Morgunblaðið - 13.10.1999, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
232. TBL. 87. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Yfírmaður herafla Pakistans víkur lýðræðislega kjörinni stjórn landsins frá völdum
Valdaráninu lýst
sem lokaúrræði
Indverski herinn í viðbragðsstöðu
og ríki heims lýsa áhyggjum
Islamabad, Washington, London. AP, AFP, Reuters.
PERVAIZ Musharraf, hershöfðingi og yfírmaður herafla Pakistans, vék
í gær ríkisstjórn landsins frá völdum og tók sjálfur við stjórnartaumun-
um. Nawaz Sharif forsætisráðherra hefur verið hnepptur í stofufangelsi
á heimili sínu í höfuðborginni Islamabad og einnig nokkrir aðrir ráð-
herrar í ríkisstjóminni. Hermenn undir stjórn Musharrafs yfirtóku
einnig flugvelli, stjórnarbyggingar og útvarps- og sjónvarpsstöðvar.
í sjónvarpsávarpi til
þjóðarinnar sem Mus-
harraf flutti síðla í gær-
kvöldi að íslenzkum
tíma - eftir að útsend-
ingar höfðu verið stöðv-
aðar í nokkrar klukku-
stundir - sagði hann
herinn hafa gripið til
valdaráns sem „lokaúr-
ræðis“. Sakaði hann
lýðræðislega kjörna
stjóm landsins um að
„eyðileggja ríkisstofh-
anir á kerfisbundinn
hátt,“ og að koma efna-
hagslífi landsins á von-
arvöl með stefnu sinni.
Ávarpið var stutt og
Reuters
Pervaiz Musharraf hershöfðingi við flutning
sjónvarpsávarps síns til pakistönsku þjóðar-
innar, undir morgun að staðartíma.
hann nefndi ekkert um hvað herinn
hygðist fyrir eftir valdaránið. Hann
sagði aðeins að stefnuyfirlýsingar
væri að vænta.
Aðeins fáeinum tímum áður en
valdaránið var framið hafði Sharif
rekið Musharraf úr embætti og
skipað nýjan yfirmann hersins.
Musharraf er sagður hafa verið
staddur á Sri Lanka þegar tilkynn-
ing um brottvikningu hans barst
en flaug til borgarinnar Karaehi í
suðurhluta Pakistans síðdegis.
Hermenn tóku sér stöðu í borg-
um landsins í gær og margir íbú-
anna brugðust við með fagnaðar-
látum. Er það til vitnis um út-
breiddar óvinsældir ríkisstjórnar
Sharifs.
Stjórnarskráin
skuli virt
Bandaríkjamenn lýstu í gær
áhyggjum af atburðunum í Pakist-
an og hvöttu Pakistana til að virða
stjórnarskrá landsins. „Ef um
valdarán er að ræða munum við
beita okkur fyrir því að lýðræði
verði endurreist í landinu eins
fljótt og auðið er,“ sagði Jack Rub-
in, talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins. Að sögn Rubins
komu atburðimir bandarískum
stjórnvöldum í opna skjöldu.
Indverjar lýstu einnig þungum
áhyggjum vegna ástandsins í
Pakistan og kallaði Vajpayee for-
sætisráðherra saman neyðarfund
með ráðgjöfum sínum í gær.
Einnig var indverski herinn settur
í viðbragðsstöðu.
Fjölmiðlar í Pakistan hafa að
undanförnu birt fréttir af deilum
milli ríkisstjórnarinnar og yfir-
manna hersins í kjölfar átakanna
við Indverja í Kasmír-héraði síð-
astliðið sumar. Vitað er að ákvörð-
un Sharifs um að draga pakist-
anskan her frá Kasmír mætti mik-
illi andstöðu innan hersins.
Bhutto hælir Musharraf og
segist reiðubúin að snúa aftur
Benazir Bhutto, útlægur leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Pakistan
og fyrrverandi forsætisráðherra,
sagði í London að Musharraf hers-
höfðingi væri hófsamur maður sem
hefði „séð sig knúinn til að steypa
borgaralegri einræðisstjórn“.
Bhutto vísaði því á bug að hers-
höfðinginn væri íslamskur bók-
stafstrúarmaður. Þegar hún hefði
verið við völd hefði Musharraf ver-
ið yfirmaður hermála, og hún lýsti
honum sem áreiðanlegum og heið-
virðum manni. Sagðist hún munu
snúa aftur til Pakistans ef her-
stjórnin héti því að frjálsar kosn-
ingar færu fram fljótlega.
Framfara-
flokkur í
upplausn
Reuters
Lokaat
kvennautabana
Kaupmannahöfn. Morgunblaðid.
ALLIR fjórir þingmenn danska
Framfaraflokksins sögðu sig úr hon-
um í gær til að mótmæla því, að Mog-
ens Glistrup skyldi ekki hafa verið
rekinn úr floklmum fyrir stóryrði,
sem hann hafði um innflytjendur.
Glistrup stofnaði Framfaraflokk-
inn, en 1991 var hann rekinn úr
flokknum fyrir yfirlýsingar sínar um
innflytjendur. Fékk hann aftur inn-
göngu í flokkinn í síðasta mánuði og
það fýrsta, sem hann hafði til mál-
anna að leggja, var, að múslimskir
innflytjendur skyldu reknir úr landi
og þeir, sem ekki væru farnir innan
þriggja mánaða, skyldu settir í
fangabúðir. Konurnar mætti síðan
selja úr landi.
Þingmenn flokksins og ýmsir full-
trúar hans í sveitarstjórnum kröfð-
ust þess, að Glistrup yrði rekinn en
þegar ekki var orðið við því, fóru
þeir sjálfir.
■ Sögðu sig úr/24
CRISTINA Sanchez, fremsti
kvennautabani Spánverja, ögrar
tuddanum sem hún felldi í síð-
asta atinu á ferli sinum á Las
Ventas-leikvanginum í Madríd
í gær. Sanchez ákvað í maí síð-
astliðnum að leggja atskikkjuna
og sverðið á hiliuna vegna
„óþolandi karlrembu" stéttar-
félaga sinna af karlkyni, sem
neituðu að koma fram á leik-
vanginum með henni.
Reuters
Ibúar pakistönsku borgarinnar Lahore fögnuðu því í nótt að dagar
ríkisstjórnar Nawaz Sharifs skuli taldir.
Rússar óttast árásir hryðjuverka-
manna á kjarnorkumannvirki
Tsjetsjenar
hefja gagnsókn
Grosní, Moskvu. AFP.
HERSVEITIR Tsjetsjena hófu í
gær mikia sókn gegn hði Rússa er
undanfama daga hefúr þokast nær
Grosní, höfuðborg Tsjetsjníu, og
var bardögum lýst sem afar hörð-
um. Moskvustjóm sakaði tsjetsj-
enskar skæmliðasveitir um að
hyggja á nýja hrinu hryðjuverka, og
beina m.a. spjótum sínum að kjarn-
orkuverum í eigu Rússa. Leggja
Rússar nú allt kapp á að handsama
skæraliðaforingjann Shamil Basa-
yev sem þeir telja að haldi sig í
þorpi nærri Grosní. Hafa stjórnvöld
í Tsjetsjníu vísað því á bug.
ígor Sergejev, varnartnálaráð-
herra Rússlands, sagði í gær að
rússneski herinn hefði nær alger-
lega tryggt sér stjóm á öryggis-
svæði því sem miðað var að koma
upp í norðurhluta Tsjetsjníu. Sagði
hann jafnframt að nú væri þess að
vænta að rússneskar hersveitir
héldu lengra inn í landið. „Þeir
munu halda áfram og ljúka uppræt-
ingu glæpamanna og skæruliða í
Tsjetsjníu," sagði Sergejev í gær.
Þá sagði talsmaður stjórnvalda í
Kreml að Rússar byggjust nú við
umfangsmiklum hryðjuverkum af
hendi skæraliðasveita er starfa í
Tsjetsjníu og tilgreindi nöfn tveggja
stríðsherra, þeirra Salmans Radu-
yevs og skæraliðaforingjans Khatt-
abs. Heimildarmaður AFP innan
rússneska varnarmálaráðuneytisins
sagði í samtali við fréttastofuna í
gær að þar á bæ væri talið líklegt að
Raduyev myndi beina spjótum sín-
um að svæðum er hefðu að geyma
kjamorkumannvirki og að til þess
myndi hann nota hóp fimmtán
þrautþjálfaðra skæruliða sem væra
af slavnesku bergi brotnir.
Lebed varar við
„hemaðarlegu kviksyndi"
Alexander Lebed, héraðsstjóri í
Krasnoyarsk, og fyrrum hershöfð-
ingi í hersveitum Rússa sem átti
mikinn þátt í að koma á friði í Tsjet-
sjníu eftir stríðið 1994-1996, varaði
rússnesk stjómvöld við því í gær að
festast í álíka hemaðarlegu kvik-
syndi og Afganistan hefði reynst
Sovétríkjunum á síðasta áratug.
„Það era öfl sem reyna að rjúfa
Norður-Kákasus frá Rússlandi og
valda óstöðugleika svo það er enginn
endir fyrirsjáanlegur á stríðinu."