Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 64
fp4 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÁSKÓLABÍÓ HASKOLABIO ÝFÍR531Ö00 GESTIR Hagatorgi, sími 530 1919 SILFURBJÖRNINN SEM BESTA KVIKMYNDIN ,,BESTA DOGMA MYNDIN“ VARIETY, BÉHLIN UNGFl'IN GÓÐA UGHUS1Ð fvftU l YGARAn - SUMin MEinA EN ADRin MIFUNES SIDSTE SANG Leikstjóri Guöný Halldórsdóttir Álfabakhn 8, sími 587 8900 ocj 587 8905 FERDU i BÍÓ mmmMi -vwbsbIm ■M/gj.aB aaínKlii mmi ■léMui CRUISC Kl DMAN IC EYES WSDE SHUT ★★★ DV ★★★ IVIBL Sjón er sögu ríkari Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. b.í. 16. SIHDIGITAL Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 10. 3HDIGITAL www.samfilm.is ÚRSLIT TÍSKU- OG HÖNNUNARVERKEFNANNA FUTURICE OG T-21 Mikið af hæfíleikafólki Reykjavík á kort tísku- heimsins Morgunblaðið/Jim Smart Þórunn Sigurðardóttir og Ingibjörg Sólrún Hrafnhildur og Bára Hólmgeirsdætur frá Aftur Gísladóttir ræða málin en borgarstjóri héit ræðu. hanna línu fyrir eigin sýningu fyrir Futurice. umboðsskrifstofan Eskimo Models en verkefnið verður unnið í sam- starfi við hinar noirænu menningar- borgirnar tvær, Björgvin og Helsinki. Tískuveisla verður í Reykjavík 11.-13. ágúst 2000 þar sem bæði íslenskir og erlendir tísku- hönnuðir munu sýna hönnun sína. Auk tískunnar mun tónlist verða í veglegu hlutverki og munu íslend- ingarnir Björk Guðmundsdóttir, hljómsveitin Gus Gus og söngkonan Móa taka þátt í tískuveislunni. Til- gangur Futurice er að koma íslandi á kort tískuheimsins og koma á framfæri þeirri hugmyndaauðgi og sköpun sem býr í íslenskum hönnuð- um. I byrjun ágúst var íslenskum hönnuðum boðið að senda inn tillög- ur til verkefnisstjórnar og bárust 64 tillögur sem valnefnd valdi úr, en hún var skipuð þeim Jeremy Scott tískuhönnuði, Guðrúnu Gunnarsdótt- ur textílhönnuði og myndlistarmanni og Hugrúnu Ragnarsdóttur ljós- myndara. Kom það fram að val- nefndin hefði átt úr vöndu að ráða enda hefðu margar góðar tillögur borist í keppnina. Þeir hönnuðir sem valdir voru til þátttöku í T-21 eru Asta Guðmunds- dóttir fyrir hugmynd að þema tengdu íslenskri veðráttu, Birna Karen Einarsdóttir fyrir djörfung í efnisvali og litum auk kímni og létt- leika, Hallgerður Hallgrímsdóttir fyi’ir ferskleika og nýja sýn, Helga Olafsdóttir fyrir frumlega form- fræði, Hildur Hafstein fyrir frábæra efnisnotkun, Hrönn Traustadóttir fyrir svífandi léttleika og Rebekka Rán Samper fyrir hita og sól. Úrslit Futurice Úrslit Futurice skiptust í tvennt. Alls voru valdar ellefu tillögur sem fjórtán hönnuðir stóðu að og voru sex tillögur átta hönnuða valdar til að standa saman að einni sýningu á tískudögum 11.-13. ágúst 2000. í þeim hópi eru hönnuðirnir Bergþóra Magnúsdóttir, Brynja Emilsdóttir, Hugrún Dögg Arnadóttir, María Ólafsdóttir, Ragnheiður Guðmunds- dóttir og Þorbjörg Valdimarsdóttir og loks Vala Torfadóttir og Björg Ingadóttir frá Spaksmannsspjörum. Fengu þessir hönnuðir þau einkunn- arorð að sýna einstaka efnisnotkun, hafa spennandi framtíðarsýn og geislandi hugmyndaflug. í öðru lagi voru valdar 5 tillögur og 6 hönnuðir til að standa að sjálf- stæðum sýningum á eigin hönnun. Sigurvegarar í þeim hópi eru Linda B. Árnadóttir frá Crylab sem var valin fyrir hugmynd að þrívíddar naumhyggju fyrir konur framtíðar- innar. Hrafnhildur og Bára Hólm- geirsdætur frá Aftur voru valdar fyrir frábæra hugmynd að endur- vinnslu á fötum. Ragna Fróðadóttir fyrir einstakan spuna í efnisgerð og tímalausar flíkur. Sæunn Þórðar- dóttir var valin fyi’ir frumlega nú- tímahönnun og Þuríður Rós Sigur- þórsdóttir sem þótti hafa afar sér- stæða sýn á hönnun. Var það mál manna að þetta tiltæki væri kærkomið tækifæri fyrir ís- lenska hönnuði að sýna sig og sanna og að nú væri íslensk tískuhönnun loks búin að slíta barnsskónum. MARÍA ÓLAFSDÓTTIR TÍSKUHÖNNUÐUR Tímamót fyrir íslenska hönnun Fyrirsætur Futurice genguum og buðu upp á veitingar að japönskum hætti. Á LAUGARDAGINN voru úrslit úr tísku- og hönnunarverkefnunum Futurice og T-21 tilkynnt á veitinga- húsinu Rex og var það borgarstjóri Reykjavíkur, Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, sem tilkynnti úrslitin í Fut- urice en Þórunn Sigurðardóttir leik- kona tilkynnti úrslitin í T-21, sam- starfsverkefni Reykjavíkur Menn- ingarborgar og Eskimo Models, en T-21 vísar tíl tímamóta og tísku á nýju árþúsundi. Sjö tillögur og sjö hönnuðir voru valdir til þátttöku í samkeppni sem fram fer í Perlunni á gamlárskvöld 1999. Gestir velja þá hönnun sem þykir skara fram úr og fær sigurvegari kvöldsins í verð- laun ferð fyrir tvo sem áhorfandi á tískuviku í London. Tískuveisla í Reykjavík Futurice er eitt viðamesta verkefnið á dagskrá Reykja- víkur Menningarborgar Evrópu árið 2000 og er verkefni þar sem heimar tísku, hönnunar og marg- miðlunar mætast. Frum- kvæðið að verkefninu átti JEREMY SCOTT TÍSKUHÖNNUÐUR í PARÍS L E T T A DANSSVEIFLU ÁDÖGUM! Um hel2ina ____ stu námskeið 557 7700 hringdu núna Áhugahópur um almenna dansþátttöku á íslandi Netfang: KomidOgDansid@tolvuskoli.is Heimasíða: www.tolvuskoli.is/KomidOgDansid/ MARÍA Ólafsdóttir er einn þeirra hönnuða sem valdir voru til þátttöku í Futurice og tekur þátt í samsýningu sex hönnuða. María sagðist hafa sent inn tilbúna línu þar sem hún hefði stuðst við hugtökin sjálfsöryggi, hamingju, lífsgæði og fram- tíðarsýn. „Þetta er afskap- lega þægilegur fatnaður sem ég tel að fólk muni nota í fram- tíðinni þar sem tími og hraði munu lita mjög mannlífið. Fólk þarf að tengja sig einhvers staðar einhverj- um raunveruleika á jörðinni og ég held að þessi fatnaður gæti verið sú tenging." María lærði tískuhönnun í New York og kom heim fyrir níu árum. Lengst af hefur hún hannað búninga fyrir leikhúsin. „Ég hef einnig hann- að talsvert einkennisfatnað fyrir stærri fyiirtæki." - Hvað heldur þú að Fut- urice þýði fyrir íslenska hönnun? „Þetta markar algjör tímamót fyrir hönnun á Is- landi. Þegar ég kom heim úr námi voru fáir möguleikar fyrir unga hönnuði og ótrú- legt hversu mikið hefur breyst á stuttum tíma. Þróunin hef- ur verið frábær og ég fann það fyrir 2-3 árum að ég var tilbúin tii að taka þátt í svona verkefni hérna heima. En mér fannst áður að oft væri sett samasemmerki á milli tískuhönnuða og saumakvenna. Þótt hönnun og saumaskapur geti ekki án hvors annars verið er samt um tvo ólíka hluti að ræða. Og ég er hönnuður en ekki saumakona.“ JEREMY Scott sat í dóm- nefndinni sem valdi sigur- vegara Futurice og T-21. „Það er ótrúlega mikið af hæfíleikaríku fólki hérna í tískuhönnun sem kom mér skemmtilega á óvart. Ég tel að þetta framtak muni hafa mikil áhrif á að koma þess- ari hugmyndaauðgi á fram- færi,“ segir Jeremy og bætir við að athyglisvert sé að margir ungu hönnuðanna séu í miklum tengslum við þá tísku- strauma sem hæst ber úti í heimi á sama tíma og mjög sterk einstak- lingseinkenni hvers hönnuðar séu áberandi. Jeremy hefur starfað í tísku- heiminum í París um árabil en hann er frá Kansas City í Mis- sourifylki í Bandaríkjun- um. „Ég ólst upp á bónda- bæ í MissoUri en þegar ég vissi að ég vildi leggja tískuhönnun fyrir mig kom engin borg til greina önnur en París. París er mekka tískuheimsins í sögulegum skilningi og heldur þeim stalli enn í dag. Þar snýst allt um sköpunargáfuna og drauminn, fantasíuna. I Banda- rílgunum hefur tískan verið að sækja í sig veðrið, en þar er meira spáð í markaðinn og söluhæfni hönnunarinnar. I London er tískan meira tilraunakennd og meiri glamúr en í New York. En ég er maður draumsins," segir Jeremy að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.