Morgunblaðið - 20.10.1999, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Skákfélag
Akureyrar flytur
starfsemi sína
Þór efstur á
Haustmótinu
Tillögur að nýjum samningi um Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Hluti hljóðfæraleikara verði fast-
ráðinn og tónleikum fjölgað
Blaðbera
vantar í GiIjahverfi
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn.
Góður göngutúr sem borgar sig.
► I Morgunblaðið,
| Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsing-
ar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega
54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir
300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2.
nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
SKÁKFÉLAG Akureyrar hefur
flutt starfsemi sína að Skipagötu 18,
2. hæð og verður með mót og æfing-
ar þar í vetur.
Nú stendur yfir Haustmót félags-
ins í opnum flokki og eftir fjórar um-
ferðir er Þór Valtýsson efstur með
3,5 vinninga. Jafnir í 2. til 3. sæti eru
Sigurður Eiríksson og Smári Ólafs-
son með 3 vinninga. í 4. sæti er Stef-
án Bergsson með 2,5 vinninga.
Næsta umferð verður tefld nk.
sunnudag.
Fyrir skömmu var háð fimmtán
mínútna mót, sem lauk með sigri
Ólafs Kristjánssonar. Á morgun
fimmtudag kl. 20.00 verður háð tíu
mínútna mót. Haustmótið í barna-,
drengja- og unglingaflokki hefst
laugardaginn 23. október kl. 13.30 í
Skipagötu 18. Keppni stendur yfir í
tvo daga og er keppnisgjald 500
krónur.
TIL SOLU
Atvinnuhúsnæði
á Akureyri
FASTEIGNASALAN
ÍIYGGII
4
Fimm tónleikar á vetrardagskránni
IA«NAVO»UVCIilUH
G L Æ S I B Æ
Sími 5333366
Hafnarstræti 97.
Verslunar- eða þjónustuhúsnæði á 2. j
hæð, 106,2 tm.
Sunnuhlfð 12, Þ-hluti,
254 fm þjónustuhúsnæði (kjallara. Mjög j
snyrtileg og góð eign. Laus eftir sam- I
komulagi.
Flugskýli við flugvöllinn
á Akureyri.
Mjög vandað flugskýli, 425,6 fm að f
stærð. Með eldhúsaðstöðu og kennslu-
sal.
> ■:
Tryggvabraut 18-20.
Atvinnuhúsnæði á þremur hæðum, sam- j
tals 1.804 (m að stærð. Jarðhæð um !
1.200 Im. 2. hæð um 300 fm. 3. hæð $
300 fm. Húsnæðið getur hentað sem \
verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Góð j
bílastæöi og aðkoma. Miklir möguleikar.
Til leigu
Hvannavellir 14,
efsta hæð.
Mjög gðð 594,5 fm skrifstoluhæð lil
leigu. Lylta er í húsinu. Húsnæðið er j
allt nýstandsett. Tölvulagnir til staðar. 1
FORSVARSMENN Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands hafa kynnt til-
lögur að nýjum samningi við Akur-
eyrarbæ, en samningur milli hljóm-
sveitarinnar og bæjaryfirvalda er
laus um næstu áramót.
Guðmundur Óli Gunnarsson,
stjómandi hljómsveitarinnar, sagði
að í tillögum að nýjum samningi
væri mælst til þess að 13 hljóðfæra-
leikarar verði fastráðnir í 40% stöðu
hver, eða samtals í 5,2 stöðugildi. í
staðinn hyggst Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands fjölga tónleikum sín-
um úr 4 til 5 á ári í 22. Alls yrðu 5
tónleikar með stórri hljómsveit, 12
kammertónleikar og 6 með sinfóní-
ettu. Þar að auki myndi hljómsveit-
in halda skólatónleika víða um land.
Nú eru engir hljóðfæraleikarar
Það voru 17 apateg-
undir sem stofnuðu
Villilýðveldið og hafa
þeir opnað sína eigin
heimasíðu á netinu þar
sem er að finna leiki,
þrautir, sögur og
ýmsan fróðleik. Allir
aparnir heita sínu
nafni og iýlgir leyniorð
hverjum apa til að
komast í fleiri leiki á
netinu. Aparnir eru
með riflás á höndum
og fótum og kosta kr.
1.450.
Ekki missa af þessu
nýja æði.
Akureyri sími 462 7586
fastráðnir, heldur er ráðin áhöfn
fyrir eina tónleika í einu. Einu
starfsmenn hljómsveitarinnar á
föstum launum eru framkvæmda-
stjóri í 50% stöðu og hljómsveitar-
stjóri í 12% stöðu.
Metnaður til að þjóna
öðrum byggðarlögum
Fimm tónleikar
á vetrardagskránni
„Við erum sannfærð um að þetta
myndi auka mjög festu í starfi
hljómsveitarinnar og auka mögu-
leikana," sagði Guðmundur Öli.
Þannig væri til að mynda hægt að
heimsækja í auknum mæli byggðir
utan Akureyrar, en fram til þessa
hafa tónleikar hljómsveitarinnar
einkum verið haldnir á Akureyri.
„Við höfum metnað til að þjóna öðr-
um byggðarlögum líka, einkum á
Norðurlandi en teljum okkur eiga
erindi víðar og viljum gjarnan koma
á fleiri staði, en það er dýrt að
senda stóran hóp hljóðfæraleikara í
ferðalög og það hefur yfirleitt kom-
ið hljómsveitinni í koll fjárhagslega.
Verði ákveðinn kjarni í hljómsveit-
inni fastráðinn skapast möguleikar
á að fara um byggðir Norðurlands
með tónleika," sagði Guðmundur
Óli.
Hann benti einnig á að þá gæti
hljómsveitin uppfyllt það sem lengi
hefði verið á stefnuskrá, að efna til
skólatónleika í grunnskólum í kjör-
dæminu. Til stendur að halda slíka
tónleika í grunnskólum á Akureyri í
vetur, en þörf væri fyrir að fara víð-
ar með slíka tónleika. Guðmundur
Óli sagði að „suðurflóttinn“ svo-
nefndi væri oft settur í samhengi
við menningarstig byggðarlaganna.
Með því að kynna bömum tónlist
snemma og veita þeim gott tónlist-
aruppeldi væri lagður grunnur að
því að auka menningarstig byggð-
anna úti um landið.
Morgunblaðið/Kristján
Guðmundur Óli Gunnarsson, stjómandi Sinfómuhljómsveitar Norður-
lands, og Sigurbjörg Kristínardóttir, framkvæmdastjóri hljómsveitar-
innar, kynntu tillögur að nýjum samningi milli hljómsveitarinnar
og Akureyrarbæjar og einnig vetrardagskrána á fundi nýverið.
síðari í Dalvíkurkirkju og sagði Sig-
urbjörg Kristínardóttir, fram-
kvæmdastjóri hljómsveitarinnar, að
viðbrögð heimamanna hefðu verið
einkar góð, en Dalvíkurbyggð og
Sparisjóður Svarfdæla greiða
kostnað við tónleikana. Tveir kórar
koma fram með hljómsveitinni á
jólatónleikunum, Barna- og ung-
lingakór Akureyrarkirkju og Húsa-
bakkakórinn „Góðir hálsar“ en ein-
söngvarinn Baldur Hjörleifsson er
úr þeim síðarnefnda.
Málmblásaratónleikar verða
haldnir 16. janúar á næsta ári og
síðustu tónleikarnir verða í apríl en
þá leikur Helga Bryndís Magnús-
dóttir píanóleikari með hljómsveit-
inni m.a. verk eftir Brahms og
Beethoven.
Tónleikar vetrarins verða kynntir
í bæklingi sem borinn verður í öll
hús á Akureyri og styrkir Lands-
banki Islands útgáfuna. Þá mun
Blómalist gefa skreytingar á alla
tónleika vetrarins, sem að þeim
loknum verða gefnar á sjúkrastofn-
anir og dvalarheimili.
Sjöunda starfsár Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands er að hefjast,
en fyrstu tónleikar vetrarins verða í
Glerárkirkju næstkomandi sunnu-
dag, 24. október kl. 16. Það eru Vín-
artónleikar og verður Signý Sæ-
mundsdóttir sópran einsöngvari
með hljómsveitinni.
Þá eru á dagskrá vetrarins tvenn-
ir jólatónleikar, hinir fyrri í Akur-
eyrarkirkju, 11. desember en þeir
Morgunblaðið/Kristján
Nýsveinar
fá prófskír-
teini
TUTTUGU nýsveinar fengu á
dögunum aflient prófskírteini sín
við athöfn sem fram fór á Fiðlar-
anum. Þetta voru tólf húsasmiðir
og átta húsamálarar. Síðustu ár
hefur skapast sú verya að af-
henda nýsveinum prófskírteini
með formlegum hætti og hefur
það mælst vel fyrir. Á myndinni
eru nýsveinarnir með þeim Guð-
mundi Ómari Guðmundssyni, for-
manni Félags byggingamanna í
Eyjafírði, til vinstri, og Stefáni
Jónssyni, formanni Meistarafé-
lags byggingamanna, til hægri.
mbl.is