Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Borgarstjóra afhentar undirskriftir ríflega 35 þúsund andstæðinga bygginga í Laugardal
„Ekki hægt að
horfa framhjá
mótmælum“
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri fékk afhentar í gær undirskriftir á fjórða tug þúsunda Reykvík-
inga gegn fyrirhuguðum byggingaframkvæmdum í austurhluta Laugardals. Skúli Víkingsson, forsvars-
maður samtakanna Verndum Laugardalinn, afhenti henni kassa með undirskriftunum.
INGIBJORG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri veitti í gær viðtöku
rúmlega 35 þúsund undirskriftum
frá samtökunum Verndum Laugar-
dalinn, en í texta skjalsins sem fólk
skrifaði undir er fyrirhuguðum
byggingaráformum í Laugardal
mótmælt. Ingibjörg Sólrún segir að
vega verði saman fjölda þeirra sem
afstöðu tóku og þau rök sem liggja
fyrir í málinu.
„Frestur til að gera athugasmed-
ir við skipulagið rennur ekki út fyrr
en 8. október og væntanlega hafa
margir aðrir borgarbúar skoðun á
málinu og vilja koma henni á fram-
færi. Þetta er ekki aðeins spuming
um fjölda, heldur einnig rök, en það
er ekki hægt að horfa framhjá þess-
um mótmælum og þeim tilfinning-
um sem þama koma fram. Ég held
þó að vanti meiri umræðu en verið
hefur um skipulagsmál,“ segir borg-
arstjóri.
Munu ekki hunsa söfnun
„Ég tek þessa undirskriftasöfn-
un alvarlega og dettur ekki annað í
hug en að þeir sem þar settu nafn
sitt sé full alvara í að vilja ekki
byggingar á þessum stað. Borgar-
yfirvöld munu ekki hunsa þessa
söfnun, heldur reyna að koma til
móts við þessi sjónarmið að því
marki sem hægt er,“ segir Ingi-
björg Sólrún.
Hún bendir á í því sambandi að
borgaryfirvöld hafi nú þegar reynt
að koma til móts við kröfur þeirra
sem era andsnúnir byggingafram-
kvæmdum í Laugardal með því að
bjóða Landssímanum húsnæði og
lóð Rafmagnsveitu Reykjavíkur til
kaups.
„Við höfum ekki fengið svar frá
Landssímanum ennþá, en ef Lands-
símamönnum líst vel á þann kost, lít
ég svo á að fundin sé lausn á málinu.
Ef ekki verðum við að kanna hvort
aðrir kostir séu í stöðunni,“ segir
hún.
Samtökin Vemdum Laugardalinn
afhentu borgarstjóra jafnframt í
gær niðurstöður símakönnunar sem
fyrirtækið Gallup gerði fyrir sam-
tökin síðari hluta ágústsmánuðar á
meðal Reykvíkinga. í úrtakinu vora
474 Reykvíkingar og þeir sem náð-
ist í og vora tilbúnir til svars vora
305 talsins.
I niðurstöðum könnunarinnar
kemur m.a. fram að 51,4% vora
mjög andvíg því að byggt væri í
austurhluta Laugardals, 19,9%
voru frekar andvíg, 13,0% voru
hvorki hlynnt né andvíg, 9,6% voru
frekar hlynnt og 6,2% voru mjög
hlynnt því að byggt væri í dalnum.
Þegar þátttakendur voru spurðir
að því hvort skoðun þeirra væri
háð því um hvers lags hús væri að
ræða, sögðu 25% þeirra að svo
væri.
Borgarstjóri bendir á að viss
mótsögn sé í annars vegar texta
undirskriftarsöfnunarinnar, þ.s.
gerð er krafa um að hætt verði um-
svifalaust við öll áform um bygging-
ar sem „stríða gegn núverandi hlut-
verki dalsins, sem íþrótta- og úti-
vistarparadísar," og hins vegar
þeim hluta könnunarinnar sem lýt-
ur að eðli bygginga á svæðinu.
Ekki einhlítar skoðanir
„Alls segjast um 60% þeirra sem
tóku þátt í könnuninni mótfallin því
að byggja í dalnum, óháð því hvaða
mannvirki yrði reist, en undirskrift-
arsöfnunin gengur hins vegar út á
að lóðunum verði ekki ráðstafað til
annarrar starfsemi en tengist
íþróttum og útivist. Ef við væram
að tala um að ráðstafa svæðinu til
íþróttatengdrar starfsemi, myndi sú
tilhögun væntanlega kalla á ein-
í HUGMYNDUM KEA um bygg-
ingu verslunar- og umferðarmið-
stöðvar á lóð Umferðarmiðstöðvar-
innar við Vatnsmýrarveg er gert
ráð fyrir að hús Umferðarmið-
stöðvarinnar verði fjarlægt. Einnig
hefur verið varpað fram hugmynd-
um um að þar verði bílageymsla
fyrir starfsemina og jafnvel lyrir
Landspítalann. Eignarhaldsfélagið
Ki-inglan hf. hefur einnig áhuga á
að byggja verslunarmiðstöð á
svæðinu, sér eða í samvinnu við nú-
verandi lóðahafa.
Kaupfélag Eyfirðinga á Akur-
eyri (KEA) keypti fyrr á árinu
meirihluta hlutafjár í Vatnsmýr-
inni hf. sem á hús Umferðarmið-
stöðvarinnar, BSÍ, á Vatnsmýrar-
vegi 10 og í framhaldi þess voru
kynntar hugmyndir fyrirtækisins
um að byggja þar upp þjónustu- og
hvers konar mannvirki. Sama máli
gæti gegnt um útivistarstarfsemi.
Það er því ljóst að skoðanir fólks
verslunarmiðstöð sem meðal ann-
ars hýsi Nettó-verslun og verði
miðstöð almenningssamgangna
landsbyggðarinnar við höfuðborg-
arsvæðið.
Síðan hefur verið unnið að skipu-
lagi svæðisins í heild en auk lóðar
Umferðarmiðstöðvarinnar eru
Sportleigan og bílaleigan Avis með
litlar lóðir þar. Sportleigan hefur
nú verið sameinuð Útilífi sem
Baugur hf. eignaðist í vor. Fram
hefur komið hjá kaupfélagsstjóra
KEA að fyrirtækið vilji reisa þama
stóra og fallega byggingu, stærri
en áformað var í upphafi og æski-
legt væri að gera það í samvinnu
við Sportleiguna.
Þurfa stærri lóð
Árni Þór Sigurðsson, formaður
skipulagsnefndar Reykjavíkur,
segir að vinna við skipulag Vatns-
mýrarinnar sé ekki að nálgast
lokastig. Af hálfu Vatnsmýrarinnai-
hafi verið settar fram ýmsar hug-
myndir sem séu til athugunar hjá
borgaryfirvöldum. Hugmyndir séu
um að fjarlægja hús Umferðarmið-
stöðvarinnar og byggja nýja versl-
era ekki einhlítar, þó svo að það sé
ósammála skipulagstillögunni. Við
verðum að skoða í framhaldi af því
unar- og umferðarmiðstöð með
bílageymslum fyrir starfsemina og
jafnvel einnig fyrir Landspítalann.
Telur hann ljóst að slík bygging
þurfi meira pláss en núverandi lóð
Umferðarmiðstöðvarmnar, en tek-
Þyrping
sótti ekki
um lóðina
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ
Kringlan hf. hefur sótt um lóð
við Umferðarmiðstöðina í
Vatnsmýri, eins og fram kem-
ur í frétt hér á síðunni. Það er
hins vegar rangt sem fram
kom í frétt á baksíðu blaðsins
síðastliðinn sunnudag að fast-
eignafélagið Þyrping hf. hefði
sótt um lóðina en upplýsingar
þess efnis höfðu fengist stað-
festar hjá embætti borgarverk-
fræðingsins í Reykjavík. Er
beðist velvirðingar á þessu.
hvernig skipulagi á þessum reit
verður háttað," segir Ingibjörg Sól-
rún.
ur fram að ekki sé alveg Ijóst
hversu stór lóðin sé. Segir Árni
Þór að hugmyndirnar séu meðal
annars skoðaðar í tengslum við
þróunaráætlun miðborgarinnar og
athuga þurfi sérstaklega tengingu
nýju Hringbrautarinnar við Njarð-
argötu og hugsanlega nýja flug-
stöð.
Árni Þór segist þeirrar skoðunar
að vel komi til greina að heimila
niðuirif húss Umferðarmiðstöðvar-
innar. Segir að það hafi verið
lenska að ekki mætti rífa hús sem
byggð eru úr steypu. En til þess
gæti stundum þurft að koma.
Kringlan vill færa út kvíarnar
Eignarhaldsfélagið Kringlan hf.
sem á og leigir út til verslana og
þjónustufyrirtækja verslunarmið-
stöðina Kringluna hefur sótt um
lóð á Umferðarmiðstöðvarsvæðinu.
Félagið er í eigu um 60 fasteigna-
eigenda í Kringlunni.
Ragnar Atli Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Kringlunnar,
segir að fyrirtækið hafi aflað sér
mikillar reynslu við uppbyggingu
Kringlunnar og vilji nýta þá þekk-
ingu annars staðar. Ýmislegt sé til
skoðunar í því efni en ekki sé tíma-
bært að segja frá framtíðaráform-
um fyrr en þau hafi verið kynnt
fyrir borgaryfirvöldum.
Varðandi Umferðarmiðstöðina
segir Ragnar Atli að óskað hafi
verið eftir viðræðum við Reykja-
víkurborg um lóð fyrir verslunar-
miðstöð á þessu svæði. í bréfinu sé
tekið fram að byggja mætti upp á
sérlóð eða í samstarfí við þá sem
eiga lóðir á svæðinu, það er að
segja KEA eða Sportleiguna. Hann
segir að enn hafi ekki verið rætt
við núverandi lóðahafa en það yrði
gert.
Árni Þór Sigurðsson, formaður
skipulagsnefndar, segist ekki hafa
séð neina umsókn frá Eignarhalds-
félagi Ki-inglunnar hf. og vill ekk-
ert um málið segja.
Þjónusta númer eitt!
Til sölu MMC Pajero SW
3500. Nýskráður 01/96. Sjálf-
skiptur, leðurinnrétting, topp-
lúga, spoiler, varadekkshlíf,
álfelgur. Ekinn 105.000 km.
Ásett verð kr. 2.700.000
Nánari uppl. hjá Bílaþingi Heklu
í síma 569 5500.
Opnunartfmi: Mánud. - föstud. kl. 9-18
laugardagar kl. 12-16
BÍLAÞINGiEKLU
Némor c-ÍH' f bílvrnl
Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500
www.bilathing.is • www.bilathing.is • www.bilathing.is
Hugmyndir um að rífa hús
Umferðarmiðstöðvarinnar