Morgunblaðið - 13.10.1999, Page 22
22 MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 2% undanfarna þrjá mánuði
Jafngildir
8,3% verð-
bólg’u á ári
Breytingar á vísitölu neysluverðs
Mars 1997 = 100
Tölurísvigumvísatil
vægisliðaijúni1999
Frá sept. til okt. ’99
01 Matur og óáfengar drykkjarvörur (16,8%)
0011 Matur (14,8%)
0117 Grænmeti, kartöflur o.fl. (1,4%)
02 Áfengi og tóbak (3,2%)
03 Föt og skór (5,6%)
031 Föt (4,6%)
04 Húsnæði, hiti og rafmagn (18,2%)
042 Reiknuð húsaleiga (9,3%)
05 Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. (5,3%)
06 Heilsugæsla (3,0%)
07 Ferðir og flutningar (18,1 %)
0733 Flutningar í lofti (1,0%)
08 Póstur og sími (1,6%)
09 Tómstundir og menning (13,0%)
091 Sjónvörp, myndbönd, tölvur o.fl. (1,2%)
10 Menntun (1,0%)
11 Hótel og veitingastaðir (5,1 %)
12 Aðrar vörur og þjónusta (9,1 %)
n +o,8%
0,0%
+3,3%
+4,7% |
1 +0,2%
0,0%
□ +0,7%
+1,1%
□ +2,0%
+4,5% l
0,0%
] +0,4%
-1,9%
0,0%
1 +0,4%
1 +0,2%
VÍSITALA NEYSLUVERÐS í OKT.: 108,3 stig ■ +0,8%
Breytingar á vísitölu neysluverðs frá 1997
Breyting síðustu 3 mánuði
Breyting vísitölunnar
1999
—r—i—i—i—i—i—r~t—t—i—
J FMAMJ JASOND
VÍSITALA neysluverðs miðað við
verðlag í októberbyrjun var 193,3
stig og hækkaði um 0,8% frá fyrra
mánuði. Vísitala neysluverðs án
húsnæðis var 194,1 stig og hækk-
aði um 0,7%. Síðustu tólf mánuði
hefur vísitala neysluverðs hækkað
um 5,3% og vísitala neysluverðs án
húsnæðis um 4,1%. Undanfarna
þrjá mánuði hefur vísitala neyslu-
verðs hækkað um 2% sem jafngild-
ir 8,3% verðbólgu á ári.
í frétt frá Hagstofu íslands
kemur fram að föt og skór hækk-
uðu í verði um 4%, vísitöluáhrif
0,22%, markaðsverð á húsnæði
hækkaði um 2%, vísitöluáhrif
0,19%. Verð á mat og drykkjarvör-
um hækkaði um 0,9%, vísitöluáhrif
0,14%, og munar þar mest um
hækkun ávaxta, grænmetis og
fískmetis. Verð á bensíni og olíu
hækkaði um 1%, vísitöluáhrif
0,05%.
Útlit fyrir 5,5%
verðbóigu í ár
Samkvæmt morgunpunktum
Kaupþings í gær kemur fram að
þessir liðir skýra 80% af hækkun-
inni milli mánaða en aðrir þættir
hækkuðu vísitöluna um 0,16%.
„Síðustu tólf mánuði hefur vísi-
tala neysluverðs hækkað um 5,3%.
Bjartsýni væri að ætla að verð-
bólga frá upphafi til loka árs verði
lægri en tólf mánaða verðbólga
mælist nú. Ef verðbólga mælist
0,3% að meðaltali á milli mán-
aðanna október, nóvember og des-
ember þá verður verðbólga frá
upphafi til loka árs 5,5%,“ að því er
fram kemur í morgunpunktum
Kaupþings.
I markaðsyfirliti Landsbankans
í gær kemur fram að búast megi
við því að verðtryggð skuldabréf
verði talin álitlegur fjárfestinga-
kostur þegar verðbólga eykst.
Þetta hafi þó ekki verið raunin að
undanförnu. „Ekki er ólíklegt að
Seðlabankinn íhugi enn frekari
vaxtahækkanir á næstunni. Einnig
má benda á að búist er við hækkun
stýrivaxta í Evrópu á næstunni.
Slík hækkun mun enn frekar
þrýsta á slíka hækkun vaxta hér,“
að því er fram kemur í markaðsyf-
irliti Landsbankans.
Óviðunandi hækkun
undanfarið ár
I morgunkorni Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins eru svipaðar
skoðanir uppi. „Vísitala neyslu-
verðs hefur hækkað um 5,3% síð-
ustu tólf mánuði, en sú mikla
hækkun verður að teljast óviðun-
andi. Aðhald í peningastefnu Seð-
labankans virðist því enn ekki hafa
teljandi áhrif, en þó ber að nefna
að gengi krónunnar hefur styrkst í
kjölfar vaxtahækkana Seðlaban-
kans sem ætti að hafa dempandi
áhrif á verðlag. Ljóst er að
markaðsaðilar munu fylgjast vel
með skilaboðum Seðlabankans á
næstunni en ekki er hægt að úti-
loka frekari aðhaldsaðgerðir að
svo stöddu," segir í morgunkorni
FBA.
Birgir Isleifur Gunnarsson, seð-
labankastjóri, segir það valda von-
brigðum hversu mikil hækkun vísi-
tölunnar er nú. Hún sé töluvert
meiri en flestir höfðu spáð, bæði
Seðlabankinn og aðilar á fjármála-
markaði.
Að sögn Birgis Isleifs hefur ekki
verið tekin ákvörðun um hvort
Seðlabankinn muni grípa til að-
gerða í kjölfar hækkunarinnar.
Skilgreina þurfi hvað sé á ferðinni
og hvað valdi hækkuninni. Ekki sé
þó reiknað með aðgerðum af hálfu
Seðlabankans enda stutt síðan
bankinn hækkaði vexti. „Ahrif
þeirrar hækkunar eru ekki að fullu
komin fram. Að vísu hefur vaxta-
hækkunin, sem var kynnt þann 17.
september, haft þau áhrif að gengi
krónunnar hefur styrkst jafnt og
þétt. Þó má búast við einhverjum
titringi á markaði vegna hækkun-
ar vísitölu neysluverðs. Hins vegar
held ég að það sé alveg ljóst að
áhrif vaxtahækkunarinnar að slá á
útlánaþenslu eru ekki komin fram.
Enda tekur það töluvert lengri
tíma,“ segir Birgir Isleifur.
Seðlabankinn og
rikisstjórnin á réttri braut
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, segir hækkun
vísitölu neysluverðs sem kynnt var
í gær, ívið meiri en Þjóðhagsstofn-
un hafði gert ráð fyrir. „Við reikn-
uðum með því að verðbólgan yrði
5% á tólf mánaða grunni en sam-
kvæmt þessari hækkun stefnir í
5,3% hækkun,“ segir Þórður.
Þórður segir niðurstöðuna stað-
festa að bregðast verði við verð-
hækkunum með tilhlýðilegum
hætti og Seðlabankinn og ríkis-
stjórnin séu á réttri braut. „Vaxta-
hækkun Seðlabankans og fjárlög
með myndarlegum afgangi voru
réttar ákvarðanir. Menn þurfa í
framhaldinu að íhuga hvort tilefni
sé til að gera meira,“ segir Þórður.
Amerísku
undrakremin
frá
Institute • For • Skin • Therapy
ÞAU VIRKA
HVAD SEGJA ÞÆR SEM REYNT HAFA?
ANNA KARLSDÓTTIR 49 ára.
Amerísku undrakremin virka svo
sannarlega og eru satt aö segja
miklu betri en ég þorði að vona
eftir að hafa prófað hinar og
þessartegundir í gegnum árin
og ekki þæródýrustu, án
sýnilegs árangurs.
Kremin eru létt, smjúga inn í
húðina.gefa einhvernveginn
hreina tilfinningu og eru ótrúlega
drjúg. Maður verður virkilega
sléttur og fínn í framan af
þessum snyrtivörum.
Ég var satt aðsegja ansi illa
haldin af bólóttri húðum tíma.
Vandamálið var það mikiðað ég
þurfti aðleita læknis og fara í
sérstaka meðferð.
En eftir meðferðinahef ég getað
haldið bólunum algjörlega niðri
með því aðnota bólumeðferðina
sem Amerísku undrakremin
bjóðaupp á.
GUÐRÚN ANTONSDÓTTIR 24 ára.
Ég er rosalega ánægð með
þessar snyrtivörur. Var með ansi
slæma þurrkblettií andlitinu, þeir
eru nú alveg horfnir, Þetta eru
einu snyrtivörurnar sem hafa lag-
að þá og hef ég þó reynt
ýmislegt í þessum málum um
dagana.
Nú liður mér vel i húðinni.get
notað andlitsmálningu án þess
að hún hlaupi í kekki og
sjálfsálitið hefur aukist til muna!
ÞURfÐUR HALLGRlMSDÓTTIR 44 ára.
Áður fyrr átti ég við þó nokkur
húðvandamál að stríða og
prófaði ótal snyrtivörutegundir til
að reyna að ráða bót á afar
óþægilegum húðþurrki í andliti.
Eftir að ég fór að nota Amerísku
undrakremin, heyra þessi
vandamál sögunni til. Húðin
hefur gjörbreyst, húðþurrkur er
horfinn, andlitið hefur sléttst.
Árangur er tvímælalaus, get ekki
annað sagt.
SIGURLAUG LÁRUSDÓTTIR 70 ára.
KYNNINGARAFSLÁTTUR
af CLEAR-UP STARTER KIT - Sér meðferð
fyrir bóluhúð. Fimm tegundir snyrtivara vinna
saman og ná hámarksárangri í baráttunni við
bólurnar! Nákvæmar leiðbeiningará íslensku.
GUÐNÝ SIGURÐARDÓTTIR, 31 árs.
Aðstæður hjá mér eru þannig að
ég get ekki eytt miklum tíma í
andlitssnyrtingu, verð að vera
snöggaðhlutunum, 4 lítil börn og
nokkrir hundar sjá til þess. Amer-
ísku undrakremin hafa marga
kosti fyrir mig og mína viðkvæmu
húð. Maður er fljótur að skella
þeim á sig, þau liggja ekki utan á,
fara þeint inn í húðina, þaðfinnst
greinilega og sést að þau gera
húðinni gott, þurrkblettir hafa
horfið eins og dögg fyrir sólu.
.xldan'
KYNNINGARAFSLATTUR
af hinum einstöku VITAMINIC COMPLEX
vítamíndropum sem innihalda m.a. A-B-
C-D-E vítamín auk collagens sem eykur
teygjanleika húðarinnar Imynda má sér
hina áhrifamiklu VITAMINIC COMPLEX
vítamíndropa sem risaskammt af víta-
mínum og næringarefnum, sem smjúga djúpt inn í
húðinaog hreinlega baða frumurnar næringu.
Vítamíndroparnir eru frábærir fyrir þurraog við-
kvæma húð. Má nota kvölds og morgna.
Snyrtivörur fyrir allar húðgerðir, ilmefnalausar, nátt-
úrulegar, ofnæmisprófaðar, meðog án ávaxtasýru.
Fást aðeins á völdum snyrtistofum í Kaliforníu.
Sölustaöir hér á landi eru:
Snyrtistofan MAJA, Bankastræti 14, Reykjavík, S. 551-7762
Snyrtistofan EVA, Ráðhústorgil, Akureyri, s. 462 5544
Snyrtistofan DANA, Hafnargötu 41, Kefiavík, s. 421 -3617
BETRI LÍNUR, Bröttugötu 21, Vestmannaeyjum, s. 481-2387
Heilsustúdíó VÖXTUR, Túnbrekku 2, Ólafsvík, s. 436-1335
og KOSMETA ehf Síðumúla17, Reykjavík, s. 588-3630
Sendum
vandaðan
upplýsinga bækling
ásamt
verðlista
ef óskaðer!
ehf
Síðumúla 17 • 108 R •
Sími: 588-3630 • Fax: 588-3731
Opiðfrákl. 14:00-18:00
Netfang: kosmeta@islandia.is