Morgunblaðið - 13.11.1999, Side 36
36 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
NEYTENDUR
Salurinn, Kópavogi
Kammersveitin
Aldubáran
KAMMERSVEITIN Aldubáran
frá Færeyjum heldur tónleika í
Salnum í Tónlistarhúsi Kópvogs, á
morgun, sunnudag, kl. 16. Á efnis-
skránni er eingöngu tónlist eftir
færeyska tónskáldið Sunleif Ras-
mussen og verður hann viðstaddur
tónleikana. Verkin sem flutt verða
eru Hoyrdu tit havsins andalag,
Dansandi regndropar, Sum hin
gylta sól, Echoes of the Past og
frumflutningur á verkinu Mozaik/
Miniature.
Sunleif Rasmussen
Færeyska tónskáldið Sunleif
Rasmussen er fæddur á Sandur 19.
mars 1961, en er nú búsettur í Dan-
mörku. 16 ára gamall fór hann til
Óslóar og lærði þar tónfræði og
píanóleik. Árið 1984 hitti hann Atla
Heimi Sveinsson tónskáld og varð
það til þess að hann sneri sér að
tónsmíðum. Hann fluttist ásamt
fjölskyldu sinni til Danmerkur árið
1988 til að undirbúa sig fyrir inn-
tökupróf í Konunglega danska tón-
listarháskólann í Kaupmannahöfn
og lauk þaðan burtfai-arprófi í tón-
smíðum árið 1995. Hann er tilnefnd-
ur til Tónlistarverðlauna Norð-
urlandaráðs, íyrstur Færeyinga.
Sunleif segir að Hoyrdu tit hafs-
ins andalag sé eitt af fyrstu verkum
sínum fyrir hljóðfæri, samið 1984.
Dansandi regndropar var samið
fyrir danska og breska ríkisútvarp-
ið (BBC). Það var framflutt 1996 í
útvarpshúsinu í Kaupmannahöfn af
bresku kammersveitinni Capri-
com. Raindrops skrifað hann sem
undirbúning að fyrstu sinfóníu
sinni, sem verður framflutt í Norð-
urlandahúsinu í Færeyjum 1. apríl
árið 2000. Sum hin gylta sól er sam-
ið 1993 og er titillinn sóttur til gam-
als færeysks sálmalags. Echoes of
the Past var samið að beiðni Auðar
Hafsteinsdóttur fiðluleikara og var
framflutt og fékk verðlaun á Myrk-
um músíkdögum í Reykjavík 1993.
Síðasta verkið sem flutt verður á
tónleikunum á morgun, Mozaik /
Miniature, skrifaði Rasmussen fyr-
ir tónleikana í Salnum.
Rasmussen hefur hlotið ýmsar
viðurkenningar, m.a. hlaut hann
viðurkenningu frá danska tón-
skáldafélaginu 1993 og 1997 fékk
hann þriggja ára starfslaun frá
Statens Kunstfonds.
Kammersveitn Aldurbáran
Kammersveitin Aldurbáran er
skipuð þeim Andreu Heindriksdótt-
ur á flautu, Önnu Klett á klarínett,
0ssuri Bæk á fiðlu og Jóhannesi
Andreasen á píanó.
Kammersveitin var stofnuð árið
1995 af sjö ungum færeyskum tón-
listarmönnum. Sveitin er skipuð
flautu-, klarinett- og hornleikara,
tveimur fiðluleikurum auk gítar-
leikara og píanóleikara. Sveitin hef-
ur nú þegar frumflutt fjölda verka
eftir færeysk sem og annarra þjóða
tónskáld en færeysk tónlist er oft í
forgranni á efnisskránni. Aldubár-
an hefur auk fjölbreytts tónleika-
halds innanlands sem utan hljóðrit-
að fyrir bæði útvarp og sjónvarp.
Tónleikamir í Salnum era haldn-
ir á vegum Norðurlandahússins í
Færeyjum og er miðaverð 1.200 kr.
Tónleikamir standa í um 50 mínút-
ur og verður ekket hlé.
Salurinn, Kópavogi
Einleiks-
tónleikar
Guðna
Franzsonar
GUÐNI Franzson klarinettuleik-
ari heldur einleikstónleika í Saln-
um í Tónlistarhúsi Kópavogs á
morgun, sunnudag, kl. 20:30.
Guðni leikur nokkur af helstu
einleiksverkum líðandi aldar fyrir
klarínettu. Meðal höfunda sem eiga
verk á efnisskránni eru Stravinsky,
Messiaen, Berio, Boulez, Donatoni
og Reich auk Þórólfs Eiríkssonar
og Hauks Tómassonar.
„Klarínettan verður í aðalhlut-
verki en einnig verður músíkin leik-
in af diskum og tölvu. Ef til vill
verður þetta í síðasta skipti sem ég-
leik þessi verk. Heyra þau fortíð-
inni til eða er þetta upptaktur að
Guðni Franzson gengur í lið
með Kára á æfingu fyrir
tónleikana í Salnum.
framtíðarmúsík 21. aldarinnar?"
sagði Guðni.
Tónleikarnir era hluti af röð ein-
leikstónleika sem Caput-hópurinn
stendur fyrir í Salnum, Næstu ein-
leikstónleikar Caput í Salnum, era
sunnudagskvöldið 21. nóvember kl.
20:30, en þá leika þeir Eiríkur Öm
Pálsson á trompet og Sigurður Þor-
bergsson á básúnu.
Miðapantanir og sala í anddyri
Salarins alla virka daga frá kl. 9-16
og frá kl. 19-20:30 tónleikadaga.
Sönghópurinn
Gríma á síðustu tón-
leikum Norðurljósa
SÍÐUSTU tónleikar Norðurljósa,
tónlistarhátíðar Musica Antiqua í
Listasafni íslands, verða ámorgun,
sunnudag kl. 20.
Á tónleikunum syngur sönghóp-
urinn Gríma enska, franska og ít-
alska dansa og söngva frá endur-
reisnartímanum, m.a. eftir Susato,
Attagnant, Arcadelt, de Rore, Ga-
stoldi, Holborne og Dowland, en
verk eftir þann síðastnefnda skipa
stóran sess í efnisskránni.
Sönghópinn Grímu skipa þau
Kristín Ema Blöndal sópransöng-
kona, Guðrún Edda Gunnarsdóttir
altsöngkona, Gísli Magnason tenór-
söngvari og Benedikt Ingólfsson
bassasöngvari, en þau era öll félag-
ar í Schola Cantorum, kór Hall-
grímskirkju.
Hljóðfærahópinn skipa þau
Camilla Söderberg, Helga Aðal-
heiður Jónsdóttir, Ragnheiður
Haraldsdóttir og Þórdís Heiða
Kristjánsdóttir blokkflautuleikarar
ásamt þeim Ólöfu Sesselju Óskars-
dóttur gömbuleikara og Snorra
Emi Snorrasyni lútuleikara.
Ný könnun sýnir að gæðum grænmetis hefur hrakað
Tilviljun virðist ráða
gæðum gra'imietis
Morgunblaðið/Kristinn
Framkvæmt var gæðamat á jöklasalati, tómötum og grænni papriku
Gæðum á grænmeti hef-
ur hrakað á síðustu vik-
um samkvæmt nýrri
gæðakönnun. Hagkaup
er nú í neðsta sæti ás-
amt Nettó en í síðustu
könnun var grænmetið
best í Hagkaupi og
Fjarðarkaupum. Að
þessu sinni er besta
grænmetið í Sam-
kaupum.
KÖNNUNIN sem um ræðir var
gerð á vegum Samstarfsverkefnis
Neytendasamtakanna og ASI-fé-
laga á höfuðborgarsvæðinu en Mat-
vælarannsóknir Keldnaholti fram-
kvæmdu gæðamatið.
Ágústa Ýr Þorbergsdóttir, verk-
efnisstjóri samstarfsverkefnisins,
segir að könnun sem framkvæmd
var 8. október sl. hafi hæsta heild-
areinkunn verið 3,7 en í gæðakönn-
uninni sem fram fór í byrjun þess-
arar viku var hæsta
heildareinkunnin 3,3.
Samkaup með
hæstu einkunn
Hæstu heildareinkunn fær Sam-
kaup með 3,3, sem er jafnframt
sama einkunn og verslunin fékk í
síðustu könnun en þá var Samkaup
í fjórða sæti.
Ágústa segir að fjórar verslanir
deili öðru sætinu með heildareink-
unnina 3,2, Nýkaup, 10-11, 11-11
og Fjarðarkaup. Nýkaup fær sömu
einkunn og síðast, 10-11 hækkar
um 0,2 stig og 11-11 hækkar sig
mest eða um 1,2 stig.
Fjarðarkaup lækkar um 0,5 stig í
heildareinkunn. Þriðja sæti deila
Bónus og Nóatún
með heildareinkunn-
ina 3. Nóatún stend-
ur í stað en græn-
metinu í Bónus
hrakar samkvæmt
þessu um 0,5 stig frá síðustu könn-
un. Lestina reka síðan Hagkaup og
Nettó með heildareinkunnina 2,5.
Við þetta hrapar Hagkaup úr
fyrsta sæti og lækkar um 1,2 stig.“
Ágústa segir að ekki hafi verið til
græn paprika í Strax, sem skýri að
henni sé ekki gefin heildareinkunn,
en hún bendir á að verslunin komi
vel út í gæðamati á jöklasalati og
tómötum.
Þá bendir Ágústa á að sú breyt-
ing hafi orðið frá síðustu könnun að
allar verslanimar
nema ein séu famar
að selja erlenda
tómata í stað ís-
lenskra.
Gæðamat
Það var Valur N. Gunnlaugsson
sem vann gæðamatið íyrir Sam-
starfsverkefni NS og ASI
en hann hefur að sögn Ágústu
metið fjölda grænmetissýna. Gefn-
ar voru einkunnir fyrir útlits- og
bragðþætti og voru upplýsingar
skráðar á stöðluð eyðublöð. Sýna-
Samkaup var með
besta grænmetið að
þessu sinni
í þættinum Eldhús sannleikans
sem sýndur var í ríkissjónvarpinu
í gær, föstudag, var elduð lambal-
ifur og búið til rauðlauksmarmel-
aði. Gestir þáttarins voru Sigríð-
ur Amardóttir fjölmiðlakona og
Gunnar Dal rithöfundur.
Lambalifur fyrir
heimspekinga og
adra hugsuði
800 gr. lambalifur, skorin í 1 cm.
breiða strimla.
__________1 /2 lítri vatn____
1 dl. rauðvínsedik
hveiti, kryddsaltog pipar.
1 msk. matarolía
2 msk. smjör.
1 laukur, fínt saxaður.
1 dl. fínt saxað svínaflesk (beikon)
1 msk. kapers.
A. Blandið saman vatni og
rauðvínsediki, blandið saman
hveiti, kryddsalti og pipar. Setjið
lifrina í ediksblandað vatnið.
B. Takið lifrarsneiðamar upp
úr vatninu og þerrið þær. Veltið
þeim upp úr krydduðu hveitinu.
C. Setjið matarolíuna á pönn-
una. Þegar hún er orðin heit er
smjörið sett á pönnu. Þegar það
er bráðnað era lifrarstrimlarnir
snöggsteiktir báðum megin (15
sek. á hvorri hlið). Lifrin tekin af
pönnunni og sett í skál.
D. Setjið svínafleskið (beikon-
ið) og laukinn á pönnuna. Þegar
beikonið fer að taka lit og laukur-
Eldhús sannleikans
inn er orðinn mjúkur er kapers-
inn settur á pönnuna.
E. Lifrin er nú sett á pönnuna
og lok á hana. Lifrin er hituð í
augnablik, hún má ekki steikjast
meira.
Rauðlauks-
marmelaði
4 rouðir laukar, fínt saxaðir
_______1/2 dl. ólífuolía__
_________msk. smjör_______
2 msk. balsamic-edik
________tsk. sojqsósa_____
svartur pipqr.
Hitið olíuna í potti, setjið lauk-
inn í pottinn og steikið hann. Þeg-
ar hann er orðinn mjúkur er hit-
inn undir pottinum lækkaður og
lok sett á hann. 2. Laukurinn er
látin malla í pottinum í 15 mín. Þá
er balsamic-edikið sett í pottinn
og laukurinn steiktur áfram í um
10 mín. 3. Næst er smjörið sett í
pottinn og því næst sojasósan.
Laukurinn er svo kryddaður með
svörtum pipar eftir smekk. Berið
lifrina fram með rauðlauksmar-
melaðinu og hýðishrísgrjónum.
Pasta með
reyktum laxi
Svona gerir Sirrý:
_________500 g pasto___
(helsl ferskt eggjgpastg)
____________30 g smjör_____________
__________1 /2 (lítill) laukur_____
150 g reyktur lax
2 dl rjómi
Svartur pipar úr kvörn
Bræðið smjörið og látið laukinn
mýkjast í því án þess að dökkna.
B. Grófsaxið helminginn af lax-
inum og setjið hann út í ásamt
rjómanum. Hitið þetta varlega,
setjið það síðan í hnífakvörn og
búið til slétt mauk.
C. Skerið afganginn af laxinum
í mjóar ræmur. Sjóðið pastað.
Látið renna af þvi og hellið því í
skál.
D. Bætið laxasósunni við.
Hrærið þetta vandlega saman og
bætið við ögn af pipar. Blandið
laxaræmunum saman við og berið
réttinn strax fram. Borið fram
með tómatsalati.
Tómatsalat
Nokkrir fallegir tómatar
Örlítill, fínt skorinn laukur
__________fersk basilika_______
____________Olíusósa:__________
olífuolía,
__________hvítvínsedik,________
sglt og pipar
Tómatar skornir í þunnar
sneiðar og raðað á disk. Laukur
látinn yfir og dressingunni svo
hellt yfir. Miklu af ferskri basilíku
er stráð yfir og salatið látið bíða í
kæli í nokkra stund.