Morgunblaðið - 20.10.1999, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 20.10.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1999 45 + EIías Jóhann Leósson fæddist í Reykjavík 23. nóv- ember 1946. Hann lést á heimili tví- burabróður síns í Reykjavík 12. októ- ber síðastliðinn. Foreldrar hans voru Gíslína J. Jóns- dóttir, f. 5. septem- ber 1925, og Leó St- anley Petosky, f. 27. júní 1922, d. 4. októ- ber 1989. Elías ólst upp ásamt Jóni bróður sínum, hjá afa sínum Jóni Gíslasyni og ömmu sinni Karen Maríu Jónsdóttur á Hverfis- götu lOla í Reykjavík. Þau eru bæði látin. Þeir áttu sitt annað heimili hjá móður sinni og fóst- urföður, Hilmari B. Guðmunds- syni. Systkini Elíasar eru: Jón Karel, f. 23.11. 1946; Regína, f. 16.12. 1949; María, f. 15.6. 1951; Sigríður, f. 13.10, 1952; Fjóla, f. 10.6. 1957, og Asta, f. 20.7. 1959. Elsku pabbi. Mér líður eins og ég lifi í draumi og langar ekki til að vakna. Lífið er einkennilegt en ég verð að reyna að sætta mig við hvernig það er og reyna að trúa því að þetta sé vilji Guðs og þótt að til- vera þín á jörðinni sé á enda ertu núna á betri stað þar sem þér líður vel. Sárast þótti mér að hafa ekki getað kvatt þig áður en þú fórst frá mér, þar sem þetta gerðist svo skyndilega, og gefið þér gott vega- nesti eins og þú gafst mér oft. Þú áttir marga góða vini og í bænum mínum þakka ég sérstaklega Gulla vini þínum fyrir að sjá til þess að þú varst ekki einn þessa örlaganótt heldur í faðmi Nonna frænda sem hefur styrkt mig mikið á þessum erfiðu tímum. Ég vissi að þú værir veikur en ekki svona mikið veikur, þess vegna tók ég undir það þegar þú varst að grínast með veikindin, en þannig varstu alltaf, slóst öllu upp í grín og komst öllum til að hlæja. Ég hélt að fyrsti dagurinn eftir andlát þitt væri sá erfiðasti en dag- arnir verða þyngri og þyngri eftir sem á líður en sterk og góð fjöl- skylda og góðir vinir hjálpa mér í sorginni. Þú varst mér meira en góður faðir, þú varst minn trúnaðar- vinur og við sögðum hvor öðrum allt bæði góða hluti sem og slæma. Þú munt alltaf eiga ákveðinn stað í hjarta mínu og ég mun aldrei gleyma þér. Astarkveðjur. Þinn sonur, Bragi. Elsku Elli frændi. Við sitjum hér systkinin og hugsum til baka. Marg- ar minningar og ánægjustundir koma þá upp í hugann og erum við þér mjög þakklát fyrir þær. Þú varst ætíð glaður með bros á vör og er erfitt að þurfa að sætta sig við að eiga ekki eftir að njóta þess oftar. Það er erfitt að kveðja og vita það að þú átt ekki eftir að koma í næsta af- mæli, faðma okkur, kyssa og segja: „Sæll frændi,“ eða „Sæl frænka,“ eins og þér var einum lagið. Við munum alltaf muna hvernig þú breyttir röddinni þegar þú talaðir við okkur systkinin, það kom upp lít- ið glettnisbros og þar á eftir hugljúf- ar spurningar beint frá hjartanu. Spurningar sem gáfu það í skyn að þig langaði til að hlusta og fá að vita hvað við værum nú að bardúsa þessa dagana. Þú vildir vera viss um að við hefðum það gott. Þú hafðir alltaf góða skapið meðferðis og varst alltaf tilbúinn til að hlusta enda var mjög gott að tala við þig því þú hafðir alltaf eitthvað gott að segja. Þú varst alltaf góður við okkur systkin- in, eins og alla aðra, og ef það var einhver sem fékk okkur til að líða vel þá varst það þú. Þú lagðir ætíð mikið upp úr því að við vissum að það væri einhver sem Árið 1970 kvænt- ist Elías Maríu Guð- rúnu Finnsdóttur. Börn þeirra eru: El- ías Gísli, f. 1.7. 1967, og Karen Jó- hanna, f. 26.5. 1969. María og Elías skildu. Árið 1974 hófElí- as sambúð með Est- er E. Isieifsdóttur. Þeirra börn eru: Bragi Valur, f. 22.2. 1979; Iris Eyíjörð, f. 13.4. 1983; og Jó- hanna Ýr, f. 15.6. 1987. Ester og Elías slitu sam- vistir. Elías byrjaði ungur að vinna við hin ýmsu verkamannastörf. Hann starfrækti siðan sitt eigið hreingerningafyrirtæki um margra ára skeið. Siðustu árin rak hann sína cigin verslun í Kolaportinu og var jafnhliða starfsmaður þess. títför Eh'asar fer fram frá Fossvogskrikju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. vakir yfir okkur, einhver sem heldur yfir okkur vemdarhendi og trúum við að þú hafir tekið við því hlut- verki. Éfst í huga okkar eru þó Jesúmyndirnar er við fengum frá þér. Við höfum hvert og eitt eina fal- lega mynd yfir rúminu sem leiðir okkur inn í nóttina og vaknar með okkur á morgnana. Munu þessar myndir ætíð vera okkur hin fegursta minning um þig, elsku frændi, vegna þess að þær lýsa þér að svo miklu leyti, því góðsemi, hlýja og um- hyggja voru þín kjörorð. En þú varst einnig mjög stríðinn. Alveg sama hvort það var elsti fjölskyldu- meðlimurinn eða sá yngsti, þér þótti alltaf gaman að stríða smávegis og koma öðrum til að hlæja. Hefur hún Linda Björk ort til þín ljóð og hljóðar það svo: Hann var góður vinur og frændi. Hann sagði alltaf eitthvað gott. Nú er hann uppi, uppi hjá Guði ogvakiralitafyfirmér. Hann gaf mér eitt sinn Jesúmynd sem er mér voða kær. Svona var hann góður vinur hann Elii frændi minn. Elsku Elli frændi, okkur þykir, þótti og mun alltaf þykja alveg óendanlega vænt um þig. Þín er sárt saknað. Kær kveðja, Þín Elva Björg, Siguijón, Linda Björk og Ama Karen. Vinur þinn er þér allt Hann er akur sálarinnar, þar sem samúð þinni er sáð og gleði þín uppskorin. Hann er brauð þitt og arineldur. Þú kemur til hans svangur og í leit að friði. Þriðjudaginn 12. þessa mánaðar hringdi síminn og Nonni, tvíbura- bróðir Ella, sagði mér að Elli væri dáinn. Hann bað mig um að koma til sín, sem ég og gerði. Kvöldið áður keyrði ég Ella á Borgarspítalann því þá var honum svo illt í hægra fæti og var búinn fyrr um kvöldið að finna fyrir óþægindum, svita og ógleði. Ég spurði lækninn hvað hann héldi að væri að. Hann sagði þetta vera þursabit, en eitthvað var það annað. Ég kynntist Ella blessuðum fyrir átta til níu árum þegar ég byrjaði að selja í Kolaportinu og betur kynntist ég honum þegar hann var farinn að heimsækja mig, fyrst á Klapparstíg og þar sem ég átti heima síðar. Okk- ur varð vel til vina og kom hann nán- ast á hverju kvöidi að heimsækja mig. Ef ég var ekki heima beið hann í bílnum eftir að ég kæmi, til að fá kaffisopann sinn. Oft var hann hjá mér um jól, páska og aðra frídaga. Það verður sárt að hafa þig ekki um jól og áramót, Elli minn, við sem ætluðum að vera uppi á Öskjuhlíð um næstu áramót, en þú kemur með mér í huganum. Það var gott að biðja Ella bónar, því alltaf var hann tilbúinn, hvort sem það var að flytja eða annað. Það er höggvið stórt skarð í mitt líf eftir fráfall þitt, því mér þótti afskaplega vænt um þig, Elli minn, og ég mun sakna þín mikið, þú varst svo góður drengur. Hafðu þökk fyrir allt. Nonni minn, böm Ella og aðrir aðstandendur, ég votta ykkur öllum samúð mína. Megi algóður guð gefa ykkur kjark og blessun. Þinn vinur Gunnlaugur. Der Mensch denkt aber Gott lenkt. (Maðurinn hugsar (ráðgerir) en Guð stjórnar.) Þessi þýszki málsháttur kom mér í hug þegar eg heyrði lát vinar míns Elíasar, eða Ella, auglýst í útvarp- inu. Það er eigi langt um liðið frá því að hann sagði mér frá því áformi sínu, að skreppa vestur á Snæfells- nes, og að sumri hafði hann í huga að fara út á land. Laugardaginn 9. október hitti eg hann eins og oft áður í Kolaportinu, þá sagðist hann ætla að heimsækja mig á miðvikudaginn. Eg var að fara út á land næsta dag en bjóst við að koma heim aftur á þriðjudag eða miðvikudag, og bað hann þess vegna að hringja til mín, svona í öryggis- skyni áður. Eg kom í bæinn á þriðjudags- kvöldið og bjóst við hringingu frá honum á miðvikudag eða þá á fimmtudag. Miðvikudagur og fimmtudagur liðu án þess að eg frétti nokkuð. Þá lætur hann heyra frá sér á föstudaginn, hugsaði eg. Svo kom hin óvænta frétt á laug- ardaginn. Ekki hafði mér til hugar komið, og allra sízt, að Elías, eða Elli, yrði á undan - þannig er nú það - stundum. „Der Mensch denkt, aber Gott lenkt.“ Maðurinn áformar (hugsar), en Guð stýrir (stjórnar). Elías sagði mér frá ýmislegu áhugaverðu og skemmtilegu, sem hann um ævina hefði reynt. Eg hafði það svo sem í huga, eða á bak við eyrað, eins og komist er að orði stundum, að skrá þetta allt niður, áður en af því gæti orðið, þurfti og eg helzt að ljúka ýmsu öðru, en eg hlakkaði hinsvegar til verksins. Maðurinn hugsar, en Guð stjórnar, og við stjórn hans verður maðurinn að sætta sig og fyrir stjórn hans að beygja sig, hvað sem annars tautar og raular. Hugur reikar til liðins tíma, og myndir minninganna streyma fram. Eg kynntist Elíasi fyrst í Kola- portinu gamla - og hinu eiginlega Kolaporti - árið 1992, að mig minn- ir, eða um það leyti - starfaði þá á sumrin sem stöðuvörður. Kunn- ingsskapur okkar varð svo smátt og smátt meiri og mér tókst að fá Elí- as til þess að ganga inn í Góðtempl- araregluna, en hann gekk inn í stúkuna Framtíðina nr. 173, og þar var hann félagi til hinzta dags. Og nú kveðja Framtíðarfélagar hann með söknuð í huga, og votta um leið syrgjendum, ástvinum hans samúð sína. Eftir situr í huganum tómleiki, angurværð, eins og ávallt, þegar vinur er horfinn á braut, kvaddur heim. Stundum spyr maður sjálfan sig, getur eigi að því gjört, hvers vegna góðir drengir þurfi að verða í brautu kallaðir, einmitt á hátindi ævinnar, en það er nú einu sinni þannig, og sem betur fer, að enginn veit lengd síns lífstíma. Óvænt er nú einum vininum færra orðið, og farin áform- in fýsilegu. Þannig er það, Der Mensch denkt, aber Gott lenkt, mennimir (maðurinn) ráðskast, en Guð ræður. Eg votta hinum syrgjandi ætt- ingjum samúð mína, og er þakklátur fyrir minningar um góðan dreng. Björn G. Eiríksson. Elías Jóhann Leósson, eða Elli eins og vinfr og samstarfsfélagar í Kolaportinu kölluðu hann, var ávallt mikill merkisberi Kolaportsins og hefur selt þar notaða muni frá upp- hafi. Þau fáu skipti sem hann tók frí síðustu tíu árin var vegna veikinda. Kolaportið var hans annað heimili og fyrir utan að selja sína vöru sá hann um þrif í Kolaportinu að hluta fyrstu árin og að öllu leyti frá því að Kola- portið fluttist í Tollhúsið. Hann var því allt í senn seljandi, samstarfsfé- lagi og vinur okkar í Kolaportinu. Það sem hefur ekki hvað síst skapað Kolaportinu sérstöðu er sala á notuðum munum og þar hefur Elli frá upphafi, eða í tíu ár, lagt línuna með sínum sérstaka sölubás. Það var alltaf gaman að koma í básinn hans Ella og það verður að segja að þessi skrautlegi sölubás hans átti engan sinn líka. Það er ótrúlegur fjöldi fólks sem hefur heimsótt bás- inn hans og skiptir sá fjöldi sjálfsagt þúsundum. Þær eru margar skemmtilegar sögurnar sem við minnumst og gam- an er að eiga eftir þennan Ijúfa dreng. Sem dæmi má nefna klukk- una góðu sem vantaði í kólfinn og þegar viðskiptavinur spurði hvort þetta ætti að vera svona svaraði Elli því til að þetta væri klukka fyrir heyrnarlausa. Það var alltaf stutt í húmorinn og brosið hjá Ella vini okk- ar og nágrannar hans í Kolaportinu nutu þess að hafa þennan brosmilda og þægilega félaga nálægt sér. Alla laugardagsmorgna fór Elli sína hefðbundnu skoðunarferð um Kolaportið með kaffikönnuna í hendinni. Oft gerðum við grín að því að rekja mætti morgungöngu þessa vinar okkar á kaffiblettunum sem slettust upp úr könnunni. Við eigum líka eftir að sakna Ella í morgun- kaffinu þar sem í gegnum árin hefur verið spjallað um heimsins gagn og gaman. Elli vinur okkar mun lifa áfram sem einn af þeim sem tóku þátt í gera Kolaportið að veruleika. Við sem erum í Kolaportinu og höf- um notið þess að fá að kynnast Ella, kveðjum þennan vin okkar og þökk- um fyrir ánægjuleg kynni og vottum aðstandendum hans samúð. F.h. vina og samstarfsfélaga í Kolaportinu Guðmundur G. Kristinsson. • Fleirí miimingargremar um Elías Jóhann Leósson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÓLAFÍA STEFÁNSDÓTTIR frá Grund, lést á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi að morgni mánudagsins 11. október. Jarðarförin fer fram frá Staðarhólskirkju í Saurbæ föstudaginn 22. október kl. 14.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, LILJA JÓNSDÓTTIR frá Flateyri, síðast til heimilis á hjúkrunarheimilinu Skjóli, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 21. október kl. 13.30. Jón Eyjólfsson, Guðrún Indriðadóttir, Eyjólfur Jónsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir, INGVI KARL INGVASON, lést á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar fimmtudaginn 7. október. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir til starfsfólks Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og Sjúkrahúss Reykjavíkur. Helga Halldórsdóttir, börn og systkini hins látna. t Alúðarþakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HARALDAR HERMANNSSONAR rafvirkjameistara, Fellsmúla 10, Reykjavík. Innilegar þakkir til starfsfólks taugalækningadeildar Landspítalans. Pálína Kjartansdóttir, Halldóra Haraldsdóttir, Ingólfur Arnarson, Sigrún Haraldsdóttir, Jón Ástvaldsson, Bergþóra Haraldsdóttir, Guðmundur Ómar Þráinsson, Herdis Haraldsdóttir, Björn Hjálmarsson, Kjartan Haraldsson, Sigríður E. Magnúsdóttir og afabörn. ELÍAS JÓHANN LEÓSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.