Morgunblaðið - 26.09.1999, Page 48

Morgunblaðið - 26.09.1999, Page 48
^8 SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ferdinand Smáfólk 50 WITH THE5E GLA55E5 I THINK l'LL BE A BETTER OUTFIELDER.. PON'T YOU A6REE? THE 5UN UJON'T BE A PR05LEM ANYMORE.YOU'LL APPRECIATETHAT l’LL CATCH EYERYTHIN6 THAT COMES MY WAY.. r~^r CO NICE TALKIN6T0 YOO, MANA6ER.. “ ^" I CAN'T 5TAND IT.. 1 I JU5T CAN'T 3 I 5TANP IT., _ C ð $ 5 s ( / Ég er viss um að ég verð miklu betri útileikmaður ef ég er með sólgleraugu. Heldurðu það ekki. Sólin vcrður ekki til vandræða. Þú munt kunna að meta það. Ég næ öllum boltum sem koma nærri mér. Það var gott að spjalla við þig, þjálfari. Ég ræð ekki við þetta. Ég bara ræð ekki við þetta BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 * Oskiljanleg framkoma við ferðamenn Frá Margot Backx: FYRR á árinu heimsótti ég Island í fyrsta sinn og það eina sem ég get sagt er að ég óskaði þess að hafa „uppgötvað" land ykkar fyrr. Landslagið sem ég sá er gætt ein- hverju sem ég hef aldrei séð í öðr- um löndum heims og hef ég þó far- ið víða. Það er fallegt og hrjúft, en neðan undir þessum ófægða dem- anti er öryggiskennd. Auk þessa tilkomumikla landslags hitti ég nokkra mjög viðkunnanlega Is- lendinga. I lok heimsóknarinnar varð ég þó fyrir reynslu sem hefur hvflt þungt á mér. Eg hafði ferðast í hópi og þetta var síðasta kvöldið okkar í Reykjavík, þannig að við fórum öll á veitingahús. Eftir kvöldverðinn fórum við út til að leita að stað til að fá okkur kaffí- sopa. Við vorum á gangi niður götu í miðborginni þegar við mættum þremur ungum mönnum sem stóðu við skyndibitastað. Um leið og þeir sáu okkur tóku þeir að æpa að okk- ur á íslensku og af hegðun þeirra mátti ráða að þeir væru ekki að óska okkur góðs kvölds. Við fórum inn á skyndibitastaðinn og þegar við gengum út aftur tóku þeir að æpa að okkur. Þar sem enginn okkar skildi það sem þeir sögðu svöruðum við ekki hrópum þeirra. (Það eina sem ég skildi var orðið ,,túristar“.) Við gengum framhjá þessum ná- ungum og héldum áfram leitinni að kaffihúsi. Þegar við komum að enda götunnar tóku ungu mennirn- ir að elta okkur á bfl. Við svöruðum ekki hrópum þeirra og þeir teygðu sig því út úr þflnum og æptu af öll- um lífs- og sálar kröftum. (Þá höfðu þeir áttað sig á því að þeir gátu úthúðað okkur á ensku líka.) Þegar hér var komið hélt ég að þeir væru gengnir af göflunum. Þetta var mjög ógnvekjandi og um tíma hélt ég að þeir myndu keyra á okkur þegar við vorum á gatna- mótum. En sem betur fer óku þeir í burtu. Hver var tilgangurinn með þess- um fjandsamlegu viðbrögðum við nærveru okkar? Hvað gerðum við þessum mönnum, fyrir utan það að ganga á gangstéttinni og vera ferðamenn? Eg er fegin að þessi reynsla af Islendingum var ekki sú eina. Þvert á móti hitti ég mjög við- kunnanlega Islendinga í heimsókn- inni og eftir hana. En stundum velti ég því enn fyrir mér hvað það er sem fær menn til að hegða sér með þvflíkum hætti. Með kveðju, MARGOT BACKX, Tiiburg, Hollandi. Hver getur lánað 900 milljónir? Rúnar Þór Hallsson skrifar: FYRIR nokkru keyptu fjórir vel þekktir athafnamenn hlut í FBA sem mun hafa lagt sig á 5 miljarða króna. Samkvæmt þessu komu 1250 miljónir í hlut hvers kaupanda og ég man ekki betur en að 5 milj- arðana hafi átt að staðgreiða. Einn þeirra var spurður í ein- hverjum sjónvarpsþætti skömmu síðar hvernig hægt væri að fjár- magna svona kaup. Svarið var: „Við leggjum fram um 3-400 milj- ónir hver. Samkvæmt þessu fær hver af þessum aðilum lánaðar 8- 900 miljónir einhvers staðar. Sp- umingin er: Hver hefur þessa upp- hæð handbæra til útláns og lenda þessi útlán inn í útreikningum Seðlabankans á verðbólgu? Er ekki fjandi hart að nokkrir kaupahéðnar geti orsakað svona verðbólgu svo gott sem með einu pennastriki? Ætli verði svo sama upp á teningn- um þegar sala á restinni af FBA fer fram. Hvað ætli Landsbankinn ætli að nota 11 mfljarðana til? Kannski til að lána bröskurunum. Það væri ekki vitlaust að einhver sem hefði vit á þessum hlutum segði álit sitt á sama vettvangi hér í blaðinu. RÚNAR ÞÓR HALLSSON, vélvirki, Búðaveg 47, Fáskrúðsfirði. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Sölusýning á málverkum gömlu meistaranna í Kirkjuhvoli, Kirkjustræti 4, við hliðina á Pelsinum. Opið ki. 14 til 18 í dag. Verk eftir Jóhannes S. Kjarval, Ásgrím Jónsson, Jón Stefánsson, Kristínu Jónsdóttur, Rnn Jóns- son, Svein Þórarinsson, Mugg, Gunnlaug Blönd- al og Snorra Arinbjamar. Stjörnuspá á Netinu óg) mbl.is \LLTXif= G/TTHX&k-Ð A/YTT~

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.