Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ HJONAMINNING ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 49 MARGRÉT ODDNÝ HJÖR- LEIFSDÓTTIR OG SIGURÐUR KRIS TJÁNSSON + ÞEGAR árin færast jrfir og skunda hjá hvert af öðru „sem stormur hreki skörðótt ský“, þá vill manni verða tíðlitnara um öxl, reyn- andi að blása lífi í meira eða minna fölskvaðar minningar frá barns- og unglingsárum. Er þá undir hælinn lagt hvort tekst að tendra loga af þeim glæðum sem enn eru ekki útslokknaðar með öllu. Og það skal þurfa tilefni til að reyna að festa á blað minning- arnar sem í hugann koma þegar rýnt er í liðna tíð. Tilefnið sem ég þykist hafa að þessu sinni er að í dag eru liðin rétt hundrað ár frá fæðingu kærrar og minnisstæðrar grannkonu, Margrétar Oddnýjar Hjörleifsdóttur í Hrísdal, og ég finn hjá mér hvöt til að minnast þeirrar góðu konu í fáum vanmegna og létt- vægum orðum. En ekki er penni minn fyrr farinn að skrika um auða pappírsörkina en það rennur upp fyrir mér að ég kemst engan veginn hjá því að minnast jafnframt eigin- mannsins hennar góða, Sigurðar Kristjánssonar, föðurbróður míns, enda eru þau tvíeitt í minningu minni. Frá hans fæðingu verða liðin eitt hundrað og ellefu ár hinn 5. október nk. og einmitt daginn sem ég nú hef þessi skrif eru liðin rétt þrjátíu ár frá andláti hans. Þannig að úr þessu verður hjónaminning þegar allt kemur til alls. Aður en lengra er haldið með grein þessa vil ég taka fram að ég mun, mér til hægari verka, leita fanga í áður framkomnum skrifum um þau Hrís- dalshjón, en einkum þó vitna til efn- is eftir Gunnar á Hjarðarfelli, en hann hefur minnst þeirra hjóna á einkar hlýlegan og sannferðugan hátt. Eins og gengur og gerist með ná- granna verður ávallt óljóst með hverjum hætti upphafleg kynni takast þeirra á milli. Þeir eins og vaxa hver inn í annars heim, líkt og landslag heimahaganna síast ósjálfrátt og eins og einhvem veg- inn ómeðvitað inn í hugarheim þeirra sem upp við þá alast og eng- inn kann að nefna stundina þegar það gerist. Frá æskuárum mínum bjarmar einna fegurst upp af minningunum um öll þau góðu samskiptin sem við, litla fjölskyldan í Dal, áttum við fjöl- skylduna í Hrísdal sem var miklum mun stærri. Vart leið sá dagur að ekki væri samgangur milli bæjanna í einum eða öðrum erindum og þurfti naumast erinda við. Ellegar þau voru ekki ýkja brýn. Til dæmis var það að tæknin stórkostlega, út- varpið, kom að Hrísdal nokkrum ár- um fyrr en að Dal og stundum var beinlínis gerð ferð til að hlusta á efni sem í því var flutt og eftirsókn- arvert þótti á að hlýða. Þótti mér með ólíkindum miklum hvernig nokkur maður kæmist fyrir í svo litlum kassa! Villa mín í þessu efni var þó snarlega leiðrétt eftir föng- um. Þá áttum við bræðurnir tveir í Dal heldur en ekki góða leikfélaga í þeim dætrum Hrísdalshjóna sem voru á aldur við okkur og sóttum ákaflega til fundar við þær og þær aftur gagnkvæmt til okkar. Sá hængur var þó á að Straumfjarðará rann milli bæjanna og átti það til á stundum að verða nokkuð svo til hindrunar ferðum okkar og sam- fundum. Minningar eru svo sem ekki ætíð tii að treysta á, en eftir á finnst mér að stundum hafi verið teflt alldjarft í viðureigninni við ána og það hafi jafnvel komið fyrh- að við bræður höfum skriðið yfir hana á einnættum ísi - eða kannski var hann tveggja nátta - til að ná fund- um frænkna okkar og leiksystra. Ævinlega var Margrét, móðir þeirra, til hliðar og í nándinni við leiki okkar sem voru næsta ólíkir af- þrejdngu nútíðarbama, sívinnandi og stundum áminnandi okkur börn- in ef með þurfti, sem ég held að sjaldan hafi verið. í hugskoti mínu geymi ég fjöl- margar myndir af þessari góðu grannkonu. Hér ætla ég aðeins að nefna þrjár, en þó ekki vegna stór- kostleika síns. A blækyrru sum- arkveldi kem ég eitt sinn sem oftar að Hrísdal og situr þá Margrét og mjólkar eina kúna sína suður í Kastalahominu sem svo er nefnt. Hún styður enni við hupp kýrinnar og leynir sér ekki væntumþykjan milli konunnar og kýrinnar. Mar- gréti þótti afar vænt um kýr, sinnti þeim vel, en gekk ekki að öðm leyti til útiverka að ráði, enda um meira en nóg að sýsla innanbæjar. Önnur mynd. Ég sé hana ljóslifandi fyrir mér þar sem hún situr á eldgamla koffortinu sem ævinlega var kallað púff og malar sitt kaffi í rólegheit- um. Það er mjög skýr mynd. Þriðja myndin sem ég nefni er af því þegar hún hafði hlaðið ýmsum krásum á borð fyrir gesti og heimafólk, hvemig hún lék diskum til og frá um borðið þannig að þessi fengi nú örugglega að smakka á þessu, elleg- ar að annar fengi sér nú ekki alltof mikið af hinu. Stundum var þetta líkast því að hún tefldi flókna ref- skák en allt af góðum huga gert. Svona geta smámunir hversdagsins orðið myndrænir. Mai’gréti lét mat- argerð mjög vel. Hún var vel verki farin og hreinlát. Með árunum gerð- ist hún nokkuð feitlagin og þungfær af þeim sökum, en þá vora dætum- ar komnar henni til liðsinnis hver af annarri. Að öðm leyti var hún með afbrigðum heilsuhraust og varð tæpast misdægurt uns yfir lauk. Alla ævina lifði hún við það að hafa fjölmennt í kringum sig og því kunni hún vel því hún var mjög fé- lagslynd í eðli sínu. Hún sótti þá mannfagnaði sem var að hafa í heimasveitinni eftir því sem mögu- lega varð við komið, starfaði með kvenfélaginu, en gerði annars ekki víðreistara en gekk og gerðist með sveitakonur fyrr á árum. Ekki gat hún talist nýungagjörn og við ým- issi nýbreytni virtist hún heldur amast, eða fannst a.m.k. fátt um sum mannanna verk. Nokkurrar skólagöngu naut hún í frambemsku kennsluskyldu hér á landi. Ekkert veit ég um námsáhuga hennar eða námsárangur, en býst við að hvort tveggja hafi verið í góðu meðallagi. Hins vegar komst hún inn í íslensku bókmenntimar með harla sérkenni- legum hætti. í fyrsta bindi ævisögu sinnar, ísold hin svai’ta, segir Ki’ist- mann Guðmundsson, skáld og rit- höfundur, frá fyrstu skólagöngu sinni. Hann var þá um nokkurt ára- bil á Fáskrúðarbakka hjá afa sínum, Bimi Sveinbjömssyni, sem annars var löngum kenndur við Þverfell í Lundarreykjadal. Skólinn var á Hjarðarfelli. Á ýmsu virðist hafa gengið með strákunum og kannski að bekkst hafi verið til við aðkomu- drenginn. Lýsh’ Kristmann slags- málum sem hann lenti í og klögu- málum sem hann hafði uppi við kennarann án árangurs. Síðan segir Kristmann svo frá og vitna ég orð- rétt til hans: „En þegar ég var orð- inn undir skrambans mikilli þvögu af strákum barst mér óvænt hjálp. Stór og burðamikil telpa, tveggja stráka maki, dóttir Hjörleifs á Hofsstöðum, þess mæta manns, gekk í lið með mér, sópaði af mér drengjunum og barði þá hvem með öðrum. Snéram við nú bökum sam- an og snýttu allmargir rauðu áður en bardaganum lauk. Þá voru reyndar fleiri gengnir í lið með okk- ur og þótt flokkamir væru ekki jafnir vora harðvítugustu aðilarnir mín megin. Hófst nú sáttafundur meðal krakkanna og hafði Hjörleifs- dóttir forgöngu um hann. Kom okk- ur saman um að þegja um áverkana og reyna að verða góðir félagar. Þannig vann ég mér átthagarétt á Snæfellsnesi.“ Svona veitti Margrét einu kunnasta skáldi þjóðarinnar liðsinni sitt þegar að honum var illi- lega kreppt og gat sér með því nafn í bókmenntunum. Þá var hún Mar- grét á Hofsstöðum, en þar fæddist hún og ólst upp hjá foreldram sín- um, þeim Hjörleifi Bjömssyni og Kristjönu Sigurðardóttur. Hjörleif- ur bjó á Hofsstöðum frá 1893 til 1937, en Sigríður, kona hans, lést árið 1918. Hjörleifur kvæntist öðra sinni árið 1925 Matthildi Jóhannes- dóttur, sem hélt áfram búskap í nokkur ár eftir lát Hjörleifs. Um framættir Margrétar verð ég að láta nægja að fullyrða að þær voru hinar merkustu, en grein í dagblaði rúmar ekki fyllri upplýsingar. I örstuttu máli var búskaparsaga þeirra Margrétar og Sigurðar á þá leið að þau giftust 3. mars 1919 og hófu búskap sinn á Hjarðarfelli í tvíbýli við Guðbjart, bróður Sigurð- ar, en aðeins í eitt ár. Þá fluttu þau að Hofsstöðum, þar sem þau bjuggu frá 1920 til 1927 í tvíbýli við Hjör- leif, föður Margrétar. Árin sem þau bjuggu á Hofsstöðum eignuðust þau synina Hjörleif, Kristján og Sigfús og dætumar Kristjönu og Áslaugu. Eru börn þeirra talin hér í aldurs- röð. Vorið 1927 fluttu þau að Dal með bömin, nema Áslaugu, sem varð eftir hjá afa sínum á Hofsstöð- um og ólst þar upp. í Dal bjuggu þau til vors 1932 og síðasta árið í tvíbýli við hálfbróður sinn, föður þess er þetta ritar. Þar bættust þeim tvö börn; Valdimar, sem að mestu eða öllu leyti var uppfóstrað- ur á Hjarðarfelli, og Elínu. Það var svo vorið 1932 að þau fluttust vestur yfir Straumfjarðai-á að Hrísdal, þar sem þau síðan bjuggu samfleytt í 37 ár, eða þar til Sigurður lést. Éftir að í Hrísdal var komið fjölgaði enn börnum þeirra hjóna og við bættust hvorki meira né minna en fjórar dætur; þær Olga, Magðalena, Anna og Ásdís, og eru þær nefndar í ald- ursröð. Rúmsins vegna hlýt ég að láta niður falla að greina frá kvon- fangi bama þeirra Hrísdalshjóna, eða lífsstörfum þeirra, og verð að vísa til annara heimilda um þau efni. Skemmst frá sagt urðu þau öll stórmyndarlegt fólk og vel gert á alla lund svo sem vora foreldrar þeirra. Það var auðvitað mikið erfiði og stríð og fátæktarbasl sem fylgdi því að koma upp þessum stóra bai-nahópi í mjög svo þröngum húsakynnum á landlítilli jörð, sem Hrísdalur er, þótt hún sé að sama skapi fögur með lyngholt sín og skógarbrekkur. Það hjálpaði mjög að Sigurður náði góðum samningum við þá sem réðu málum Helgafells- kirkju um að mega nýta land Baulárvalla til sumarbeitar fyrir sauðfé sitt. Fyrstu tíu eða tólf árin voru þau Hrísdalshjón leiguliðar á jörðinni, en hana átti hópur manna í Reykjavík sem þá, eins og nú, hugði betur til laxveiða í Straumfjarðará en til annarra nota sem af jörðinni mátti hafa. Jörðin var þeim hins vegar ekki fastari í hendi en svo, að þegar þau Sigurður og Margrét sóttu til þeirra um veðleyfi fyrir nýju íbúðarhúsi sem þau tvímæla- laust urðu að koma upp, þá kusu þeir heldur að selja þeim hjónum jörðina. Gunnar á Hjarðarfelli segir svo frá í ritverki sem hann lét eftir sig og er í fáma manna höndum: „Þeir (þ.e. eigendurnir) munu hafa litið svo á að betra væri að selja jörðina en að taka einhverja áhættu í þessu efni. Það varð því úr að Sig- urður og Margrét keyptu jörðina áður en þau byggðu íbúðarhúsið ár- ið 1943. Þau bundu sér mikla skuldabagga við þetta hvoru- tveggja, en með hjálp barnanna sem vora að vaxa úr grasi famaðist þeim þetta vel. Fjölskyldan sneið sér stakk eftir vexti í öllum efnum, var samhent og undi glöð við sitt. Mörgu fólki fannst mjög ánægju- legt að koma að Hrísdal til þessarar hamingjusömu fjölskyldu." Þetta era orð að sönnu. Og enn leyfi ég mér að vitna í minningar- grein sem Gunnar ritaði eftir Mar- gréti látna: „Barátta þeirra var mjög ströng. Hjónin urðu að vera nægjusöm og neita sér um margt sem nú er talið sjálfsagt og leggja hart að sér í vinnu. Samheldni þeima var mikil og má segja að þau væra einhuga í öllu. Því verður ekki rætt um annað án þess að hins sé getið. En að sjálfsögðu reynir mest á húsmóðurina á stóra bamaheimili. Hún þarf að vera útsjónarsöm og stjórnsöm. Þeim kostum var Mar- grét búin. Hrísdalshjón létu ekki fá- tækt, heilsubrest Sigurðar um nokkur ár, né aðra erfiðleika kné- setja sig. Þau héldu lífsgleði sinn og reisn að fullu alla tíð og voru oft gjöfulir veitendur á heimili sínu. Sigurður var söngvinn gleðimaður og hafði mikinn róm og einstaklega góða frásagnarhæfileika. Hann gerði oft gleðistund úr því að segja frá litlu atviki og ýkti stundum, en Margrét og börnin höfðu gaman af.“ Við þessi orð Gunnars hefi ég engu að bæta, enda segja þau eigin- lega allt sem segja þarf um þau Hrísdalshjón. Þó stenst ég ekki þá freistingu að tilfæra hér orð sem hann lét einu sinni falla í áheym minni og era dæmi um frásagnar- hátt hans eða gráglettnar athuga- semdir. Hann var gestkomandi í Dal eitt sinn sem oftar. Það höfðu verið einhverjir erfiðleikar með vatnið í Hrísdal, eins og raunar var ekki ótítt á bæjum, og hann var eitt- hvð mæddur af þeim sökum og mælti á þessa leið: „Það er alveg merkileg andskotans óart í vatni yf- irleitt. Komi gat á vatnsfötu þá rennur allt úr henni, en komi aftur á móti gat á stígvélið mitt þá skal vatnið renna inn í það,“ og fylgdi kuldahlátur. Það er kannski ekki með öllu viðeigandi af mér að setja þessi orð hans hér, en mér finnst þau megi geymast. Sigurður var mjög karlmannlegur að öllu atgervi. Sögur hans voru ýmsar harla stór- karlalegar og áttu það stundum til að sveigjast nokkuð inn á hið gráa erótíska svæði án þess þó að sið- semi áheyrenda væri í nokkra mis- boðið. Nú er margt breytt frá því sem forðum var í Hrísdal. Daufara um að litast og hljóðara, þótt enn sé búið þar góðu fjárbúi í veglegri fjár- húsum en vora til staðar í tíð gömlu Hrísdalshjónanna. Oðruvísi mér áð- ur brá, þegar þríbýli var á bænum, með fjölmenni sem óvíða annars staðar og ég verð því miður að láta ógetið um á þessum blöðum. Nú býr sonarsonur þeirra gömlu heiðurs- hjóna, alnafni Sigurðar heitins, einn á jörðinni með aðstoð systur sinnar. Látnir era nú allir synir Margrétar og Sigurðar, svo og dóttirin Aslaug, og flest allnokkuð fyrir aldur fram. Eftir lifa sex dætur. Niðjamót gömlu hjónanna var haldið fyrr í sumar. Þá var komið fyrir nýjum og vönduðum legsteini á leiði þeirra í kirkjugarðinum á Fáskrúðarbakka, en legsteinninn sem fyrir var settur á Hádegisholtið og snýr áletrun hans gegnt bæjarhúsum í Hrísdal og Kastalanum, hæðinni sem bregð- ur svo glæsilegum blæ á staðinn. Það var af ræktarsemi gert. Á þessu umrædda niðjamóti voru samantaldir allir afkomendur gömlu hjónanna og reyndust vera 198 að tölu. Hvorki meira né minna! Og verð ég þá að geta þess að Margrét var mjög frændrækin og fylgdist grannt með vexti og við- gangi afkomenda sinna. Mér er nær að halda að hún hafi munað fæðing- ardaga og fæðingarár þeirra allra, enda var henni gefinn sá sérstaki hæfileiki flestum öðrum fremur að muna þá hluti. Þurfti þá ekki endi- lega að vera um vandabundna að ræða. Eftir lát Sigurðar dvaldist Margrét hjá börnum sínum til skiptis, en langmest hjá Olgu dóttur sinni á Hrauntúni í Norðurárdal. Síðustu árin var hún þó á Dvalar- heimili aldraðra í Borgamesi og þar lést hún hinn 9. ágúst 1985. Bar andlát hennar upp á afmælisdag Olgu. Olga, ásamt dóttur sinni og dótturbömum, hafði verið í heim- sókn hjá henni og þau höfðu nýlega kvatt hana þegar hinsti gestur allra kvaddi dyra. Olga ritaði litla minn- ingargrein um móður sína. Sú grein er í smæð sinni og látleysi hreinasta perla að mínum dómi og niðurlag hennar með þeim hætti að vel sæmdi þaulvönum rithöfundi. Ég vona að Olga, frænka mín, taki það ekki illa upp þótt ég hnýti því við mína slitróttu grein undir lokin. „9. ágúst sátu fjórar kynslóðir saman í stofu hennar. Á margt var minnst. „Það vantaði hurðina fyrir ný- byggða baðstofuna þegar þú fædd- ist fyrir 53 áram. Veðrið var svona gott, eins og í dag. Fólkið í hey- skap,“ sagði hún. Hún var búin með sokkana. Þeir lágu þæfðir og sam- anbrotnir við hlið hennar. Ættlið- irnir kvöddu einn af öðrum. Að stundu liðinni var ævin öll. Síðdeg- issólin fyllti herbergin.“ Ég lýk svo þessum ski’ifum mín- um með velfarnaðaróskum til allra afkomenda gömlu og góðu hjónanna í Hrísdal og lýsi þökk minni fyrir það að hafa mátt sitja við yl minn- inganna um stund. En margt er ósagt. Erlendur Halldórsson frá Dal. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÚLÍUS B. JÓNSSON, Einilundi 6b, Akureyri, sem lést fimmtudaginn 23. september sl., verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtu- daginn 30. september kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á að láta Heimahlynningu á Akureyri njóta þess. Sigríður Gísladóttir, Gísli J. Júlíusson, Valgerður Valgarðsdóttir, Herdís María Júlíusdóttir, Egill Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Lokað ( dag vegna jarðarfarar INGVARS J. HELGASONAR, forstjóra. Bjarkey ehf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.