Morgunblaðið - 13.11.1999, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Rekstraraðilar í miðbænum hafa miklar áhyggjur af áhrifum frá
nýrri verslunarmiðstöð á Gleráreyrum
Mun alvarlegra mál
en margir halda
REKSTRARAÐILAR í miðbænum á Akur-
eyri hafa af því miklar áhyggjur að ný versl-
unarmiðstöð á Gleráreyrum, sem KEA og
Rúmfatalagerinn hyggjast reisa þar, komi til
með að hafa mikil áhrif á starfsemina í mið-
bænum. „Við höfum ekkert út á verslunarmið-
stöðina að setja en við teljum að með því að
staðsetja hana þarna slitni tengslin við mið-
bæinn. Og þetta mál er mun alvarlegra en
margir halda,“ sagði Ingþór Ásgeirsson, for-
maður Miðbæjarsamtakanna, í samtali við
Morgunblaðið.
Auk þess sem KEA og Rúmfatalagerinn
verða með sínar verslanir í verslunarmiðstöð-
inni á Gleráreyrum er þar gert ráð fyrir fjölda
sérverslana. Ingþór sagði það ekkert laun-
ungarmál að verslunareigendur í miðbænum
eru að kanna þann möguleika að flytja starf-
semi sína þangað. Hann sagði þó að innan
Miðbæjarsamtakanna væri engan bilbug að
finna og að þar á bæ væri verið að leita ýmissa
leiða til þess að efla miðbæinn. Hann sagði
stefnt að því að finna fjárfesta til að setja upp
matvörumarkað í miðbænum og einnig yrði
allt kapp lagt á að fá göngugötuna í Hafnar-
stræti opnaða fyrir bílaumferð.
Marglr munu fiytja úr miðbænum
Fulltrúar Miðbæjarsamtakanna mættu á
fund bæjarráðs í vikunni og ræddu m.a. mál-
efni miðbæjarins. „Við gerðum athugasemdir
við staðsetningu verslunarmiðstöðvarinnar á
fundi bæjarráðs, þar sem við teljum ekki þörf
á að fjölga verslunarsvæðum í bænum. Pau
eru fjölmörg fyrir og mjög dreifð og við telj-
um að þar sem verið er að tala um að byggja
upp miðbæinn, væri nær að tengja þessa
verslunarmiðstöð við hann. Mér skildist á
bæjarráði að það væri búið að taka þessa
ákvörðun og að henni yrði ekki breytt nema
beiðni um slíkt kæmi frá KEA.“
Ingþór sagði að aðilar í miðbænum hafi litið
til þess að hægt yrði að samnýta ýmsa hluti
með nýrri verslunarmiðstöð, bílastæði og
fleira. Hann sagði jafnframt að samkvæmt
deiliskipulagi miðbæjarins væri gert ráð fyrir
fjölgun verslunarrýma. „Það er hins vegar
stór spuming hvort það er fysilegur kostur
fyrir aðila að fjárfesta í miðbænum eftir að
búið verður að byggja verslunarmiðstöð á
Gleráreyrum með einhveijum 20 einingum.
Þá er deginum ljósara að margir aðilar í mið-
bænum munu hafa hug á því að flytja sig til og
leita þá í þessa verslunarmiðstöð."
Kunningsskapur í skipulagsmálum
Ingþór sagði að þeir bresku sérfræðingar
sem voru á ferð um síðustu helgi og ræddu
skipulag og uppbyggingu miðborga, hefðu tal-
að skýrt um það að bæjaryfirvöld ættu að
segja til um hvar svona starfsemi er staðsett.
„Það á samt ekki að vera þannig að bæjarfull-
trúar sem kjömir eru til fjögurra ára í senn
ákveði það sitt á hvað, bara eftir óskum vina
og kunningja, hvemig þessum málum er hátt-
að. En það er of mikið um það að kunnings-
skapur ráði ferðinni í skipulagsmálum.“
Ingþór sagði að kringum fyrirhugaða
verslunarmiðstöð á Gleráreymm væri mikið
af iðnaðarhúsnæði, þar sem rekin væra verk-
stæði og fleira í dag. „Þar sem þetta er ódýrt
húsnæði mun það gerast sjálfkrafa að versl-
anir munu leita inn á þetta svæði með sinn
rekstur og af því höfum við einnig stórar
áhyggjur. Þetta er þróun sem gerist sjálf-
krafa og við höfum dæmi um það hvemig iðn-
aðarsvæði breyttust í verslunarsvæði, bæði í
Hafnarfirði og í Skeifunni í Reykjavík þar
Formaður Miðbæjar-
samtakanna gerði at-
hugasemdir við stað-
setninguna í bæjarráði
sem Hagkaup opnaði matvöramarkað á sínum
tíma.“
Ekki hægj að selja eða leigja fasteignir
Sem fyrr sagði eru Miðbæjarsamtökin að
leita ýmissa leiða til eflingar miðbæjarins. Ing-
þór sagði þó alveg ljóst að samtökin gætu ekki
ein og sér haldið utan um slíkt og að bærinn
þyrfti að koma að því máli. „Við leggjum m.a.
mikla áherslu á að farið verði í að kynna
Skátafélagið Klakkur
Árleg jólavöru-
sala að hefjast
ÁRLEG jólavörusala Skátafélagsins Klakks
verður dagana 15., 16. og 17. nóvember nk. Að
venju innihalda pakkarnir jólapappír, merki-
miða, límband og gjafaborða.
Þetta er ein af mikilvægustu fjáröflunarleið-
um félagsins og vona skátamir að bæjarbúar
taki vel á móti sölufólkinu eins og reynsla und-
anfarina ára hefur verið. Á mánudagskvöld
verður bankað uppá hjá íbúum Glerárþorps, á
þriðjudagskvöld á efri Brekkunni og á mið-
vikudagskvöld á Oddeyri, Innbænum og neðri
Brekkunni.
Muna- og kökubasar
KVENFÉLAGIÐ Baldursbrá heldur árlegan
muna- og kökubasar í safnaðarsal Glerár-
kirkju á morgun, sunnudaginn 14. nóvember,
kl. 15.00.
Á basamum era margir fallegir munir sem
konumar í Baldursbrá og styrktarfélagar hafa
unnið undanfamar vikur. Allur ágóði rennur í
steindan glugga í kirkjuna.
deiliskipulag miðbæjarins, þar sem gert er ráð
fyrir fleiri verslunarrýmum og fjölgun íbúða.
Við munum jafnframt sækja það fast að umferð
verði hleypt í gegnum göngugötuna. Gangi það
eftir mun umhverfið í Hafnarstræti breytast en
þar era laus verslunarpláss sem ekki hefur ver-
ið hægt að selja eða leigja út. Og það er ekki
einu sinni hægt að tala um fasteignaverð í mið-
bænum, því þar seljast engar eignir.“
Ingþór nefndi nokkur svæði sem heppilegri
væra fyrir verslunarmiðstöð, Akureyrarvöll-
inn, svæðið sunnan Bautans, neðan Samkomu-
hússins og bflastæðið við Skipagötu en þar
væri hægt að vera með bflastæði bæði í kjall-
ara og á þaki verslunarmiðstöðvar. „Það er að
vísu dýr leið en framkvæmanleg og staðsetn-
ingin yrði á besta stað bæjarins og hefði mikið
aðdráttarafl.11
Nýtt íbúðarhús risið í
Grímsey
Skortur á
íbúðarhúsnæði
í eyjunni
Grímsey. Morgunblaðið.
NÝTT íbúðarhús hefúr verið reist í
Grímsey en þau lijónin Magnús Bjarnason
og Anna María Sigvaldadóttir bráðvant-
aði húsnæði í haust. Sökum skorts á hús-
næði hér í eyjunni var eina ráðið fyrir þau
að byggja og fluttu þau inn norskt timb-
urhús.
Húsið kom til eyjarinnar í september en
sökum skorts á smiðum var ekki hægt að
reisa það fyrr en í vikunni sem leið og
mættu hingað þrír smiðir frá Reykjavík.
Húsið er smiðað á staðnum og fylgir allt
timbur húsinu. Þau hjónakorn vonast til
að geta fiutt inn fyrir aldamót. Þess má
geta að síðast var reist hér hús árið 1988
og árið 1991 var flutt hingað tilbúið heils-
árs sumarhús.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Sunnudagur 14.
nóvember, kristniboðsdagurinn. Sunnu-
dagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14, Guðlaugur Gunnarsson
kristniboði predikar, altarisganga. Tekið við
framlögum til kristniboðsins. Kaffisala
Kristniboðsfélags kvenna í félagsheimili
KFUM og K í Sunnuhlíð eftir guðsþjónust-
una. Fundur í Æskulýðsfélagi Akureyrar-
kirkju í kapellu kl. 17. Mánudagur 15. nóv-
ember, biblíulestur í Safnaðarheimilinu kl.
20 í umsjá sr. Guðmundar Guðmundssonar.
Allir velkomnir. Þriðjudagur 16. nóvember,
morgunsöngur í Akureyrarkirkju kl. 9 -
mömmumorgunn í Safnaðarheimili kl.
10-12. Frjálst, kaffi, safi og spjall - allir
verðandi og núverandi foreldrar velkomnir.
GLERÁRKIRKJA: Sunnudagur 14. nóv-
ember - kristniboðsdagurinn, barnasam-
vera og guðsþjónusta kl. 11, sameiginlegt
upphaf. Foreldrar eru hvattir til að mæta
með bömunum. Fundur Æskulýðsfélagsins
verður kl. 18. Þriðjudagur 16. nóvember,
kyrrðar- og tilbeiðslustund verður í kirkj-
unni kl. 18.10. Miðvikudagur 17. nóvember,
hádegissamverður í kirkjunni frá kl. 12-13,
orgelleikur, fyrirbænir, altarissakramenti
og léttur málsverður í safnaðarsal á vægu
verði. Opið hús fyrir mæður og börn alla
fimmtudaga frá kl. 10-12.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudaga-
skóli kl. 11 á morgun, sunnudag, bænastund
kl. 16.30, almenn samkoma kl. 17 og ung-
lingasamkoma kl. 20. Heimilasamband á
mánudag kl. 15, hjálparflokkur fyrir konur
á miðvikudag kl. 20. Krakkaklúbbur fyrir
6-10 ára kl. 17.30 á fimmtudag, 11 plús mín-
us fyrir 11—12 ára á föstudag. Flóamarkað-
ur á föstudögum frá kl. 10 til 18.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bænastund
og brauðsbrotning laugardaginn 13. nóvem-
ber kl. 20. Sunnudagur 14. nóvember,
sunnudagaskóli fjölskyldunnar, kennsla fyr-
ir alla aldurshópa. G. Theodór Birgisson
verður með biblíukennslu um bænina. Sama
dag kl. 16.30 verður vakningasamkoma,
Salmína Ingimarsdóttir predikar. Fyrir-
bænaþjónusta, bamapössun. Föstudaginn
19. nóvember, gospelkvöld unga fólksins.
Bænastundir alla morgna kl. 6.30 - allir
hjartanlega velkomnir.
HRÍSEYJARPRESTAKALL: Sunnu-
dagaskóli í Stærri-Arskógskirkju sunnudag-
inn 14. nóvember kl. 11, barnakórsæíing kl.
11.50 og guðsþjónusta kl. 14. Æskulýðsfund-
ur á mánudagskvöld kl. 19.35 í Árskógar-
skóla. Hríseyjarkirkja, sunnudagaskóli kl. 11.
Æskulýðsfundur á þriðjudag kl. 17.30 í Öldu.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa kl. 18 í
dag, laugardag og kl. 11 á morgun, sunnu-
dag í kirkjunni við Eyrarlandsveg 26.
LAUGALANDSPRESTAKALL: Fjöl-
skylduguðsþjónusta með sunnudagaskólaí-
vafi í Möðruvallakirkju sunnudaginn 14.
nóvember kl. 11. Skúli Torfason leiðir í leik
og söng. Sama dag kl. 13.30 verður og fjöl-
skylduguðsþjónusta í Kaupangskirkju þar
sem væntanleg fermingarbörn taka þátt. Á
eftir fundar sóknarprestur með foreldrum
fermingarbama og hann vonar að sem flest-
ir sjái sér fært að mæta.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli í Lund-
arskóla kl. 13.30 sunnudaginn 14. nóvember.
Allir krakkar velkomnir. Almenn samkoma
á Sjónarhæð kl. 17 - allir velkomnir. Bama-
fundur kl. 18 mánudaginn 15. nóvember -
allir krakkar velkomnir, sérstaklega Ástirn-
ingar.
KFUM OG K: Kristniboðssamkoma laugar-
daginn 13. nóvember kl. 20.30 í Sunnuhlíð.
Guðlaugur Gunnarsson kristniboði talar og
sýnir nýjar myndir frá Eþíópíu. Samskot til
kristniboðsins, allir velkomnir. Sunnudagur
14. nóvember - kristniboðsdagurinn, kaffi-
sala Kristniboðsfélags kvenna kl. 15 til
ágóða fyrir kristniboðið, verið velkomin.
Þriðjudagur 16. nóvember, fundur í yngri
deildum KFUM og K kl. 17.30 fyrir drengi
og stúlkur 8-12 ára.
AGLOW-FUNDUR: Það verður Aglow-
fundur mánudagskvöldið 15. nóvember kl.
20, í félagsmiðstöð aldraðra, Viðilundi 22 á
Akureyri. Katrín Þorsteinsdóttir verður
með hugvekju, söngur, lofgjörð og fyrir-
bænaþjónusta. Kaffihlaðborð, þátttökugjald
kr. 350. Allar konur hjartanlega velkomnar.
Allt til útivistar á stórsýningu í Iþróttahöllinni á Akureyri um helgina.
Opið 10-18 laugardag og 12-18 sunnudag.