Morgunblaðið - 26.09.1999, Side 56

Morgunblaðið - 26.09.1999, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ 56 SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1999 FÓLK í FRÉTTUM fslenski draumurinn á kvennaklósettinu. Jón Gnarr mættur í sparifötum í barnaafmæli og lætur sér leiðast. Tökur standa yfir á Islenska draumnum Skýjaborgir hversdagsins *■' „PETTA er gamanmynd,“ svarar leikstjórinn Róbert Douglas og lít- ur órólegur á framleiðandann Júlí- us Kemp. „Við vorum ekki búnir að ræða þetta,“ heldur hann áfram eins og til að útskýra fyrir blaða- manni að hann haíi hreinlega ekki gert það upp við sig hvað í mynd- inni megi ræða og hvað ekki. Það liggur þó fyrir að hún er í fullri lengd og ber heitið Islenski draumurínn. „Myndin fjallar um ungan at- n hafnamann sem á það til að byggja sér skýjaborgir," segir Róbert og velur hvert orð gaumgæfilega. „Hann á sér drauma um frægð og frama í viðskiptum en þarf að glíma við þær truflanir sem fylgja hversdagslífinu eins og því að vera helgarpabbi og spila fótbolta í frí- stundum.“ Tökur á Islenska draumnum hófust í ágúst og lýkur þeim í byrj- un október. „Þær hafa gengið vel,“ segir Róbert sem byggir myndina á eigin stuttmynd sem sigraði á Stuttmyndadögum í Reykjavík. Hann vann líka til verðlauna á há- tíðinni í vor með stuttmyndinni Maður undir áhrífum og er aðal- leikarinn í öllum þessum þremur myndum hinn sami, Þórhallur Sverrisson. En er mjög frábrugðið að vinna að stuttmynd og mynd í fullri lengd? „Eg hef gert nokkrar stuttmyndir í gegnum tíðina og ætli þetta sé ekki eins og að gera þær allar til samans,“ svarar Ró- bert. „Þetta hefur verið erfitt á köflum en að sama skapi skemmti- legt.“ Að sögn Júlíusar Kemp eru tökurnar fjármagnaðar með einkafjármagni og framlagi frá velviljuðum fyrirtækjum og er ætlunin að sækja um styrk til Kvikmyndasjóðs fyrir hljóði, eft- irvinnslu og dreifingu. Stefnt er að því að frumsýna myndina næsta sumar. Það sem vekur fyrst athygli þegar litið er yfir leikaravalið er 1. Róbert Douglas leikstjóri í þungum þönkum með Haf- dísi og Þórhalli. að Tvíhöfðarnir Jón Gnarr og Sig- urjón Kjartansson eru þar á með- al. „Jón leikur, ásamt Þorsteini Bachmann, vinnufélaga og besta vin Tóta, aðalsöguhetjunnar,“ seg- ir Róbert. „Þeir eiga það sameig- inlegt að vera miklir áhugamenn um fótbolta og það er hið eina sem vináttan gengur út á. Sigurjón leikur minna hlutverk; mann sem hann kynnist á ekkert alltof skemmtilegum stað,“ segir Róbert með torræðu brosi, „og verður kannski of góður vinur hans Tóta.“ Myndin hefst á því að Tóti lendir á Keflavíkurflugvelli, er kominn með umboð fyrir nýja vöru og fullur eldmóðs og er þetta mynd fyrir alla fjölskyld- una, að sögn aðstandenda, þar sem hversdagsleikinn leikur aðal- hlutverk og bert hold, eiturlyf og skuggahliðar mannlífsins mæta afgangi. I aðalhlutverkum eru Þórhallur, Jón Gnarr, Laufey Brá Jónsdóttir, Hafdís Huld, Gunnar Eyjólfsson, Guðrún Ásmundsdóttir, Sigurjón Kjartansson, Guðrún Gísladóttir, Laddi, Edda Björg og Felix Bergsson. PITAIM 2. Þórhallur Sverrisson, Felix Bcrgsson og Sigurjón Kjartansson; sá síðastnefndi ber sig vel þrátt fyrir drottningarmissi. 3. Guðrún Gísladóttir, Lauf ey Karitas Einarsdóttir, Hafdís Huld og íris Þöll. SKIPHOLTI 50c • SIMI 568 8150

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.