Morgunblaðið - 13.10.1999, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Kristj án
Háskólinn á Akureyri
Nýtt háskólaráð
tekur til starfa
Háskólans á
saman til fyrsta
NYTT háskólaráð
Akureyri kom
fundar í gær.
í háskólaráði sitja nú þeir Stein-
grímur Jónsson, prófessor í sjávar-
útvegsdeild, og Hermann Óskars-
son, dósent í heilbrigðisdeild, en
þeir eru fulltrúar kennara, Magnús
Kristjánsson, rekstrardeild háskól-
ans, er fulltrúi nemenda og Magnús
Gunnarsson viðskiptafræðingur er
fulltrúi menntamálaráðuneytis en
auk þeirra á Þorsteinn Gunnarsson,
rektor Háskólans, á Akureyri sæti í
háskólaráði.
Á þessum fyrsta fundi háskóla-
ráðs var farið yfxr ýmis mál, staða
háskólans var kynnt fyrir nýjum
ráðsmönnum, svo sem fjöldi nem-
enda, staða framkvæmda og fjár-
mála. Þá var fjallað um drög að
reglugerð fyrir Háskólann á Akur-
eyri og tillögu um dómnefnd um
hæfí háskólakennara.
Náttúrulækningafélag Reykjavíkur veitir viðurkenningu
Heilsuhornið
með heil-
næmarvörur ^
EIGENDUR Heilsuhornsins, þau
Hermann Huijbens og Þóra As-
geirsdóttir, hlutu viðurkcnningu
Náttúrulækningafélags Reykja-
víkur fyrir framlag sitt með
verslun með heilnæmar og líf-
rænt ræktaðar vörur.
Ingi Þór Jónsson, formaður
Náttúrulækningafélags Reykja-
víkur, afhenti þeim hjónum við-
urkenningarskjal og gat þess að
eitt markmið félagsins væri að
efla og útbreiða þekkingu á lög-
málum heilbrigðs lífs og heilsu-
samlegum lifnaðarháttum. Því
ætti m.a. að ná með því að stuðla
að því að verslanir og veitinga-
hús hafi á boðstólum sem
hollastar vörur og veitingar í
samræmi við náttúrulækninga-
stefnuna.
Stefnt er að því að sögn Inga
Þórs að veita slíkar viðurkenn-
ingar tvisar á ári, en þetta er í
fyrsta sinn sem hún er veitt. Gat
Ingi þess að verslunin hefði vak-
ið athygli fyrir gott og íjölbreytt
vöruúrval og þeir sunnanmenn
sem aðhylltust náttúruhnuna
gerðu sér far um að sækja versl-
unina heim.
Akureyringar hafa
góðan smekk
Þau Hermann og Þóra hafa
rekið Heilsuhornið á Akureyri í
7 ár, síðasta rúma árið hefur
verslunin verið við Kaupvangs-
stræti. Þau hafa á boðstólum
íjölbreytt úrval og til að mynda
flytja þau yfir vetrarmánuðina
sjálf inn lífrænt ræktaða ávexti
og grænmeti. „Við erum ánægð
með þær viðtökur sem við höf-
Morgunblaðið/Kristján
um fengið á síðustu áimm og það
er sífellt að aukast að fólk sé sér
meðvitað um kosti þess að borða
holla fæðu,“ sagði Þóra. „Akur-
eyringar hafa góðan smekk, en
vissulega mættu þeir vera
fleiri.“
Myndin var tekin við afhend-
ingu viðurkenningarinnar, frá
vinstri er Ásdís Árnadóttir, for-
maður Náttúrulækningafélags
Akureyrar, Ingi Þór Jónsson,
formaður Náttúrulækningafé-
lags Reykjavíkur, Hermann Hui-
jbens og Þóra Ásgeirsdóttir, eig-
endur Heilsuhornsins.
Sturtuklefar
Vandaðir sturtuklefar frá Ifö og Megins
úr plasti og öryggisgleri, rúnaðir og
hornlaga. Horn og framtíurðir, einnig
heilir klefar.
74 - 80 - Hornlaga
77 - 80 - Rúnaðir
87 - 90 - Rúnaðir
86 - 92 - Hornlaga
fc—IIIILJIIII...J
TCÍIGI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 564 1088 • Fax: 564 1089
Fást i bygginí’avöruverslumim um lantl allt
Formaður Kaupmannafélagsins um hræringar á fyrirtækjamarkaði á Akureyri
Skilar sér í betri þjón-
ustu og lægra verði
RAGNAR Sverrisson kaupmaður í
Herradeild JMJ og formaður
Kaupmannafélags Akureyrar sagði
ekkert nema jákvætt að segja um
þær miklu hræringar sem hafa
verið á fyrirtækjamarkaðnum í
bænum undanfarin misseri. I svip-
aðan streng tók Ásgeir Magnússon
formaður bæjarráðs Akureyrar og
0
U5
D)
0
HELLUSTEVPA JVJ
Vagnhöfða 17
112 Reykjavík
Sími: 587 2222
Fax: 587 2223
Gerið verðsamanburð
Tölvupústur: sala@t)ellusteypa.is
Fulltrúaráð
Sjálfstæðisfélaganna
Á Akureyri
Aðalfundur fulltrúaráðs verður
haldinn í Kaupangi v/Mýrarveg
miðvikudaginn 20. október kl. 20.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Stefnuskráin - staðan.
4. Önnur mál.
Stjórnin
forstöðumaður Skrifstofu atvinnu-
lífsins og hann sagði greinilegt að
fyrirtæki sjái sér hag í því að halda
úti starfsemi í bænum.
Eins og fram kom í Morgunblað-
inu í gær hafa fjölmörg fyrirtæki af
höfuðborgarsvæðinu og jafnvel víð-
ar, keypt fyrirtæki í rekstri, sam-
einast fyrirtækjum í bænum eða
komið með sína starfsemi inn á
markaðinn. Ragnar sagði þessar
breytingar í flestum tilfellum
tengjast hagræðingu, hvort sem
um væri að ræða fyrirtæki í versl-
un eða öðru. Það skilaði sér í
bættri þjónustu og betra vöruverði
fyrir neytendur á svæðinu. „Ég
vona bara að Bónus sjái sér fært að
koma hingað sem fyrst með mat-
vöruverslun."
Ragnar sagði að þróunin, ekki
bara hér á landi heldur út um allan
heim, væri í þessa átt. Fyrirtæki
væru að sameinast og verslunar-
keðjur t.d. í Bandaríkjunum væru
að sækja yfír Atlantshafið og til
Evrópu og öfugt. „Ég sé því ekkert
athugavert við að þetta skuli vera
að gerast hér hjá okkur eins og
öðrum. Það skiptir mig engu máli
hvort það eru Reykvíkingar eða
aðrir sem eiga þessi fyrirtæki, að-
alatriðið er að þetta séu góð fyrir-
tæki, atvinnan haldist í bænum og
að íbúar svæðis njóti betri þjón-
ustu og lægra vöruverðs,“ sagði
Ragnar. Hann bætti við að einnig
væri töluvert um að norðlensk fyr-
irtæki hefðu haslað sér völl á höf-
uðborgarsvæðinu, eða væru þar í
landvinningum.
Meiri gróska í atvinnulífínu
Ásgeir sagði að þróunin í þess-
um efnum væri hluti af því sem
hafi verið að gerast almennt í at-
Óvenjuleg veiðarfæri
í dorgveiðikeppni
STAFNBÚI, félag sjávarút-
vegsnema í Háskólanum á
Akureyri, hélt sitt árlega
dorgveiðimót á dögunum og
fór það fram á bryggju Út-
gerðarfélags Akureyringa.
Keppt var um þrenn verðlaun,
frumlegasta veiðarfærið, fal-
legasta fískinn og inesta afl-
ann. Verðlaun fyrir frumleg-
asta veiðarfærið hlaut Brókin,
en fyrir hina flokkana tvo
hlaut veiðiklúbburinn Svindl-
ararnir.
Á myndinni er Elvar Árni
Lund við veiðarfæri sem kall-
ast beitukóngurinn. Tengdi
hann veiðarfæri sitt við Iand-
búnaðinn og beitt nautseyra,
kúahala og eistum og hafði
hrútshorn til skrauts á enda
þess.
vinnulífínu í landinu. „Ég veit ekki
hvort það er eitthvað sérstakt að
gerast í atvinnulífinu hér á Akur-
eyri. Þó eru þessar hræringar
meira áberandi en annars staðar
og það kannski bendir til þess að
það sé meiri gróska í atvinnulífinu
en hefur verið um langan tíma og
það er gott.“
Ásgeir sagði að stærri fyrirtæki
hafi verið að sameinast og sam-
keppnin harnað á ýmsum mörkuð-
um. Hann sagðist ekki telja ástæðu
til að hafa miklar áhyggur af þeirri
þróun og að fyrirtæki frá Akureyri
hafi líka verið að sækja út fyrir
svæðið, _ m.a. Samherji, ÚA og
KEA. „Ég get þó ekki neitað því að
ég hef áhyggjur af þeirri sam-
þjöppun sem á sér stað í matvöru-
geiranum og finnst að þar sé
óhugnanlega stórt veldi að færast á
mjög fáar hendur."
Námskeið í
markaðsfræði
SÍMENNTUNARNÁMSKEIÐ í
markaðsfræði verður haldið við Há-
skólann á Akureyri næstkomandi
mánudag, 18. október. Það verður
kennt á 6 vikum, tvær fyrirlestrar-
stundir í senn, frá kl. 18 til 20 á
mánudögum.
Markmið námskeiðsins er að
veita þátttakendum almenna þekk-
ingu á markaðsfræðum. Efnistök
námskeiðsins verða sniðin að þröf-
um stjómenda og millistjómenda í
atvinnulífinu sem sífellt þurfa að
taka ákvarðanir um markaðsmál en
hafa ekki bakgrann í markaðsfræð-
um. Námskeiðið er viðleitni til að
svara þörf atvinnulífs á Norðurlandi
fyrir aukna símenntun.
Kennarar verða Ragnheiður
Björn Guðmundsdóttir, markaðs-
stjóri KEA, og Sigríður Margrét
Oddsdóttir, rekstrarráðgjafi hjá
Ráðgarði.
Skráningu, sem fram fer í Há-
skólanum á Akureyri, lýkur á
fimmtudag, 14. október.