Morgunblaðið - 13.11.1999, Side 20
20 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LANDIÐ
Könnun fyrir Sorpeyðingu Eyjafjarðar og Endurvinnsluna
Eyfirðingar sagðir
umhverfisvænir
í KÖNNUN Ráðgarðs nýlega kom
í ljós að 98% Eyfirðinga flokka
plastflöskur með skilagjaldi frá
öðrum úrgangi. Hlutfall á skilum
annarra skilagjaldsskyldra um-
búða var örlítið lægra. 86% fólks
flokka spilliefni frá öðrum úrgangi,
65% flokka pappír og 21% flokkar
lífrænan úrgang frá öðrum úr-
gangi.
Könnunin var gerð fyrir Sorp-
eyðingu Eyjafjarðar bs. og Endur-
vinnsluna ehf. í lok september og
byrjun október sl. Nettósvörun var
71,7%. Einnig kom fram að 63%
finnst sanngjarnt það skilagjald
sem núna er á plast- og glerflöskum
og áldósum. Sama hlutfall er mjög
eða frekar hlynnt því að skilagjald
sé sett á umbúðir sem ekki bera
það núna, s.s. drykkjarfernur og
niðursuðudósir. Helmingur fólks
veit hvað jarðgerð lífræns úrgangs
er, a.m.k. að einhverju leyti.
Þá voru Akureyringar spurðir
hvernig þeir telji að umgengni bæj-
arbúa sé um bæinn. Niðurstaðan er
að 57% telja umgengni bæjarbúa
um bæinn vera mjög eða frekar
góða.
Þessi niðurstaða sýnir að Eyfirð-
ingar eru umhverfisvænir, eins og
þeir hafa alltaf verið, segir í frétta-
tilkynningu frá Sorpeyðingu Eyja-
fjarðar og Endurvinnslunni. Á und-
anförnum árum hefur endurvinnsla
á svæðinu farið vaxandi og mengun
af völdum spilliefna fer minnkandi.
Þannig er þróunin greinilega í rétta
átt en þó þurfa íbúarnir, fyrirtækin
og sveitarfélögin að gera enn betur
í þessum efnum.
Af hálfu sveitarfélaganna í hér-
aðinu er unnið markvisst að um-
hverfismálum, ýmist með gerð
Staðardagskrár 21 eða með öðrum
hætti. Lögð er áhersla á góða sam-
vinnu við héraðsbúa. Á döfinni er
m.a. gerð fræðsluefnis fyrir heimili
og fyrirtæki um meðhöndlun og
förgun sorps.
BÖSKUR
Morgunblaðið/Agúst Blöndal
Slagsíða á
Neskaupstað - Sumum Norðfirð-
ingum brá í brún nú á dögunum er
þeir sáu Börk NK þar sem hann lá
við bryggju og hallaði mikið. Ekki
var neitt alvarlegt að en ástæðan
fyrir hallanum á skipinu var að
Berki NK
smá viðgerð þurfti að framkvæma
á því neðan sjólfnu bakborðsmeg-
in og var þá brugðið á það ráð að
halla skipinu mikið til að hægt
væri að vinna verkið án þess að
skipið færi í slipp.
Morgunblaðið/Kristján
Höldur flytur
hj ólbarðaverkstæðið
HÖLDUR hefur flutt hjólbarða-
verkstæði sitt á Dalsbraut 1, Gler-
áreyrum. Mildð var að gera fyrsta
daginn á nýja staðnum, enda vökn-
uðu bæjarbúar við að nýfallinn
snjór var yfir öllu. „Þessi nýja að-
staða breytir miklu fyrir okkur og
við fengum svo sannarlega að prófa
nýju tækin með látum,“ sagði
Sveinn Bjarman, forstöðumaður
hjólbarðaverkstæðisins. Hann gat
þess jafnframt að þrátt fyrir að mik-
ið hefði verið að gera hefði hann á að
skipa öndvegis starfsmönnum sem
leyst hefðu verkefnin með sóma.
Núverandi húsnæði er mun
stærra en hið eldra og tækjabúnað-
ur betri. Á staðnum eru fimm affelg-
unarvélar, en þær voru þrjár og
fjórar lyftur í stað tveggja áður.
„Þetta er því mikil breyting til batn-
aðar,“ sagði Sveinn.
Morgunblaðið/Þórhallur Jónsson
Gunnar Austfjörð, Ólafur Jensson og Þröstur Vatnsdal, starfsmenn
ískrafts á Akureyri.
ískraft opnar útibií
Afengisverslun opnuð
á Fáskrúðsfírði
ÍSKRAFT í Kópavogi hefur opnað
útibú á Hjalteyrargötu 4 á Akureyri
og er um að ræða sölu- og þjónustu-
miðstöð fyrir Norðurland, þ.e.
svæðið frá Blönduósi til Vopnafjarð-
ar.
Framkvæmdastjóri Iskraft á Ak-
ureyri er Ólafur Jensson, en sölu-
fulltrúar þeir Gunnar Austfjörð og
Þröstur Vatnsdal.
ískraft er alhliða heildverslun
með raflbúnað, s.s. raflagnaefni, raf-
strengi, lýsingarbúnað, rafveituefni
og annað sem að raflögnum snýr.
Allar vörur fyrirtækisins eru boðn-
ar á sama verði hvort heldur við-
skiptin fara fram í Kópavogi eða Ak-
ureyri. Útibúinu er ætlað að veita
heildarþjónustu á sölu á rafiðnaðar-
vörum til rafverktaka, byggingar-
verktaka, hönnuða og fyrirtækja.
Með tilkomu útibúsins er ætlun
fyrirtækisins að bæta þjónustuna
við viðskiptavini sína á Norðurlandi
og auka um leið markaðshlutdeild
þess. Húsnæðið er rúmgott, um 560
fermetrar að stærð þannig að unnt
verður að hafa stóran lager norðan
heiða, sem ætti að vera raf- og
byggingaverktökum sem þurfa á
skjótri afgreiðslu að halda mikils
virði.
Marilyn
listamaður
mánaðarins
MARILYN Herdis Mellk er lista-
inaður mánaðarins í Listfléttunni
á Akureyri.
Hún er fædd í New Jersey í
Bandaríkjunum árið 1961 og er af
íslensku bergi brotin. Hún ólst
upp í Bandarílqunum en dvaldi á
Islandi á sumrin þangað til 1981
þegar hún fluttist til Islands.
Hún stundaði listnám við Calif-
ornia College of Art and Craft og
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands og þaðan útskrifaðist hún
1987 úr grafíkdeild. Fyrsta einka-
sýning hennar var haldin haustið
1997 og hefur hún tekið þátt í
fjökla samsýninga. Marilyn er fé-
lagi í íslenskri grafík, Sambandi
íslenskra myndlistarmanna og
grafíkfélaginu „Áfram veginn"
við Laugaveg lb.
Listfléttan er opin frá kl. 11 til
18 virka daga, laugardag frá
klukkan 11 til 14.
-----------------
Þensla
rædd á há-
degisfundi
VERSLUNARRÁÐ íslands efnir
til hádegisverðarfundar á Fosshót-
eli KEÁ næstkomandi mánudag,
15. nóvember, frá kl. 12 til 13.30.
Yfirskrift fundarins er „Þenslan -
hættumerki í efnahagsmálum“.
Framsögumenn verða þeir Þórð-
ur Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags-
stofnunar, og Einar Oddur Kri-
stjánsson alþingismaður.
Hagvöxtur hefur verið töluverður á
Islandi undanfarin tvö ár, tvöfalt
meiri en í helstu viðskiptalöndun-
um, en nýverið hafa sumir hins veg-
ar greint merki þenslu og aukinnar
verðbólgu. Á fundinum munu þeir
Þórður og Einar Oddur velta fyrir
sér hvort góðærinu sé að ljúka og
takmarka þurfi neysluna.
Fundargjald með hádegisverði
er 2.000 krónur. Fundurinn er öll-
um opinn en æskilegt að tilkynna
þátttöku fyrirfram hjá Verslunar-
ráði Islands.
Fáskrúðsfirði - Áfengisverslun rík-
isins hefur opnað vínbúð á Fá-
skrúðsfirði í samvinnu við Heild-
verslun Austurlands. Verslunin er
til húsa í Þór en þar var áður rekin
verslun í mörg ár.
I vínbúðinni verða 80 tegundir af
víni og bjór. Verslunarstjóri verður
Þóra Kristjánsdóttir sem á hús-
næðið ásamt Hermanni Steinssyni.
Verslunin verður opin alla virka
daga frá kl. 17-18 nema á föstudög-
um frá 16-18. Verslunin er hönnuð
af ÁTVR en um verkið sá Eyþór
Friðbergsson og fleiri.
Patreksfirði - Slysavamadeildin
Unnur á Patreksfirði hefur ár
hvert haldið jólabasar, þar sem
konur deildarinnar hafa selt hand-
verk sem þær hafa unnið. f ár var
ákveðið að breyta aðeins til og
koma í leiðinni með eitthvað nýtt.
Eitthvað sem ekki hafði verið gert
áður. Austurlenskt kvöld varð fyr-
ir valinu.
Patreksfirðingar og nágrannar
fjölmennt.u á Rabbabarinn eða
sjötíu manns. Þar var boðið upp á
mat frá 12 Asíulöndum og Mið-
Asíu.
Sú sem töfraði fram alla þessa
rétti heitir Árý Hinriksson. Árý er
búsett á Patreksfirði þar sem hún
kennir heimilisfræði við grunn-
í húsnæðinu Þór var opnuð við
sama tækifæri blóma- og gjafa-
vöruverslun. Eigandi hennar er
Guðríður Bergkvistsdóttm og heitir
verslunin Björk. Þessi búð verður
opin 14-18 virka daga auk þess sem
hún verður opin um helgai' frá kl.
14-16. Þess má geta að Guðríður er
jafnframt með umboð fyrir Úrval-
Útsýn.
Búðin er hönnuð af Guðríði en yf;
irsmiður var Valbjöm Pálsson. I
tengslum við opnunina á blómabúð-
inni var Eyjólfur Ólafsson með
málverkasýningu.
skólann ásamt ensku en hún er
ættuð frá Sri Lanka.
Spiluð var blönduð létt klassísk
dinnertónlist en það var Pólveij-
inn Makiej Tabor sem töfraði fram
þá tóna. Makiej Tabor er tónmenn-
takennari og jafnframt skólastjóri
tónlistarskólans á Patreksfirði.
Konur úr slysavamadeildinni
gengu um beina og vom þær allar
klæddar indverskum sari. Má með
sanni segja að kvöldið hafi tekist
með ágætum.
Að kvöldverði loknum tóku við
„The Baker sons“ sem kannski
mætti frekar kalla Bræðrabandið
því að það em bræðumir Sigmar
og Gestur Rafnssynir sem spiluðu
báðir á gítar og sungu.
Morgunblaðið/Birna Mjöll
Slysavarnakonur ásamt Árý Hinriksson og Makiej Tabor.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, Þóra Kristjánsdóttir og Her-
mann Steinsson við opnun áfengisverslunarinnar.
Austurlenskt kvöld
á Patreksfirði