Morgunblaðið - 20.10.1999, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Bið á því að lýðræði
verði endurreist
I gær tilkynnti herstjómin í
Pakistan að Sharif forsætisráðherra
yrði í gæsluvarðhaldi meðan herinn
rannsakar spillingarákærur á hend-
ur honum og einnig meinta tilraun
hans til að ráða Musharraf hers-
höfðingja af dögum skömmu fyrir
valdaránið í fyrri viku. Einnig var
tilkynnt að sex manna Þjóðarörygg-
isráð, sem ætlað er að fara með
æðstu völd í landinu, yrði ekki skip-
að fyrr en að viku liðinni. Talsmað-
ur á vegum herstjómarinnar sagði
einnig að bið gæti orðið á því að lýð-
ræði yrði endurreist í landinu. Ríki
innan samtaka Samveldisríkja viku
á mánudag Pakistan úr samtökun-
um og kröfðust þess að lýðræði yrði
komið á aftur í landinu án tafar.
Talsmaðurinn sagði að herstjómin
hefði áhuga á að koma á raunveru-
legu lýðræði í landinu en ekki bara
að nafninu til.
Höfða mál
Mandela
fagnað
Nelson Mandela, fyrrverandi
forseti Suður-Afríku, sótti Pa-
lestínumenn heim í gær og var
vel fagnað er hann kom til al-
þjóðaflugvallarins á Gaza. Hér
er hópur barna að bjóða hann
velkominn.
Reuters
Rússaher í 20 km
Benazir Bhutto vill
aftur til Pakistans
Islamabad, London. Ap, Afp.
BENAZIR Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans,
sagði í gær að sig fýsti að snúa aftur til heimalands síns og taka á
ný við stöðu forsætisráðherra.
Bhutto, sem nú er búsett í
London, hvatti Musharraf hershöfð-
ingja til að setja upp tímaáætlun um
hvenær endurreisa ætti lýðræði í
landinu. Hún hefur ekki lýst yfir
stuðningi við valdarán hersins, sem
vék til hliðar fyrrverandi höfuðand-
stæðingi hennar, Nawaz Sharif, en
hefur þó gefið í skyn að hún telji að
ástandið í landinu hafi verið orðið
óþolandi undir stjóm hans. Einnig
er vitað að hún hefur átt viðræður
við Musharraf til að tryggja að hún
fái að koma aftur til Pakistans óá-
reitt. Bhutto hefur samkvæmt eigin
ákvörðun dvalið í útlegð í London
en hún og maður hennar voru í apr-
fl síðastliðnum sakfelld í Pakistan
fyrir spillingu í valdatíð hennar.
Hjónin vom dæmd til fimm ára
fangelsisvistar, til að greiða háa
sekt og þeim meinað að hafa af-
skipti af stjómmálum.
fjarlægð frá Grosní
Gekhi, Moskvu. Reuters, Daily Telegraph.
RUSSAR héldu uppi árásum á ýmis
skotmörk í Tsjetsjníu í gær, einkum
á bæinn Gekhi, sem er í 15 km fjar-
lægð frá Grosní. Borís Jeltsín, for-
seti Rússlands, hefur skrifað Bill
Clinton, forseta Bandaríkjanna,
bréf þar sem hann reynir að sefa
áhyggjur vestrænna ríkja af átök-
unum og segir, að Rússar vilji finna
pólitíska lausn á deilunni. Hugsan-
legt er, að tsjetsjensk yfirvöld skýri
frá því á næstu dögum hverjir stóðu
að hryðjuverkunum í Rússlandi í
sumar.
Vladímír Rúshaflo, innanríkisráð-
herra Rússlands, staðfesti í gær
fréttir fjölmiðla um, að rússneski
herinn væri nú aðeins í 20 km fjar-
lægð frá Grosní, höfuðborg Tsjet-
sjníu, en lét hins vegar ekkert uppi
um framhaldið. Valerí Manflov, að-
stoðaryfirmaður rússneska herráðs-
ins, sagði hins vegar í London í
fyrradag, að ekki yrði reynt að ráð-
Tsjetsjensk yfír-
völd sögð ætla að
nefna þá, sem
skipulögðu hryðju-
verkin í Rússlandi
ast inn í Grosní, árásunum væri
fyrst og fremst beint að stöðvum
skæruliða.
Lítil mótspyma
Ljóst er, að Rússar hafa lært af
óförunum í Tsjetsjníu-stríðinu 1994-
’96 og þeir haga nú sókninni gegn
skæruliðum með allt öðrum hætti.
Raunar er haft eftir rússneskum
herforingjum, að lítil mótspyrna
skæruliða hafi komið þeim á óvart.
„Þeir eru í mesta lagi 100 tfl 150 í
flokki og hafa í raun enga getu til að
berjast við okkur,“ segir Gennadí
Aljokín, einn rússnesku foringj-
anna.
I bréfinu til Clintons segir
Jeltsín, að Rússar hafi orðið fyrir
barðinu á „alþjóðlegum hryðju-
verkasamtökum“ en séu þó reiðu-
búnir að eiga viðræður við „alla þá
leiðtoga Tsjetsjena, sem andvígir
eru hryðjuverkum". Segir hann, að
tilgangurinn með sókn rússneska
hersins sé að uppræta bækistöðvar
hermdarverkamannanna og koma
aftur á lögum og reglu í Tsjetsjníu.
Nöfn
hryðjuverkamanna?
Rússneska fréttastofan Interfax
hafði í gær eftir tsjetsjenskum emb-
ættismanni, Vakha Ibragimov, að
tjetsjensk yfirvöld myndu einhvern
næstu daga gefa upp nöfn þeirra,
sem hefðu skipulagt hryðjuverkin í
Rússlandi í sumar.
gegn skóla-
stjórninni
New York. Daily Telegraph.
FORELDRAR Dylan Klebolds,
annars unghnganna, sem myrtu 13
manns í skóla í Colorado í Banda-
ríkjunum í vor, hafa höfðað mál á
hendur yfirvöldum fyrir að vara þá
ekki við ofbeldisfullum tilhneiging-
um sonar þeirra.
Susan og Thomas Klebold halda
því fram, að lögregluyfirvöld og
skólastjómin hafi ekki sinnt
kvörtun um framferði sonar þeirra
ári áður en þeir félagamir, Klebold
og Eric Harris, unnu ódæðið en þeir
sviptu sig lífi að því loknu.
I málshöfðuninni segir, að hefðu
yfirvöld sagt þeim frá því ofbeldis-
fulla efni, sem sonur þeirra setti inn
á netið, og frá framferði Harris,
hefðu þau reynt að stía þeim í sund-
ur. Við þau hefði hins vegar aldrei
verið talað með þeim alvarlegu af-
leiðingum, sem öllum væra kunnar.
Sjálf væra þau úthrópuð, sætu uppi
með háar skaðabótakröfur og líf í
rústum.
Fjöldagröf fínnst á A-Tímor
Díli. Reutcr.
HERMENN úr liði alþjóðlega friðargæsluliðsins
á Austur-Tímor hafa fundið fjöldagröf með jarðn-
eskum leifum 20 manna í bæ skammt vestur af
höfuðborginni Dili. Ekki hefur verið upplýst
hvemig fólkið lét lífið eða hverjir beri ábyrgð á
dauða þess en granur fellur á sveitir hliðhollar
Indónesíustjóm.
Enn er ekki vitað um afdrif hundruð þúsunda
manna frá A-Tímor en talið er að margir flótta-
menn hafist við í fjöllunum umhverfis höfuð-
borgina. Innan við 200 lík hafa fundist hingað til,
að sögn friðargæsluliðsins. Flóttamenn óttast
um líf sitt eftir að meirihluti íbúa Austur-Tímor
greiddi atkvæði með sjálfstæði í ágúst og kallaði
yfir sig reiði annarra íbúa eyjunnar sem ei'u
fylgjandi áframhaldandi yfirráðum Indónesíu
þar.
SÞ tekur hugsanlega við um áramót
Utanríkisráðherra Astralíu, Alexander
Downer, sagði í gær að ástandið á Austur-Tímor
væri að verða stöðugt og hugsanlega gætu
áströlsku hersveitimar á eyjunni snúið þaðan fyr-
ir árslok og sveitir á vegum Sameinuðu þjóðanna
komið í þeirra stað.
Hersveitir Indónesíu eru nú sem óðast að
hverfa frá A-Tímor og talið er að eftir að þing
landsins féllst á að samþykkja sjálfstæði A-Tímor
muni ekkert verða til að tefja brottflutning
þeirra.
Japanir
eignist
kjarna-
vopn
AÐSTOÐARMAÐUR jap-
anska vamarmálaráðherrans
hefur valdið fjaðrafoki í Japan
með ummælum sínum um að
Japanir eigi að koma sér upp
kjamavopnum. „Þingið verður
að ræða um hvort ef til vill sé
betra fyrir Japan að eignast
kjamavopn," er haft eftir að-
stoðarmanninum, Shingo Nis-
himura, í viðtali við japanska
vikublaðið Playboy, sem hefur
ekki útgáfutengsl við banda-
rískt tímarit með sama nafni.
Japanski vamarmálaráðherran
hefur varað Nishimura við því
að láta í ljósi persónulegar
skoðanir sem fari í bága við op-
inbera stefnu stjórnvalda í
landinu. Japanir hafa allt frá
lokum seinni heimsstyrjaldar
haldið í heiðri bann við eign,
framleiðslu og innflutningi á
kjamavopnum. Japan er eina
landið í heiminum sem hefur
orðið fyrir kjamorkuvopna-
árás.
Fjarvistir
á þingi Suður-
Afríku
ÞINGMÖNNUM á þingi Suð-
ur-Afríku mun verða vikið af
þingi eftir að hafa verið fjar-
verandi á
fimm þing-
fundum, sam-
kvæmt til-
lögu Lýðræð-
isflokksins,
stærsta
stjómarand-
stöðuflokks-
ins á þingi
Suður-Af-
ríku. Winnie Madikizela-Mand-
ela, þingmaður Afríska þjóðar-
ráðsins og fýrrverandi eigin-
kona Mandela forseta, var á
síðasta ári fjarverandi í sam-
tals 33 daga á þinginu og var
fyrir vikið sektuð um jafnvirði
50 dollara. Hún var ein þriggja
þingmanna sem hlaut refsingu
en samkvæmt núgfldandi regl-
um er þingmönnum heimflt að
vera fjarverandi í alls 30 vinnu-
daga áður en þeim verður skylt
að gera grein fyrir ástæðum
fjarvistanna og greiða sekt.
Nái tillögur Lýðræðisflokksins
fram að ganga mun upphæð
sektar fyrir fjarvistir einnig
hækka.
Ofbeldi gegn
konum vex
í Pakistan
SAMTÖKIN Human Rights
Watch sögðu í gær að ofbeldi
gegn konum hafi farið vaxandi
í Pakistan. í nýrri skýrslu
samtakanna kemur fram að
90% pakistanskra kvenna
verði fyrir ofbeldi á heimilum
sínum og að í landinu sé konu
nauðgað á þriðju hverri
klukkustund.
f Pakistan era í gildi íslömsk
lög, Hadood, sem segja að fjög-
ur vitni þurfi tfl að nauðgunar-
ákæra sé tekin gild. Kona sem
kærir nauðgun en getur ekki
útvegað fjögur vitni á það á
hættu að verða sjálf ákærð fyr-
ir að hafa haft kynmök utan
hjónabands og refsað.