Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FBA-hluturinn TGrtÚtiD Látum okkur nú sjá af hvorri ættinni þið eru herrar mínir, Smokkfísks eða Kolkrabba. Birgir Sumarliðason landar laxi á Iðu um síðustu helgi. Þokkalegi á Iðu VEIÐI er nú að ljúka á Iðusvæðinu í Hvítá í Amessýslu. Utlit er fyrir að heildarveiðin verði nálægt 260-270 löxum. Það þykir ekki mik- ið á Iðu, en er eflaust góð útkoma með hliðsjón af því hve stórt strik hlaupið í Hagafellsjökli setti á veiði- skap á þessu vatnasvæði í heild. Fiskur skilaði sér afar seint upp á Iðu og þó að talsvert sé af físki á svæðinu hafa kunnugir oft séð það mun líflegra. Algengt hefur verið að þrjár stangir hafí verið að fá 4 til 8 laxa á dag í september, veðurfar hefur verið tiltölulega hagstætt, en skjótt skipast veður í lofti, hópur einn var fyrir skömmu á svæðinu, fékk 6 laxa og missti nokkra fyrri daginn í rjómablíðu, en lenti síðan í ördeyðu er næsti dagur rann upp með 2 stiga hita og stífri norðaust- anátt beint í fangið. Við slíkar kiingumstæður leggst laxinn djúpt í jökulvatnið og tekur ekki. Eins og venjulega hafa nokkrir af stærstu löxum surnarsins veiðst á Iðu, m.a. 26 punda lax sem er næst- stærsti lax sumarsins. Sá veiddist á Collie Dog túpu. Þá hefur veiðst a.m.k. einn rúmlega 24 punda á maðk og þónokkrir 19 til 21 punda. Meðalþunginn er einnig mjög góður og athygli vekur, er blaðað er í veiðibók, að margir „smálaxar“ eru 6 til 8 punda hængar. Maðkur og stórar túpur hafa gef- ið flesta laxa, tiltölulega lítið er veitt á spón þótt svæðið bjóði upp á það. Segja kunnugir að það stafi af því að æ fleiri fluguveiðimenn hafí kynnst svæðinu og átt þess kost að veiða þar. 25mm og 50mm með og án borða Margir litir Tré- rimlaglu Frábært verö Námstefna fagfólks í fjölskyldumeðferð Sáttameðferð í forsjár- og um- gengnismálum HINN 29. septem- ber nk. hefst tveggja og hálfs dags námstefna um sátta- meðferð um forsjá og um- gengni fyrir foreldra sem slitið hafa samvistum eða eru að því. Námstefnan verður haldin í Norræna húsinu og fyrirlesarar eru tveir. Ingibjörg Bjarnar- dóttir lögmaður hefur haft umsjón með námstefn- unni fyrir hönd Félags fagfólks um fjölskyldu- meðferð. „Námstefna þessi er haldin með það að mark- miði að kynna fagfólki sem er með fjölskylduráð- gjöf fyrir fólk sem stend- ur í forsjár- eða umgengn- isdeilum og starfsmönn- um dómstóla og sýslumannsemb- ætta, sem úrskurða í slíkum ágreiningsmálum, hvemig fagfólk getur hjálpað fólki í þessari stöðu til að ná samkomulagi um hags- muni og þarfir barna sinna sem báðir foreldrarnir geta unað við í framtíðinni. Þessi sáttameðferð byggist á því að ekki er horft til baka til þess sem útaf hefur brugðið heldur er útgangspunkt- urinn nútíðin og framtíðin. Og hvernig foreldramir hyggjast axla foreldrahlutverkið gagnvart bömum sínum, þrátt fyrir að þeir hafi slitið samvistum." - Hverjir halda fyrirlestrana á þessari námstefnu? „Fyrirlesarai- eru hjónin Wen- ke Gulbrandsen sálfræðingur og Odd Ame Tjersland frá Noregi, en Odd stóð fyrir stórri og um- fangsmikilli rannsókn í Noregi um hvernig hægt væri að hjálpa for- eldrum sem stæðu í forsjár- og/eða umgengnisdeilum með samtalsmeðferð sem væri byggð á ákveðinni tækni til að fá foreldra til að einbeita sér að hagsmunum og þörfum barnanna í framtíðinni. Þessi hjón eru þekktir fyrirlesar- ar á Norðurlöndum og halda nám- skeið fyrir fagfólk í Noregi sem miðar að því að veita því löggild- ingu sem sáttasemjari (meglai-i) í forsjár- og skilnaðarmálum. Þess má geta að í Noregi er lögbundið að fólk sem er að skilja og á börn undir iögaldri fari í fjögur viðtöl til sáttasemjara til þess að ræða um hvernig það ætlar að takast á við foreldrahlutverkið í framtíð- inni gagnvart börnum sínum og það fær ekki sáttavottorð fyrr en að loknu skriflegu samkomulagi um þetta. Ég tel að við íslending- ar getum mikið lært af Norð- mönnum hvað þetta varðar.“ - Hvernig standa þessi mál hérna? „Hér á landi er ekki boðið upp á neina slíka meðferð af fagaðilum sem hafa sérþekkingu á meðferð- arþættinum af hálfu þess opin- bera. í barnalögum er gert ráð fyrir að dómari leiti sátta þegar ágrein- ingsmál um forsjá bama er risið eða sýslumenn þegai- ágreiningsmál er kom- ið til úrlausnar hjá við- komandi embætti, en slík sátta- meðferð byggist á allt annarri að- ferðafræði. Fólk fær hér, með þeirri sáttameðferð sem okkar lög byggjast á, á engan hátt sambæri- lega aðstoð og í Noregi til að finna viðunandi lausn á ágreiningsefni sínu varðandi böm sín. I hjúskap- arlögum er kveðið á um að hjón Ingibjörg Bjarnardóttir ►Ingibjörg Bjarnardóttir fæddist 15. mars 1943 í Reykja- vík. Hún lauk stúdentsprófi frá Lundi í Svíþjóð árið 1979 og embættisprófi í lögum frá Há- skóla íslands árið 1987. Hún hóf störf á lögmannsstofu eftir embættisprófið og rekur nú eigin stofu, Lögsátt ehf., í Reykjavík. Hún hefur tekið þátt í kvennaráðgjöf frá upp- hafi þeirrar starfsemi og enn- fremur hefur hún verið í ráð- gjöf hjá Félagi einstæðra for- eldra. Ingibjörg er gift Geir Ólafssyni lækni og eiga þau tvö börn. Fólk geti skilið sem makar en ekki sem foreldrar! sem vilja skilja þurfi að leita sátta ef þau eiga ósjálfráða bam eða böm en sú sáttameðferð er í höndum presta. Sú sáttameðferð miðar í raun fremur að því að leita sátta með aðilunum þannig að þeir haldi hjónabandinu áfram, hætti við að skilja, en ekki að því að foreldrarnir haldi áfram í sín- um foreldrahlutverkum í framtíð- inni og hvernig þau ætli að takast á við það að bömin haldi foreldr- um sínum. Hugmyndafræðin á bak við þessa nýju sáttameðferð sem kynnt er á námstefnunni er að gera fólki grein íýrir að það geti aðeins skilið sem makar en ekki sem foreldrar." - Hvers vegna var ráðist í að fá þessa fyrirlesara hingað núna? „Með hliðsjón af þróun löggjaf- ai’ hér á landi um forsjá barna, sérstaklega sameiginlega forsjá foreldra eftir skilnað eða sambúð- arslit, aukningu forsjármála fyrii’ dómstólum og ekki síst skorts á tækifærum fyrir foreldra í slíkri stöðu að leita faglegrar ráðgjafar þótti námsnefnd FFF mikill feng- ur að því að fá þessa fyrirlesara til landsins. Félag fagfólks í fjöl- skyldumeðferð er þverfaglegt fag- félag þar sem eru félagsráðgjafai’, sálfræðingar, prestar og undirrit- aður lögmaður, sem tekið hafa til viðbótar sinni grunnmenntun nám í fjölskyldumeðferð. Þai- sem þessir aðilar gera sér grein fyrir þörf á fleiri úrræðum heldur en nú bjóðast foreldrum sem eru að skilja þá er það m.a. hlutverk námstefnunnar að stuðla að jákvæðri þróun í sátta- meðferð í slíkum málum og um- ræðum úti í þjóðfélaginu. Sátta- meðferð af fyrrgreindu tagi er vænlegri til að skapa gi-undvöll fyrir samvinnu foreldra um hags- muni bama sinna í framtíðinni fremur en úrskurð eða dómsmeð- ferð.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.