Morgunblaðið - 28.09.1999, Qupperneq 50

Morgunblaðið - 28.09.1999, Qupperneq 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, INGIBJÖRG PÁLSDÓTTIR HJALTALÍN, fyrrum húsfreyja í Brokey á Breiðafírði, lést í Stykkishólmi laugardaginn 25. septem- ber sl. Vigfús J. Hjaltalín, Sigrún Þorsteinsdóttir, Páll J. Hjaltalín, Ásta Jónsdóttir, Bergur J. Hjaltalín, Ásdís Herrý Ásmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sambýliskona, móðir, dóttir, systir og barnabarn, GUÐRÍÐUR ERNA GUÐMUNDSDÓTTIR, lést á sjúkrahúsinu í Tonsberg 24. þ.m. Jarðarförin verður tilkynnt síðar. Helge Rise, íris Hödd, Lena Mist, Guðmundur Sigurgeírsson, Ágústa Traustadóttir, Trausti Guðmundsson, Sigurgeir Guðmundsson, Sigurgeir Ingvarsson. + Ástkær systir okkar, INGIBJÖRG SIGURJÓNSDÓTTIR, (BÍBlj, lést sunnudaginn 26. september. Jarðarförin auglýst síðar. Systkinin. Móðursystir mín, ÁSTA THORSTENSEN frá Þingvöllum, til heimilis á Hrafnistu, Reykjavík, er látin. Fyrir hönd aðstandenda, Helgi Bergs. + Systir mín, ÓLÖF BRIEM frá Melstað í Húnavatnssýslu, lést í Kaupmannahöfn föstudaginn 24. september. Kamilla Briem. + Hjartanlegar þakkir fyrir samúð og hinn góða hug við andlát og útför okkar ástkæru móður, ömmu og langömmu, HULDU A. SVEINBJÖRNSDÓTTUR, Sogavegi 105, Reykjavík. Kolbrún S. Einarsdóttir, Vignir Þór Einarsson, Sveinbjörg L. Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn Lokað Lokað í dag vegna jarðarfarar INGVARS J. HELGASONAR, forstjóra. Ingvar Helgason hf. Lokað Lokað í dag vegna jarðarfarar INGVARS J. HELGASONAR, forstjóra. Bílheimar ehf. + Ingibjörg Ein- arsdóttir fædd- ist í Reykjavík 27. maí 1934. Hún lést í Landspítalanum 16. september síðastlið- inn og fór útför hennar fram í kyrr- þey að ósk hinnar látnu. Þau mistök urðu í sunnudagsblaði Morgunblaðsins að tvær greinar um Ingibjörgu birtust undir einu nafni. Við birtum grein- arnar aftur og biðjum hlutað- eigendur velvirðingar á þessum mistökum. Kæra mágkona og vinkona. Eg þakka þér áratuga vináttu og tryggð við mig og mína. Ég þakka þér hvað þú tókst mér opnum örm- um þegar ég gerðist meðlimur í stórfjölskyldu þinni. Þá hófst vin- átta sem aldrei féll skuggi á. Ég þakka all- ar þær ferðir sem við fórum saman. Ferðir í Litlu-Skóga, þegar börnin okkar voru yngri, ferðir út fyrir landsteinana, þú að leita að rnunkum í safnið þitt og bæjar- ferðir okkar, sem farn- ar voru oft á ári. Þú varst góður ferðafé- lagi, eiginlega sá besti, alltaf til í að bralla. Þessa alls og margs annars á ég eftir að minnast með gleði og þökk. Ég og börnin mín sendum Birgi, Svövu, Guðrúnu, Einari og fjöl- skyldum þeirra samúðarkveðjur. Guðrún. Mig langar til að kveðja hana Ingibjörgu, mágkonu mína, eða Ingu frænku eins og hún var kölluð af frændfólkinu, en Inga systir af bræðrum sínum. Við vorum búnar að þekkjast í yfir fimmtíu ár, svo margs er að minnast. Inga var gæfukona í lífinu, giftist honum Birgi og þau eignuðust þrjú börn, Svövu, Guðrúnu og Einar Björgvin. Barnabörnin eru orðin sex og er Inga Lára þeirra elst, orðin seytján ára og var sérstaklega gott sam- band á millí hennar og Ingu ömmu. Inga var góð móðir og eiginkona, sem ræktaði sinn garð vel. Fyrir nokkrum árum komu þau Inga og Birgir sér upp fallegum sumarbú- stað, sem varð þeirra unaðsreitur og var alltaf gaman að koma þangað í heimsókn. I fyi'rahaust fórum við nokkrar mágkonur með Ingu til Þýskalands. Þetta var vikuferð og mikið skemmtum við okkur vel, vor- um jafnvel farnar að gæla við þá hugmynd að fara aftur saman í ferðalag. Við mennirnir ráðgerum en Guð ræður. Elsku Inga, hafðu þökk fyrir samfylgdina. Kæri Birgir, Svava, Guðrún, Einar Björgvin, tengda- börn og bamabörn, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og megi Guð styrkja ykkur. Þín mágkona Edda. INGIBJORG EINARSDÓTTIR RAGNAR ÞORSTEINSSON + Ragnar Þor- steinsson fædd- ist í Ljárskógaseli 28. febrúar 1914. Hann lést í Reykja- vík 17. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 24. september. Þegar við sem stóð- um fyrir fyrstu borg- aralegu fermingunni 1989 ákváðum ásamt fleirum að stofna Sið- mennt, félag um borg- aralegar athafnir, félag siðrænna húmanista, gekk Ragnar Þorsteins- son þegar í stað í lið með okkur. Þar störfuðum við Ragnar saman í hópi um borgaralegar útfarir sem eru erfitt viðfangsefni. Ragnar var end- urskoðandi félagsreikninga lengst af en baðst undan endurkjöri fyrir tveimur árum af því að hann fyndi að skammtímaminnið væri eitthvað farið að gefa sig. Ragnar hafði sterkt sjálfinnsæi, vissi hvar hann stóð og stundaði ekki blekk- ingar. Sl. sumar þurfti ég að dvelja viku á sjúkra- húsi til að jafna mig eftir uppskurð. Tveir voru á herbergi og fyr- ir tilviljun var Ragnar Þorsteinsson herberg- isfélagi minn. Hann sagði mér beint út að hann væri að deyja úr krabbameini en læknar vildu endi- lega halda sér á sjúkrahúsi. Það er eins og þeir haldi að þeir geti eitt- hvað gert, mælti Ragnar. Hann kveið ekki dauðanum hið minnsta, reiknaði með honum hvað úr hverju, vissi að þetta líf væri allt og ekkert tæki við. Nú væri hann 85 ára, ætti marga afkomendur og líf- + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, INGVAR J. HELGASON forstjóri, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag, þriðjudaginn 28. september, kl. 13.30. Sigríður Guðmundsdóttir, Helgi Ingvarsson, Sigríður Gylfadóttir, Guðmundur Ágúst Ingvarsson, Guðríður Stefánsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Júlía Guðrún Ingvarsdóttir, Áslaug Helga Ingvarsdóttir, Guðrún Ingvarsdóttir, Elísabet Ingvarsdóttir, Ingvar Ingvarsson, Svanhildur Blöndal, Markús Möller, Jóhann Guðjónsson, Gunnar Hauksson, Helga Hrönn Þorleifsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Sólveig Björg Aðalsteinsdóttir, Ólafía Aðalsteinsdóttir, Örvar Aðalsteinsson, Ævar Aðalsteinsson. dagamir væru eðlilega að taka enda. Við ræddum ekki mikið saman en þá helst sem siðrænir húmanistar. Þetta líf er allt sem við höfum og við þurfum því að hlúa að því og lífi samborgara okkar. Einföld lífsspeki sem við vorum sammála um og þurftum ekki að ræða frekar. Ragnar var húmanisti í marg- breytilegri merkingu þess orðs: „Lífsgátan" snerist um manninn og umhverfi hans og ekkert yfírnátt- úrulegt. Ragnai- hafði víðtæka þekkingu á mörgum sviðum mann- legrar þekkingar. Og hann var mannvinur. Utför Ragnars fór fram sl. föstu- dag og var gerð í samræmi við óskir hans og lífsskoðanir. Hún var að- standendum hans til sóma. Þeim votta ég samúð mína því að missir þeirra er mikill. Gísli Gunnarsson. Ragnar var elsti félagsmaður Sið- menntar, félags áhugamanna um borgaralegar athafnir, og dyggur stuðningsmaður þess þann áratug sem félagið hefur starfað. í okkar hóp var hann hinn virðulegi, æðru- lausi höfðingi sem með skynsemi og yfirvegun lagði góðum málstað lið. Osjaldan sagði Ragnar okkur hve það gleddi sitt „trúlausa hjarta“ að sjá öll þessi efnilegu ungmenni ferm- ast borgaralega ár hvert. A opinber- um vettvangi skrifaði hann m.a. all- margar greinar um mikilvægi trú- frelsis og skoðanaírelsis almennt. Ragnar var farsæll maður. Megi hinn góði vilji hans lifa áfram með hinum mörgu afkomendum hans og samferðamönnum. Fyrir hönd stjórnar Siðmenntai', Hope Knútsson. Skilafrestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur vb'kum dögum fyrir birtingai-dag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.