Morgunblaðið - 13.10.1999, Side 6

Morgunblaðið - 13.10.1999, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ V omn H?íðOT>rO ÍTTtO/OTJ>nVGIM 6 MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999 FRÉTTIR Halldór Guðbjarnason Nýr fram- kvæmda- stjóri Visa Islands STJÓRN Greiðslumiðlunar hf., sem rekur Visa ísland, heíur ákveðið að ráða Halldór Guð- bjarnason sem íramkvæmda- stjóra félagsins. Tekur hann við starfínu af Einari S. Einarssyni hinn 1. júlí á næsta ári en Einar hefur verið íramkvæmdastjóri félagsins frá stofnun þess, eða í sautján ár. Stjóm Greiðslumiðlunar hf. ákvað á fundi sínum í fytradag að ráða Halldór í starf fram- kvæmdastjóra og kynnti starfs- fólki fyrirtækisins ákvörðunina í gær. I fréttatilkynningu kemur fram að í árslok 1997 var gerður starfslokasamningur við Einar S. Einarsson sem kvað á um starfs- lok hans á miðju ári 2000, en um það leyti hefði Einar starfað 40 ár í bankakerfinu og fengið full réttindi til eftirlauna. „Einar S. Einarsson heíúr unnið írábær störf fyrir félagið þau 17 ár sem hann hefur gegnt starfí fram- vkæmdastjóra Visa íslands, allt frá stofnun félagsins 1983, og mun félagið áfram njóta krafta hans fram til miðs næsta árs,“ segir í fréttatilkynningu. Halldór Guðbjarnason, fyrr- verandi bankastjóri Landsbank- ans, tekur við starfí fram- kvæmdastjóra hinn 1. júlí á næsta ári. Fram til þess tíma mun hann vinna að sérstökum verkefnum fyrir félagið. „Hall- dór hefur langa og víðtæka reynslu af bankastörfum, þar á meðal á sviði greiðslumiðlunar, og væntir stjórnin mikils af störfum hans í framtíðinni,“ seg- ir í frétt frá Visa íslandi. Horft úr Klukkhelli yfir Mýr- dalssand BÆRINN Höfðabrekka stóð eitt sinn á Mýrdalssandi og var hann þá kirkjustaður. Hann stóð fyrir neðan þennan helli sem ber nafnið Klukkliellir. Þegar Katla gaus árið 1660 fór bærinn undir vatn í því mikla hlaupi sein gosinu fylgdi. Fólkið á bænum bjarg- aðist þó með því að komast upp í hellinn og náði prestur- inn að bjarga altaristöflunni og klukkunni úr kirkjunni og koma þeim upp í hellinn. Klukkan er til enn þann dag í dag og varðveitt á safninu að Skógum. Einnig stóð bær neðan við Hjörleifshöfða, sem sést út um hellisopið. Þegar lilaup kom eftir Kötlugos bjargaði fólk sér með því að fara upp á höfðann. Morgunblaðið/Reynir Ragnarsson Sumir tjonþolar greiddu tekjuskatt af fengnum slysabótum, aðrir ekki • • Oryrkjar vilja fá skatt- inn endurgreiddan TJÓNÞOLAR sem gi'eiddu skatt af slysabótum eiga líklega enga mögu- leika á að fá skattinn endurgreiddan að svo stöddu, að mati Jóhannesar Alberts Sævarssonar lögfræðings þar sem kærufrestur er útrunninn. Fjöldi tjónþola gerði athugasemd við skattlagninguna áður en kærufrest- urinn rann út og fékk skattinn niður- felldan. Öryrki sem lenti í slysi árið 1993 fékk slysabætur í eitt ár. Af slysinu hlaut hann 25% varanlega örorku, en hann var 50% öryrki fyrir. í janúai- 1998 fékk hann bréf frá Skattstjór- anum í Reykjavík þar sem honum var tilkynnt að hann ætti að greiða skatt af slysabótunum. Hann svaraði bréfinu og reyndi að verja sitt mál. Síðastliðið vor var honum sendur úr- skurður frá Skattstjóranum í Reykjavík og þar var staðfest að hann skyldi greiða á áttunda hund- rað þúsund krónur í skatt vegna bóU anna. Leitaði til Öryrkjabandalagsins þegar kærufrestur var úti Öryrkinn leitaði sér lögfræðiálits og var honum þá bent á að hann skyldi verða sér úti um bankalán og "T'y greiða skuldina. í haust rak hann augun í frétt í Morgunblaðinu þar sem greint var frá því að yfirskatta- nefnd hefði fengið til umfjöllunar nokkra tugi kæra vegna skattlagn- ingar slysabóta frá tryggingafélög- um og að nefndin hefði í mörgum til- fellum ómerkt úrskurði skattstjóra um endurákvörðun opinberra gjalda vegna annmarka á málsmeðferðinni, þ.e. að skattayfirvöld hefðu ekki gert greiðendum nægilega grein fyrir skattlagningunni. „Þegar ég sá þessa frétt gerði ég mér grein fyrir því að aðrir hefðu lent í sömu stöðu og ég, og ég frétti af því að öryrkjar gætu leitað sér lögfræðiþjónustu hjá Öryrkjabanda- laginu svo ég gerði það,“ segir ör- yrkinn sem ekki vill láta nafns síns getið. „Hann skoðaði málið og sagði mér að sér þætti ólíklegt að ég gæti fengið gjöldin endurgreidd þar sem í úrskurði Skattstjórans í Reykjavík stendur að kærufrestur sé þrír mán- uðir frá póstsendingardegi og hann var liðinn. Yfirskattanefnd kemst að því að einstaklingar hafi ekki fengið þær upplýsingar þeir þurftu í þessu máli. Það er það sem mér finnst óréttlátt, að sumir fái þetta fellt nið- ur en aðrir ekki. Mér finnst að ríkis- skattstjóri eða fjármálaráðuneytið ættu að sjá sóma sinn í að endur- greiða þeim sem borguðu greiðsl- urnar fyrst búið er að viðurkenna að ekki var nógu vel st;aðið að upplýs- ingagjöf um málið. í öðru felst mik- ið óréttlæti. Mér þætti því fróðlegt að heyra álit skattstjóra, yfirskattanefndar eða annarra íúlltrúa ríkisvaldsins sem þetta mál heyrir undir um þá niðurstöðu sem fyrir liggur, að ekki skuli jafnt yfir alla að ganga,“ segir hann og bætir við að íögin séu mis- vísandi þar sem tryggingafélögum á þessum tíma hafí ekki verið skylt að taka staðgreiðslu og því síður að senda launamiða vegna greiðslna af þessu tagi. „Skilaboðin voru mis- vísandi. Fólk stóð í þeirri trú að svona greiðslur væru ekki framtals- skyldar og því kom þessi misskiln- ingur upp.“ Jóhannes Albert Sævarsson lög- fræðingur hefur séð um lögfræðiað- stoð fyrir Öryrkjabandalagið. Hann telur ólíklegt að unnt verði að leið- rétta þennan mun. „Það hafa nokkrir einstaklingar leitað til mín vegna þess að þeir kærðu ekki úrskurði skattstjóranna til yfirskattanefndar innan þriggja mánaða kærufrestsins. Mér segir svo hugur að þeir sem ekki gerðu það hafi í rauninni misst það tækifæri sem þeir höfðu til að fá úrskurðinum breytt og verða að una því.“ Skattur lagður á allt að sex ár aftur í tímann Skattayfirvöld hófu að leggja skatt á slysabætur vegna tímabundinnar örorku fyrir u.þ.b. tveimur árum. Úrskurður yfirskattanefndar segir að ákvörðunin hafi ekki verið nógu vel kynnt en með henni var skattayf- ii'völdum heimilt að skattleggja slysabætur allt að sex ár aftur í tím- ann. Til dæmis um það að ákvörðun- in hafi ekki verið nógu vel kynnt fengu bótaþegar ekki senda launa- miða frá tryggingafélögum vegna gerðar skattframtals, sem styrktu þá í þeirri trú að bæturnar voru ekki skattskyldar. Að sögn Jóhannesar er hins vegai’ skýr lagaheimild fyrir því að skattleggja bætur af þessu tagi, en aðgerð sem þessi sé umdeilanleg þar sem hún sé mjög íþyngjandi iyr- ir tjónþola. V egabréfslausum Kúrda sleppt HÆSTIRÉTTUR hefur úrskurðað að ekki sé þörf á að vegabréfslaus kúrdískur maður sem handtekinn var af lögreglu fyrir nokkrum dög- um, og sem ekki hefur viljað gera grein fyrir ferðum sínum, verði settur í gæsluvarðhald. Er þar með felldur úr gildi úrskurður Héraðs- dóms, sem samþykkti ósk lögreglu um að maðurinn yrði í gæslu þang- að til nánari upplýsingar hefðu borist um hann. Fingraför hans hafa verið send til alþjóðalögregl- unnar Interpol og jafnframt er beð- ið eftir upplýsingum frá lögregluyf- irvöldum í Þýskalandi og frá Norð- urlöndum um manninn. Samkvæmt því sem fram kemur í greinargerð með úrskurðum dóm- stólanna var maðurinn handtekinn á gistihúsi í Reykjavík 5. október sl, en tilkynning hafði borist um ferðir hans þar. Skírteini sem hann hafði meðferðis gaf upp nafn hans og fæðingardag, og hann segist sjálfur vera fæddur í íran 1. janúar árið 1972. Hann hefur ekki viljað gefa nánari upplýsingar um ferðir sínar, og segist hafa eyðilagt vegabréf sitt og farseðil við komuna til landsins. Lögregla taldi að hafa yrði mann- inn í gæslu, enda bæri henni að tryggja návist hans þangað til úr- skurður fellur um hvort honum sé heimil landvist. Hæstiréttur taldi ekki að sýnt hefði verið fram á að þörf væri á gæslu yfir manninum eða að ekki væru „tiltækar aðrar léttbærari aðgerðir til að tryggja návist hans“. Kenýa Ævintýri í Afríku Viö eigum örfá sæti laus í stórkostlega ævintýraferð Opinn kynningarfundur um feröina verður haldinn í Þingsal 5 (Bíósalnum) á Hótel Loftleiöum laugardaginn 16. október kl. 16.00. Bókunarsíminn er: 569 1010 Samvinnuferðir Landsýn Á varði fyrir þig! til Kenýa 5. -12. nóv.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.