Morgunblaðið - 13.11.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999
31
Christer Pettersson í viðtali við sænska sjónvarpið
Segir hugsanlegt að hann
hafi myrt Olof Palme
Stokkhólmi. Reuters, AFP.
CHRISTER Pettersson, sem á sín-
um tíma var dæmdur fyrir að
myrða Olof Palme, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, en síðan sýknaður,
sagði í fyiradag, að það væri hugs-
anlegt, að hann væri þrátt fyrir allt
morðinginn. Um það gæti hann þó
ekki fullyrt vegna þess, að hann
þjáðist oft af óminni eða tíma-
bundnu minnisleysi.
Pettersson sagði, að hugsanlega
hefði óminnishegrinn verið yfir
honum hinn örlagaríka dag, 28.
febrúar 1986, þegar Palme var
skotinn á götu í Stokkhólmi. Var
hann þá á heimleið úr kvikmynda-
húsi ásamt Lisbeth, konu sinni.
„Gæti hafa gert það“
„Eg held ekki, að ég hafi verið að
verki en ég gæti samt hafa gert
það,“ sagði Pettersson í viðtali við
sænska sjónvarpið. „Hafi ég beitt
byssu, hef ég gert það í hálfgerðu
meðvitundarleysi... Eg vaknaði síð-
ar upp í fangaklefa án þess að hafa
hugmynd um hvar ég var staddur."
Morðið á Olof Palme var mikið
reiðarslag Svíum og raunar fólki
um allan heim og það er mestur
glæpur í Svíþjóð síðan Karl Gústaf
III var myrtur á grímudansleik
1792.
Pettersson, sem er áfengissjúkl-
ingur, fíkniefnaneytandi og þjófur,
sat einu sinni í fangelsi íýrir að
myrða mann með byssusting en
hann var dæmdur íyrir morðið á
Palme í júlí 1989. Þremur mánuð-
um síðar var hann sýknaður vegna
skorts á sönnunargögnum og fékk
um þrjár milljónir ísl. kr. í bætur.
Morðvopnið ófundið
Morðvopnið, Magnum-marg-
hleypa, hefur aldrei fundist og í
sumar er leið átaldi opinber nefnd
lögregluna og sakaði hana um að
hafa klúðrað rannsókninni og ekki
fylgt eftir vísbendingum.
Hingað til hefur Pettersson hald-
ið fram sakleysi sínu og ítrekað þá
sögu sína, að kvöldið er Palme var
myrtur hafi hann verið einn í lest á
heimleið eftir að hafa reynt að
verða sér úti um amfetamín í mið-
borginni.
Vilja meiri upplýsingar
frá Ocalan
Talsmaður ríkissaksóknara-
embættisins sagði, að yfirlýsingar
Petterssons hefðu vakið athygli
enda er unnt að taka upp málið ef
nýjar og nægar upplýsingar koma
fram.
Sænska lögreglan er enn að
vinna að Palme-morðinu og m.a. að
athuga kenningar um, að það hafi
Umdeilt mál í Bretlandi
Samkynhneigðu
pari falin umsjá
fósturbarns
MÁL tveggja ára drengs, sem var
fluttur frá fósturforeldrum sínum
og færður í umsjá samkynhneigðs
pars, hefur vakið mikla athygli í
Bretlandi. Svo virðist sem breska
þjóðarsálin sé ekki tilbúin að fallast
á þá skoðun að ættleiðingar séu
sjálfsögð mannréttindi samkyn-
hneigðra, því ýmsir hafa orðið til að
mótmæla fósturskiptunum.
Hjónum í Lewisham, einu út-
hverfi Lundúna, var falin forsjá
drengsins strax eftir fæðingu, en
læknar hafa nýlega skorið úr um að
hann þarfnist sérstakrar umönnun-
unar, en hann er aðeins nýbyrjaður
að ganga og hefur ekki enn lært að
tala. Félagsmálastofnun bæjarins
taldi sýnt að fósturforeldrar
drengsins byggju ekki við nægilega
góðar aðstæður til að sinna sér-
stökum þörfum hans, og komst því
að þeirri niðurstöðu að velferðar
hans yrði best gætt með því að
koma honum í fóstur annars staðar.
Fyrir valinu urðu tveir samkyn-
hneigðir menn, sem hafa verið í
sambúð um árabil. Mennirnir munu
um einnar viku skeið reyna að
tengjast drengnum á núverandi
fósturheimili hans, áður en þeim
verður falin umsjá hans í næstu
viku. Ensk lög gera þó aðeins ráð
fyrir að annar manhanna fari með
forræði yfir drengnum, jafnvel þótt
gagnkynhneigt fólk í hjónabandi
geti ættleitt sameiginlega.
Viðhorfín að
breytast
„Þeir eru mjög viðkunnanlegir
menn og ég ér ánægð með mála-
lyktir," sagði núverandi fósturmóð-
ir drengsins um verðandi upp-
alendur hans í samtali við The
Daily Telegraph. En þrátt fyrir að
núverandi fósturforeldrar séu sátt-
ir við fósturskiptin, hafa ýmsir látið
í ljós óánægju með að „rétturinn til
að alast upp hjá móður“ verði
„hafður af ‘ drengnum.
Þó er ljóst að viðhorfin til ætt-
leiðinga samkynhneigðra eru að
breytast í Bretlandi. Sú deild innan
ensku biskupakirkjunnar sem fjall-
ar um velferð bama ályktaði í sum-
ar að ekki ætti að byggja réttinn til
ættleiðinga á kynhneigð, og æðsti
dómari landsins í sifjamálum lýsti í
síðasta mánuði yfir stuðningi sínum
við rétt samkynhneigðra til ættleið-
inga.
Golfí
Keiluhöllinni
Aðeins kr. 1200,- klst.
% Golfhermir
® Krossaspegil
% Prektæki
Ath. Komið með hreinar
kúlur og kylfur!
%
KEILUHÖLLIN
---.— --- 1
Tímnnantanir f ííma
hugsanlega tengst afskiptum
Palme af alþjóðamálum. Hefur hún
farið fram á meiri upplýsingar frá
Abdullah Öcalan, Kúrdaleiðtogan-
um, sem nú situr í tyrknesku fang-
elsi, en hann hefur sagt, að Kesire
Yildrim, fyrrverandi eiginkona sín,
kunni að hafa staðið að baki morð-
inu.
Bjó hún í Svíþjóð í nokkur ár
snemma á síðasta áratug en tókst
aldrei að fá vegabréfsáritun fyrir
eiginmanninn. Þá vísuðu Svíar
einnig úr landi ýmsum félögum
hennar og Öcalans í Kúrdíska
verkamannaflokknum.
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa
Innlausnardagur 15. nóvember 1999.
1. flokkur 1989: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 1.239.537 kr. 123.954 kr. 12.395 kr.
1. flokkur 1990: Nafnverð: Innlausnarverð:
500.000 kr. 1.094.359 kr.
50.000 kr. 109.436 kr.
5.000 kr. 10.944 kr.
2. flokkur 1990: Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 kr. 2.194.943 kr.
100.000 kr. 219.494 kr.
10.000 kr. 21.949 kr.
2. flokkur 1991: Nafnverð: Inntausnarveró:
1.000.000 kr. 2.040.251 kr.
100.000 kr. 204.025 kr.
10.000 kr. 20.403 kr.
3. flokkur 1992: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 9.003.672 kr.
1.000.000 kr. 1.800.734 kr.
100.000 kr. 180.073 kr.
10.000 kr. 18.007 kr.
2. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 8.306.530 kr.
1.000.000 kr. 1.661.306 kr.
100.000 kr. 166.131 kr.
10.000 kr. 16.613 kr.
2. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 7.360.098 kr.
1.000.000 kr. 1.472.020 kr.
100.000 kr. 147.202 kr.
10.000 kr. 14.720 kr.
3. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 7.225.550 kr.
1.000.000 kr. 1.445.110 kr.
100.000 kr. 144.511 kr.
10.000 kr. 14.451 kr.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúóalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf
íbúðalánasjóður
I Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavfk | Sími 569 6900 | Fax 569 6800
opnar í dag á
laugavegi 41
ZARA
er komin til landsins
caris