Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 19
Barnakór kirkjunnar söng við vígsluna.
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson
Vígsla Félagsmiðstöðv-
arinnar Melbæjar
Eskifirði - Vígsla á Félagsmiðstöð-
inni Melbæ á Eskifirði fór fram 19.
september sl. Vígsluhátíðin hófst
með guðsþjónustu í tilefni af ári
aldraðra í Eskifjarðarkirkju. Að
henni lokinni gengu kirkjugestir til
félagsmiðstöðvarinnar þar sem sr.
Davíð Baldursson flutti vígsluorð.
Því næst bauð formaður Félags
eldri borgara á Eskifírði, Ölver
Guðnason, félagsmenn og aðra
gesti velkomna til hátíðarinnar.
Hilmar Bjarnason rakti sögu
ábúenda Melbæjar sem byggður
var 1884 og stóð til ársins 1954 að
húsið var rifið og byggður leikskóli
sem starfræktur var til ársins 1999
en var þá breytt í Félagsmiðstöð
aldraðra. Þá söng barnakór kirkj-
unnar og að því loknu undirrituðu
Guðmundur Bjarnason, bæjar-
stjóri í Fjarðabyggð, og Ölver
Guðnason, samning um húseignina
Fossgötu 9 (Melbær).
Að undirskrift lokinni var frum-
flutt gjöf frá bræðrunum Guð-
manni og Ellert Borgari Þorvalds-
sonum en gjöfin var lag og ljóðið
„Melbærinn minn“ og vakti hún að-
dáun og hrifningu. Félaginu bárust
einnig fleiri gjafir og óskir frá vin-
um og velunnurum.
Frá undirritun samningsins um Fossgötu 9. F.v.: Guðmundur Bjarna-
son, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, og Olver Guðnason, formaður Félags
eldri borgara á Eskifirði.
Að lokum sagði Kristinn Guð-
mundsson frá byggingu félagsmið-
stöðvarinnar sem hófst 7. júlí og
var lokið að mestu 31. ágúst. Unn-
ar hefðu verið ekki færri en 1030
vinnustundir. Á þessu tímabili bár-
ust Melbæ margar góðar gjafir,
bæði peningar og þarfir hlutir frá
félögum og velunnurum eldri borg-
ara svo að í Melbæ verður hægt að
reka gott félags- og menningar-
starf. Allt það verður seint þakkað,
sagði Kristinn.
Vænn úti-
gangshrútur
Ólafsvík - Nýlega var smalað úr
fjallinu Mýrarhyrnu hópi kinda
sem þóttu líklegar til að fara í hin
illræmdu klettabelti sem hafa yf-
irleitt reynst dauðagröf því fé er í
þau hefur farið.
Kom þá fram í þessum hópi vet-
urgamall hrútur frá Mávahlíð í
Snæfellsbæ í tveim reyfum. Við
skoðun reyndist þetta vera gemi-
ingur frá fyrra ári og hafði bæði
móðurina og lambið vantað af
Qalli og var talið að þau hefðu
farist í Mýrarhyrnu ásamt fleira
fé. Þetta er annað árið í röð sem
Mávahlíðarbændur heimta úti-
gengið fé því í fyrra fengu þeir úr
Mýrarhyrnu tvær veturgamlar
kindur ásamt lambi þeirra.
Það þótti rétt að þessi væni
hrútur fengi að taka þátt í hrúta-
sýningu. Þar var hann veginn og
mældur svo sem vera ber. Fylgja
hér með málin á hrútnum svo
menn geti séð að hér var engin
skjáta á ferð: Útigöngukollur l.v.
Þungi 91 kg, brjóstmál 110 cm,
spjald 25 cm, leggur 123 mm,
vöðvi 32, lögun 4, fíta 9. Samtals
gaf þetta 81 stig og 1. verðlaun
A.
Kollur stóð sig sem sagt með
prýði á sýningunni. Engu að síður
voru þarna aðrir hrútar betri og
varð það því hlutskipti Kolls að
vera leiddur til slátrunar. Telja
verður að hann hafi fallið með
sæmd.
STOR OG GOÐ
VINNUAÐSTAÐA
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Það er ekki létt verk að koma steypubíl fullum af steypu á
réttan kjöl. Til þess þurfti jarðýtu og vélskóflu.
Steypubfll valt
á hliðina fyrir
ofan Stykkishólm
St.ykkishólmi - Það óhapp varð á
laugardagsmorguninn að steypu-
bíll valt á hliðina á Drápuhlíðar-
melum fyrir ofan Stykkishólm.
Steypubíllinn var að koma frá
Stykkishólmi og á leiðinni inn að
Haukabrekku á Skógarströnd með
farm. Rétt eftir að bílinn hafði
beygt inn á Skógarstrand-
arafleggjarann gaf vegkantur sig
með þeim afleiðingum að bílinn
valt á hliðina. Þurfti aðstoð jarðýtu
og vélskóflu við að koma bflnum á
réttan kjöl aftur. Gekk verkið vel
þrátt fyrir mikil þyngsli. Bflstjór-
inn slapp án meiðsla, en bfllinn er
töluvert skemmdur.
Það er Þorbergur Bæringsson í
Stykkishólmi sem gerir steypubíl-
inn út. Hann sagði að tjónið væri
tilfinnanlegt því bflinn væri ekki
kaskótryggður.
ÞARF EKKI AÐ
KOSTAÞIG MIKIÐ
Rekstrarleigusamningur
Engin útborgun
27.724 kr. á mánuði
Fjármögnunarleiga
Utborgun 312.449 kr.
19.269 kr. á mánuði
Rekstrarlaiga er miðuS viS 36 mánuSi og 20.000 km á ári. Fjármögnunarleiga er miSuS viS 5 ár og 25% útborgun,
greiSslur eru án vsk. Vsk. leggst ofan á leigugreiSslur en viSkomandi fær hann endurgreiddan sé hann meB
skattskvldan rekstur. Öll verS eru án vsk.
ATVINNUBÍLAR
FYRIRTÆKJAÞJÓHUSTA
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1225/575 1226
HYunoni
60 T T FÓIK