Morgunblaðið - 07.09.1999, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 07.09.1999, Blaðsíða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ _______________LANDMÆLING________________________________ Námskeið í landmælingu, tækniteikningu og tilboðsgerð Fjölþætt og hagnýtt nám, sem stendur yfir í rúma 3 mánuði. Að loknu námi eiga þátttakendur að vera færir um að vinna sjálfstætt við mælingar og tilboðsgerð. Helstu þættir námsins eru: Hallamælingar, málbandsmælingar, hornamælingar, byggðamæling, hnitakerfið, burðarhæfni jarðvegs, Autocad æfingar, tilboðsgerð í excel, vinna við alstöð, stærðfræði og verkefni leyst með stærðfræðiforriti. Hentugt nám fyrir þá sem vinna við mælingar og tæknistörf hjá verktökum, sveitarfélögum og byggingameisturum eða vilja kynna sér þessa tækni. Vel menntaðir kennarar með mikla reynsiu af mælingum og kennslu. Vönduð námsgögn. Skráning og nánari upplýsingar í símum 552 7200 og 551 5593. Stærðfræði- og tölvuþjónustan, Brautarholti 4. Ullarkápur stuttar og slðar Tískuverslun • Kringlunni 8-12 • Sími 5533300 Hvíldarstóll úi leðri HvíldarstdU úrtaui Símmúla 28 - 108 Reykjavík • Sími 568 0606 í DAG MMKpDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Um lambakjöt NÚ hefur verið skipuð enn ein nefndin. Og nú til þess að auka sölu á lambakjöti. Vildi ég gjarnan gefa þess- ari nefnd nokkur góð ráð. Ekki sýna endalausar myndir úr sláturhúsum á haustin, það getur varla verið að ég sé ein um að hætta þá í nokkrar vikur að borða lambakjöt. Þó fmnst mér það alltaf best. Annað, að ekki sé hægt að vita hvar kjötið hefur verið í haga. Lömb sem gengið hafa á fjöllum án þess að valda varanlegu tjóni á gróðri bragðast örugglega betur en þessi sem eru í vegaköntunum öllum til ama. Ekki finnst mér held- ur gott að vita ekki hvort ég er að leggja mér til munns lamb sem verið hef- ur á litlum grasbletti í óþökk nágranna sinna sem búa á svokölluðu fjárlausu svæði. Sú staðreynd að ekki hefur tekist að halda Keflavíkurveginum fjár- lausum né heldur Reykja- nesfólkvanginum bendir til þess að erfitt sé að halda þessum búskap í skefjum. Þessir tómstundabændur í nágrenni þéttbýlisstaða, selja þeir ekki sitt kjöt? Gefa þeir það upp til skatts? Er ekki best að bændur sem búa í sveit og vinna að landbúnaði sitji einir að framleiðslu lamba- kjöts? Það finnst mér hús- móður í nágrenninu. Elísabet. Tapað/fundið Poki með leikfimidóti týndist POKI með leikfimisdóti í týndist við Hverfisgötu eða við Lágmúla. Skilvís finnandi hafi samband í síma 587 6181. Kristín. Dýrahald Simbi er týndnr SIMBI er snjóhvítur, heyrnarlaus fressköttur. Hann er með bláa ól og er eynarmerktur. Hann hvarf frá Starengi í Grafarvogi að morgni fimmtudagsins 2. september og hans er sárt saknað. Hann gæti hafa lokast inni. Þeir sem hafa orðið Simba varir eru vinsamlega beðnir að hafa samband í síma 586 1603 eða 896 9416. Læða í óskilum á Álftanesi SVÖRT og hvít læða með svarta þófa, ómerkt, er í óskilum á Álftanesi. Upp- lýsingar í síma 565 3685. Villtur kisi FALLEGUR, vel alinn, snyrtilegur og forvitinn svartur kisi með hvítar loppur, hvítur undir trýni og með hvít veiðihár, gerði sig heimakominn á heimili í Hvömmunum í Hafnarfirði sl. laugardag. Kisi er með blágræna ól með skrautsteinum en merkispjald er farið af. Kisa líður vel og er ekkert á því að fara burt en hús- ráðendur vilja frekar að hann komist til réttra eig- enda. Ef einhver kannast við lýsinguna getur hann haft samband í síma 897 4954. Morgunblaðið/Kristján Þessir duglegu strákar, Haukur Oddgeirsson og Magnús Amadeus Guðmundsson, héldu nýlega tombólu á Akureyri til styrktar Rauða krossi íslandsog varð afraksturinn 675 krónur. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins. Þessir duglegu strákar söfnuðu með tombólu kr. 4.463 til styrktar Krabbameinsfélagi Islands. Þeir heita Sigurður Freyr Birgisson og Gunnar Kristinn Þorgilsson. skák (inisjón Margeir Pétursson STAÐAN kom upp á Skák- þingi Islands sem nú stendur yfir í skákmiðstöðinni Faxa- feni 12. Þröstur Þórhalls- son (2.490) var með hvítt, en Róbert Harðarson (2.300) hafði svart og átti leik. 14. - Bxh2+! (Annar sterkur leikur var 14. - Rd3!) 15. Kfl - Dh4 16. Rf3 - Bxf3 17. Dxf3 - Bg3 18. Be3 - Rg4 19. Bgl - Bxel 20. Ra3 - Hae8 21. Re2 - Bg3 og hvítur gafst upp. Byijunin var afar hvasst afbrigði af rúss- neskri vöm og gekk þannig fyrir sig: 1. e4 - e5 2. Rf3 - RÍ6 3. Rxe5 - d6 4. Rf3 - Rxe4 5. d4 - d5 6. Bd3 - Be7 7. 0-0 - Bg4 8. Hel - Rc6 9. c3 - f5 10. Db3 - 0-0 11. Rfd2 - Rxf2! 12. Bfl (12. Kxf2 er svarað með Bh4+ 13. g3 - f4) 12. - Bd6 13. Dxd5+ - Kh8 14. Bc4 og nú höfum stöðuna á stöðumyndinni. Svartur leikur og vinnur. COSPER GRÉTA! Hvað eigum við mörg börn? Víkverji skrifar... VERÐHÆKKANIR á bensíni í síðustu viku hafa farið fyrir brjóstið á mörgum ökumanninum og kemur það ekki á óvart. Ein- hvern veginn virðist sem hátt heimsmarkaðsverð á olíu hafi mun meiri áhrif til hækkunar heldur en lágt heimsmarkaðsverð til lækkun- ar á bensíni hér á landi. Atvinnubílstjórar hafa mótmælt sem og venjulegir neytendur. En hverju skila mótmælin? Hingað til hefur ekki verið tekið mikið mark á mótmælum íslenskra neytenda enda hafa þau verið fljót að fjara út. Fólk talar um að leggja ökutækjum og ganga, nú eða nota almennings- vagna. Hins vegar verður þess ekki vart í umferðinni á höfuðborgar- svæðinu undanfama daga að það sé raunin og er ólíklegt að þess verði vart á bensínstöðvum að minna sé keypt af bensíni þrátt fyrir mikla hækkun á bensínverði. KVIKMYNDAHÁTÍÐ lauk á sunnudag. Mikil aðsókn hefur verið á kvikmyndahátíð en Víkverji er meðal þeirra sem hefur ekki séð neina af þeim myndum sem boðið hefur verið upp á fyrir utan gamlar myndir eftir Stanley Kubrick sem hafa áður verið sýndar í íslenskum kvikmyndahúsum. Ástæðan er ein- föld. Myndimar era almennt ekki með íslenskum texta og sonur Vík- verja, sem er á tólfta ári, les ekki enskan texta. Þar sem Víkverji á ekki auðvelt með að komast í kvik- myndahús án þess að bjóða synin- um með þá verður hann að bíða eft- ir því að myndir eins og Svartur köttur hvítur köttur og íranska myndin, sem honum var tjáð að væra einungis með enskum texta, komi á almennar sýningar svo hann geti boðið syninum með að sjá myndimar. Það er skiljanlegt að ekki sé hægt að textasetja allar myndir sem era sýndar á kvikmyndahátíð en það væri ekki úr vegi að setja íslenskan texta á myndir sem höfða til allra aldurshópa. Vonandi verður svo á næstu kvikmyndahátíð. XXX MIKILL fjöldi sótti sjávarút- vegssýninguna í síðustu viku. Sýningin er haldin þriðja hvert ár og hefur hún aldrei verið jafn stór í sniðum eins og í ár. Hafa menn jafn- vel haft á orði að hún væri allt of stór og það væri einungis á færi fárra að skoða allt sýningarsvæðið. Víkverji dagsins var meðal þeirra sem ekki náði að skoða alla sýning- una og þótti það mjög miður þar sem mjög margt áhugavert var að sjá á sýningunni. Er ljóst að á næstu sjávarútvegssýningu, eftir þrjú ár, mun hann gefa sér mun betri tíma til þess að skoða sýningarsvæðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.