Morgunblaðið - 13.10.1999, Side 55

Morgunblaðið - 13.10.1999, Side 55
 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1999 55 FÓLK(FRÉTTUM ■ I ! 1 I Maður er nefndur Keith Ævintýrið rétt að hefjast Kristinn Níelsson hefur vakið athygli fyrir líflega framkomu og magnaðan gítarleik á Stones-kvöldum í höfuðvígi Rollinganna á ______Flateyri. Egill Egilsson_ talaði við hann um lærisveinana í COR, Stones og tónlistarskólann. Ljósmynd: Egill Egilsson. OFT ER því haldið fram að að baki hverjum manni standi góð kona eða öf- ugt. Eflaust mætti heim- færa þessa líkingu upp á hljóm- sveitina COR frá Flateyri, sem hefur átt mikilli velgengni að fagna að undanfömu vegna Rolling Ston- es-tónleikahalds í samkrulli við Ól- af Helga Kjartansson sýslumann og fleiri poppgoð. Þó að sýslumaður hafi ekki verið með í för nema í ein- staka tilvikum, hafa drengirnir sýnt og sannað að þeir eru liprir og færir tónlistarmenn. Þessari kunnáttu og miklum stuðningi geta þeir þakkað kennara sínum og um leið skólastjóra Tónl- istarskólans á Flateyri, Kristni Ní- elssyni. Sjálfur hefur hann stigið á stokk með þeim á Stones-kvöldun- um með mögnuðum gítarundirleik og um leið rafmagnaðri sviðsfram- skomu sem er meira en menn eiga að venjast af þessum dagfarsprúða og snyrtilega tónlistarkennara. Það er því engin furða að manna á mill- um hefur Kristinn hlotið millinafnið „Keith“. Byrjaði á núllpunkti Kristinn féllst á að koma í viðtal og greina stuttlega frá sjálfum sér og áhugamálum sínum, sem öll eru tengd að einu eða öðru leyti tónlist. Hver er maðurinn og hvaðan kemur hann? „Ég er innfæddur ísfirðingur. Uppboðið gekk von- um framar NÁTTFÖT kóngsins, skyrt- urnar, gítarneglur, málverk og gömul krítarkort voru meðal þeirra muna sem drógu að sér múg og margmenni til Las Vegas um helgina. Ef marka má viðtökurnar á upp- boðinu sem haldið var á mun- um Elvis Presleys í Las Vegas um siðustu helgi lifir kóngur- inn góðu lífi, í það minnsta í huga manna. Aðstandendur uppboðsins sögðu að uppboðið hafi gengið vonum framar og ótrúlega gott verð hafí fengist fyrir eigur EIvis. Draumur hins 22 ára Antho- ny Ciaglia rættist þegar boði hans í svarta skyrtu átrúnað- argoðsins frá sjöunda ára- tugnum var tekið, en hann fékk hana fyrir rúmar sex hundruð þúsund krónur. Ci- aglia, sem hermir eftir Elvis á næturklúbbi í Las Vegas, seg- ir að án Elvis væri lífið ekki svipur hjá sjón, enda hefur hann sitt lifibrauð af því að setja sig í fótspor kóngsins. Ég lauk hefðbundnu skyldunámi og stúdentsprófi á ísafirði, fluttist til Svíþjóðar 1984 og var þar í háskól- anámi, kom síðan heim og hóf störf hjá Tónlistardeild Ríkisútvarpins í Reykjavík. Þar sá ég um reglulega djassþætti o.fl. Var þar í tvö ár og fór síðan aftur til Svíþjóðar og var þar um tveggja ára skeið við tónl- istarkennslu. Til Flateyrar kom ég síðan í ágúst 1995 gagngert til að kenna tónlist. Hér var meira en nóg fyrir mig að gera og á lausu skólast- jórastaða. Þar að auki var mikið af góðu og skemmtilegu fólki á staðn- um. Þegar ég kom hafði ekki verið nein starfsemi við tónlistarskólann í eitt og hálft ár. Ég ákvað því að byrja á núllpunkti með nemendur mína.“ Kom námið í Svíþjóð þér að ein- hverjum notum í sambandi við kennsluna? „Háskólanámið í Svíþjóð var að mestu leyti bóklegt, þar sem feng- ist var kerfisbundið við rannsóknir og greiningu á verkum og skrifum um tónlistarmenn. Einnig var saga ólíkra tónlistarhópa frá Afríku og Suður-Ameríku skoðuð. Þó var eitt- hvað um verklegt og þar lærði ég mest á fiðluna. Ég hafði þó mjög gott nám að baki frá Tónlistarskóla Isafjarðar og Tónlistarskóla Reykjavíkur í farteskinu. Námið var að mestu leyti krufning og rannsóknir á ólíkri tónlist og lítið um hefðbundið hljóðfæranám." Það voru margir sem líkt- ust kónginum á uppboðinu um helgina og hér er Denn- is Dolinsky að mæta á upp- boðið og að sjálfsögðu er hann í gervi Presleys. Veislusalur MGM Grand hóteisins í Las Vegas hafði verið breytt í smækkaða út- gáfu af heimili Elvis, Gracel- and, af þessu tilefni og var íjölmennt þar um helgina. Búist var við að safnast myndu 4,5 milljónir doilara með uppboðinu og mun það fé renna til heimilislausra í Memphis, heimaborg kóngs- ins. Ævintýraþrá til rokksins Þessi áhugi á rokktónlist, hve- nær byrjaði hann? „Mér var boðið eitt sumar að spila í hljómsveitinni Ýr þegai- hún var og hét. í rauninni hafði ég ekki aldur til að spila með hljómsveitinni á böllum, þar sem ég var aðeins 15 ára. Við Gummi Hjalta stofnuðum seinnna meir hljómsveit sem hét Gabríel. Vinir mínir tveir voru hins- vegar saman í hljómsveit sem hét Lúsífer. í þessum hljómsveitum spilaði ég oftast nær á gítar. Það gat komið fyrir að ég spilaði á fiðlu eða hljómborð, en gítarinn hafði alltaf yfirhöndina. Ég tók mér síð- an frí frá rokkinu og sneri mér al- farið að klassíkinni í fjögur ár og að þeim tíma liðnum sneri ég aftur til rokksins. Þetta tengist vissri ævin- týraþrá og um leið varúðarráðstöf- un á því að staðna ekki í einhverju fagi. Fjölbreytni er nauðsynleg í litlum samfélögum." Snúum okkur að COR-drengjun- um. Myndirðu segja að þeir væru þitt besta afsprengi sem komið hef- ur úr tónlistarkennslunni? „Þeir eru vissulega eitt af því mikilvægasta sem komið hefur úr kennslunni. COR-drenginrir eru gott dæmi um hvað hægt er að gera. Hæfileikamir voru fyrir hendi hjá þeim öllum, þeir voru byrjaðir að spila saman og eru góð- ir kunningjar. Þeir voru því mjög vel samstilltir. Það sem þeir eru að í gera í dag munu þeir halda áfram að gera. Það eru sumir sem byrja að læra og hætta svo, en því er öf- ugt farið með COR-drengina; þeir ætla að halda áfram. Sumt af því sem ég hef kennt þeim hafa þeir síðan þróað áfram.“ Eru þeir farnir að kenna þér? „Já, hálfpartinn.“ Heldurðu að þeir í COR séu fyr- irmynd fyrir aðrar upprennandi hljómsveitir seinna meir? „Jú, ég held það. Þeir eru að ryðja brautina fyrir aðra héma fyr- ir vestan. Þeir em að sýna hvaðv hljómsveitin getur náð góðum ára- ngri með litlum tilkostnaði.“ Rolling Stones í loftinu Hefurðu alltaf haft áhuga á Roll- ing Stones? „Ahuginn var ekki stöðugur í fyrstu. Ég hafði meiri áhuga á Clapton, Hendrix, Rory Gallagher og BB King. Það var aðallega þegar ég komst í plötur bróður míns, Guð- mundar Níelssonar, sem áhuginn jókst. Bróðir minn fékk áhugann töluvert á undan mér. Hann gaf frænda okkar plötu með Stones í afmælisgjöf og varð sjálfur svo heillaður af þeim. Síðan þá hefur1 - þetta verið grúppan hans.“ Verður framhald á Stones-kvöld- unum? „Já það verður framhald á þeim, en í allt öðru samhengi sem ég ætla ekki að gefa upp að svo stöddu.“ Trúir þú því að Rolling Stones muni fyrr eða síðar koma til Is- lands? „Það er eitthvað í loftinu; það er engin spurning um að þetta var ekki tilviljun þegar Jagger var á ferð hérna í sumar. Þessu er ekki lokið.“ BRESK TRYGGINGALÖG 1982. BRITISH Marine Mutual Hull INSURANCE ASSOCIATION LlMITED. FRAMSAL ALMENNRA VlÐSKIPTA: 1. HÉR MEÐ TILKYNNIST að tryggingafélagið British Marine Mutual Hull Ins- urance Association Limited lagði inn umsókn til breska fjármálaráðuneytisins þann 8. september 1999 um að það heimilaði, skv. 49. gr. II. kafla viðauka 2C við tryggingalög frá 1982, að félagið framseldi öll réttindi sín, skyldur og skír- teini, sem það hefur gefið út í Bretlandi fyrir 8. september 1999, til British Mar- ine Luxembourg SA. 2. Breska fjármálaeftirlitið eða starfsmenn þess sjá um og hafa eftirlit með fram- sali þessu í umboði breska fjármálaráðuneytisins skv. 49. gr. III. kafla viðauka 2C við tryggingalögin sbr II. kafla laga um „Deregulation and Contracting Out 1994" og einnig sbr. reglur um „Contracting Out (Functions in Relation to Ins- urance) 1998". 3. Eintak af skýrslu um einstök efnisatriði fyrirhugaðs framsals liggur frammi til skoðunar á skrifstofu British Marine Mutual Hull Insurance Association Limited í Walshingham House, 35 Seething Lane, London EC3N 4DQ alla virka daga frá kl. 9.00 til kl. 1 7.00 til 8. desember 1999. 4. Skriflegar athugasemdir við framsalið má senda til fjármálaeftirlitsins, 25 The North Colonnade, Canary Wharf, London E14 5HS fyrir 26. nóvember 1999. Fjármálaeftirlitið mun ekki taka afstöðu til athugasemda fyrr erí eftir skoðun á öllum athugasemdum sem berast fyrir þann dag. 5. íslenska fjármálaeftirlitið auglýsti yfirfærsluna í Lögbirtingablaðinu no. 103/1999 29. september 1999 með vísan til 2. mgr. 86. gr. sbr. 1. mgr. 68. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 60/1994. Skriflegar athugasemdir má senda til Fjármálaeftirlitsins, Suðurlandsbraut 32, 108 Reykjavík fyrir 29. október 1999. 6. Eintak af yfirlýsingu, þar sem lýst er efnisatriðum fyrirhugaðs framsals, liggur frammi til skoðunar á skrifstofu Málflutningsskrifstofu, Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík alla virka daga frá kl. 8.30 til kl. 1 7.00 til 29. október 1999. 11. október 1999. Málflutningsskrifstofa, Einar Baldvin Axelsson hdl., Suðurlandsbraut 4a, 108 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.