Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
erískir
hvíldarstólar
Hvíldarstóll úr ledri
kr. 65.900,-
| TILEOE
Hvíldarstóll
úrtaui
kr. 39.900,-
t
VIÐSKIPTI
Símmúla 28 - 108 Reykjavik - Sími 568 0606
Agla Sigríður Björnsdóttir, ráðningarfulltrúi hjá Gallup,
á ársfundi Vinnumálastofnunar
Minni kröfur á
vinnumarkaði
„VINNUVEITENDUR hafa ekki
komið til móts við minna framboð af
starfsfólki í framlínustörfum, þ.e. af-
greiðslufólk og ámóta störf, þar sem
laun eru undir 100 þúsund krónum á
mánuði með hækkun launa til að fá
starfsfólk. Þess í stað hafa þeir
lækkað staðalinn. Til dæmis eru þeir
farnir að ráða fólk sem reykir í störf
þar sem áður var aðeins ráðið reyk-
laust fólk. í raun eru þeir farnir að
biðja um hvern sem er til að fylla
lausar stöður, og á endanum hlýtur
það að koma niður á þjónustunni,“
sagði Agla Sigríðm- Björnsdóttir,
ráðningarfulltrúi hjá Gallup, í erindi
sem hún hélt á ársfundi Vinnumála-
stofnunar síðastliðinn föstudag.
Agla sagði jafnframt að ákveðin
blekking væri á kreiki varðandi
fjölda starfa sem í boði er. Mikið af
þessu væru framlínustörfin þar sem
laun væru undir 100 þúsund krónum
á mánuði og væri skortur á fólki þar.
I þessi störf færi oft ungt fólk og
tryggð starfsmanna við starfið væri
oft lítil. Minna væri rætt um hve
harður slagur væri um skrifstofu- og
stjórnunarstörf þar sem launin væru
hærri.
Morgunblaðið/Kristinn
„Áður fyrr var mikil tryggð frá hendi launþega til vinnuveitenda, en
nú hefur það breyst. Það er mjög mikil hreyfing á fólki núna hvort
sem það er í 100 þúsund króna störfum eða hærra launuðum,“ sagði
Agla Sigríður Björnsdóttir, ráðningarfulltrúi hjá Gallup, m.a.
á ársfundi Vinnumálastofnunar.
Til sölu
51 % hlutur ríkisins í
Fjárfestingarbanka atvinnnlífsins hf.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leita eftir tilboðum í 51% hlut ríkisins í
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. (FBA). Fyrirkomulag sölu verður
með þeim hætti að áhugasamir hópar skili í lokuðu umslagi tilkynningu
til Ríkiskaupa um þátttöku fyrir kl. 14 fimmtudaginn 21. október 1999.
Hver hópur þarf að uppfylla ákveðin skilyrði, t.d. um dreifða eignaraðild
og að bjóðendur í hverjum hópi séu ekki skyldir eða fjárhagslega tengdir.
Þegar seljandi hefur samþykkt tilboðshópana gefst þeim kostur á að skila
tilboði til Ríkiskaupa fyrir kl. 14:00 föstudaginn 5. nóvember 1999. Bjóða
skal í allan hlut ríkisins sem til sölu er, 51%. Tilboð skulu miðast við
staðgreiðslu, sem fram fari hjá Ríkisféhirði eigi síðar en mánudaginn
15. nóvember 1999.
Nánari upplýsingar um fyrirkomulag sölunnar verður birt
í sölugögnum sem munu liggja frammi hjá Ríkiskaupum
frá og með deginum í dag kl. 14:00.
Framkvæmdanefnd
um einkavæðingu
W
RÍKISKAUP
Hún sagði einnig að erfiðleikum
væri oft bundið fyrir fólk sem hefði
unnið hjá hinu opinbera, eins og t.d.
í kennarastöðum, að fá betui' launað
starf í einkageiranum, og oft gæfu
atvinnurekendui' lítið fyrir ýmis
námskeið í tölvunotkun sem fólk
færi á í þeirri von að gera sig gjald-
gengara á vinnumarkaði. Þar taldi
Agla að stundum væru auglýsingar
námskeiðshaldara misvísandi.
Góð raun af svæðismiðlunum
Páll Pétursson félagsmálaráð-
heira ræddi í ávarpi sínu meðal ann-
ars um þann árangur sem náðst
hefði í atvinnumálum íslendinga frá
stofnun Vinnumálastofnunar 1. júlí
ái’ið 1997, en hann sagði svæðis-
vinnumiðlanir hafa gefið góða raun
við að ná atvinnuleysi niður. Páll
kom einnig inn á virkjanamál og
áhrif þeirra fyrir þjóðarbúið, og
sagði m.a. að honum þætti það
skjóta skökku við að Steingrímur
Hennannsson og Hjörleifur Gutt-
ormsson, sem voru tilbúnir að
sökkva hálendi við Blöndu undir
vatn á sínum tíma, væru á móti
virkjun við Eyjabakka nú.
Hrólfur Ölvisson, stjórnarformað-
ur Vinnumálastofnunai', sagði í er-
indi sínu m.a. að í stjórn stofnunar-
innar væri einhugur um að koma á
fót svokallaðri starfabúð, sem góð
raun hefur orðið af í Danmörku, en í
slíkri „verslun" er upplýsingum um
laus störf stillt upp eins og hverri
annarri vöra og gæti hún höfðað
bæði til atvinnulausra og þeirra sem
vilja skipta um vinnu. Hann sagði að
staðsetning og vönduð framkvæmd
slíks framtaks væru lykilatriði.
919 milljóna rekstrarafgangur
Atvinnuleysistryggingasjóðs
Gissur Pétursson kynnti ársreikn-
ing Vinnumálastofnunar og sagði
meðal annars að ánægjulegt væri að
atvinnuleysistryggingasjóður hefði
skilað um 919 milljóna króna rekstr-
arafgangi á seinasta ári, sem myndi
leggjast í sjóð sem geymdui' væri til
síðari nota ef atvinnuástand versn-
aði í framtíðinni.
Helena Karlsdóttir, forstöðumað-
ur Svæðisvinnumiðlunar Norður-
lands eystra, flutti erindi um starfs-
þjálfunai'samninga sem úiTæði fyrir
atvinnulausa. Hún sagði að frá sein-
asta hausti hefðu verið gerðir 17
starfsþjálfunarsamningar á vegum
miðlunarinnar.
Gunnar Richardsson, forstöðu-
maður svæðisvinnumiðlunar Norð-
urlands vestra, fjallaði um Mennta-
smiðjuna á Löngumýri í Skagafirði.
Markmið hennar er að auðvelda at-
vinnulausum konum atvinnuleit,
m.a. með sjálfsstyrkingu og aukn-
ingu á alhliða hæfni, en Gunnar
sagði mikið langtímaatvinnuleysi
vera meðal kvenna á svæðinu og fyr-
irsjáanlegur samdráttur í „kvenna-
störfum".
Blöndunartæki
Moraterm sígild og stilhrein.
Með Moraterm er alltaf kjörhiti í
sturtunni og öryggi og þægindi i fyrirrúmi.
Mora - Sænsk gæðavara
I ehf.
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 564 1088 • Fax: 564 1089
Fást I lifHHinpjf fówmhmm um lamf ullt
Austur-
stræti
8-10 selt
GARÐAR Kjartansson hefur
keypt húsnæðið sem er í bygg-
ingu að Austurstræti 8-10. „Um
er að ræða 3.000 fermetra hús-
næði á fimm hæðum, sem af-
henda á tilbúið undir tréverk í
byi'jun janúar,“ segir Garðar.
„Upphaflega reyndi ég að fá
jarðhæðina leigða undir kaffi-
hús, en það tókst ekki. Þá at-
hugaði ég möguleika á að kaupa
húsnæðið og það þróaðist með
þessum hætti. Hugmyndin er
að rekið verði kaffihús á jarð-
hæðinni, en þetta húsnæði hent-
ar einkar vel til þess enda verð-
ur inngangur bæði frá Austur-
stræti og Austurvelli.
Garðar stofnaði dansstaðinn
Óðai við Austurvöll á sínum
tíma, og seldi hann síðar til nú-
verandi eiganda. Aðspurður seg-
ir hann að engin slík starfsemi
sé fyrirhuguð í hinu nýja húsi.
„Það hafa ýmsir aðilar sýnt hús-
næði á eí'rí hæðum hússins
áhuga. Þar á meðal eru lög-
fræðistofa, banki og Alþingi.“
Garðar kaupir húsið af Þrótti
ehf., en umsjón með sölunni
hafði Fasteignamarkaðurinn
ehf. Ekki fékkst uppgefið kaup-
verð eignarinnar, en fermetra-
verð eigna í miðbænum mun
vera á bilinu 140-170 þúsund
krónur.