Morgunblaðið - 20.10.1999, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 37
Ef það er rétt...
EF það er rétt að:
1. „Gróðurfar eins
og á Eyjabökkum getur
enginn ræktað upp.“
Sveinn Runólfsson,
landgræðslustjóri, 27.
ágúst 1999.
2. „Við erum að eyði-
leggja efnilegustu þjóð-
lendu í Evrópu.“ Jón
Bergsteinsson, verka-
maður.
3. „Náttúran eigi að
njóta vafans sem fram-
kvæmdum fylgja.“ Siv
Friðleifsdóttir.
4. „Við erum hugs-
anlega að rjúfa skuld-
bindingar sem við höf-
um gengist undir á alþjóðlegum
vettvangi." Stefán Gíslason, um-
hverfisstjómunarfræðingur, 22. ág.
’99.
5. „Staða Islands gagnvart
rammasámningi Sameinuðu þjóð-
anna um loftslagsbreytingar sé þeg-
ar í uppnámi en ríkisstjórnin láti í
veðri vaka að hún stefni að aðild að
Kyótó-bókuninni.“ Hjörleifur Gutt-
ormsson, fv. alþingismaður
6. „Landsvirkjun hefur tapað
tæplega 26 milljörðum króna á
orkusölu til stóriðju frá 1966-1997.“
Þorsteinn Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri, 4. sept. ’99.
7. „Skylt sé að beita varúðar-
reglu Ríó-sáttmálans, en reglan
býður að ef óttast er að iyrirhugað-
ar framkvæmdir eða starfsemi valdi
skaðlegum umhverfisáhrifum skuli
ekki ráðist í þær íýrr en sýnt sé að
svo sé ekki.“ Einar B. Pálsson, próf-
essor.
8. „Skoðanaskipti um bestu nýt-
ingu íslenskra orkulinda verða að
byggjast á bestu tiltækum upplýs-
ingum.“ Jakob Bjömsson, fv. orku-
málastjóri, 7. ág. ’99.
9. „Verkeftú Al-
þingis og ríldsstjóm-
arinnar sé að ná sátt
um leikreglumar sem
lögformlegt umhverf-
ismat kveður á um og
sýna lýðræðislegt
þrek og vilja til að
framfylgja þeim.“
Þómnn Sveinbjamar-
dóttir, alþ.maður.
10. „Hugmynd
Landsvirkjunar um
að stýra matsferlinu á
eigin spýtur sé dæmd
til að mistakast."
Hilmar J. Malmquist,
í stjóm náttúm-
v.samt. íslands, 14. júlí ’99.
11. „Það sé grár leikur að not-
færa sér áhyggjur Austfirðinga af
fólksflokkun í fjórðungnum." Einar
Bragi rithöfundur, 20. júl. ’99.
12. Átta af hverjum tíu (80%)
þjóðarinnar eru mótfallnir virkjun-
arframkvæmdum norðan Vatnajök-
uls og byggingu álvers á Reyðar-
firði. Samkvæmt skoðanakönnun í
ágúst ’99.
Hvemig geta stjómvöld þá
þverskallast við öllum rökum og
keyrt virkjunaráformin áfram af því
offorsi sem nú einkennir fram-
kvæmdina?
Er ekki rétt að staldra aðeins við?
Leiðinlegt væri að 20. aldarinnar
yrði minnst sem aldar íyrirhyggju-
lausrar landníðslu.
Þeir sem fylgst hafa með umræðu
um virkjanaframkvæmdir norðan
Vatnajökuls og hugmyndum um
risaálver á Reyðarfirði hafa smátt
og smátt áttað sig á hve óbilgjamir
og þvergirtir ráðamenn em þegar
kemur að stóriðju tengdri svæðinu.
Áformin skulu keyrð í gegn hvað
Hálendið
Hvers konar Italía, spyr
Páll Steingrímsson, er
Island að verða?
sem tautar og raular. Engin rök em
nógu sterk tU að ástæða þyki til að
stinga við fótum. Hvað kemur tU?
Ekki era það Norðmenn sem knýja
á um að hespa málið af. Látið er í
veðri vaka að nú þegar þeir hafi
nartað í agnið sé lífsnauðsyn að
plata þá tU að kokgleypa, annars sé
eins víst að þeir missi áhugann á Is-
landi og álverinu sem hugsanlega
væri hægt að pranga inn á þá.
Frændur okkar leika þann leik að
áhugi þeirra sé takmarkaður, að
minnsta kosti ekki meiri en svo að
þeir hafa smátt og smátt verið að
draga í land hvað varðar áhættufé í
íýrirtækinu. Síðast þegar tölur vora
nefndar hafði eignarhlutur þeirra í
álverinu rýmað í 15% hlut í bræðsl-
unni sem þeir vUdu svo greiða með
sölu hlutabréfa. Áhættan var nær
ÖU orðin okkar. Bankamir voru þó
tUbúnir til að koma af stað fjár-
mögnunarferli með 200 milljóna
framlagi, en ætluðu síðan að draga
fé út úr framkvæmdinni þar sem
þeir væra ekki langtímafjárfestar í
atvinnulífinu. En þá átti að vera
búið að ganga svo frá hnútum að
skylduspamaður landsmanna, líf-
eyrissjóðimir, væra komnir inn
með framkvæmdafé sem stæði und-
ir milljarðagreiðslunum sem virkj-
animar og álverið kosta.
Hver hagnast á milljarðafram-
kvæmdum Landsvirkjunar? í út-
tekt sem birt var um arðsemi stór-
iðju á síðustu ái'atugum (dags.)
Páll
Steingrímsson
benti forstjórinn á að sex milljarða
hagnaður hefði verið á raforkusölu
tU stóriðju á árunum 1971-1997 og
vitnar í skýrslu dr. Páls Harðarson-
ar. I sömu klausu stendur orðrétt:
„Við þetta megi bæta 85 mUljarða
króna ávinningi annarra aðila þjóð-
félagsins af stóriðju.“
UtUokað er að eigna Lands-
virkjun ávinning annarra aðUa þjóð-
félagsins af stóriðju. Hagnaður
Landsvh’kjunar af raforkusölu tU
stóriðju var á þessum áratugum 6
mUljarðar króna, en eins og ég hef
áður bent á vantar allar tölur um
hverju var tU kostað. Hverjir era
svo þessir aðrh- aðilar þjóðfélagsins
sem haft hafa 85 milljarða ávinning
af stóriðju á sama tíma? Er mögu-
leiki á að þetta séu aðilarnir sem
enga bið þola á að virkjanafram-
kvæmdir hefjist? Er hugsanlegt að
þeir reikni sér 85 miUjarða eða aðra
tölu mun hærri á næstu áram og
hafi þegar lagt nokkuð undir? Era
þetta aðUar í þjóðfélaginu sem tekið
hafa loforð af ráðamönnum um að
hvergi verði hvikað frá áætlunum
um virkjanaframkvæmdir og stór-
iðjuver? Er hugsanlegt að þeir hafi
þau tök á stjómendum Lands-
virkjunar og ráðherrum í ríkis-
stjóm að enginn vilji styggja þá?
Era engin rök nógu sterk tU að telja
ráðamönnum hughvarf? Hafa eig-
endur þungavinnuvéla endanlega
tekið af okkur ráðin?
Getur verið að fyrirsjárskylda og
rökhyggja ráðamanna verði að víkja
fýrir nauðsyn þess að vinnuvélar
stórverktaka fái óhindrað að mylja
land, grafa Súesskurði og hlaða
tröllastíflur, hvaða röskun sem
framkvæmdimar valda? Snýst slag-
urinn kannski aUs ekki um blómlegt
mannlíf á Austfjörðum eða þjóðar-
hag?
Hvað meina alþingismenn og aðr-
ir sem þekkja tU stjórnsýslu, þegar
þeir segja að ríkisstjómin verði að
hafa kjark til að hreyfa virkjana-
málum að nýju og setja fram-
kvæmdirnar í lögformlegt umhverf-
Reyklaus í þína
þágu - einn á dag!
Á HVERJUM degi
deyr Islendingur
vegna reykinga, skv.
upplýsingum frá
Hjartavernd sem
kynntar voru í síð-
asta mánuði. Þetta er
óhugnanleg stað-
reynd og þrátt fyrir
aukna fræðslu virð-
ast reykingar vera að
aukast meðal ungs
fólks. Aukningin
virðist vera meiri hjá
ungum stúlkun en
drengjum um alla
Evrópu og því miður
virðist unga fólkið
ekki gera sér fulla
grein fyrir skaðsemi reykinganna.
Reykingar eru eitt helsta heil-
brigðisvandamálið á Islandi. Þær
Hjartavernd
Reykingar, segir
Rannveig Rist, eru eitt
helsta heilbrigðis-
7
vandamálið á Islandi.
fara illa með fólk en þó virðast
konur viðkvæmari fyrir reyknum
en karlar. T.d. hafa hóprannsókn-
ir Hjartaverndar sýnt að konur
sem reykja meira en einn pakka
af sígarettum á dag sjöfalda lík-
urnar á að deyja úr hjarta- og
æðasjúkdómum, miðað við þær
sem ekki reykja.
Okkur ber að draga úr reyking-
um með öllum tiltækum ráðum og
til þess þurfum við að taka hönd-
um saman. Víða í landinu er unnið
gott starf en betur má ef duga
skal. Samtökin Hjartavernd
standa fyrir hóprannsóknum á
sviði hjarta- og æða-
sjúkdóma og með
þeim er hægt að
finna helstu áhættu-
þætti hjarta- og æða-
sjúkdóma. Þannig
gefst tækifæri til
markvissari fræðslu
og forvarna sem nýt-
ast í baráttunni gegn
reykingum.
Allir vita að reyk-
ingar eru skaðlegar
heilsu fólks. Því er
öllum skylt að leggja
sitt af mörkum, ýmist
á sínu eigin heimili
eða vinnustað. Sum-
um reykingamönnum
þykir reyndar nóg um og telja sig
jafnvel ofsótta, en rannsóknir á
skaðsemi beinna og ekki síður
óbeinna reykinga réttlæta þær
aðgerðir sem gripið hefur verið til
svo draga megi úr reykingum. Is-
lenska álfélagið hf. er meðal
þeirra fyrirtækja sem lagt hafa
ríka áherslu á að draga úr reyk-
ingum og stefnt er að því að ISAL
verði reyklaus vinnustaður árið
2000.
En þótt fyrirtækin í landinu
geti stuðlað að minni reykingum
meðal starfsmanna er starf stórra
og smárra félagasamtaka ómetan-
legt. Slíkt starf er háð stuðningi
fyrirtækja og einstaklinga. Happ-
drætti Hjartaverndar er eina
skipulagða fjársöfnun samtak-
anna og með þátttöku þinni í
happdrættinu styrkir þú hjarta-
rannsóknir og fræðslu um
áhættuþætti hjarta- og æðasjúk-
dóma. Eg skora á alla landsmenn,
reykingafólk og aðra, að taka þátt
í happdrætti Hjartaverndar. Það
er í þágu okkar allra.
Höfundur er forstjóri ISAL.
Rannveig
Rist
ESTEE LAUDER
KYNNIR
Pure Color
naglalakk
Hreinir litir.
Hreinar línur.
Hreint frábært
Vertu velkomin
og kynntu þér nýju litina.
Ráðgjafi frá Estée Lauder
verður í Lyfju, Lágmúla, í dag,
miðvikud. kl. 13-18,
á fimmtud. í Lyfju Hamraborg,
kl. 13-18, og á föstudaginn
í Lyfju, Setbergi, kl. 13-18.
Nýja naglalakkið,
„Pure Color",
frá Estée Lauder,
stendur undir
öllum væntingum þínum.
Fæst í 20 freistandi
litum, í flösku sem er
hreint listaverk.
M
B LYFJA
ismat? Kjark? Kjark til hvers? Að
endurmeta afstöðu sína? Era ein-
hverjfr aðilar í þjóðfélaginu sem
móta stefhu ríkisstjómarinnar
þannig að hún þori ekki að fara £
berhögg við hagsmum þeirra?
Hvers konar Italía er Island að
verða?
Hvað átti iðnaðarráðherra við
þegar hann var spurður að því hvort
Axarfjarðarholan, sem að öllum lík-
indum gæfi um 80% af þeirri orku
sem væntanlegt uppistöðulón á
Eyjabökkum skilaði, væri ekki
fundin lausn á orkuvanda Reyðar-
fjarðarálvers. Hann svaraði stutt að
það kæmi ekki til mála. Mundi hann
ekki gefa sama svar þó að hitaorka
(jarðhiti) hefði fundist í granni fyr-
irhugaðs álvers?
Það era litlir hugsjónamenn sem
leiða okkur inn í nýtt árþúsund með
föstum ásetningi um að eyða land-
inu, landi sem okkur er öllum trúað
iýrfr og sameinai' okkur sem þjóð.
Höfundur er kvikinynda-
gerðarmaður.
til útlaada
-auövelt dö mund
SÍMINN
www.simi.is
Hvaðer
GLUIHATHIONE
o
■
Þaðer Ld. ein af megin
undirstöðum í virkni
ónæmiskerfisins.
Aðeins frumur líkamarts
framleiða náttúrulegt
GLLTTHATHIONE
Immunocal
hehjr náð að auka magn
GLUIHÆTHIONE
í frumunum og efla
á náttúrulegan hátti
Immunocal inniheldun
Enangrað mjólkurprótein - 90%*
kalk - 6% og jám-4%
* Samskonar og er í móðurmjólkinni
Sölu- og þjónustuaðili:
Vis Vitalis ehf.
Po. Box 121 210 Garðabæ
S. 565 5878 Fax 565 5879
visvitalis@simnet.is
’jÍs