Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999
UR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ
' ’ m A.' " * 1 -r .' AæVÍ gsy tvrA*
' X
á|||
Í&jC
SHjLW - - } V " * ,r
x***'WY Jm• -ví'* rtf F ,i' -'y'
m-m ■
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
KR-ingar gengu í skniðgöngu með lúðrablæstri að nýja húsinu.
Hátíð í nýju íþróttahúsi KR
Vesturbær
KR-ingar vígðu nýtt
íþróttahús í Frostaskjóli og
héldu hátíð af því tilefni á
laugardag. Húsið stendur
þar sem gamli KR-bragginn
stóð en hann var rifinn í júní
á síðasta ári, hálfum mánuði
eftir að fyrsta skóflustunga
var tekin að nýja húsinu.
Vesturbæingar og aðrir
KR-ingar gengu í skrúð-
göngu að nýja húsinu á
laugardag þar sem Sveinn
Jónsson, formaður bygging-
arnefndar, afhenti félaginu
húsið formlega. Það var
þéttsetinn bekkurinn í hús-
inu og gæddu gestir sér á
vöfflum með rjóma og fleira
góðgæti, sem framreitt var í
tilefni dagsins á þessari há-
tíð, sem er ein af mörgum
sem fjórfaldir Islands- og
bikarmeistarar KR-hafa
haldið undanfarnar vikur.
Iþróttahús KR er á
tveimur hæðum, 2.530 fer-
metrar að grunnfleti og
samtals 3.490 fermetrar.
íþróttasalurinn er um 1.460
fermetrar og er unnt að
skipta honum í þrennt. í
salnum eru áhorfendabekk-
ir fyrir um 800 manns. A 2.
hæð er 176 fermetra æf-
ingasalur.
I húsinu eru 10 búnings-
herbergi, 2 kennara- og
dómaraherbergi, 6 deilda-
og skrifstofuherbergi, stórt
fundarherbergi, auk annars.
Aætlaður kostnaður við
bygginguna er 350 milljónir
króna. Verktaki var Istak
en Teiknistofan ehf. hannaði
húsið.
Rauða ljónið var að
sjálfsögðu mætt til
athafnarinnar og sat í
miðjum krakkahópnum.
Halldór Reynisson,
sóknarprestur í
Neskirkju, ávarpaði
samkomuna og blessaði
húsið.
Gestir gæddu sér á
vöfflum með rjóma.
Umferðarvika í Hafnarfírði
45% umferðarslysa
á stofnbrautum
Hafnarfjörður
45% umferðarslysa í Hafn-
arfirði verða á stofnbrautum
í umsjá Vegagerðarinnar.
Þetta eru Reykjanesbraut,
Fjarðarhraun, Reykjavíkur-
vegur, Fjarðargata, Strand-
gata og Asbraut.
Þetta kemur fram í viðtali
fréttablaðs Hafnarfjarðar-
bæjar við Ernu Hreinsdótt-
ur tæknifræðing, sem hefur
umsjón með umferðarmálum
í bænum. Meðal svartra
bletta í bænum voru gatna-
mót Öldugötu og Hring-
brautar en eftir að Öldugötu
var breytt í einstefnuakst-
ursgötu hefur slysum þar
fækkað um 70%.
Erna segir að hraði hafi
mest að segja um hversu al-
varleg slys erða. „Ef barn
verður fyrir bíl á 50 km
hraða eru 80% meiri líkur á
að það deyi en ef hraðinn
hefði verið 30 km,“ segir
hún í viðtalinu.
Nú er verið að vinna að
nýju umferðaröryggisskipu-
lagi á svæðinu Reykjavíkur-
vegur/Vesturgata að Hraun-
brún meðtalinni. Þar á sam-
kvæmt samþykktu hverfa-
skipulagi að vera 30 km
hverfi.
Umferðarvika
í Hafnarfirði
Nú stendur yfir umferð-
arvika í Hafnarfirði. Lög-
regla heimsækir skólabörn í
bænum foreldrafundir
verða haldnir um umferðar-
mál.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hópur Hafnfirðinga fleytti kertum á Læknum á sunnu-
dagskvöld til minningar um fórnarlömb umferðarslysa.
I minningu fórnar-
lamba umferðarslysa
Hafnarfjörður
HAFNFIRSK ungmenni
fleyttu kertum á Læknum
á sunnudagskvöld til
minningar um þá sem lát-
ið hafa lífíð í umferðar-
siysum.
Safnast var saman
klukkan 20 við Hafnar-
fjarðarkirkju þar sem
Þórhallur Heimisson
sóknarprestur hélt bæna-
stund en siðan var gengið
fylktu liði upp Lækjar-
götu, yfir Hverfísgötu-
brúna og Tjarnarbraut að
Hörðuvöllum þar sem
kertunum var fleytt á
Læknum. Talsverður hóp-
ur tók þátt í athöfninni
sem var fyrst og fremst
ætluð ungmennum úr 9.
og 10. bekk grunnskólans
og 1. bekk framhalds-
skóla.
Bæjaryfírvöld gagnrýnd vegna ósamræmis í aðstoð við dagvistun fyrir námsfólk
Osanngjarnt
fyrirkomulag
Hafnarfjörður
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Þurý Osk Axelsdóttir og Kristmundur Guðleifsson
ásamt Svönu Osp, dóttur sinni.
UNG hjón sem bæði eru í
framhaldsnámi þurfa í dag
að greiða fullt gjald fyrir
dagvistun dóttur sinnar hjá
dagmömmu, án aðstoðar
frá bæjaryfirvöldum. Ein-
stæðir foreldrar fá hins
vegar endurgreiðslu á
meðan barnið er hjá dag-
mömmu. Þegar í leikskóla
er komið borga síðan bæði
giftir námsmenn og ein-
stæðir foreldrar sama
gjald. Erfitt getur þó
reynst að koma barni á
leikskóla og á meðan getur
fullt gjald fyrir dagvistun
barns hjá dagmömmu verið
þungur baggi fyrir tekjulít-
il hjón í námi.
Þurý Ósk Axelsdóttir er
á þriðja ári í læknisfræði
og giftist í sumar Krist-
mundi Guðleifssyni, en
hann er nemi í véltækni-
fræði. Bæði eiga þau eftir
um fjögur ár í námi. Fyrir
tæpu ári síðan eignuðust
þau dóttur sem í septem-
ber þurfti að fara til dag-
mömmu á meðan foreldrar
hennar sitja á skólabekk.
Þurý segist hafa verið viss
um að námsmenn fengju
aðstoð við að greiða niður
kostnað vegna dagvistunar
og hafi í ágúst hringt í fé-
lagsmálastofnun Hafnar-
fjarðarbæjar til að athuga
hvaða pappírum hún þyrfti
að skila til að fá þessa að-
stoð. Hún fékk hins vegar
þau svör að engar endur-
greiðslur væru til giftra
foreldra og að þeir einu
sem fengju slíkt væru ein-
stæðir foreldrar ásamt for-
eldrum barna sem vinna á
leikskólum.
Þurý segist eiga erfitt
með að sætta sig við að
bæjaryfirvöld aðstoði ekki
námsfólk við að greiða nið-
ur dagvistunarkostnað.
„Nema hvað, þegar stelpan
mín fer inn á leikskóla, þá
sitjum við við sama borð og
einstæðir foreldrar. Þá
borgum við jafn mikið af
því við erum ekki með nein-
ar tekjur. Þannig að þetta
er mjög ósanngjarnt," seg-
ir Þurý.
Hún segir að þau borgi
dagmömmunni 28.200
krónur á mánuði og 36.000
krónur í húsaleigu. „Við
höfum ekki efni á að hafa
hana allan daginn hjá dag-
mömmu því það kostar
38.000 krónur. Ef við kæm-
um henni inn á leikskóla
fengi ég pláss fyrir hana
allan daginn og það myndi
kosta mig 12.000 krónur.
Bæjaryfirvöld viðurkenna
síðan að við þurfum fullar
húsaleigubætur, en ekki að
við þurfum aðstoð við að
borga nærri 40.000 krónur
í dagvistun. Manni finnst
þetta svo ofboðslega órétt-
látt að ég get bara ekki
sætt mig við þetta,“ segir
Þurý.
Hún segist vita til þess
að í Reykjavík fái foreldrar
sem báðir séu í skóla
greiddan hluta af kostnaði
við dagmömmuna. „Það
sem manni svíður mest er
að fyrir síðustu bæjar-
stjórnarkosningar lofuðu
núverandi stjórnarflokkar
öllu fögru til foreldra. Nú
er manni bent á að skrifa
til félagsmálaráðs og leik-
skólanefndar og benda á
þetta. Mér finnst það alveg
út í hött. Það er bara
skrípaleikur, þeir ætla ekk-
ert að gera. Þeir ætla bara
að þagga þetta niður og
láta fólk sætta sig við
þetta,“ segir Þurý.
Hún segir að dóttir
þeirra komist í fyrsta lagi
inn á leikskóla þegar hún
verður orðin tveggja ára
gömul, jafnvel þó að hún sé
í forgangshópi. „Ég er búin
að hringja út um allt og
skoða alla möguleika og
það er bara ekki neitt sem
hægt er að gera. Ég athug-
aði með einkarekinn leik-
skóla í Reykjavík og það
hefði kostað okkur yfir
40.000 krónur á mánuði, af
því að Hafnarfjarðarbær
borgar svo lítið með börn-
unum.“