Morgunblaðið - 28.09.1999, Page 41

Morgunblaðið - 28.09.1999, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ _________UMRÆÐAN________ Stóriðja við Eyjafjörð FYRIR eitt hundr- að og tveimur árum var stofnsett stóriðja við Eyjafjörð. Þá var stofnað fyrirtæki á Gleráreyrum á Akur- eyri, sem hét Tóvélar Eyfirðinga, til að vinna söluvöru úr ull af íslensku sauðkind- inni. Samband ís- lenskra samvinnufé- laga tók síðar við verksmiðjunni og var hún nefnd Gefjun. Iðnaðurinn óx og dafnaði og brátt risu fleiri verksmiðjur á eyrunum við Glerá. Stofnuð var Skinnaverksmiðjan Ið- unn, þar sem sútaðar voru gærur, saumaðir pelsar og gerðir skór. Síðar reis fataverksmiðjan Hekla, en þar var framleiddur alls kyns klæðnaður. Það mun hafa verið árið 1984, sem starfsemi Sambandsins náði hámarki á Akureyri og voru þá um 1.000 starfsmenn við rekstur verksmiðjanna. Akureyringar voru þá 13.711 og 7,3 % þeirra voru starfsmenn iðnaðai’deildar SIS. Þessi iðnaður skapaði sterkan byggðakjaima sem enn er við lýði. I sogkrafti SÍS-verksmiðjanna skap- aðist og þróaðist annar iðnaður og aðrar atvinnugreinar, sem lifa enn, og í því sambandi kemur mér Ut- gerðarfélag Akureyringa fyrst í hug. Um þessar mundir eru Akureyr- ingar um 15.000. Stóriðja sem hefði 500 starfsmenn á launaskrá er ekki eins risavaxin og mönnum virðist í fyrstu, en áhrifin á atvinnulífið verða mikil. Starfsmannafjöldi slíkrar verksmiðju yrði þó ekki nema 3,3 % af öllum íbúum Ak- ureyrar. Arið 1984 var raf- orkunotkunin á Akur- eyri um 110 GWh, en á árinu 1999 virðist hún ætla að verða um 127 GWh. Þessar tölur eru ekki í góðu samræmi við íbúafjöldann, en það er reyndar ekki eingöngu vegna stór- iðjunnar á Gleráreyr- um, sem ekki er leng- ur til, heldur að hluta til vegna þess að upp- hitun húsa hefur færst að mestu frá raforku til jarðvarma. Ný stóriðja við Eyjafjörð mundi á sama hátt draga með sé annan iðn- Stóriðja Það vantar stóriðju á svæðið, segir Svanbjörn Sigurðsson, til dæmis sinkverksmiðju. að og aðrar atvinnugreinar, sem til dæmis, byggðist á þekkingariðnaði, með Háskólann á Akureyri í broddi fylkingar, eins og fram kemur í svargrein eftir Jörund Valtýsson við „Stóriðja og menning við Eyja- fjöré“ í Vikudegi 15. júlí sl. Með þekkingariðnaði á Jörundur við rannsóknir, tölvuvísindi, hugbún- aðariðnað, erfðatækni, fjármála- þekkingu og fleira. Vissulega er þekkingariðnaðui- áhugaverður, en fyrst þarf að hressa upp á atvinnu- lífið með aukinni framleiðni. Það vantar stóriðju á svæðið, tO dæmis sinkverksmiðju. Byggðin við Eyjafjörð mundi styrkjast og vaxa, atvinnusvæðið stækka og hagkvæmni aukast. Eina landssvæðið sem hefur mögu- leika á að mynda byggðakjama, sem væri mótvægi við höfuðborg- arsvæðið og draga mundi úr fólks- flótta þangað, er Eyjafjarðarsvæð- ið. Meðaltalstölur yfir rafafl sem flutt var frá Blönduvirkjun í ágúst- mánuði sl. fóru 97,2 % til vesturs og mest af því áfram til suðvestur- homsins, en 2,8 % til austurs. Með- alframleiðsla afls var tæplega 100 MW. Virkjunin getur framleitt 150 MW. Raforkan er flutt til Suðvest- urlands, því á Norðurlandi er ekki þörf fyrir hana eins og málin standa. I Kröflu er hliðstæða sögu að segja, þar fóru 90,1 % austurum áleiðis til Suðvesturlandsins, en 9,9% urðu eftir á Norðausturlandi. Meðalframleiðsla afls í Kröflu var í ágúst tæplega 55 MW. MikO töp verða við þennan flutning á afli, sem mundi bætast við það afl sem tiltækt er milli Blönduvirkjunar og Kröflu, ef stór notandi yrði tO á því svæði. Odýrasta raforkan fyrfr stóriðju er á Akureyri. Höfundur er rafveitustjóri á Akureyri. www.mbl.is Svanbjörn Signrðsson Nuggets kjúklingabitarnir frá Ferskum kjúklingum bókstaflega bráðna í munninum enda eru þeir himneskir á bragðið og sérlega safaríkir. Börnin elska bitana og biðja um þá aftur og aftur. Nuggets bitarnir eru forsteiktir þannig að það þarf einungis að hita þá upp í ofni, örbylgjuofni eða á pönnu. NOATUN 0 0? FJARÐARKAUP I# ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 41 Láttu þag berastl Úrval vandaðra faxtækja fyrir vinnustaði og heirnili I PHILIPS Faxtaeki________ með innbyggðum síma BleksprautufaxtækL sími, prentari, skanni og Ijósritunarvéi ^ 1200*1200 dpi prentun 8 bls. mín/sh 3 bls. mín/lit Litaskanni 300*300 dpi 20 nr. beinvalsminni 50 nr. skammvalsminni Verð 49.900 kr. stgr. Laserfaxtæki 30 bls. arkamatari 250 bls. A4 móttökupappír 20 nr. beinvalsminni 80 nr. skammvalsminni 1 MB minni Sérstakt tilboðsverð 64.900 kr. stgr. <8> Heimilistæki SÆTÚNI 8 SlMI 569 1500 i umboðsmenn um land allt Bleksprautufaxtaeki með innbyggðum síma Sjálfvirkur faxdeilir 30 m pappírsrtilla 50 númera skammvalsminni Verð 16.900 kr. stgr. 100 bls. A4 móttökupappír 5 nr. beinvalsminni 50 nr. skammvalsminni Verð 29.900 kr. stgr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.