Morgunblaðið - 20.10.1999, Síða 30

Morgunblaðið - 20.10.1999, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Það kom utan úr geimnum KVIKMYNDIR S t j ö r n ii b í ó KONA GEIMFARANS- THE ASTRONAUT’S WIFE ★ ★★ Leikstjóri og handritshöfundur Rick Ravich. Kvikmyndatökustjóri Allan Daviau. Tónskáld George S. Clinton. Aðalleikendur Johnny Depp, Charlize Theron, Nick Cassavetes, Samantha Eggar, Blair Brown. 110 mín. Bandarisk. New Line Cinema, 1999. AUGLJOSLEGA hefur mikil vinna, peningar og alúð verið lögð í þennann endasleppa geimhroll, en allt kemur fyrir ekki. Þegar upp er staðið er Kona geimfarans mislukk- uð mynd, hvorki góð né vond. í upphafi eru hjónin Jilian (Char- lize Theron), og Spencer Armacost (Johnny Depp), ástfangin og ham- ingjusöm hjón. Hann geimfari, hún kennir í grunnskóla. Ogæfan hefst er óvæntir atburðir henda Spencer og félaga hans úti í geimnum, Þeir eru nýkomnir á sporbaug um Jörð og eru að sinna viðgerðum á gervi- tungli er sambandið rofnar í tvær mínútur. Eiginkonumar eru kallað- ar á neyðarvakt, geimskutlunni snúið til Jarðar. Þeir eru lifandi en Nýjar geislaplötur • NÁTTMÁL er með söng Ár- nesingakórsins í Reykjavík. A plötunni er úrval íslenskra og er- lendra laga, allt frá hefðbundnum kórlögum til kirkjulegra verka. Söngstjórinn, Sigurður Braga- son, hefur stjórnað kómum frá ár- inu 1988 og hefur hann samið þrjú lög á plötunni, auk þess syngur hann einsöng með kórnum í tveim- ur lögum. Aðrir söngvarar eru _ Rannveig Fríða Bragadóttir, Ámi Sighvatsson, Kristín Sædal Sig- tryggsdóttir og Magnús Torfason. Undirleik á orgel og píanó annast Bjarni Þ. Jónatansson. Félagar úr Baltnesku Fílharmoníunni, undir stjóm Guðmundar Emilssonar, leika undir í nokkrum lögum. Þau lög vom hljóðritið í Riga, Lett- landi, þegar kórinn fór þangað í söngferð vorið 1998. Með kómum í för í Lettlandi vom stúlkur úr Kvennaskólanum í Reykjavík og syngja þær með í nokkram lögum. Kórinn gefur sjálfur út en Skífan sér um dreifingu. Verð: 2.190 kr. Tónleikar í lok Ars aldraðra SÖNGFÉLAG FEB í Reykja- vík heldur tónleika í Salnum í Kópavogi annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Tón- leikamir hafa yfirskriftina Með söng í hjarta. Nú í október lýkur ári aldr- aðra og eru tónleikarnir af því tilefni. Söngfélagið hefur not- að árið til að fara í söngför til Færeyja og söng á Akureyri á heimleið úr þeirri ferð. Þetta er 13. starfsár kórsins og er kórstjóri Kristín S. Pjeturs- dóttir. Undirleikarar á tón- leikunum era Hólmfríður Sig- urðardóttir á píanó og Grettir Björnsson á harmonikku. • • • illa famir og félaginn deyr fljótlega. Kona hans spyr Jilian hvort hún hafi ekki tekið eftir neinu óvenju- legu í fari manns síns, eftir að hann kom aftur til meðvitundar. Skömmu síðar fyrirfer hún sér. Spencer ák- veður að hætta geimferðum, hann er þjóðhetja og hergagnaframleið- andi vill fá hann til starfa í New York Jilian fær einkennilega við- vörun frá fyrrverandi yfirmanni í NASA. Það tengist fóstrinu sem hún gengur með, maðurinn segir að vissir atburðir hafi gerst úti í geimnum, en það trúi sér enginn. Hún er einnig farin að greina slæm- ar breytingar í fari manns síns. Rosemary’s Baby kemur upp í hugann, The Possession Of Joel Delaney, tugir samsærismynda og gamlar geimfantasíur. Það er margt vel gert og myndin um bless- aða geimfarafrána heldur nánast dampi fram að hléi, eftir það sér ekki til sólar. Hver klisjan rekur aðra og það kemur æ betur í ljós að hún heitir ekki Rosemary sem gengur með bömin, né Polanski sem stjómar traffíldnni bak við tökuvélarnar. Það er enginn galdur á ferðinni, heldur vönduð en ófram- leg kvikmyndagerð. Charlize Ther- on, sem kom skemmtilega á óvai*t í The Devil’s Advocate, (’97), hefur það framyfir ýmsar frægari stöllur sínar í dag, að hún er af holdi og blóði en ekki sillíkóni. Það dugar skammt. Hlutverkið lekur niður í sömu botnleysuna og myndin. Johnny Depp er lánlaus í hlutverki hetjunnar, tæpast með á nótunum. Honum lætur greinilega betur að leika aðrar manngerðir. Það er því fátt sem situr eftir annað en von- brigði. Sæbjörn Valdimarsson Morgunblaðið/Silli Við pianóið situr afmælisbarnið, Steingrímur Birgisson, á harmonikkuna leikur Sigurður Hallmars- son, Ingimundur Jónsson plokkar bassann og Ásgeir Steingrímsson leikur á trompet. Geislaplata og 37 laga tónverkahefti Mnrminhlaðið Húsavík. Morgunblaðið. í TILEFNI 75 ára afmælis Stein- gríms Birgissonar hinn 14. þessa mánaðar, kom saman á heimili hans á Húsavík fjöldi manns, ætt- ingjar, vinir og stuðningsmenn að útgáfu 17 laga hljómdisks og 37 laga tónverkaheftis, allt með lögum eftir Steingrím. Var hon- um af því tilefni vel fagnað. Steingrímur er borinn og barn- fæddur Húsvíkingur. Hann er húsgagnasmiður að mennt og starfaði sem slíkur, lengst sem eigandi að húsgagnaverkstæðinu og versluninni Hlyn sf. á Húsa- vík. Tónlistina stundaði hann mest í hjáverkum. Hann lærði ungur orgelspil en var að öðru Ieyti sjálfmenntaður í tónlist en naut þess að alast upp á heimili þar sem leikið var á hljóðfæri og sungið við flest tækifæri. Eldri kynslóð Húsvíkinga man eftir Steingrími í hljómsveitinni Adamssonum, sem hann lék í á sinum yngri árum. En hann hefur fram á þennan dag verið óþreyt- andi að leika á hvers kyns sam- komum á Húsavík og nærsveitum og hefur verið svo til eini hljóð- færaleikarinn sem leikið hefur svokallaða „dinnermúsík" á mannamótum á Iiðnum 50 árum. _ f afmælisfagnaðinum ávarpaði Ásgeir (trompetleikari Sinfón- íuhljómsveitar Islands), sonur Steingríms, gesti og sagði frá til- drögum þessarar útgáfu og gat þeirra mörgu sem að henni hefðu staðið og flutti þeim bestu þakkir fyrir góðan stuðning og vel unnin verk. Jafnframt afhenti hann föð- ur sínum fyrsta eintakið af hljómdisknum, sem síðan var leikinn við mikla ánægju við- staddra áheyrenda. Á plötunni er fjölbreytt laga- val, einsöngslög, kóralög og lög án texta, allt flutt af þekktu hljómlistarfólki. Steingrímur hannaði mikið sjálfur þau húsgögn sem hann framleiddi og hann fékkst einnig nokkuð við málaralist, svo mörg heimli á Húsavík bera vitni um listrænt handbragð hans og nú bætist hljómlist hans þar við. Islandskynning fyrir dönsk börn BÆKUR Karnabók KENDER DU ISLAND? VIKINGER PÁ VULKANER Eftir Palle Petersen. Kobenhavn, Borgen 1999. 32 síður. OFT finnst okkur íslendingum að frændur okkar á hinum Norður- löndunum séu ótrálega fáfróðir um okkur og í raun viti íslendingar miklu meira um nágranna sína en þeir um okkur. Sama gildir um tungumál þjóðanna. Við verðum að læra dönsku eða eitthvert annað Norðurlandamál í okkar skólum, en bræður okkar handan hafsins þekkja að jafnaði hvorki nafnahefð, stafróf né annað sem snertir okkar fornnorræna menningararf. Palle Pedersen hefur skrifað barnabók um ísland, „Kender du Island“, og vill með henni bæta úr fáfræði danskra barna um landið í vestri. Önnur bók með sama nafni var gefin út af höfundi árið 1980. Pedersen er danskur rithöfundur og ferðamaður mikill og hefur oft komið til Islands. Eftir hann liggja einar 70 bækur, bæði bókmennta- verk og fagrit. Pedersen hefur víða ferðast og skrifað bækur fyrir börn, þ.m.t. um Grænland, um Færeyjar, um Víetnam auk margra annarra um ferðalög og framandi lönd. Grænland hefur og fangað hug Pedersens og konu hans svo mjög að þau eiga sitt annað heimili þarí landi. „Kender du Island? er skrifuð frá sjónarhóli íslensks barns sem gæti verið 11-12 ára. Helga kynnir land og þjóð fyrir dönskum bömum og segir frá hlutunum eins og hún sér þá í sínu umhverfi. Textinn er kryddaður danskri kímni, látlaus og fjarri því að vera nokkuð hátíð- legur. Meðal annars era skop- myndir úr dönskum blöðum t.d. frá 1918 þegar Islendingar vildu að- skilnað við Dani. I bókinni er komið víða við, fjallað um landnám, komu víkinganna og upphaf Reykjavíkur, náttúrufar, þar með talin eldgos, og þá kosti og galla sem eldvirknin skapar, menningu, trúarbrögð, sögu og tengsl Islands og Dan- merkur, auðlindir og efnahagsmál. Fjallað er einnig um ágreinings- mál, svo sem um hvalveiðar og þorskastríðið og loks er kafli um hvað það er að vera íslendingur. Allt era þetta stuttir kaflar og bók- in er mikið myndskreytt og að- gengileg á allan hátt og er efnisval og framsetning til fyrirmyndar. Sá íslendingur sem les þessa bók hnýtur þó um nokkra ónákvæmni sem spillir gæðum verksins sem fræðibókar. Nokkur dæmi skal taka. Sagt er að íslendingar hafi verið á barmi þess að gera uppreisn gegn Dönum vegna þess hve illa þeir voru meðhöndlaðir (s. 2). Önn- ur atriði era tæplega í samræmi við nútímann, t.d. frásögnin af því þeg- ar þorskurinn kemur fram með Is- landsströndum í sumarfríunum og konur og börn þyrpast að til að vinna í stóra fiskiverksmiðjunum (s. 27). Sagt er að flestallir Islend- ingar lifi af fiskveiðum (s. 7) sem er ekki í samræmi við stöðu mála árið 1999.1 bókinni kemur líka fram sú landlæga klisja að íslendingar séu ákaflega ameríkaniseraðir og er sú staðhæfing lögð í mun stúlkunnar íslensku. Skýringin er sögð vera dvöl hersins í landinu og sjónvarp hersins, svo og amerískt sjónvarps- efni sem Islendingar nái í gegnum gervihnattasjónvarp. Islenskt sjónvarpsefni er sagt vera mjög lít- ið (s. 11) og æðri menntun (hojere uddannelse) þurfi að sækja alfarið til útlanda (s. 31). Fleira má tína til. Heldur finnst mér líka ósennilegt að Islendingar eigi heiðurinn af nafni Keikós (s. 29) og veitingahús í Hafnarfirði er í myndatexta kallað Víkingakirkja í víkingaþorpinu (s. 15). Verra þótti mér þó að sýnishom sem gefin era um íslenskt mál og stafsetningu era ekki rétt. Sem dæmi er gefið upp: „Taler pú dönsk? Hvad er klukken?“ sem á auðvitað að vera „Talar þú dönsku? Hvað er klukkan?" (s. 10). Þingvell- ir eru skrifaðir Þinvellir (p. 14), biskupasetrið „Skólholt" kemur fyrir í myndatexta (s. 17), kvik- mynd er kölluð „kvikmund" (s. 10) og Egill karlinn er Skalagrimsson (s. 12). Það kemur mér einnig spánskt fyrir sjónir að danska prentsmiðjan skuli ekki eiga bókstafinn þ í sínum fóram og not- ist í staðinn við grískt stærðfræði- tákn sem á það til að verða að bókstafnum p. Þetta era kannski allt smáatriði og sparðatíningur, en að mínu mati spilla þessi atriði ann- ars stórgóðri bók. „Kender du Island? er ætlað að fræða dönsk börn um ísland. Bókin er skemmtileg aflestrar, léttilega skrifuð og allt útlit bókarinnar og hönnun gott dæmi um fræðibók fyrir börn. Myndavalið er sérlega vel heppnað sambland af ljósmynd- um, teikningum og skopmyndum, gömlum og nýjum, og sýndar era myndir af handritum og gömlum kortum. Víða er komið við og hvergi er farið út í ónauðsynleg smáatriði. Bókin bætir eflaust úr brýnni þörf fyrir danskt lesefni um nútíma Island, en meiri nákvæmni hefði þurft að vera viðhöfð til að hafa staðreyndir í textanum óhrekjandi. Sigrún Klara Hannesdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.