Morgunblaðið - 07.09.1999, Qupperneq 48
•&Í 8 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
„OG ÞÓTT þú tapir það gerir ekkert til, það var nefnilega vitiaust gefið,“ segir Steinn Steinarr í kvæðinu og
átti það vel við um úrslitin í A-flokki þegar vitlaus útreikningur olli því að Vignir Jónasson og Klakkur frá
Búlandi fengu ekki fyrstu verðlaunin sem þeim bar en allt var þó leiðrétt að endingu í mesta bróðerni.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
FONIX skilaði Þórði Þorgeirssyni kvöldverði í skíðaskálanum í Hvera-
dölum og 20 þúsund krónum að auki með sigri í B-flokki gæðinga.
Meistaramót KPMG
Hugarflug-
ið með laus-
an taum
Meistaramót KPMG heitir það nú sem
áður var kallað Metamót Andvara og oftast
kallað metamót og var haldið á Andvara-
völlum um helgina. Valdimar Kristinsson
tölti suður í Garðabæ á sunnudag og
fylgdist með úrslitum mótsins.
HESTAR/
FðLK
■ EINAR Ragnarsson HM-dóm-
ari og vinur hans, Tómas Ragnars-
son, seildust í Hyllingarsjóðinn og
buðu manna hæst, 31 þúsund krón-
ur, í uppboðssætið í B-flokki og
færðu sameiginlegum vini, Eysteini
Leifssyni, sætið og mætti hann í úr-
slitin þrátt fyrir að hafa orðið í 15.
sæti.
■ EYSTEINN keppti á hesti föð-
ur síns, Leifs Kr. Jóhannessonar,
en sá heitir Hugur og er frá Mos-
fellsbæ. Sýndu þeir að þeir áttu
fullt erindi í úrslitin er þeir unnu
sig upp í 6. sætið.
■ TÓMAS og Einar settu þau
skilyrði að Eysteinn endurgreiddi
þeim alla upphæðina myndi hann
sigra en annars slyppi hann með að
endurgreiða þeim helminginn,
15.500 krónur.
■ LOGI Laxdal reyndist hæst-
bjóðandi í uppboðssæti í A- flokki.
Reiddi hann fram 18.500 krónur
fyrir sætið og mætti með hryssuna
Fiðlu frá Steinnesi sem Berglind
JKRagnarsdóttir keppti á í forkeppni
og hafnaði í 27. sæti.
■ REYND frá Efri-Þverá missti
báðar hófhlífar á hægatöltinu fljót-
lega eftir að knapinn Sigurður V.
Matthiasson reið inn á völlinn í for-
keppni. Sigurður Ævarsson dómari
sagði töltið hafa líklega heldur
batnað við þetta.
■ SIGURÐUR Ævarsson og
1 Ragnar Petersen gáfu einkunnir í
heilum og hálfum í B-flokki gæð-
inga á Meistaramóti KPMG en
hættu því þar sem þeim þótti sá
háttur afleitur og gáfu einkunnir
með tíu aukastöfum í A- flokki eins
og tíðkast.
SNORRI Dal, sá kunni knapi,
gekk að eiga Önnu Björk Ólafs-
dóttur á laugardag og var veislan
haldin um kvöldið. Fyrrum vinnu-
veitandi og lærifaðir hans, Sigur-
björn Bárðarson, var veislustjóri
þrátt fyrir annríki við mótið á Kjóa-
völlum.
■ SIG URBJÖRN þurfti oft frá að
hverfa því hann tók þátt í fljúgandi
skeiði og úrslitum töltsins og skip-
aði hann Tómas Ragnarsson stað-
gengil sinn meðan hann brá sér frá.
SNORRI og Anna Björk voru
ekki eina hestafólkið sem gifti sig
þennan dag því annar kunnur
knapi, Adolf Snæbjörnsson, og Ra-
kel Sigurðardóttir létu einnig
pússa sig saman.
■ PJETUR N. Pjetursson, dóm-
arinn góðkunni, brá sér í hlutverk
B^’cislustjóra hjá Adolf og Rakel og
leysti verkið af með sóma.
HAUSTMÓTIN á Kjóavöllum hafa
notið vinsælda þar sem frjálsræðið
og hugmyndafluginu er gefinn laus
taumur og prófaðir eru ýmsir hlutir
sem áhugaverðir kunna að reynast.
Engin breyting var þar á nú. Gæð-
ingakeppnin fór að venju fram á
beinni braut eins og tíðkast á skeið-
meistaramótum erlendis, heimilt
var að nota písk og ekki þurftu
knapar að bera reiðhjálm frekar en
þeim þóknaðist. Einn ágætur móts-
gestur orðaði það svo að á þessu
móti sæist best hverjir hefðu eitt-
hvað verðmæti að vernda í topp-
stykkinu og hverjir ekki. Gæðinga-
dómarar gerðu ýmsar tilraunir og
má þar nefna að tveir af fimm dóm-
urum gáfu aðeins í heilum og hálf-
um í forkeppni B-flokks en því var
hætt eftir það því reynslan þótti
slæm og í A-flokkskeppninni gáfu
allir dómarar einkunnir á sama
hátt.
Þá var til skemmtunar haldið
uppboð á tveimur sætum í úrslitum
gæðingakeppninnar, einu í hvorum
flokki og máttu hæstbjóðendur
tefla fram einhverjum þeirra hesta
sem skráðir voru til leiks á mótinu.
Byrjað var á A-flokki og voru menn
frekar tregir í gang en þegar kom
að B-flokknum var kominn galsi í
leikinn og fór sætið á 31 þúsund
krónur. Að venju var boðið upp á
fljúgandi skeið á laugardagskvöld-
inu í flóðljósum og keppt var í tölti.
Hörkukeppni gæðinganna
En keppnin var spennandi eins
og alltaf á þessum mótum, hart
barist í báðum flokkum. I A-flokki
höfðu Baldvin Ari Guðlaugsson og
Geysir frá Dalsmynni forystuna en
hart var að þeim sótt í úrslitum og
voru þar fremstir í flokki Vignir
Jónasson og Klakkur frá Búlandi.
Þessir keppendur skáru sig nokkuð
úr í úrslitum. Þegar verðiaun voru
afhent var tilkynnt að Baldvin og
Geysir hefðu haft betur og verðlaun
afhent í samræmi við það en augna-
bliki síðar kom í ljós að mistök
höfðu átt sér stað við innslátt í
tölvu og ein einkunn Vignis og
Klakks slegin inn sem 8,0 en átti að
vera 9,0. Var þetta heldur pínleg
staða en Baldvin Ari brást vel við
og færði Vigni gullið, bikarinn og
grillið sem veitt var í fyrstu verð-
laun.
í B-flokki voru Þórður Þorgeirs-
son og Fönix frá Tjarnarlandi með
hlutina vel á hreinu og héldu for-
ystunni út úrslitakeppnina. Einn
dómaranna var nokkuð hátt
stemmdur í forkeppninni og var til
dæmis með Þórð og Fönix í 8,94 og
Sigurbjörn Bárðarson og Djákna
frá Litla-Dunhaga sem urðu í öðru
sæti í 8,83. Aðrir dómarar voru
jarðbundnari og sá lægsti var til
dæmis með Þórð og Fönix í 8,47 og
þarna munar býsna miklu. En sam-
tals voru þeir með í forkeppninni
8,64, Þórður og Fönix og Sigur-
björn og Djákni með 8,58. Um 30
keppendur í B-flokki náðu 8,30 í
einkunn og þar yfír og sýnir það vel
hversu jafnsterkir keppendur voru.
Vekringarnir skiluðu góðum tím-
um þrátt fyrir slæmar aðstæður og
ber þar hæst frábær tími Óskar frá
Litladal og heimsmethafans nýbak-
aða Sigurbjörns Bárðarsonar í 250
metrunum.
Fúlgnr fjár í verðlaun
I tölti sigraði Sigurbjörn og Odd-
ur eftir krappan dans við Sigrún
Erlingsdóttur og Ás frá Syðri
Brekkum en þau voru efst eftir for-
keppni. Til mikils var að vinna á
þessu móti og má nefna að fyrstu
verðlaun í töltinu og fljúgandi
skeiði voru eitt hundrað þúsund
krónur, í 150 og 250 metra skeiði
voru fyrstu verðlaun 50 þúsund
krónur og 20 þúsund krónur í gæð-
ingakeppninni.
Úrslit urðu annars sem hér seg-
ir:
A-flokkur
1. Klakkur frá Búlandi, Fáki, eig.
og kn.: Vignir Jónasson,
8,55/8,83
2. Geysir frá Dalsmynni, Fáki, eig.:
Arngrímur Ingimundarson, kn.:
Baldvin A. Guðlaugsson,
8,58/8,81
3. Skafl frá Norður-Hvammi,
Mána, eig.: Sigurður V. Ragn-
arsson, kn.: Sigurður Sigurðar-
son, 8,42/8,63
4. Kjarkur frá Asmúla, Geysi, eig.:
Ragnar Árnason, kn.: Þórður
Þorgeirsson, 8,53/8,58
5. Bylur frá Skáney, Fáki, eig. og
kn.: Sigurbjörn Bárðarson,
8,38/8,58
6. Sesar frá Vogum, Létti, eig. og
kn. í fork.: Baldvin A. Guðlaugs-
son, kn. í úrsl.: Ragnar Hinriks-
son, 8,45/8,56
7. Þytur frá Kálfhóli, Sörla, eig. og
kn.: Elsa Magnúsdóttir,
8,41/8,30
8. ísak frá Eyjólfsstöðum, Gusti,
eig.: Kristinn Valdimarsson og
fl., kn.: Páll B. Hólmarsson,
8,42/8,30
9. Fiðla frá Steinnesi, Fáki, eig. og
kn. í fork.: Berglind Ragnars-
dóttir, kn. í úrsl.: Logi Laxdal,
8,05/8.06
B-flokkur
1. Fönix frá Tjarnarlandi, eig.: Sig-
urður B. Gunnarsson, kn.: Þórð-
ur Þorgeirsson, 8,64/8,76
2. Djákni frá Litla-Dunhaga, Fáki,
eig. og kn.: Sigurbjörn Bárðar-
son, 8,58/8,71
3. Númi frá Miðsitju, Mána, eig.:
Sigurður V. Ragnarsson, kn.:
Sigurður Sigurðarson, 8,55/8,69
4. Garpur frá Krossi, Fáki, eig. og
kn. í fork.: Sigurbjörn Bárðar-
son, kn. í úrsl.: Sylvía Sigur-
björnsdóttir, 8,55/8,65
5. Ás frá Syðri-Brekkum, Gusti,
eig.: Bjarni Frímannsson, kn.:
Sigrún Erlingsdóttir, 8,52/8,64
6. Hugur frá Mosfellsbæ, Herði,
eig.: Leifur K. Jóhannesson, kn.:
Eysteinn Leifsson, 8,44/8,61
7. Reynd frá Efri-Þverá, Þyti, eig.
og kn. í úrsl.: Halldór Sigurðs-
son, kn. í fork.: Sigurður V.
Matthíasson, 8,51/8,55
8. Funi frá Grænuhlíð, Fáki, eig.:
Kristinn Skúlason, kn.: Sigurður
V. Matthíasson, 8,50/8,50
9. Hasar frá Búð, Geysi, eig.:
Hrossaræktarbúið Króki, kn.:
Vignir Siggeirsson, 8,55/8,48
Tölt
1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á
Oddi frá Blönduósi, 7,80/8,24
2. Sigrún Erlingsdóttir, Gusti, á
Ási frá Syðri-Brekkum, 7,97
3. Sævar Haraldsson, Herði, á
Glóð frá Hömluholti, 7,00/7,55
4. Eysteinn Leifsson, Herði, á Hug
frá Mosfellsbæ, 7,40/7,40
5. Friða H. Steinarsdóttir, Geysi, á
Byl frá Skáney, 7,10/7,29
6. Erling Sigurðsson, Fáki, á Feldi
frá Laugamesi, 7,20/7,05
7. Sigurður Sigurðarson, Herði, á
Garpi frá Horni, 7,10/7,29
8. Gísli G. Gylfason, Fáki, á Kvisti
frá Dalsmynni, 7,00/6,83
9. Berglind Ragnarsdóttir, Fáki, á
Bassa frá Möðruvöllum,
6,90/6,80
10. Ragnai’ Hinriksson, Fáki, á
Heljari frá Neðra-Ási, 6,90/6,76
100 metra flugskeið
L Sveinn Ragnarsson, Fáki, á
Framtíð frá Runnum, 7,2 sek.
2. Logi Laxdal, Sörla, á Hraða frá
Sauðárkróki, 7,5 sek.
3. Logi Laxdal, Sörla, á Óðni frá
Efstadal, 7,5 sek.
4. Baldvin A. Guðlaugsson, Létti, á
Vask frá Vöglum, 7,5 sek.
5. Þórður Þorgeirsson, Geysi, á
Hnossi frá Ytra-Dalsgerði, 7,5
sek.
250 metra skeið
1. Ósk frá Litladal, eig. og kn.: Sig-
urbjöm Bárðarson, 21,7 sek.
2. Lína frá Gillastöðum, eig. og kn.:
Friðdóra Friðriksdóttir, 22,1
sek.
3. Glaður frá Sigríðarstöðum, eig.:
Hafsteinn Jónsson, kn.: Sigurð-
ur V. Matthíasson, 22,2 sek.
4. Hnoss frá Ytra-Dalsgerði, eig.:
Hugi Kristinsson, kn.: Þórður
Þorgeirsson, 22,3 sek.
5. Óðinn frá Efstadal, eig.: Jóhann
Valdimarsson, kn.: Logi Laxdal,
22,4 sek.
150 metra skeið
1. Þórmóður Rammi frá Stykkis-
hólmi, eig. og kn.: Logi Laxdal,
14,0 sek.
2. Röðull frá Stafholtsveggjum,
eig. og kn.: Guðmundur Jónsson,
14,0 sek.
3. Gunnur frá Þóroddsstöðum, eig.:
Bjarni Þorkelsson, kn.: Þórður
Þorgeirsson, 14,2 sek.
4. Snarfari frá Kjalarlandi, eig. og
kn.: Sigurbjörn Bárðarson, 14,6
sek.
5. Hraði frá Sauðárkróki, eig. og
kn.: Logi Laxdal, 14,6 sek.