Morgunblaðið - 28.09.1999, Qupperneq 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTBMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
W
MINNINGAR
GUÐJÓN
’ RUNÓLFSSON
+ Guðjón Runólfs-
son, bókbands-
meistari, fæddist í
Reykjavík 9. júlí
1907. Hann lést á
elli- og hjúkrunar-
heimilinu Grund 16.
september síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Runólfur Guð-
jónsson, bókbands-
meistari, f. 7. apríl
1877 á Hjörsey á
Mýrum, d. 29. febr-
úar 1942, og Mar-
grét Guðmunds-
dóttir, f. 4. apríl
1880 í Melshúsum í Reykjavík,
d. 5. júní 1942.
Systkini Guðjóns voru Guð-
mundur, f. 6. júní 1906, d. 28.
ágúst 1966; Sigríður Sólveig, f.
16. maí 1909, d. 21. maí 1967;
Guðný, f. 3. október 1913, d. 2.
janúar 1980. Eftirlifandi eru
systurnar Unnur, f. 19. maí
1918, og Sigurbjörg, f. 4. febrú-
ar 1921.
Hinn 16. maí 1931 kvæntist
Guðjón Kristínu Maríu Gísla-
dóttur, f. á Eskifirði 1. septem-
ber 1909, d. 31. ágúst 1972. For-
eldrar hennar voru Gísli
Kaprasíusson, sjómaður á Eski-
firði, f. í Mágahlíð í Lundar-
reykjadal 22. janúar 1853, d. 30.
ágúst 1915, og Guðný Eiríks-
dóttir, f. í Miðhúsum í Garði 16.
desember 1868, d. 22. desember
1939. Börn Maríu og Guðjóns
eru þrjú. 1) Gísli Hauksteinn,
Hann pabbi er dáinn og farinn
héðan, en hann lifir áfram hjá okk-
ur í minningunni. Nú verður hann
lagður til hinstu hvílu við hliðina á
mömmu sem bíður hans. Við hliðina
á þeim hvílir Guðmundur, bróðir
pabba. Pabbi var einstakt snyrti-
menni, jafnt í klæðaburði sem og í
allri umgengni. Hann vildi hafa allt
í röð og reglu bæði á heimilinu og á
vinnustað. Hann gat verið strang-
ur, umhyggjusamur og blíður, en
alltaf var velferð fjölskyldunnar
honum efst í huga. Við sem böm og
unglingar ólumst upp við góðan
kost og öryggi, mamma heima og
pabbi að vinna. Pabbi vann mikið,
oft á kvöldin og um helgar, þannig
flugumferðarstjóri,
f. 12. júlí 1931,
kvæntur Þuríði
Jónsdóttur, f. 14.
desember 1931 í
Reykjavík. 2) Mar-
grét, húsfrú, f. 19.
ágúst 1932, gift
Herði Ágústssyni,
verkstjóra, f. 22.
ágúst 1932 í Vest-
mannaeyjum. 3)
Runólfur, fram-
kvæmdastjóri, f. 13.
nóvember 1935 í
Reykjavík, eigin-
kona Gréta Inger
Stefánsdóttir, f. 6. febrúar 1937
á Siglufirði. Fyrri eiginkona
Runólfs er Steinþóra Jóhanns-
dóttir, f. 10. mars 1939. Þau
skildu. Barnabörn Maríu og
Guðjóns eru 13 og barnabarna-
börnin 24.
Guðjón hóf nám í bókbandi 1.
febrúar 1926, hjá föður sínum í
bókbandsstofu Landsbókasafns-
ins. Lauk hann námi 1930 og
framhaldsnámi 1931, en síðan
hóf hann störf á bókbandsstofu
Landsbókasafnsins, þar sem
hann starfaði til starfsloka.
Guðjón vann að ýmsum félags-
störfum fyrir bókbindara og um
tíma var hann einnig gjaldkeri
ÍR. Að auki gekk hann til liðs
við oddfellowstúkuna Þórstein,
árið 1943.
Utfor Guðjóns fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin kl. 13.30.
að uppeldið lenti meira á mömmu,
sem var einstök kona og móðir sem
aldrei gleymist. Pabbi hafði mjög
ákveðnar skoðanir á hlutunum og
var hann „alvöru" sjálfstæðismaður
af gamla skólanum. Hans menn
voru Bjami Ben. og Ólafur Thors,
og þrátt fyrir að honum líkaði ekki
breytingamar á sínum flokki á síð-
ari ámm, sagðist hann alltaf kjósa
„rétt“. Okkar blíða og góða móðir
var ekki alltaf sammála pabba, en
þau áttu saman gott hjónaband.
„Ekki skulda og ekki kaupa neitt
nema þú eigir fyrir því,“ sagði
pabbi í gamla daga. Nú em breyttir
tímar og allir kaupa og kaupa og
skuldimar aukast. Þetta skildi
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ÓLAFÍA KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR,
Ránargötu 4,
Grindavík,
lést á Landspítaianum laugardaginn
25. september.
Jarðarförin auglýst sfðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Helgi S. Kristinsson,
Kristfn Vilborg Helgadóttir, Hallgrtmur P. Sigurjónsson,
Þorvaldur Þorvaldsson, Hrefna Benediktsdóttir,
Elín Margrét Helgadóttir, Svavar Jóhannsson.
pabbi ekki. í mörg ár var árviss
viðburður hjá pabba að fara í viku
veiðiferð í Hítarvatn og oftar en
ekki fóram við krakkarnir með. Var
þá ferðast á hestum neðan frá Mýr-
um og mikið veitt af silungi. Pabbi
var ekta veiðimaður og gat setið
tímunum saman, með færið úti og
hætti ekki fyrr en fiskur beit á.
Sælureitur mömmu og pabba
var sumarbústaðurinn þeirra við
Þingvallavatn. Þaðan eigum við,
börnin þeirra, margar góðar minn-
ingar, bátsferðir um vatnið og út í
Sandey, ásamt silungs- og murtu-
veiðum. Stundum höfðum við gam-
an af því að fylgjast með pabba
þegar mamma veiddi meira en
hann.
Pabbi var bókbindari og margar
þær bækur sem fóra um hans
hendur, í skrautbókband og gyll-
ingu, urðu að listaverkum. A jólum,
afmælum og við sérstök tækifæri,
fengum við frá honum sérlega fal-
legar bækur, oft sjaldgæfar útgáf-
ur, sem vert er að skila til afkom-
enda okkar í minningu um meistar-
ann.
Guðjón gekk í Iþróttafélag
Reykjavíkur sem unglingur, stund-
aði þar „Mullers“-æfingar og æfði
fimleika og var sýningarflokki fé-
lagsins. Hann var Valsari fram í
fingurgóma og spilaði knattspyrnu
um árabil með félaginu, ásamt góð-
um félögum sem flestir era horfnir
á braut. Guðjón lifði ekki að sjá Val
falla niður um deild og hefði líklega
ekki trúað því að það gæti gerst.
Oddfellow-reglan var honum
hugstoð og starfaði hann í stúkunni
Þorsteinn, af heOindum og mikdli
sannfæringu, í félagsskap manna
með fagrar hugsjónir.
I hugann koma upp myndir af
pabba og mömmu práðbúnum á
leið á Oddfellow-ball. Mamma í síð-
um kjól með pallíettum og perlum,
og pabbi í kjólfötum stífur eins og
fermingardrengur.
Aldamótakynslóðin, sem nú er
að kveðja, hefur upplifað meiri
breytingar, hér á landi, en nokkur
önnur á einu æviskeiði. Þetta er
kynslóðin sem vann hörðum hönd-
um, oft við framstæð og erfið skil-
yrði. Við sem eftir lifum njótum nú
ávaxtanna af þeirra starfi. Við
minnumst foreldra okkar með ást
og virðingu.
Kærar þakkir.
Gísli Hauksteinn Guðjónsson,
Margrét Guðjónsdóttir,
Runólfur Guðjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku afi. Nú hefur þú fundið
frið og ró í faðmi Guðs. Viðburða-
rík ævi þín hér á jörðu er öll, en
minningin um þig lifir í hjarta okk-
Stofnað 1990
Útfararþjónustan ehf.
Aðstoðum við skrif minningarrgreina
Rúnar Geirmundsson, útfararstjóri
Sími 567 9110
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR FINNBOGADÓTTIR
frá Suðurfossi
í Mýrdal,
lést á dvalarheimilinu Hjallatúni, Vík í Mýrdal,
sunnudaginn 26 september.
Jarðaförin aulýst síðar.
Magnea K. Gunnarsdóttir,
Símon Gunnarsson, Sigríður Guðmundsdóttir,
Guðbjörg Bjarnadóttir, Finnbogi Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
ar að eilífu. Margt kemur upp í
hugann þegar dauðann ber að
höndum, en það era hversdagslegu
hlutirnir sem verða hvað dýrmæt-
astir, minningar um góðar sam-
verustundir með þér og Maju
ömmu í Meðalholtinu og í sumar-
bústaðnum á Þingvöllum. Við erum
þakklát fyrir að ferðalag þitt á
fund ömmu var friðsælt og kveðj-
um þig með þessari fallegu bæn.
Eg fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína.
því nú er komin nótt.
Um Ijósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(M. Joch.)
María, Margrét, Guðjón,
Gísli Jón og Kristín.
Elsku afi. Nú kveðjum við þig í
hinsta sinn. Upp í hugann koma
margar minningar og erfitt er að
horfast í augu við það að þú sért
farinn frá okkur. Okkar fyrstu
minningar frá því að við voram litl-
ar og fóram í heimsókn til þín í
Meðalholtið með mömmu, eru að
þá brást aldrei að þú laumaðir að
okkur súkkulaðimola svo lítið bæri
á.
Stundirnar í vinnuherberginu
þínu era okkur ógleymanlegar, t.d.
þegar við fengum að hjálpa þér við
að raða saman letri fyrir gyllingu.
Við gátum alltaf fundið okkur eitt-
hvað til dundurs og það voru ófáar
myndirnar sem við teiknuðum á
meðan þú varst að vinna.
Við systurnar biðum alltaf
spenntar eftir sunnudögum þegar
þú komst í mat og bauðst upp á
malt og appelsín með. Þá var veisla
hjá okkur.
A Þingvöllum í sumarbústaðnum
var alltaf gaman að vera með þér.
Þú kenndir okkur að róa og við
fengum oft að fara með þér út á bát
að veiða. Við dáðumst oft að því
hve duglegur þú varst að búa einn í
27 ár eða alveg síðan amma dó.
Alltaf varstu jafnhress og unglegur
að sjá og við sögðum oft að vonandi
yrðum við eins og þú.
En nú, elsku afi, ertu loksins
kominn til ömmu og við sjáum þig
aldrei meir en við vitum að þú
munt alltaf vera hér á meðal okkar
í minningunum. Við kveðjum þig í
hinsta sinn og þökkum þér fyrir
allt. Þú verður alltaf í hjarta okkar.
Fanney og María.
Guðjón Runólfsson bókbands-
meistari lézt í Reykjavík 16. sept-
ember 1999, 92 ára að aldri. For-
eldrar hans vora Runólfur Guð-
jónsson, f. 7.4. 1877 í Hjörsey á
Mýrum, og Margrét Guðmunds-
dóttir frá Melshúsum í Reykjavík,
f. 4. febrúar 1880.
Runólfur fluttist til Reykjavíkur
1899, lauk bókbandsnámi hjá Arin-
birni Sveinbjarnarsyni 1903 og
vann hjá honum til 1907 er hann
sigldi tU Kaupmannahafnar að tU-
hlutan Landsbókasafns og Þjóð-
skjalasafns til þess að læra þar
nýjustu aðferðir við band og við-
gerð á gömlum og skemmdum
handritum og bókum, en söfnunum
var mikil þörf á manni sem kunni
slíkt. I framhaldi af námsför Run-
ólfs var hann 11. nóvember 1908
ráðinn bókbindari í bókbandsstofu
safnanna, er sett var á stofn þá um
haustið í hinu nýja Safnahúsi. Var
hann forstöðumaður hennar allt til
dauðadags 23. febrúar 1942.
Þau Runólfur og Margrét eign-
uðust sex börn, tvo syni og fjórar
dætur. Annar sonanna, Guðjón,
sem hér er minnzt, nam bókband
hjá föður sínum í bókbandsstofunni
í Safnahúsinu 1926-30 og lauk
brottfararprófi frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1930, en stundaði það
sama ár framhaldsnám við Fag-
skolen for Boghándværk í Kaup-
mannahöfn og sótti síðar þar í
borg, 1937, námskeið í bókbandi og
gyllingu. Að öðru leyti vann hann í
bókbandsstofu Safnahússins allt
frá því er hann hóf nám þar 1926.
Við lát föður síns tók hann við for-
stöðu stofunnar og gegndi henni til
1. júní 1973, er hann kaus að draga
sig í hlé eftir 47 ára tengsl sín við
stofuna. María kona hans Gísla-
dóttir, f. 1. september 1908, sem
unnið hafði með honum um árabil á
stofunni, lézt 31. ágúst 1972. Þau
eignuðust þrjú böm, synina Gísla
Haukstein og Runólf og dótturina
Margréti.
Guðjón gegndi ýmsum trúnaðar-
störfum í iðn sinni, var formaður
prófnefndar í bókbandsiðn 1951-78,
sat í stjóm lífeyrissjóðs bókbind-
ara 1971-74 og í fræðslunefnd í
bókbandsiðn 1970-79 formaður
1970-75.
Þeir feðgar, Runólfur og Guðjón,
vora í flokki færastu bókbindara
landsins, og býr bókakostur Lands-
bókasafns mjög að vönduðu hand-
bragði þeirra og annarra starfs-
manna stofunnar. Eg minnist þess,
að Guðjón sagði mér eitt sinn, að
Guðmundur faðir minn hefði í
landsbókavarðartíð sinni lagt
áherzlu á, að vandað væri sem mest
bæði til efnis og vinnu, það borgaði
sig bezt, þegar til lengdar léti.
Guðjón var mikið snyrtimenni og
stíll yfir honum í allri framgöngu.
Eg minnist nú að lokum kynna við
hann og vandaðra verka hans með
virðingu og þökk.
Finnbogi Guðmundsson.
Legsteinar
í Lundi
v/Nýbýlaveg
SOLSTEIN AK 564 3555
B lómdbwðin
öarðskom
v/ Fossvogskii-kjMgaiA
Símii 554 0500
JIXIIIIIIIIIIIII^
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
&
Erfisdrykkjur
Sími 562 0200
iii i'iminmrf
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal-
línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningarltprt
Xja66ameinsfélysÍTis
S621414
Krabbameinsfélagið
Altan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/