Morgunblaðið - 13.10.1999, Page 52
52 MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Kristín Gestsdóttir hefur oft heyrt fólk
segja: „Rófur eru ekki mannamatur,
erlendis eru rófur bara skepnufóður.“
ÞETTA er nú ekki alls kostar
rétt. Rófur eru bæði ræktaðar til
mann- og skepnueldis og það eru
ekki sömu tegundir rófna. Viða
erlendis eru rófur í miklum met-
um til manneldis. Það er eins með
rófur og kál, við ræktum fóðurkál
handa skepnum en annað kál
handa mönnum. Okkur dettur
ekki í hug að borða fóðurkál og
heldur ekki fóðurrófur. Fyrir
nokkrum árum þegar minna var
um innflutning á grænmeti en nú
er keypti ég fyrir sprengidaginn
innfluttar rófur og sauð og sauð,
en þær soðnuðu aldrei. Þetta hafa
vísast verið fóðurrófur. Lengi
hafa Islendingar ræktað rófur,
þær þrífast vel í okkar köldu
veðráttu eru mjög C-vítamínríkai-
og hafa verið kallaðar sítrónur
Norðurlanda. Hér áður fyrr þeg-
ar ekki fengust ávextir og lítið var
um grænmeti hungraði Islend-
inga í C-vítamínið í rófunum og
ekki var óalgengt að börn laum-
uðust í garð nágrannans og nældu
sér í rófur. Þeir sem rækta rófur
eru oft í vandræðum með að
geyma þær og oft koma börn í
skólagörðum heim með fullt af
rófum. Best er að setja þær í góð-
an lokaðan kassa sem ljós kemst
ekki í gegnum og geyma úti, t.d. á
svölum. En þegar frystir er sú
leið úr sögunni. Mín fjölskylda
borðar sem mest af hráum þunnt
sneyddum rófum meðan það er
hægt, en síðan eru rófurnar soðn-
ar og stappaðar og geymdar í
frysti, annaðhvort eins og þær
koma fyrir eða matreiddar í rétti.
Gott er að frysta þetta í álformi.
Rófur og kartöflur
með kjötfarsi
V2 kg rófur
________V2 kg stóror kortöflur____
saltvatn til að sjóða í
V4 tsk. múskat
350 g saltkjötshakk
150 g svínahakkk
V2 tsk. pipar
'/2 dl kartöflumjöl
2 msk. hveiti
1 '/2 dl nýmjólk eða léttmjólk
fersk steinselja (mó sleppa)
_____________'/2 dl rasp__________
15 g smjör (1 smópakki)
1. Afhýðið kartöflur og rófur
og skerið í sneiðar. Sjóðið í salt-
vatni sem rétt flýtur yíir þar til
hvort tveggja er orðið meyrt.
Geymið Ví> dl af soðinu en fleygið
hinu. Stappið kartöflumar og
rófumar með kartöflustappara
eða í hrærivél og hrærið út í Vz dl
af soðinu ásamt múskati.
Smyrjið eldfasta víða skál og
setjið stöppuna jafnt í hana.
2. Blandið saman saltkjöts-
hakki og svínahakki, setjið pipar,
kartöflumjöl og hveiti út í, hrær-
ið síðan 2 msk. af mjólk í einu út í
og hrærið vel á milli.
3. Klippið steinselju og setjið
saman við farsið, smyrjið því síð-
an jafnt ofan á kartöflu/rófu-
stöppuna í skálinni.
4. Stráið raspi yfir og hellið
bræddu smjöri jafnt ofan á.
5. Hitið bakaraofn í 210°C,
blástursofn í 190°C, setjið skálina
í ofninn og bakið í 15-20 mínútur.
Tími fer eftir þykkt farsins.
Þetta má frysta. Að sjálfsögðu
má nota tilbúið fars.
•:c.~ v-tri: i&c&jmasBam
Rófubakstur
___________1 kg rófur________
saltvatn til að sjóða í
'/2 dl hveiti
V2 tsk. season all
nýmalaður pipar
____________3 egg____________
V2 dl rjómi
1. Afhýðið rófurnar, skerið í
sneiðar og sjóðið þar til þær era
orðnar meyrar. Hellið af þeim
vatninu og stappið þær.
2. Notið helst hrærivél, annars
þeytara og þeytið hveiti, season
all, pipar, egg og rjóma út í.
3. Smyrjið aflangt álform, strá-
ið raspi inn í það. Setjið rófu-
stöppuna í formið, stráið raspi yf-
ir og bakið við 210°C, blásturofn
190°C í 20 mínútur.
4. Kælið örlítið en hvolfið síðan
úr forminu.
5. Borðið eitt sé eða með salt-
fiski, hangikjöti, hamborgar-
hrygg, skinku og alls konar pyls-
um og bjúgum.
Athugið: Þetta má frysta í
forminu.
Fasteignir á Netinu S' mbl.is
ALLTAf= G/TTH\SA£J /VÝ7~7
VELVAKAJVPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Styrkur
við foreldra
ÞAÐ munu fást efni í apó-
tekunum sem gera foreldr-
um fært að fylgjast með
hvort börnin þeirra neyta
eiturlyfja.
Þarna er um að ræða
þvagprófun, sem fer
þannig fram að keyptir eru
svokallaðir „strimlar“ í ap-
ótekunum og þvagdropar
settir á strimilinn og kem-
ur þá í ljós hvort um notk-
un hefur verið að ræða eða
ekki.
Nú er það þannig að
ekki dugar að kaupa einn
strimil heldur kannski 5
eða fleiri, vegna þess að
hver strimill segir aðeins
til um eina sort af eitur-
lyfjunum, og getur þarna
kannski verið um að ræða
5 tegundir eða meira, sem
þryfti að prófa í hvert
skipti. Þessu íylgir tölu-
verður kostnaður þar sem
þessir umræddu strimlar
geta kostað allt frá
200-300 til yfir 400 krónur
- eftir því hvar þeir eru til
sölu - kannski fer það líka
eftir tegundum, framleið-
endum eða öðru sem mér
er ekki kunnugt um.
Það sem ég vil hér koma
á framfæri er það, að fyrir
bamafólk, sem e.t.v. þarf
að kaupa prufuefni fyrir 2
eða fleiri böm er þetta
töluverður aukakostnaður,
þar sem unglingar kalla á
alls konar útgjöld fyrir ut-
an þessi útgjöld.
Það hefur sýnt sig með
viðtölum við unglinga að
þeir þakka foreldmm sín-
um fyrir það að þau skuli
ekki neyta eiturlyfja og
uppgefin ástæða var sú að
„mamma gæti skellt þessu
á fyrirvaralaust" og þá var
nú betra að vera ekki neitt
að taka þátt í þessu. Því
miður kosta þessir striml-
ar töluvert, eins og annað.
Mín tillaga er sú að
þessi vara ætti að vera
ókeypis íyrir þá sem á
henni þurfa að halda vegna
unglinganna sinna, þannig
að það fari ekki eftir fjár-
hag hvers og eins hvort
hann getur leyft sér þann
munað að íylgjast með og
gefa aðhald í baráttunni
við vímuefnin. Þetta óttast
allir, jafnvel unglingamir
sjálfir, og ég veit að þeir
eru þakklátir fyrir að hafa
notið þeirrar umhyggju að
vera Iátnir taka þessi
„próf“ heima hjá sér.
Maður heyrir oft -
vímuvarnir - þetta og hitt.
Má ekki eyða peningum í
þessa vöm sem getur
vissulega komið að tölu-
verðu gagni og meira
gagni heldur en margur
myndi ætla?
Áhyggjufull.
Tapað/fundið
Hjól 1 óskilum
EINAR hafði samband við
Velvakanda og vildi láta
vita af drengjahjóli sem
hann hefur séð undanfarið
liggja í Vatnsmýrinni, rétt
hjá Norræna húsinu nær
Hringbrautinni. Hjólið er
svart 20“ 5 gíra af gerðinni
Huffy.
GSM-sími týndist
GSM-sími Nokia 5110 með
grænni framhlið týndist í
Setbergshverfinu í Hafn-
arfirði laugardaginn 2.
október sl. Skilvís finnandi
hringi í síma 555 0053.
Gullarmband týndist
GULLARMBAND týndist
fimmtudaginn 7. október
sl. á leiðinni frá Félags- og
þjónustumiðstöð aldraðra í
Hraunbæ að Árbæjarapó-
teki. Skilvís finnandi
hringi í síma 567 7924.
Hjól í óskilum
NÝLEGT svart drengja-
hjól er í óskilum við Lang-
holtsveg. Upplýsingar í
síma 553 5901.
Dýrahald
Hver tók við Loppu?
KONAN, sem tók við
henni Loppu okkar, er vin-
samlegast beðin um að
hafa samband við okkur í
síma 5518325 eða
895 5074. Haukur.
Með morgunkaffinu
Ast er...
að viðurkenna að þú
hefur ekki alltaf rétt
fyrir þér.
TM Rog. U.S. PU. 0(1. — alt righU rtwr.K
(c) 1M9LM Angeta, Tn*s Syndícaic
Ég var búin
að banna þér
að leika þér
að matnum.
COSPER
Nei, takk, ég þarf engan stólapúða. Ég nota bara kara-
mellubúðing sem konan mín gerði.
Ætlarðu að segja
mér að þú hafir
verið 38 ár í
hernum og hafir
aldrei drepið
nokkurn mann?
Víkverji skrifar...
RÁÐSTEFNUR hvers konar
og „dagar“ um þetta og hitt
era nú haldin ótt og títt. Það er
eins og haustið sé gjarnan tíminn
fyrir ráðstefnur um hin og þessi
áhugaverð efni. Víkverji man í
svipinn eftir geðheilbrigðisdegi,
gigtardegi og mikið er um hálfs
eða heils dags ráðstefnur og svo
virðist sem morgunverðarfundir
fari mjög í vöxt.
Þetta síðastnefnda form er
nokkuð vel til fundið. Að hittast yf-
ir morgunverði, því öllum er hollt
að fá nokkra undirstöðu í upphafi
vinnudags, hlusta á eina eða tvær
tölur um áhugavert efni og halda
síðan á vit verkefna dagsins. Hefj-
ist slíkur fundur klukkan 8 eru
menn komnir á vinnustað kl. 10 og
geta samt afrekað ýmislegt þótt
sumum finnist kannski of langt lið-
ið á morguninn.
xxx
EINU hefur Víkverji velt fyrir
sér varðandi ráðstefnur, ekki
síst af því svo mikið er um að vera
einmitt um þessar mundir. Þegar
svo mikið er um að vera væri ekki
hugsanlegt að einhver upplýsinga-
skrifstofa héldi ráðstefnudagbók?
Sá sem vill halda ráðstefnu myndi
þá senda henni upplýsingar og
ráðfæra sig við dagbókina hvenær
heppilegt væri að boða til ráð-
stefnu. Þannig væri hægt að af-
stýra því að mjög margar áhuga-
verðar ráðstefnur lentu á sama
tíma.
Víkverji gerir sér grein fyrir því
að hér er um fullkomlega óarð-
bært og jafnvel vanþakklátt verk-
efni að ræða á köflum en ráð-
stefnuhaldarar myndu þó fljótlega
komast að því að slík dagbók væri
þarfaþing. En hver á að taka verk-
ið að sér? Nú eru starfandi fyrir-
tæki sem sérhæfa sig í ráðstefnu-
haldi og til eru Samtök ferðaþjón-
ustunnar. Gætu þessir aðilar ekki
komið dagbók sem þessari í kring?
XXX
UM leið má nefna að þetta hef-
ur verið reynt varðandi tón-
leikahald og kannski er slík dag-
bók enn í gangi. Veit Víkverji
dæmi þess að umsjón og aðstoð við
tónleikahaldara af þessum toga
hefur komið að góðu gagni.
xxx
HÚN er í aðra röndina nokkuð
merkileg sú ákvörðum sam-
keppnisyfirvalda að meina Flugfé-
lagi Islands að fljúga miðdegisferð
milli Reykjavíkur og Egilsstaða af
því staða félagsins sé markaðsráð-
andi. Von að Flugfélagsmönnum
sárni. Ef grannt er skoðað hins
vegar má sjá glætu í þessari
ákvörðun því bent hefur verið á að
aukning í flutningum sé síst á þeim
tíma heldur frekar að morgni. Því
megi gruna Flugfélagsmenn um
þá græsku að ætla að neyta afls-
munar í samkeppninni við íslands-
flug. Víkverji er kominn út á hála
braut í þessum umræðum en vildi
varpa þessu fram og segja aðeins
þetta til viðbótar: Hlutverk sam-
keppnisyfirvalda er ekki öfunds-
vert í þessum efnum.