boðið henni í bíltúr aftur!
Elskulegri eiginkonu, bömunum
Addý, Gumma, Hiddu og fjölskyld-
um þeirra votta ég mína dýpstu sam-
úð. Guð blessi ykkur alla tíð.
Helga.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
vegna fráfalls móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
MARÍU JÓNSDÓTTUR,
Norðurbrún 1,
Reykjavík.
Erla Ólafsdóttir,
Vilhjálmur Ólafsson,
Sigurður Jón Ólafsson, Ásta Lilja Kristjánsdóttir.
+
Innilegar þakkir til ailra þeirra sem sýndu
okkur vináttu og samúð við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
MARGRÉTAR INGIMUNDARDÓTTUR,
Dalbraut 18.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Ágústa Ásgrímsdóttir,
Þorbjörg Kolbrún Ásgrímsdóttir,
Ása Margrét Ásgrímsdóttir,
Inga Hlíf Ásgrímsdóttir.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN Á. GISSURARSON
fyrrverandi skólastjóri,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 9. september kl. 15.00.
Ólafía Jónsdóttir, Jónas Hall,
Halldóra Lisbeth Jónsdóttir, Þórarinn Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
+ Mín ástkæra eiginkona,
SIGRÍÐUR HÁLFDÁNARDÓTTIR,
Eskihlíð 6A,
sem andaðist é Landspítalanum mánudaginn
30. ágúst, verður jarðsungin frá Fossvogs- J
kirkju miðvikudaginn 8. september kl. 13.30.
Ólafur Halldórsson. 4 & •
+
Dóttir mín, eiginkona, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
SVAVA ÁGÚSTSDÓTTIR,
Skipholti 56,
sem lést aðfaranótt mánudagsins 30. ágúst,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju í dag,
þriðjudaginn 7. september, kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir,
en þeim sem vildu minnast hennar, er bent á Barnaspítala Hringsins.
Ingveldur Jóna Jónsdóttir, Bjólu,
Hrafnkell Ársælsson,
Óskar Hrafnkelsson, Sigurlaug Þóra Guðnadóttir,
Ágúst Hrafnkelsson, Helga Stefánsdóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir færum við ölium þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
JAKOBÍNU HULDU ÁGÚSTSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á sjúkra-
húsinu Sólvangi fyrir góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Friðrik Ágúst Helgason, Margrét Guðmundsdóttir,
Þorvaldur Árnason, Eva Ákermann,
Hjördís Árnadóttir, Sigurður Kristófersson,
Margrét Árnadóttir, Arnar Jónsson,
Ingibjörg Hildur Árnadóttir,
Gerður Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HAUKSJÓHANNESSONAR
loftskeytamanns,
Bankaseli við Skjóibraut,
Kópavogi.
Auður Jónsdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Hjartans þakkirtil þeirrafjölmörgu, sem sýndu
okkur hlýhug og stuðning við andlát og útför
föður okkar,
DAN GUNNARS HANSSONAR,
Háteigsvegi 17,
Reykjavík.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Brynja Dan og Líney Dan Gunnarsdætur.
K