Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ Borgarstjóri segir kostnað við endurbyggingu Laufásvegar 43 hafa reynst of mikinn Eigendur vissu um efasemdir Samkeppnisstofnun rannsakar dreifingaraðila grænmetis og ávaxta Húsleit gerð í ijórða fyrirtækinu SAMKEPPNISSTOFNUN gerði húsleit hjá fyrirtækinu Mata ehf. í Sundagörðum í gær með lögreglu- aðstoð að fengnum rannsóknarúr- skurði fró Héraðsdómi Reykjavík- ur á sunnudag. Er það fjórða fyrir- tækið á nokkrum dögum sem Sam- keppnisstofnun gerh- húsleit hjá. Leitin var gerð og hald lagt á gögn fyrirtækisins á grundvelli 40. greinar Samkeppnislaga að sögn Guðmundar Sigurðssonar for- stöðumanns samkeppnissviðs. Þar segir m.a. að Samkeppnisstofnun geti við rannsókn máls gert nauð- synlegar athuganir á starfsstað fyrii-tækis og lagt hald á gögn þeg- EKKI er ljóst hvað varð búrhvaln- um, sem fannst skammt undan Dyrhólaey á sunnudag, að ald- urtila. Hvalurinn var dreginn upp í sandinn á Reynisfjöru. Birgir Stef- ánsson hjá Hafrannsóknastofnun skoðaði dýrið í gær og sagði nokk- uð ljóst að skepnan væri nýdauð. Að sögn Birgis var hvalurinn frekar ungur, þar sem hann mæld- ist 12 metra langur en búrhvalir verða allt að 20 metra langir. Skepnan er talin hafa vegið um 30 tonn. Að sögn Birgis hafði dýrið enga sjáanlega áverka, svo sem eins og eftir árekstur við skip eða báta. Birgir sagðist hafa fundið neta- dræsu inni í hvalnum, en sagðist ekkert geta fullyrt um það hvort hún hefði drepið hvaiinn, þar sem líkamlegt ástand dýrsins hefði ver- ið gott, eins og áður sagði. Að hans sögn var um umtalsverða flækju að ræða, en hann taldi ljóst, að veiðarfærin væru ekki íslensk. Birgir tók ýmis sýni úr hvalnum, sem hann hyggst rannsaka síðar til að komast betur að því í hvaða ástandi dýrið var, t.d. hvort það hafi borið einhvern sjúkdóm. Áhöfn á netabáti kom fyrst að hvalnum í sjónum um helgina og dró hann austur fyrir Dyrhólaey þar sem lijólabátur í eigu Mýrdælings tók við flykkinu og dró það á land. Unnu síðan 6-8 manns að því fram á ar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn lögunum eða ákvörðunum samkeppnisyfirvalda. Mata ehf. annast dreifingu á ávöxtum og grænmeti sem og fyr- irtækin þrjú sení gerð var húsleit hjá á föstudag að fengnum dóms- úrskurði á fimmtudag. Sá dómsúr- skurður hefur verið kærður til Hæstaréttar fyrir hönd fyi-irtækj- anna þriggja, sem eru Agæti, Sölu- félag garðyrkjumanna og Bananar ehf. Engar staðreyndir sem réttlæta húsleitina Að sögn Matthíasar Guðmunds- kvöld að koma hvalnum lengra upp í fjöruna með vinnuvélum. Birgir sagði að búrhvalur, líkt sonar, framkvæmdastjóra Ágætis, eru forsendur kærunnar einkum þær, að Samkeppnisstofnun hafi ekki lagt fram neinai' staðreyndh’, sem réttlæta húsleitina sem gerð var. Hafi aðgerðir stofnunarinnar byggst á orðrómi og getgátum. Georg Ottósson, stjórnarformað- ur hinna tveggja fyrirtækjanna, Banana ehf. og Sölufélags garð- yrkjumanna, sagði að hann hefði kært úrskurðinn á þeim forsendum að Samkeppnisstofnun hefði farið offari með húsleitinni, en tók fram að hann bæri virðingu fyrir stofn- uninni sem slíkri þar sem hún væri að vinna sitt verk. og hnúfubakur og sléttbakur, gæti verið hættulegur smábátum þar sem hann sykki ekki heldur flyti í INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri segir að ákvörðun um að selja húsið við Laufásveg 43, sem hefur verið nánast óbreytt frá fyrri helmingi aldarinnar og Reykjavíkurborg keypti fyrir nokki’um árum, hafi meðal ann- ars byggst á fjárhagslegum forsend- um og forgangsröðun í húsavemdun á vegum Reykjavíkurborgar. Ingibjörg segir að ljóst hafi verið orðið að kostnaður við að endur- byggja húsið og starfrækja þar safn hefði reynst of mikill. Því hafi í apríl síðast liðnum verið tekin ákvörðun um að fara aðrar leiðir í þessu sam- bandi. Hins vegar hafi um tveggja ára skeið gætt efasemda um upp- runalegu hugmyndirnar varðandi varðveislu hússins, og hafi erfingj- arnir sem seldu það vitað allan þann sjónum vegna mikils fitumagns. Búrhvalshræið verður líklega látið rotna í sandinum. tíma að tvær grímui’ væru runnar á Reykj avíkurborg. Geta fengið innbúið aftur „Borgin gekk inn í tilboð í húsið, sem var upp á 8 milljónir króna, og keypti það því á markaðsvii’ði á sín- um tíma. Samningurinn var alveg skýr að þessu leyti, en eigendurnir gáfu hins vegar innbúið, með það í huga að hægt væri að varðveita og sýna heimili sem staðið hefur svo til óbreytt síðan snemma á öldinni. Ef erfingjarnir eru ósáttir við ráðstöfun innbúsins, myndi sjálfsagt ekki standa á borgaryfirvöldum að skila innbúinu til baka, ef það er vilji þeirra. Hugmynd þeirra og borgar- yfirvalda á sínum tíma var að sýna innbúið í þessu húsi, en þegar menn fóru að skoða húsið og kostnaðinn við að gera það upp, auk kostnaðar við að starfrækja safn á þessum stað, var horfið frá því ráði. Eftir stendur að búið er að skrá allt innbúið og mynda alla uppsetn- ingu á heimilinu, þannig að hægt er hvenær sem er að setja heimilið upp eins og það var, annað hvort í Ár- bæjarsafni eða annars staðar. Við teljum okkur geta sýnt innbúinu full- an sóma með þeim hætti, en við treystum okkur ekki til að endur- byggja húsið vegna kostnaðarþáttar- ins,“ segir hún. Ingibjörg Sólrún segir að kostnað- aráætlun við endurbyggingu hússins hafi hljóðað upp á 13 til 14 milljónir króna. Þá hafi komið fram tillögur í menningarmálanefnd á þá leið, að til að húsið nýttist að fullu yrði komið þar fyrii’ aðstöðu fyrir Samband ís- lenskra myndlistarmanna í kjallara og risi hússins og viðbyggingu sem reist yrði í garðinum. Kostnaðai’á- ætlun fyrir þá viðbyggingu og inn- réttingu í risi og kjallara hefði hljóð- að upp á 23 milljónir króna. „Heildarkostnaður við þessar hugmyndir var því kominn upp í 36 til 37 milljónir króna. Þetta voru svo miklir fjármunfr að við töldum hag- kvæmast að fara aðrar leiðir," segir borgarstjóri. Borgin samþykkti í kjölfarið að kaupa Hafnarstræti 16, þar sem Hótel Alexandría var á árum áður, gera það hús upp og koma fyrii’ að- stöðu fyrir myndlistarmenn. Ingi- björg Sólrún segir að ákveðið hafi verið að nýta söluandvirði hússins á Laufásvegi og vinnustofu sem borgin átti við Engjateig til kaupanna og framkvæmdanna í Hafnarstræti. „Borgin á gömul hús í miðbæ Reykjavíkur sem ekki er vanþörf á að fai’a í endurbætur á og við litum svo á að hlutverk borgai-innar væri stærra þar en á Laufásvegi, þar sem líklegra væri að einstaklingar væru tilbúnir til að gera húsið upp,“ segir hún. Þrjátíu tonna búrhvalur dreginn á land við Dyrhólaey Netadræsa fannst inni í skepnunni Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Birgir Stefánsson starfsmaður Hafrannsóknastofnunar skoðaði búrhvalinn í gær og tók sýni úr dýrinu. ítntnn Aðeins 5 sæti laus! 4. - 27. nóvember Tæland er einstaklega litríkt land meö heillandi menningu sem lætur engan ósnortinn. Láttu drauminn veröa að V, veruleika og uppliföu töfra Austurlanda. Samvinnuferðir Landsýn Á verði fyrir þ igl Talsverðar uppsagnir hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur Eðlileg þróun að sögn star fsmannastj óra UM SJÖ manns hafa sagt upp störf- um hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur seinustu mánuði, seinast yfirmaður fjármálasviðs fyrir seinustu helgi en hann hættir um næstu áramót. Ing- unn Gísladóttir, deildarstjóri starfs- mannadeiidar, segir þessar uppsagn- ir eiga sér eðlilegar skýringar. Ríf- lega 50 manns starfa hjá stofnuninni. Óánægja með launakjör „Það hafa margir sagt upp en þess ber að geta að á þeim þremur árum sem liðin eru síðan Fræðslumiðstöð- in tók til starfa, hafa orðið mjög litl- ar launabreytingar. Laun hjá ríki og sveitarfélögum eru yfirleitt ekki eins góð og annars staðar og ég held að þetta fólk sé í nokkrum tilvikum að sækjast eftir hærri launum annars staðar, aðallega þá starfsmenn í launadeild sem sögðu upp vegna mikillar vinnu og lágra launa. En í sumum tilvikum er fólk að taka við stöðum annars staðar sem það hefur meiri áhuga á en eru ekki endilega betur launuð, og í öðrum tilvikum er einnig um eðlilega þróun að ræða,“ segir hún. Hún vísar því á bug að ástæða uppsagna sé óánægja innan stofnun- arinnar af öðrum ástæðum. Á meðal þeirra sem sagt hafa upp á þessu ári er umsjónarmaður sér- kennslu hjá Fræðslumiðstöðinni, deildarstjóri í fjármáladeild, yfir- maður sálfræðideildar og starfs- menn hjá launadeild. Ingunn segir að byrjað sé að leita að fólki í stað þeirra sem sagt hafa upp störfum og sé m.a. um þessar mundir verið að skoða umsóknir um stöður deildarstjóra í fjárhags- og launadeild og yfirmanns sálfræði- deildar. Einnig sé verið að leita að fólki á launadeild. Staða yfirmanns fjármálasviðs verði auglýst fljótlega til umsóknar, væntanlega eftir mán- aðamót. „Ég er bjartsýn á að það takist að finna fólk í þessar stöður," segir hún.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.