Morgunblaðið - 13.11.1999, Side 42
42 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 43
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
NY FJAR-
SKIPTALÖG
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur lagt fyrir AJþingi og
mælt fyrir nýju frumvarpi um fjarskiptalög, sem gilda
eiga um fjarskipti, fjarskiptaþjónustu og fjarskiptanet. Til-
gangur frumvarpsins er að stuðla að virkri samkeppni, sem
tryggi hag neytenda, atvinnulífsins og þjóðfélagsins í heild.
Við samningu frumvarpsins hefur einkum verið litið til
skuldbindinga íslands gagnvart Evrópska efnahagssvæð-
inu og nauðsynjar þess að tryggja samtengingu neta, svo
að viðskiptavinir ólíkra fjarskiptaneta geti haft samband
sín í milli og að fyrirtækjum, sem eiga þjóðbrautina eða
fjarskiptanetið og aðra innviði sé gert skylt að opna aðgang
að Netinu og annarri aðstöðu á sanngjörnum kjörum.
Það er talið nauðsynlegt að stuðla að raunverulegri sam-
keppni á markaðinum með því að jafna samkeppnisstöðu
fjarskiptafyrirtækja, t.d. með aðgangi að heimtaug og veita
markaðsráðandi fyrirtækjum aðhald, m.a. með bókhalds-
legum aðskilnaði.
Væntanleg lög eiga einnig að tryggja að ávallt verði til
öflug fjarskiptafyrirtæki á Islandi og að löggjöf hamli ekki
þróun upplýsingatækni og komi í veg fyrir tækniframfarir.
Meðal nýmæla í hinu nýja frumvarpi er númeraflutning-
ur, sem gerir símnotendum unnt að halda símanúmeri sínu
án tillits til þess við hvaða símafyrirtæki þeir skipta. Þetta
segir í skýringum með frumvarpinu, að sé forsenda fyrir
raunverulegri samkeppni í símaþjónustu, en samkvæmt
reglum EES ber aðildarríkjum að hafa innleitt númera-
flutning eigi síðar en 1. janúar 2000.
í ræðu sinni á Alþingi, er mælt var fyrir frumvarpinu,
sagði Sturla Böðvarsson, að Evrópuríkin hefðu komizt að
þeirri niðurstöðu, að gömlu símafyrirtækin yrðu ekki brotin
upp. Er það gert til þess að forðast offjárfestingu í dreifi-
kerfinu, flýta fyrir samkeppni og tryggja uppbyggingu fjar-
skiptakerfa þar sem saman færi ábyrgð á uppbyggingu og
þjónustu. Ráðherra sagði: „Þessi niðurstaða er skynsam-
leg, enda augljóst, þegar að er gáð, að ábyrgð á uppbygg-
ingu og viðhaldi fjarskiptanetsins um allt land er þeim mun
meiri þegar sami aðili þarf að svara kröfum viðskiptamanna
um verð og gæði þjónustunnar.“
Byltingin í fjarskiptum sem er að verða um þessar mund-
ir er eitt það mikilvægasta, sem er að gerast í atvinnulífi
þjóða heims um þessar mundir. Þess vegna er mikilvægt að
setja skynsamlegan lagaramma um þennan þátt atvinnu-
lífsins, eins og stefnt er að með frumvarpi ríkisstjórnarinn-
ar.
ÍSLENSK HÖNNUN
NÝTT SENDIRÁÐ íslands í Berlín sem teiknað er af
Pálmari Kristmundssyni hlaut afar góða dóma hér í
blaðinu í gær. Falk Jaeger, kunnur gagnrýnandi í Þýska-
landi, segir að „með sinni litlu en á sama tima stórkostlegu
sendiráðsbyggingu minni ísland á tilvist sína í Berlín á
áhrifaríkan hátt“. í gagnrýninni er til þess tekið að Pálmar
vísi í íslenska náttúru og íslenskar byggingarhefðir við hönn-
un hússins. Islenskt líparít er notað í klæðningu hússins og
undir hraunhellum af Reykjanesi logar rautt ljós sem minnir
á eldinn í iðrum landsins og tilfærslur jarðskorpunnar. í
steinsteyptum útvegg má svo fínna tilvitnun í bárujárnið
sem Islendingar hafa notað meira en aðrar þjóðir til að
klæða hús sín.
Þessi dómur er ánægjulegur. Hann segir okkur ekki að-
eins að vel hafí tekist til við hönnun þessa tiltekna húss í
Berlín heldur einnig að íslensk hönnun er sérstök, hefur ein-
kenni sem mönnum þykir skera sig úr. Eins og í öllum list-
greinum er það hið einstaka sem gefur hönnun gildi. íslend-
ingar eiga ekki langa sögu í hönnun eða arkitektúr en á und-
anförnum árum og áratugum hefur þjóðin meir og meir verið
að vakna til vitundar um mikilvægi þessarar listgreinar,
bæði fyrir menningu og viðskiptalíf. I þeim efnum getum við
lært af nágrannaþjóðum okkar sem hafa lagt mikla áherslu á
hönnun, ekki síst Finnar sem hafa til dæmis unnið markvisst
að samþættingu tækniiðnaðar og hönnunar með góðum
árangri. Er fjarskiptafyrirtækið Nokia eitt besta dæmi þess.
Hönnunardagurínn var haldinn í sjöunda sinn hér á landi í
gær. Með honum er réttilega minnt á mikilvægi þessarar
listgreinar. Takist okkur að rækta hið einstaka í íslenskri
hönnun leikur enginn vafí á að hún verður ekki aðeins gildur
þáttur í íslenskri menningu heldur og til eflingar íslensku
viðskipta- og atvinnulífí.
Þörf á endurskoðun fjarskiptalaga vegna tæknibróunar og EES
Gagnaflutningsþj ónusta
skilgreind sem alþjónusta
Þróun á fjarskiptasviði er geysiör og til
marks um það hefur samgönguráðherra lagt
fram á Alþingi nýtt frumvarp til fjarskipta-
laga einungis þremur árum eftir að Alþingi
samþykkti lög í þessum efnum. Nýja frum-
varpið, sem vísað var til samgöngunefndar í
gær eftir fyrstu umræðu, felur í sér víðtækar
breytingar á þessu sviði.
REYTINGAR á tækni, þjón-
ustu og alþjóðlegu lagaum-
hverfi fjarskipta ásamt
auknum umsvifum fjar-
skipta- og upplýsingatækni og nýjum
skuldbindingum samkvæmt samn-
ingnum um Evrópska efnahagssvæð-
ið hafa gert endurskoðun fjarskipta-
laga nauðsynlega, þó ekki séu nema
þrjú ár frá því gildandi fjarskiptalög
nr. 143/1996 voru sett, að því er fram
kemur í greinargerð með frumvarpi
til fjarskiptalaga, sem samgönguráð-
herra hefur lagt fram á Alþingi.
I athugasemdum með frumvarpinu
segir að það hvíli á tveimur megin-
stoðum. Annars vegar sé í því að finna
ákvæði sem eigi að stuðla að aukinni
samkeppni og tryggja aðgang allra
iandsmanna að ákveðinni lágmarks-
þjónustu, svokallaðri alþjónustu, en í
frumvarpinu er í fýrsta skipti lagt til
að gagnaflutningsþjónusta verði skil-
greind sem alþjónusta. Hér séu mark-
vert nýmæli á ferð sem geti haft mikla
þýðingu fyrir búsetu, atvinnuupp-
byggingu og lífskjör í landinu. Hins
vegar sé með frumvarpinu verið að
laga íslenska löggjöf að þeim tilskip-
unum sem gilda á Evrópska efnahags-
svæðinu um fjarskiptamál.
„Mikil umskipti hafa orðið í fjar-
skiptamálum í heiminum á undanföm-
um árum, bæði í tækni, þjónustu og
lagasetningu. Segja má að þróun síð-
ustu ára hafi gerbreytt hefðbundnum
fjarskiptum, þráðlaus samskipti setja
mark sitt á talsamband, gjald fyrir
millilandasamtöl fer lækkandi og sam-
runi fjarsldpta, fjölmiðlunar og einka-
tölva hefur byltingarkennd áhrif. Sam-
skipti framtíðarinnar munu að miklu
leyti byggjast á gagnaflutningum, svo
sem fjarvinnslu, fjarmenntun, fjar-
lækningum, heimabönkum og gagn-
vh-ku sjónvarpi,“ segir meðal annars.
Þá kemur fram að miklir möguleik-
ar opnist í almenna fjarskiptanetinu
með nýrri tækni, þar á meðal xDSL,
gagnaflutningstækni, eða með gagna-
flutningsstaðli eins og IP-staðlinum
(Internet Protocol). Nýtt almennt
farsímakerfi (UMTS) muni margfalda
gagnaflutningsgetu far-
síma sem aftur leiði til
þess að þá megi nota til
margmiðlunar. Meginat-
riði í lagaumhverfi hinna
nýju farsímakerfa liggi nú
þegar fyrir í Evrópu.
„Fjarskipta- og upplýsingamál
skipta íslendinga höfuðmáli. Mark-
miðið er því að Island verði í fremstu
röð tæknivæddra ríkja með ódýra og
góða fjarskiptaþjónustu. Alþingi og
stjórnvöld bera ábyrgð á því að
tryggja réttlátar leikreglur í fjar-
skiptamálum, leikreglur sem stuðlað
geta að aukinni velferð og hagsæld í
þjóðfélaginu. Leikreglur fjarskipt-
anna eru um margt frábrugðnar leik-
reglum annarrar atvinnustarfsemi
vegna þeirrar sérstöðu fjarskipta í
Evrópu að þau voru fyrst fyrir fáum
árum leyst undan einkaréttarvernd og
því er ekki talið tímabært að fella
ákveðna þætti fjarskiptaþjónustu, svo
sem samtengingu, reglur um opinn að-
gang að netum og alþjónustu undir al-
menna samkeppnislöggjöf. Má nefna
tvö dæmi því til sönnunar. Mikilvægi
þess að notendur geti auðveldlega haft
samskipti á milli fjarskiptaneta hefur
haft áhrif við setningu reglna sem
gilda á Evrópska efnahagssvæðinu
hér að lútandi. Annað sérkenni fjar-
skipta er að ríkisreknar símastjómir
áttu og ráku eina fullkomna fjar-
skiptanetið sem til var þar til einka-
réttur var afnuminn með lögum. Hin-
ar sérstöku reglur sem um fjarskipti
gilda í Evrópu eiga að stuðla að auk-
inni samkeppni með því að gera nýjum
fyrirtækjum kleift að hefja starfsemi á
markaðnum," segir síðan.
Frumvarpinu er ætlað að örva sam-
keppni á þessu sviði og jafnframt að
tryggja aðgang allra landsmanna að
gagnaflutningsþjónustu, auk talsíma-
þjónustu, sem kveðið er á um í gild-
andi lögum.
Notendur geta haldið
símanúmeri sínu
Meðal breytinga sem kveðið er á
um í frumvarpinu má nefna númera-
flutning, en hann gerir notendum
kleift að halda símanúmeri sínu án til-
lits til þess hjá hvaða símafyrirtæki
viðskiptin eru og á hvaða
númerasvæði þeir búa. Al-
mennt er þetta talin for-
senda íyrir raunverulegri
samkeppni í súnaþjónustu,
að því er fram kemur í at-
hugasemdum með frum-
varpinu, en samkvæmt tilskipun EES
ber aðUdarríkjum að hafa innleitt
númeraflutning ekki síðar en 1. janúai-
árið 2000. Það gUdir um almenna fasta
fjarskiptanetið og skal Póst- og fjar-
skiptastofnun setja nánari reglur um
númeraflutninginn, þ.á.m. hvenær
númeraflutningur mUli númerasvæða
og utan fasta fjarskiptanetsins skuli
innleiddur. HeimUt er fjarskiptafyrir-
tæki að innheimta hjá notanda, sem
var skráður hjá honum kostnað við
umskráningu með eingreiðslu, að því
er fram kemur í 33. gr. frumvarpsins.
I athugasemd með greininni segir að
kostnaður af umskráningu verði að
miðast við tUkostnað og eigi ekki að
hafa á neinn hátt þau áhrif að hindra
notendur í að skipta um þjónustuaðUa.
„Símanúmer geta skipt einstaklinga
og fyrirtæki miklu máli, enda kann að
fylgja því mikUl kostnaður og röskun
að skipta um símanúmer, t.d. auglýs-
ingar. Af þeirri ástæðu er meginregla
um númeraflutning mjög æsldleg fyrir
samkeppni á fjarskiptamarkaði. Eins
og sakir standa er ekki gert ráð fyrir
möguleika á númeraflutningi á mUli
númerasvæða, en Póst- og fjarskipta-
stofnun er ætlað að ákveða hvenær sá
möguleiki stendur opinn fyrir notend-
ur. Sömu sögu er að segja af númera-
flutningi utan fasta fjarskiptanetsins,
svo sem mUli farsíma og fastanets.
Póst- og fjarskiptastofnun ber að
tryggja númeraflutning utan almenna
fasta fjarskiptanetsins eins fljótt og
auðið er,“ segir ennfremur.
Þá er að finna í frumvarpinu
ákvæði um innlenda reikisamninga en
þeir þýða að innlend farsímafyrirtæki
eiga aðgang að farsímanetum annarra
fyrirtækja þegar uppbygging eigin
aðstöðu er talin óraunhæf. Segir að
með slíkum samningum sé því unnt að
koma á virkri samkeppni i farsíma-
þjónustu á öllu landinu. „Innlendir
reikisamningar eru ekki orðnir hluti
af löggjöf EES en njóta vaxandi fylg-
is, m.a. vegna umhverfis-
og byggðasjónarmiða, auk
þess sem það kann að vera
þjóðhagslega hagkvæmt
að lágmarka tUkostnað við
þjónustu við notendur.
Einstök ríki, svo sem
Bandaríkin, Kanada, Danmörk og
Noregur, hafa þegar lögbundið
skyldu fjarskiptafyrirtækja í farsíma-
þjónustu tU að gera með sér innlenda
reikisamninga," segir einnig.
Réttur til aðgangs
að heimataugum
Einnig er í frumvarpinu kveðið á
um lögvarinn rétt fjarskiptafyrirtækis
til að leigja aðgang að heimataug til
notanda af markaðsráðandi fjar-
skiptafyrirtæki. Segir að vegna ára-
tuga einkaréttar símastjóma í Evr-
ópu á fjarskiptum sé almennt aðeins
eitt fjarskiptanet sem nái til allra not-
enda. Því þurfi ný fjarskiptafyrirtæki
að fjárfesta verulega í eigin netum
ætli þau að ná tU notenda almennt og
aðgangur að heimataug sé því mikU-
vægur til þess að örva samkeppni.
Aðgangur að heimataug sé ekki orð-
inn hluti af fjarskiptareglum EES en
ýmis aðildarríki hafi þegar lögbundið
slíkan aðgang, þ.á m. Danmörk,
Finnland, Holland, Austum'ki og
Þýskaland og fleiri muni bætast í
þann hóp. Þá hafi aðilar eins og
OECD og Alþjóðabankinn lagt mikla
áherslu á að ríki setji ákvæði þessa
efnis inn í löggjöf sína vegna þeirra
jákvæðu áhrifa sem það hafi á við-
gang upplýsingaþjóðfélagsins og hag-
vöxt. Fastagjald vegna heimtaugar
muni hins vegar hækka þar sem það
sé nú lægra en tilkostnaður við hana,
en á móti komi að samkeppni um
þjónustuna ætti að leiða tU lægra
verðs til lengri tíma litið.
Þá eru í frumvarpinu ákvæði sem
draga úr afskiptum ríkisins af fjar-
skiptafyrirtækjum og einstaklingum
og fyrirtækjum er auðvelduð leið inn
á markaðinn. Meginreglan sé sú að
ekki þurfi leyfi tU rekstrar fjarskipta-
fyrirtækis, en þó muni áfram þurfa
rekstrarleyfi til starfrækslu talsíma-
þjónustu, farsímaþjónustu og fjar-
skiptanets. Þá er mælt fyrir um opinn
aðgang að fjarskiptanetum, auk sam-
tengingar og réttar og skyldu fjar-
skiptafyrirtækja.
Samhliða þessu frumvarpi er flutt
frumvarp að nýjum lögum um Póst-
og fjarskiptastofnun, þar sem stofn-
uninni eru tryggð aukin úrræði til að
rækja það stóra hlutverk sem henni
er ætlað í fjarskiptalögum.
Um alþjónustu er fjallað í IV. kafla
laganna. Þar segir að Póstr og fjar-
skiptastofnun geti mælt íyrir að
rekstrarleyfishafar skuli veita alþjón-
ustu á starfssvæði sínu, en til alþjón-
ustu teljist meðal annars talsímaþjón-
usta, gagnaflutningsþjónusta og þjón-
usta við fatlaða eða notendur með sér-
stakar þjóðfélagsþarfir.
Getur stofnunin ákveðið há-
marksverð og lágmarks-
gæði alþjónustu. Telji
rekstrarleyfishafinn að
þjónustan sem honum sé
gert skylt að veita sé óarð-
bær getur hann krafist þess að honum
verði með fjárframlögum tryggt eðli-
legt endurgjald fyrir þá starfsemi sem
um ræðir. Til að standa straum af þeim
skal innheimta jöfnunargjald sem
rennur til Póst- og fjarskiptastofnunar.
Skal jöfnunargjaldið lagt á fjarskipta-
fyrirtæki sem veita þá þjónustu sem
fellur undir alþjónustu í hlutfalli við
bókfærða veltu á viðkomandi þjónustu-
sviði. Skal ákveða jöfnunargjaldið ár-
lega með lögum. Eru þessi ákvæði
samhljóða ákvæðum í gildandi lögum.
T
Lögvarinn
réttur til að'
gangs að
heimataug
Ákvæði
sem heimila
innheimtu
jöfnunargjalds
Tilraunaverkefni um þjónustumiðstöð í Grafarvogi staðið yfir í tvö ár
Markmiðið að færa
grunnþj ónustu samfé-
lagsins nær íbúunum
íbúar Grafarvogs í Reykjavík hafa í rúm
tvö ár getað sótt alla sína félagslegu þjón-
ustu og meira til í miðstöð eina í Langarima
sem hlotið hefur nafnið Miðgarður. Arna
Schram gerir hér grein fyrir starfseminni
og ræðir við framkvæmdastióra Miðgarðs,
--------- —------7----------------------
Regínu Asvaldsdóttur.
MIÐGARÐI eða fjölskyldu-
þjónustunni í Grafarvogi
eins og hún er gjarnan köll-
uð var komið á fót hinn 13.
september árið 1997 og er stofnun
hennar hluti af tilraunaverkefni
Reykjavíkurborgar sem sett var á
laggirnar á grundvelli laga um
reynslusveitarfélög sem gildi tóku
vorið 1994. Tilgangur laganna er í
stuttu máli að gera einstökum sveitar-
félögum kleift að gera tilraunir til að
auka sjálfsstjórn þeirra, laga stjórn-
sýslu þeirra betur að staðbundnum
aðstæðum, nýta betur fjármagn hins
opinbera og bæta þjónustu við íbúana.
Með þetta að leiðarljósi hóf Miðgarð-
ur starfsemi fyrir rúmum tveimur ár-
um og geta íbúar Grafarvogs nú sótt
þangað alla þá félagslegu þjónustu
sem í öðrum hverfum heyrh' beint
undir stofnanir Reykjavíkurborgar á
borð við Félagsþjónustuna, Barna-
verndamefnd Reykjavíkur, Leikskóla
Reykjavíkur og Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur.
I Miðgarði er til að mynda hægt að
sækja um fjárhagsaðstoð, fá heima-
þjónustu við heimili aldraðra, sjúk-
linga og öryrkja og sækja um dag-
gæslu í heimahúsum. Þá er þar tekið
á móti umsóknum um leikskólapláss
og húsaleigubætur svo fleiri dæmi séu
nefnd og leik- og grunnskólar hafa
þar aðgang að sálfræðiþjónustu. „Að
auki starfar í Miðgarði sérstakur for-
varnarfulltrúi lögreglunnar en hann
er eini lögreglumaðurinn á landinu
sem ekki hefur aðsetur á lögreglu-
stöð,“ útskýrir Regína Ásvaldsdóttir,
framkvæmdastjóri Miðgarðs. Hlut-
verk forvarnarfulltrúans er m.a. að
halda utan um yfirheyrslur vegna
bama og unglinga í hverfinu, auk þess
sem hann sinnir ýmsum sérverkefn-
um sem tengjast forvamarmálum,
eins og starfsheiti hans gefur reyndai-
til kynna.
Sennilega yrði of langt mál að rekja
hér alla þá starfsemi sem fram fer í
Miðgarði en auk þeirrar starfsemi
sem þegar héfur verið tilgreind mætti
nefna hópstarf fyrir börn og unglinga
í samvinnu við félagsmiðstöðina Gufu-
nesbæ og verkefni íþrótta- og tóm-
stundaráðgjafa Miðgarðs, svo dæmi
séu tekin. Markmið hópstarfsins er
m.a. að ná til félagslegra einangraðra
barna í hverfinu, á aldrinum 13 til 15
ára, með það í huga að þau læri að
starfa saman í hópi, rækta með sér
vináttu og efla sjálfsmat sitt og traust
og íþrótta- og tómstundaráðgjafi hef-
ur m.a. gegnt því hlutverki að byggja
upp félagsstarf í Engjaskóla og vera í
forsvari fyrir ákveðin forvamarverk-
efni. Til að mynda var farið í sérstakt
átak í Rimahverfi á sínum tíma, segir
Regína, en í hverfinu hafði átt sér
stað mikil hópamyndun unglinga sem
hafði neikvæð áhrif á ímynd hverfis-
ins. „I dag er Rimahverfi hins vegar
eitt af þeim hverfum í Reykjavíkur-
borg þar sem afbrotatíðni er hvað
lægst,“ segir Regína.
Markmiðið að gera þjónustuna
skilvirkari og ódýrari
Eins og dæmin hér á undan sýna er
starfsemi Miðgarðs fjölbreytt og hef-
ur umfang hennar vaxið jafnt og þétt
þau ár sem Miðgarður hefur verið
starfandi. Átta starfsmenn unnu á
skrifstofu Miðgarðs í ársbyrjun 1998 í
sjö stöðugildum en í lok ársins vom
starfsmennimir orðnir 16 í 14,9 stöðu-
gildum. Nú em þeir hins vegar orðnir
25 í átján og hálfu stöðugildi, að sögn
Regínu. Einnig starfa þar að jafnaði
um 40 manns við heimaþjónustu og
liðveislu við fatlaða.
Regína segir að starfsmönnunum
fjölgi í takt við fjölgun íbúa hverfisins
og aukningu þem-a verkefna sem mið-
stöðin tekur að sér. „Um 1.500 manns
flytjast til Grafarvogs að jafnaði á ári
hverju og er það eina hverfið í
Reykjavík þar sem íbúum fjölgar. í
öðmm hverfum stendur íbúatalan í
er líka mikilvægt að flokka ekki þá
sem njóta þjónustunnar eftir vanda-
málum heldur eftir óskum og þörfum
hvers og eins.“
Regína neitar því aðspurð að hverf-
isþjónusta á borð við Miðgarð kosti
samfélagið meira og bendir í því sam-
bandi á að í raun sé verið að færa fjár-
magn frá einni borgarstofnun til ann-
arrar. Auk þess bendir hún á að yfir-
stjórn þjónustumiðstöðvar á borð við
Miðgarð sé ekki íburðarmikil, eins og
nánar verður vikið að síðar. „Óslóar-
borg hefur tíu ára reynslu af kerfi
sem þessu og er það einróma niður-
staða þeirra sem þar starfa að kerfið
leiði til spamaðar og hagræðingar."
Rekstrarkostnaður Miðgarðs nam
á síðasta ári tæpum 122 milljónum
króna og var tæpum fímm milljónum
króna minni en fjárhagsáætlun gerði
ráð fyrir. Stærsti hlutinn eða um 45%
er útgjöld vegna fjárhagsaðstoðar.
Rúmlega 37% af kostnaðinum kemur
tO vegna rekstrar skrifstofunnar og
tæplega tíu prósent eru kostnaður
vegna heimaþjónustu.
Engir millisijórnendur
Hverfisnefnd fer með stjóm Mið-
garðs í Grafarvogi og er hún skipuð
48%
Hversu góða eða slæma
Mjög þjónustu hefur þú eða
góða einhver sem þú þekkir
fengið í Miðgarði,
þegar á heildina
er litið?
Frekar góða
o
:; o
o
i
■V
Hvorki né / í meðallagi
2% Mjög slæma
Æl
@
*
TtH
nWI
stað eða minnkar," segh- hún. Þegar
Regína er spurð að því hvort íbúar
Grafarvogs fái fyrir vikið meiri og
betri félagslega þjónustu en íbúar
annarra hverfa í Reykjavík segir hún
að þeir fái í það minnsta heUdstæðari
þjónustu. „Eg myndi segja að þeir
fengju fjölbreyttari þjónustu en aðrir
og hana geta þeir sótt á einn og sama
staðinn," segir hún.
Regína bendir á að þarna séum við
einmitt komin að kjarna þeirrar hug-
myndafræði sem stendur að baki til-
raunaverkefninu með Miðgarði.
Kjarninn er fyrst og fremst sá að
færa grunnþjónustu samfélagsins
nær íbúunum. Þannig megi auka
þjónustuna, gera hana skilvirkari og
ódýrari þegar til lengri tíma er litið.
Sem dæmi segir Regína að sífellt
meira fé sé varið í aukna velferðar-
þjónustu samfélagsins. Hættan sé
hins vegar sú að þjónustukerfið
verði svifaseint og að margir aðilar
komi til að mynda að málefnum einu
og sömu fjölskyldunnar í hinum
ýmsu stofnunum borgarinnar.
„Þetta vandamál er þó ekki ein-
göngu bundið við ísland heldur hef-
ur þróunin verið svipuð á hinum
Norðurlöndunum. Margar borgir
eins og Ósló, Stokkhólmur, Kaup-
mannahöfn, Þrándheimur og Gauta-
borg hafa því brugðið á það ráð að
færa þjónustuna meira út í hverfin,
enda er fyrirmynd okkar verkefnis
m.a. sótt til þeirra borga.“ Regína
segir ennfremur það vera tilhneig-
ingu fagstétta að auka sérhæfingu
sína en bendir jafnframt á að þeir
sem eigi að njóta þjónustunnar hafi
ekki endilega sérhæfðar þarfir. „Það
fimm mönnum. Þar af eru þrír kosnir
hlutfallskosningu af borgarstjórn og
tveir eru tilnefndir af Ibúasamtökum
Grafarvogs. Hverfisnefndin fer með
ákveðin verkefni í umboði borgar-
stjómar í þeim málaflokkum sem
hverfismiðstöðin er ábyrg fyrir. Má
þar nefha verkefni fræðsluráðs, verk-
efni íþrótta- og tómstundaráðs, verk-
efni félagsmálaráðs og verkefni
stjómar leikskólaráðs. Regína leggur
áherslu á að hverfisnefndin hafi ekki
völd til þess að taka ákvarðanir í ofan-
nefndum málaflokkum en mikilvægi
hennar felist m.a. í því að ýta á eftir
ýmsum hagsmunamálum Grafarvogs-
búa innan borgarkerfisins. „Þó að
hverfisnefndin hafi takmörkuð völd er
hún alltjent fyrsta tækið sem Grafar-
vogsbúar hafa til þess að þróa lýðræð-
isleg vinnubrögð í stjómsýslunni.
Þetta er með öðmm orðum fyrsta
skrefið í þá átt að íbúar geti haft meiri
áhrif á umhverfi sitt. Hverfisnefndin
er þannig ákveðinn vettvangur þar
sem fólk getur komið skoðunum sín-
um á framfæri,“ segir Regína. ,A-uð-
vitað hafa allh’ Reykvíkingar aðgang
að borgarfulltrúum en til þeirra er yf-
irleitt leitað vegna persónulegra mál-
efna. Mál sem hverfisnefndin tekur
hins vegar upp fær formlega af-
greiðslu og eftir því er ýtt innan borg-
arkerfisins," bætir hún við.
Regína skýrir frá því að hugmyndin
um lýðræðisleg vinnubrögð nái einnig
inn í starfsemi Miðgarðs og bendir á
að þar séu ekki neinar deildir eða
millistjómendur heldur séu allir
starfsmenn verkefnisstjómar hver
með sitt ábyrgðarsvið. „Almennt er
tilhneiging tH þess í kerfinu að byggja
Morgunblaðið/Jim Smart
Regína Ásvaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri fjölskylduþjónust-
unnar í Grafarvogi, sem hlotið hef-
ur góðar móttökur Grafarvogsbúa.
upp stjórnunarpýramída þar sem
erfitt hefur verið að fá fólk neðst í
pýramídann. Með þessu kerfi okkar
höfum við á hinn bóginn haft meiri
möguleika á því að laða að hæft fólk
til að vinna beint með þeim sem nýta
sér þjónustuna. Starfsmenn Miðgarðs
hafa fjölbreytta menntun og bak-
grunn og höfum við líka náð þeim ár-
angri að auka jafnræði kynjanna á
vinnustaðnum. Karlmönnum fjölgar
jafnt og þétt á skrifstofunni ólíkt því
sem oft gerist á sambærilegum stofn-
unum. Hins vegar eigum við við
starfsmannaeklu að stríða í heima-
þjónustu og öðrum málaflokkum eins
og aðrar borgarstofnanir," segir hún.
Hefur hlotið góðar viðtökur
I tOefni þess að nú eru rúmlega tvö
ár síðan Miðgarður hóf starfsemi hafa
verið gerðar viðhorfs- og/eða þjón-
ustukannanh’ á starfseminni. í við-
horfskönnun sem náði til fjórða hvers
heimOis í Grafarvogi (úrtakið var 1000
manns) kemur m.a. fram að ríflega
75% aðspurðra á aldrinum 17 til 75
ára hafi heyrt um Miðgarð og að tæp-
lega 75% þeirra sem hafa heyrt um
Miðgarð séu jákvæðh’ gagnvart hon-
um. „Langflestir þeiiTa sem tóku af-
stöðu og þekktu til þjónustunnar í
Grafarvogi fyrir daga Miðgarðs telja
þjónustu Miðgarðs betri en þá þjón-
ustu sem fékkst áður en Miðgarður
var stofnaður,“ segir ennfremur í nið-
urstöðunum. Þá kom í ljós að 59% að-
spurðra höfðu heyrt um hverfisnefnd
Grafarvogs og að tæplega 75% þeirra
töldu að hún hefði skipt máli um aukið
aðgengi íbúa Grafarvogs að borgar-
kerfinu. Einnig kemur fram í niður-
stöðum þjónustukönnunar Miðgarðs,
sem gerð var á þessu ári, að ríflega
85% voru ánægð með þjónustuna sem
þau höfðu fengið hjá Miðgarði en
rúmlega 7% væru óánægð.
Um framhald starfseminnar segir
Regína að fyi-ir Alþingi liggi frumvarp
tO laga um breytingu á lögum um
reynslusveitarfélög þar sem lagt er tO
að gildistími laganna um reynslusveit-
arfélög verði framlengdur um tvö ár
eða tO 1. janúar árið 2002. „Helgast sú
tOlaga m.a. af því að sum þeirra tO-
raunaverkefna sem nú standa yfir
hófust seinna en ráð var fyrir gert og
er fyrirsjáanlegt að ekki verði fengin
af þeim nægileg reynsla áður en gOd-
istíminn rennur út.“ Regína segir að
vilji sé tO þess innan Reykjavíkur-
borgar að halda áfram starfsemi Mið-
garðs tO að minnsta kosti næstu
þriggja ára, enda hafi verkefnið hlotið
góðar undirtektir. Hún segir að ósk-
andi væri að hverfismiðstöðin færi í
enn meira samstarf við ýmsar ríkis-
stofnanir, þar sem ákveðnir þættir,
svo sem einfaldar afgreiðslur, yrðu
færðir út í hverfin. Þá segir hún að
æskOegt væri að slíkar miðstöðvar
risu einnig í öðrum hverfum borgar-
innar. „Eg myndi telja það mikOvægt
vegna þess að með miðstöð sem þess-
ari höfum við góða yfirsýn yfir hverfið
og þau viðfangsefni sem þar er við að
glíma.“