Morgunblaðið - 20.10.1999, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999
é. ................
MORGUNBLAÐIÐ
SJONMENNTAVETTVANGUR
Það voru fleiri en van Gogh sem máluðu sdlliljur af stakri snilld og hér hefur Anthony van Dyck málað sjálfan sig fyrir framan
eina. Horfir um leið spurulum augum út úr myndinni, beint á skoðandann, og bendir með vísifingri á þetta fagra sköpunarverk
náttúrunnar. Myndin var eins konar kennimark sýningarinnar í London og birtist á veggspjöldum, eftirprentunum,
kynningarbæklingum, burðarpokum o.fl. Van Dyck var undrabarn sem fékk inngöngu í listaháskóla 12 ára að aldri og var
nemandi á verkstæði Peter Paul Rubens. Royal Academy of Art til 10. desember.
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
I Berlín var allt á suðupotti er mig bar að, nýopnaðar
voru þrjár viðamiklar sýningar á þýskri list í hundrað
ár. Þrjár minni til viðbótar voru opnaðar 30. septem-
ber, ásamt því að og sjöundi frammngurinn er að
mönnum býðst bílferð og leiðsögn um alla borgina þar
sem á dagskrá er að kynna það helsta í byggingarlist
borgarinnar á tímabilinu, kannski einnig frá upphafi.
Framkvæmdirnar standa til 9. janúar árið 2000. Þessi
undarlega kona var eitt hið fyrsta er ég rakst á við
formlega setningu Iistakaupstefnunnar, Art Forum, á
hinu risastóra kaupstefnusvæði, Messegelande Berlin.
Stóð Iangt fram á kvöld daginn fyrir almcnnu opnun-
ina 30. september.
Listaflakk
ÞAÐ hefur trauðla farið framhjá les-
endum menningarsíðunnar, að mikið
hefur verið um að vera á vettvangi
heimslistarinnar á þessu ári
margræðra hvarfa í sögunni. Austan
hafs og vestan eru menn að rýna í og
skilgreina þróun myndlistar aldar-
innar, og í Antwerpen og London
minnast menn þess að 400 ár eru lið-
in frá fæðingu hins mikla en skamm-
lífa málara Antony van Dyck
(Antwerpen 1599, London 1641), og í
París að 300 ár eru frá fæðingu Je-
an-Baptiste Siméon Chardin (París
1699, París 1779). Þá er víst óþarft
að nefna, að 250 ár eru frá fæðingu
Goethe, sem varði 40 árum lífs síns í
rannsóknir á Iitakerfmu og var sann-
færður um að niðurstöðurnar væru
mesta afrek lífs síns. Undanfarið
hefur rýnirinn verið víða á vettvangi
og hermir á næstunni í greinarflokki
af því helsta sem fyrir augu bar.
Þótti rýninum rétt að kynna strax
sitthvað af því í máli og myndum.
Viðburðir sem enn eru í gangi fara
þá væntanlega síður framhjá þeim
sem hugsanlega eiga leið á þessar
slóðir og lesendur vita hvað bíður
þeirra.
Bragi Ásgeirsson
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
’ Mikið var um að vera í nýju húsnæði FIAC listakaupstefnunnar í París
á nýja kaupstefnusvæði borgarinnar við Versailles-neðanjarðarstöð-
ina. Jafnvel þótt kaupstefnan hafi ekki verið jafn miðsvæðis og áður
var stöðugur straumur fólks á hana. Aldurforseti Iisthúseigenda
Parísarborgar, sjálf Denise Réne, var að venju mætt til leiks og var
deild hennar ekki síður glæsileg en í fyrra, enginn getur vænt hana
um að fylgja ekki tímanum því í nágrenni hennar verður aldurinn af-
stæður. Hér er hún á tali við einn af ásum sínum til lengri tíma, hinn
snjalla Yaacov Agam.
I Þjóðlistasafninu í Brussel beið mín stærsta yfirlitssýning á lífsverki þess mikla málara James Ensor
(1860-1949) sem haldin hefur verið í Belgíu, en hann ásamt Edvard Munch og Ferdinand Hodler eru iðulega
nefndir helstir brautryðjendur úthverfa innæisins, expressjónismans. Eyddi þar dagstund í miklu mannhafi og
leit aðeins inn í aðrar deildir, en safnið er mjög gott, einkum er afar vel og hugvitsamlega búið að samtímalist.
Ljósmynd/Bragi Ásgeirsson
Eins og fram hefur
komið í fréttum, voru 10
stórar svart- hvítar
Ijósmyndir Maríu
Guðmundsdóttur settar
upp í gangi aðalstöðva
UNESCO í París. í
tengslum við sýninguna
sem lauk 6. október var
kynnt ný og afar
vönduð bók með
Islandsmyndum hennar.
Hér er María við
formlega opnun
sýningarinnar sem
Sigríður Snævarr
sendiherra bauð til, í
hópi fleiri aðsópsmikilla
valkyrja og liafgúa,
þeirra Lindu
Pétursdóttur, Brypju
Nordquist og Vigdísi
Grímsdóttur.