Morgunblaðið - 13.10.1999, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 13.10.1999, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999 53 , I DAG Árnað heilla Q/AÁRA afmæli. í dag, O V/miðvikudaginn 13. október, verður áttræð Sig- urlaug Þóra Guðbrands- dóttir, Hólavegi 19, Siglu- firði. Dvelur hún þessa dag- ana á heimili dóttur sinnar á Blómvangi 18, Hafnarfirði. ^ffÁRA afmæli. í I Omiðvikudaginn október, verður 75 Hilmar H. Gestsson, stjóri, Granaskjóli Reykjavík. Eiginkona hans er Hanna Kristinsdóttir. Þau eru stödd erlendis. Ljósmyndastofa Reykjavíkur. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 17. júlí sl. í Bústaða- kirkju af sr. Pálma Matthí- assyni Anna María Sigurð- ardóttir og Júlíus Sigur- þórsson. BRIDS Umsjón (■uðmiinilur Páll Arnarson HVAÐA tvær spilaleiðir koma til greina í sjö tíglum suðurs og hvor er betri? Norður A 6 V Á986532 ♦ Á765 *4 Suður *A74 ¥K « KG8432 Vestur *Á85 Norður Austur Suður - 1 hjarta Pass 2 tíglar Pass 3 tíglar Pass 4 grönd Pass 5 hjörtu Pass 7 tíglar Pass Pass Pass Útspil: Laufdrottning. Þótt norður eigi bara tvo ása er slemman góð og vinnst ef legan er ekki mjög andstyggileg. Augljóslega verður að vinna úr hjarta- litnum og það virðist mega ráða við 4-1-legu í litnum ef trompið fellur. Önnur leiðin sem við blasir gengur út á að fríspila hjartað örugg- lega og fórna um leið þeim möguleika að ráða við trompdrottninguna þriðju í austur. Sagnhafi tekur fyrst rauðu kóngana heima og spilar síðan trompi á ás. Síðan trompar hann hjarta og á nú tvær innkomur í blindan til að stinga hjarta einu sinni enn ef með þarf. Þetta er örugg leið ef trompið kemur 2-1. Norður * 6 ¥ Á986532 ♦ Á765 ♦ 4 Vestur Austur * D10982 * KG53 ¥ D107 ¥ G4 * - ♦ D109 * DG1096 * K732 Suður *Á74 ¥ K ♦ KG8432 + Á85 En einn niður, ef þetta er legan. Samkvæmt hinni leiðinni spilar sagnhafi fyrst hjartakóng, síðan trompi á ás. Ef báðir fylgja er hjarta trompað með gosa (og hér er eina hættan sú að vestur yfirtrompi með einspil í hjarta og Dx í trompi). En þegar austur á öll trompin verður hjartað að liggja vel. Hjarta er stungið og svart spil í blindum. Síðan er frí- hjörtum spilað þar til austri þóknast að trompa. Það yf- irtrompar suður, tekur síð- asta tromp austurs og á enn tígul í borði til að komast inn á fríhjörtun. Þrautin er fengin að láni úr The Bridge World og þar á bæ hafa menn reiknað út að síðari leiðin sé nokkru betri, enda eru líkur á trompdrottningunni þriðju í austur þó nokkrar, eða 11%. SKAK llnisjiín ðlargcir Pctursson STAÐAN kom upp á heimsmeist- aramóti unglinga 20 ára og yngri sem fram fór í Jerevan í Armeníu í haust. D. Brulic (2120), Króatíu, var með hvítt en heimamað- urinn A. Matikozi- an (2425), Armeníu, hafði svart og átti leik. 26. _ Rxb3! 27. axb3 _ Hxb3+ 28. Rxb3 _ Dxb3+ 29. Kcl _ Hb8 og hvítur gafst upp því mátið blasir við. Svartur leikur og vinnur. Hlutavelta Þessar duglegu stúlkur í Mosfellsbæ héldu hlutaveltu og söfnuðu 3.435 kr. til styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Anna Kristrún Halldórsdóttir, Ásthildur Ólöf Rikarðsdóttir, Björk Gunnlaugsdóttir, Eva Dröfn Þorsteinsdóttir og Sólveig Ósk Ólafsdóttir. HOGNI HREKKVISI // Ra fmagn5 ÍQnnbursiinn, A ans er bi/a<5ur." LJOÐABROT Þú ert sem bláa blómið, svo blíð og hrein og skær. Eg lít á þig, og löngun mér líður hjarta nær. Mér er sem leggi ég lófann á litla höfuðið þitt, biðjandi guð að geyma gullfagra barnið mitt. Benedikt Gröndal (Heine). STJORNUSPA eftir Franccs llrakc *§Jb- VOG Afmælisbarn dagsins: Þú ert framtakssamur og stjórnsamur og þótt það fyrrnefnda færi þér marga fylgismenn þá þai-ftu að hafa hemil á stjórnseminni. Hrútur _ (21. mars -19. apríl) Hláturinn lengir lífið og það er engin ástæða til þess að taka alla hluti of hátíðlega þótt öllu gamni fylgi nokkur alvara. Naut (20. apríl - 20. maí) Heilbrigður metnaður er af hinu góða en það þarf að gæta þess vandlega að metn- aðurinn gangi ekki of langt og snúist upp í andhverfu sína. Tvíburar . ^ (21. maí - 20. júní) o ft Þú hefur Iagt óvenju hait að þér að undanförnu og nú er tími til að staldra við og hlaða orkuna fyrir ný og spennandi verkefni. Krabbi (21. jún! - 22. júlí) Fómfýsi þinni eru fá takmörk sett svo þú skalt fmna henni farveg í þjónustustarfi við aðra. Þér mun verða launað þótt síðar verði. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Loksins kemur einhver auga á kosti þína. Notaðu tækifær- ið og komdu sjálfum þér á framfæri því sveltur sitjandi kráka og fljúgandi fær. Meyja (23. ágúst - 22. september) ®K> Vináttan er verðmæti sem enginn skyldi fara gáleysis- lega með en hafa ber í huga að ekki eru allir viðhlæjendur vinir. Hafðu því varann á. (23. sept. - 22. október) M Láttu ekki sjálfsálitið leiða þig í gönur. Það er engin minnkun að því að leita sér aðstoðar þegar verkefnin beinlínis krefjast þess. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Orð em til alls fyrst. Hafðu það hugfast þegar þú veltir fyrir þér máli sem snertir þig og þína nánustu. Viljirðu sátt þá leitaðu eftir henni. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) nL.7 Það er mikilvægt að vera í góðu jafnvægi og því skaltu varast að taka umhverfíð of sterkt inn á þig. Mundu að hver er sinnar gæfu smiður. Steingeit (22. des. -19. janúar) J? Það er engin ástæða til þess að leggja árar í bát þótt hlut- imir gangi ekki fyrirhafnar- laust fyrir sig. Taktu því til hendinni óhræddur. Vatnsben . (20. janúar -18. febrúar) CiG Það er góður eiginleiki að geta snúið hinum margvísleg- ustu aðstæðum sér í hag. Láttu því einskis ófreistað til að ná settu marki. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Það er alveg ástæðulaust að þú sért að burðast með allar syndir heimsins á herðunum. Láttu þér nægja að hafa þitt á hreinu og hugsa hlýtt til ná- unga þíns. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra stað- reynda. Fegurðin kemur innan frá /4 Laugovegi 4, sími 551 4473 TATILJUR Þakrennur og rör úr Plastisol- vörðu stáli. Heildarlausn á þakrennuvörnum í mörgum litum. A S! Stærðir 25-42, hvítt leður Stærðir 25-44, svart leður Verð 1.195,- INNANHUS- STRIGASKÓR b Stærðir 30-41 Verð 1.995,- STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN BLIKKAS hf Símar 557 2000 og 557 7100 Skemmuvegi 36 Bleik gata Kópavogi DOMUS MEDICA við Snorrabroot - Reykjavík Sími 55] 8519 KRINGLAN Kringlunni 8-12 - Reykjavik Sími 568 9212 POSTSENDUM SAMDÆGURS 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR r ÍF 1 Steinslípitromlur 5 gerðir, líka slípimassi Óðinsgötu 7 lllpllMllSími 562 844sS Hef kafið störf á fótaacígeráa- og snyrtistofu Edclu, Hótel Sögu. Tímapantanir í síma 561 2025. Bergljót Helga Jósepsdóttir, löggild ur rótaaðgerða- og snyrtifræðingur. manuli MALNINGAR- 0G PÖKKUNAR- LÍMBÖND ARVIK ÁRMÚLA 1 • SfMI 568 7222 • FAX 568 7295 (Appelsín 56 TRÖPPUR 0G STIGAR ARVIK ÁRMÚLA 1 • SfMI 568 7222 • FAX 568 7295 Appelsínuhúðin horfin - Keypti mér bikini! -1- J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.