Morgunblaðið - 20.10.1999, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 23
Samruni Telia og Telenor
Lá við sundr-
ungu á síð-
ustu stundu
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„LANGUR og erfiður aðdragandi
að samruna er ekki nýja fyrirtæk-
inu til framdráttar," viðurkenndi
Tormod Hermansen, forstjóri nýja
fyrirtækisins sem verður til við
samruna Telia og Telenor, eftir að
það dróst um næstum sólarhring
að Dag Jostein Fjærvoll, sam-
gönguráðherra Norðmanna, undir-
ritaði samninginn formlega í
Stokkhólmi í gær.
I Aftenposten í gær var því hald-
ið fram að nú fyrst byrjaði barátta
Norðmanna og Svía innan nýja fyr-
irtækisins. Bo Lundgren, leiðtogi
sænska Hægriflokksins, sagði í
viðtali við sænska útvarpið að rétt-
ast hefði verið að hætta við allt
saman og einkavæða Telia fyrst,
áður en farið var út í samrunann. I
sama streng er tekið í Financial
Times í gær þar sem farið er nei-
kvæðum vantrúarorðum um sam-
runann og efast um samlegðará-
hrifin. Víst er að upphlaupið í
kringum samningsundirritunina
hefur ekki eflt trúna á nýja fyrir-
tækið sem mun fá nafn í nóvember.
Velta nýja fyrirtækisins verður
68 milljarðar sænskra króna og
starfsmenn 51 þúsund. Samruninn
er stærsti fyrirtækjasamruni á
Norðurlöndum og um leið fyrsti
samruni tveggja ríkissímafyrir-
tækja. Rökin hafa verið að fyrir-
tækið muni nú standa traustum
fótum utan ásælni evrópskra og
bandarískra símafyrirtækja, en
miðað við hraðvaxandi símafyrir-
tæki kann að vera of snemmt að
fullyrða slíkt.
Hlutverk stjórnar-
formannsins deiluefni
Kransakökurnar voru þegar
komnar á borðið í sænska atvinnu-
ráðuneytinu á mánudagsmorgun-
inn, þegar Fjærvoll tilkynnti að
hann kæmi ekki til Stokkhólms til
undirritunar samningsins því hann
væri óánægður með „eignaupp-
byggingu" fyrirtækisins.
Svíamir áttuðu sig ekki á vandan-
um en fljótlega kom í ljós að auk
þess sem Fjærvoll var óánægður
með mat á fyrirtækinu og stjómar-
setu starfsmanna var það hlutverk
hins sænska Jan-Ákes Karks,
stjómarformanns nýja fyrirtækisins,
sem stóð í Norðmönnum. Norska
stjómin stóð að baki Fjærvoll.
Svo virðist vera að norska
stjórnin hafi ekki verið með í ráð-
um þegar tilkynnt var á föstudag-
inn í Svíþjóð að Kark yrði ekki að-
eins stjórnarformaður, heldur
einnig sérlegur ráðgjafi og að árs-
laun hans yrðu 5,4 milljónir
sænskra króna, sem er langt fyrir
ofan sambærileg norsk laun.
Stjórnarformaður Telenor hefur
150 þúsund á ári. Launin ollu al-
mennri reiði í Noregi, en stjórnin
var einnig sannfærð um að með
þessu væri því slegið föstu að Kark
ætti að draga úr vægi hins norska
Tormod Hermansen forstjóra.
Spenna fram
á síðustu stundu
Þegar Fjærvoll kom til Svíþjóð-
ar seint og um síðir á mánudag
hófust samræður ráðherra og emb-
ættismanna. Hvað eftir annað virt-
ist allt klappað og klárt en alltaf
dróst undirritunin. Klukkan 4.25
um nóttina voru ráðherrarnir sest-
ir niður fyrir framan blaðamenn til
að undirrita samninginn en þá kom
Hermansen askvaðandi og sagði
Fjærvoll að bíða.
Það var svo ekki fyrr en í morg-
unsárið, kl. 6.14, að ráðherrarnir
gátu loksins undirritað samninginn.
Sameinast vai- um að meta fyrir-
tækið á 150 milljarða sænskra
króna, að norskir og sænskir
starfsmenn fengju hvorir um sig
tvo fulltrúa í stjóm og að Kark yrði
ekki í fullu starfi. „Nú eru allir
áfram um að vinna gott starf,“
sagði Fjærvoll að lokinni undirrit-
un. I sænskum og norskum fjöl-
miðlum var talað um norskan sigur.
Reuters
Mótmæli í París
FRANSKIR lögrelgumenn bera
burt einn þeirra framhaldsskóla-
nemenda, sem efndu í gær til
mótmæla í París. Kröfðust þeir
bctri tækjabúnaðar í skólunum
og fleiri kennara.
Reuters
Jan Áke Kark, stjórnarformaður nýja fyrirtækisins, og- Jon Frederik Baksaas, aðstoðarforstjdri Telenor,
binda táknrænan hnút á fréttamannafundinum í Genf í gær.
Þessu var lýst á blaðamanna-
fundi í Stokkhólmi um hádegi í
gær. Kark sagði þar ekkert óeðli-
legt við hlutverk sitt sem ráðgjafa,
þótt hann væri einnig stjórnarfor-
maður. Hann mun fá 275 þúsund
fyrir stjórnarformennskuna og 5,4
milljónir fyrir ráðgjöfina.
Kjell Magne Bondevik, forsætis-
ráðherra Norðmanna, lýsti á
þriðjudag ánægju sinni með sam-
inginn, sem færi bil beggja milli
hagsmuna landanna. I gær var svo
fyrsti stjómarfundur fyrirtækisins
haldinn.
Það var samdóma álit norskra og
sænskra fjölmiðla að þó samnings-
undirritunin væri mikilvægur
áfangi væri baráttan ekki búin. Bú-
ast mætti við að einstakar deildir
fyrirtækisins í Noregi og Svíþjóð
myndu áfram takast á um norsk og
sænsk áhrif. Samrunaferlið er af
mörgum álitið sýna hve erfitt það
er fyrir tvö ríkisfyrirtæki af tveim-
ur þjóðernum að renna saman. í
stað hreinna viðskiptahagsmuna
komi pólitískir og þjóðernislegir
hagsmunir til sögunnar og flækja
málin.
I sænska útvarpinu var uppá-
koman kölluð sápuópera, sem hefði
opinberað öllum, líka fjárfestum,
hve sambandið væri stirt. Deilurn-
ar væm barnalegur, því það
gleymdist að fyrirtækið stefndi á
alþjóðleg umsvif, ekki aðeins á
heimamarkaðinn.
í Financial Times er lýst mikilli
vantrú á að samlegðaráhrif náist
með samrunanum. Hvort fyrirtæki
um sig ætti auðveldara með að ná
meiri hagkvæmni í rekstrinum. Að
mati blaðsins er hætta á að átökin
um samrunann dragi úr krafti nýja
fyrirtækisins, sem sé skaðlegt í svo
hraðfara geira. Réttast hefði verið
að hætta við allt saman. „Það er
nógu mikið illt blóð í þessu hjóna-
bandi til að fylla heilan blóðbanka,"
ályktar blaðið.
,
Léttir og bjartir skjávarpar
Einstaklega meðfærilegir varpar sem sýna bæði tölvu- og videómerki. Þeir gerast ekki hljóðlátari
eða þægilegri í notkun. C5 skjávarpinn hentar einkar vel með nýjustu fartölvum. Varparnir eru með
byltingakenndri peru sem endist í 4000 klukkustundir og er gríðarlega björt.
ASKC1 ASKC5
Birta 700 Ansi Lumen Birta 800 Ansi Lumen
Upplausn C1 800 x 600 SVGA Upplausn C1 1024x768 XGA
Þyngd 3,7 kg Þyngd 3,7 kg
Ending peru 4000 klst. Ending peru 4000 klst.
Hljóð 38 dB Hl|0ð 38 dB
Sýningardrægni 1,1 -10 m Sýningardrægni 1,1 -10 m
Tilboðsverð Verð áður kr. 349.000.- kr. 454.400.- Tilboðsverð Verð áður kr. 449.000.- kr. 525.000.-
NÝHERJI
Skipholt 37 • S:569 7700
http://www.nyherji.is
Sölu- og þjónustuaðilar Nýherja: Suðurland: Tölvu- og Rafeindaþjónustan Selfossi og Tölvun Vestmannaeyjum. Austurland:
Martölvan Höfn í Hornafirði og Tölvusmiðjan Egilsstöðum/Neskaupsstað. Norðurland: Nett Akureyri, Element Sauðárkróki og
Ráðbarður Hvammstanga. Vestfirðir:Tölvuþjónusta Helga Bolungavík