Morgunblaðið - 26.09.1999, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
lifandi
Málverk af fundi þar sem stjórnarskrá Bandaríkjanna var undirrituð. George
Washington svarar fyrirspurnum.
andi viðhorf til kvenna, þræla, ind-
íana og fátæklinga gerði það að
verkum að sumir voru um alllangt
skeið rétthærri en aðrir þrátt fyrir
hin skýru stjórnarskrárbundnu
ákvæði.
Stjórnmálaheimspeki Lockes var
feðrum Bandaríkjanna mikil leið-
sögn, ekki síst hugmyndir hans um
mannseðlið og friðhelgi eignarrétt-
arins. I ritum Lockes fundu átjándu
aldar Bandaríkjamenn jafnframt
stuðning fyrir þeirri skoðun sinni að
með myndun ríkisvalds væri gerður
samfélagssáttmáli til verndar eðlis-
bundnum réttindum frjálsra manna
til lífs, frelsis og eignar. En banda-
ríska stjórnarskráin er ekki sátt-
máli milli valdhafa og þegna heldur
sáttmáli milli þegnanna sjálfra inn-
byrðis þar sem ríkisvaldið er skil-
greint sem einskonar verkfæri til að
framfylgja lögum og vilja þegnanna
- og það „verkfæri" var hægt að
endursmíða eða jafnvel kasta fyrir
róða ef það kæmi ekki að ætluðum
notum.
Bandaríkjamenn eru fæddir
frjálsir, eins og Tocqueville sagði, í
þeim skilningi að þeir þurftu ekki að
gera upp reikningana við fortíðina.
Rétt eins og landnámsmenn íslands
gátu Bandaríkjamenn nýtt sér það
besta úr gamla heiminum og hunsað
það sem þeim sýndist. A yfírborðinu
var ekki djúpstæður hugmynda-
fræðilegur klofningur í bandarísku
samfélagi, þótt landsmenn kæmu úr
ýmsum áttum og úr ólíku menning-
arumhverfi. Meðal allra frjálsra
manna í landinu var afgerandi stuðn-
ingur við réttarríkið og almennur
vilji til að halda miðstýrðu valdi í
skefjum. Hin púritanska arfleið
gerði það jafnframt að verkum að
Bandaríkjamenn trúðu því að þeir
væru nánast á guðs vegum að skapa
fullkomnara samfélag en þekktist í
gamla heiminum sem þeir höfðu yfir-
gefið.
En þótt eining væri um grunn-
inn endurspeglaði stjórnar-
skrárgerðin engu að síður
átök og sjónarmið ólíkra pólitískra
og efnahagslegra hagsmuna. Full-
trúamir í Fíladelfíu 1787 vissu að
þeir yrðu að geta sannfært umbjóð-
endur sína um ágæti stjórnarskrár-
innar. Margar málamiðlanir voru
gerðar og stundum lá við að slitnaði
upp úr. A síðasta degi fundarins þeg-
ar ljóst var að samstaða var með full-
trúunum benti Benjamin Franklin á
útskurð listamanns af hálfri sól á háu
stólbaki George Washingtons sem
var í forsæti fundarins. Hann kvað
sér oft meðan á þjarkinu stóð hafa
orðið starsýnt á sólina á forseta-
stólnum án þess að geta greint hvort
hún væri að rísa eða síga. En nú
loksins gæti hann hamingjusamlega
slegið því föstu að þetta væri hækk-
andi sól sem listamaðurinn væri að
túlka en ekki sól sem væri að hníga
til viðar.
Meðal þess sem hart var deilt um
var kjör fulltrúa til þingsins í Wash-
ington. Fulltrúar stærri ríkjanna
kröfðust þingmannatölu í réttu hlut-
falli við fjölda kjósenda, en fulltrúar
smærri ríkjanna vildu jafnan hlut
allra ríkja óháð stærð þeirra. Sáttin
fólst í því, sem kunnugt er, að hafa
stiórnmálahefð
/
I Bandaríkjunum kemur varla svo
til ágreinings í stjórnmálum að ekki sé
vísað í stjórnarskrána og „feður Banda-
ríkjanna“. Er það til vitnis um hversu
lifandi bandarísk stjórnmálahefð er.
Jakob F. Ásgeirsson segir stuttlega frá
þeim jarðvegi sem bandaríska stjórnar-
skráin óx upp úr og skilningi „feðra
Bandaríkjanna“ á mannseðlinu.
y , ,
IHATIÐARSAL Nevada-háskóla
í Reno í Bandaríkjunum sótti ég
fyrir nokkru dagskrá þar sem
þrír fræðimenn brugðu sér í gervi
þriggja skörunga úr bandarískri
stjórnmálasögu, Alexander Ha-
miltons, Thomas Jeffersons og
James Madisons. Fullt var út úr dyr-
um og áhorfendur vel með nótunum
og nýttu vel það tækifæri sem gafst í
lokin að spyrja hina miklu menn
hvað „þeim“ fyndist um eitt og ann-
að í nútímanum. Fræðimennimir
léku hlutverk sín af innlifun, þeir
hafa skrifað margar bækur um tíma-
bilið og eru gagnkunnugir söguhetj-
unum - og var sérstaklega skemmti-
legt að sjá hvernig þeir komu til
skila togstreitu sem var milli þessara
ólíku manna, ekki síst vinanna Madi-
sons og Jeffersons. Þeir gengu svo
eðlilega upp í hlutverkum sínum að
ekki var að merkja nein skil I leik
þeirra þegar handritinu sleppti og
þeir þurftu að bregðast við óvæntum
spurningum utan úr sal.
Þeir Hamilton, Jefferson og Madi-
son heyra til hópi manna sem jafnan
gengur undir nafninu „The Found-
ing Fathers", eða feður Bandaríkj-
anna. Meðal annarra frægra manna
sem teljast til „feðranna" má nefna
Benjamin Franklin, George Wash-
ington, John Adams og John Jay.
Þessir helstu „feður Bandaríkjanna“
eru ljóslifandi öllum upplýstum al-
menningi í Bandaríkjunum - ekki
ósvipað og Gunnar, Njáll og Egill
voru ljóslifandi íslendingum langt
fram eftir þessari öld. Eftir dag-
skrána í Reno mátti heyra áhorfend-
ur ræða af ákafa sín á milli ýmis at-
riði í túlkun fræðimannanna sem
þeir voru ósammála, ekki síst sumt
viðkomandi einkalífi Jeffersons.
í ljósi lítillar þátttöku Bandaríkja-
manna í kosningum er athyglisvert
að kynnast því hve upplýstur al-
menningur í þessu víðfeðma landi
virðist gera sér glögga grein fyrir
hvað felst í stjórnarskrárbundnum
borgaralegum réttindum og stjórn-
málahugmyndum á borð við lýðræði
og sambandsríkjastefnu. Bandarísk
stjórnmálahefð stendur mjög sterk-
um rótum. Það er varla tekið svo mál
til umræðu - jafnt manna á meðal
sem í fjölmiðlum - að ekki sé vísað
ótt og títt í stjórnarskrána og hvað
„feður Bandaríkjanna" hafi hugsað
sér. Raunar má segja að stjórnar-
skráin sé sá klettur sem bandarískt
samfélag sé byggt á. Þetta kom
glöggt fram í þingréttarhöldunum
yfir Clinton forseta og rannsókn
sjálfstæðs saksóknara á embættis-
færslu hans. I þeirri lönguvitleysu
allri er það samdóma álit stjórnmála-
skýrenda að það hafi aðeins verið
einn sigurvegari: stjórnarskráin.
En hvað felst í bandarískri stjórn-
málahefð - hvaða stjórnmálahug-
myndir og gildi settu feður Banda-
ríkjanna í stjórnarskrána?
Stjómarskrá Bandaríkjanna er
afurð skynsemishyggju Upp-
lýsingaaldar - þeirrar skoðun-
ar að maðurinn geti og eigi að skipa
málum sínum af skynsemi og þekk-
ingu en ekki arftekinni trú eða for-
dómum. „Feðurnir" sem komu sam-
an í Ffladelfíu sumarið 1787 að
semja stjórnarskrá fyrir hin nýju
Bandaríki, höfðu orðið fyrir miklum
áhrifum af frönsku byltingunni,
stjórnmálaheimspeki Lockes, laga-
speki Montesquies og skrifum
Thomas Paynes. Þeir höfðu tekið
þátt í sjálfstæðisbaráttu Bandaríkj-
anna og voru flestir einhuga um
ágæti þeirra hugmynda sem Jeffer-
son hafði komið orðum að í Sjálf-
stæðisyfirlýsingunni frá 1776. Fáum
mánuðum eftir fundinn í Fíladelfíu
gerðu Hamilton, Jay og Madison
grein fyrir anda stjórnarskrárinnar
og þeim rökum sem hún byggðist á í
85 ritgerðum sem fengu heitið The
Federalist Papers. Hefur The
Federalist Papers jafnan síðan verið
talið eitt merkasta rit stjórnmála-
sögu heimsins, ekki síst vegna fram-
lags Madisons.
Þegar stjórnarskráin var í smíðum
Independence Hall í Ffladelfíu í Pennsylvania-ríki þar sem Sjálfstæð-
isyfirlýsingin var undirrituð 1776 og stjórnarskrá
Bandaríkjanna samin 1787.
höfðu „feðurnir“ hugann einkum við
fjórar grunnhugmyndir í stjórnmál-
um: sambandsríkjastefnu, fulltrúa-
stjórn eða lýðræði, þrískiptingu rík-
isvalds og frelsi einstaklingsins.
I bandarísku sambandsríkjastefn-
unni felst tvöfalt stjórnkerfi: alríkis-
stjórn með þing og framkvæmdavald
og staðbundnar ríkjastjórnir, sem
ekki lúta alríkisstjórninni nema að
hluta, með eigið þing og fram-
kvæmdavald.
í fulltrúastjórn felst að fólkið vel-
ur sér með reglulegu millibili full-
trúa í frjálsum kosningum sem fara
með stjórnvaldið hverju sinni, hvort
sem er innan einstakra ríkja eða í al-
ríkisstjóminni.
Með þrískiptingu ríkisvalds er af-
markað valdssvið löggjafarvalds,
framkvæmdavalds og dómsvalds og
sköpuð hæfileg togstreita milli þess-
ara þriggja greina ríkisvaldsins í því
skyni að koma í veg fyrir að valds-
svið einnar verði óhóflegt.
Feður Bandaríkjanna litu svo á að
frelsi einstaklingsins væri sprottið af
friðhelgi eignarréttarins og lögðu því
allt kapp á að vernda eignarréttinn.
Grundvallarmannréttindi voru ekki
öll tryggð í hinni upphaflegu stjórn-
ai’skrá 1787, en tíu mannréttindaá-
kvæðum var bætt við strax 1791;
krafa um það hafði komið fram þeg-
ar stjórnarskráin var til staðfesting-
ar hjá einstökum ríkjum Bandaríkj-
anna. Það varð síðan verkefni kom-
andi kynslóða að tryggja öllum þann
rétt sem kveðið var á um í stjórnar-
skránni, en samfélagsgerðin og ríkj-